Vísir - 17.12.1938, Síða 2
V I S 1 R
VÍSI8
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
jCGe’ngið inn frá Ingólfsstræti).
S í m a r:
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Verð 2 krónur á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Hálfsögð
saga.
:-mm AC DONALD, fyrverandi
M forsætisráðherra Breta,
virðst ekki „eiga upp á pall-
borðið“ hjá Jónasi Jónssyni,
formanni Framsóknarflokksins,
að þvi er ráða má af forystu-
grein Tímans i fyrradag, sem J.
J. er höfundur að.
í grein sinni segir J. J. að Mac
Donald hafi ekki „sett England
á höfuðið“ í stjórnartíð ensku
socialistanna 1929—31, af því
að hann hafi verið verkalýðs-
sinni, heldur af þvi að hann hafi
verið „sérstakur aumingi og lít-
ilmenni“! Hann sé nú „fyrirlit-
inn í sínu landi“ og talinn þar
„aumasta dæmi um auðnuleys-
ingja í hópi stjórnmálamanna“,
enda látið „hégómleika, tildur
og augnabliks ginningar“
stjórna ákvörðunum sínum.
Um foringja verkamanna-
flokkanna á Norðurlöndum
segir J. J. hinsvegar, að þeir
hafi stýrt frændþjóðum okkar
með mikilli prýði „og vaxandi
viðurkenningu íhaldsflokkanna
í sínum löndum“, en þeir séu þó
eindregnir verkalýðssinnar.
En nú er þess að geta, að Mac
Donald hafði um langt árabil
verið hinn viðurkendi foringi
verkamannaflokksins enska og í
engu minni metum í flokki sín-
um en foringjar verkamanna-
flokkanna á Norðurlöndum í
sínum flokkum. Hinsvegar er
þess eklci að dyljast, að um
gengi verkamannaflokkanna í
þessum löndum hefir skíft mjög
í tvö horn. Á Norðurlöndum
hefir fylgi þessara flokka farið
jafnt og þétt vaxandi að und-
anförnu. Breski verkamanna-
flokkurinn hefir hins vegar átt
mjög í vök að verjast, og er það
ef til vill af því, að hann sé enn
á „gelgjuskeiðinu“,enda er hann
mikhi yngri en t. d. „bræðra-
flokkar“ hans í Danmörku og
Svíþjóð. En þar við bætist, að
uni margt er mjög ólíkt á kom-
ið með verkamönnunum á Bret-
landi og á Norðurlöndum. Og
ef það er svo, að Mac Donald
hafi „sett England á höfuðið“,
þá er það að sjálfsögðu ekki síð-
ur sök flokksins en hans sjálfs,
þvi að flolckurinn hafði . gert
liann að foringja sínum, og hafi
hann verið „sérstakur aumingi
og lítilmenni“, þá getur ekki
hjá þvi farið, að svipuðu máli sé
að gegna um flokkinn.
Nú er í rauninni svipuð saga
að gerast í Frakklandi, eins og
í Englandi 1931, þegar Mac
Donald sagði skilið við flokk
sinn, til þess að „bjarga land-
inu“. Daladier, forsætisráðherra
Frakka, hefir að vísu ekki sagt
skilið við sinn flokk, en hann
hefir slitið allri samvinnu við
þá flokka, sem undanfarin úr
lial'a verið i stjórnarsamvinnu
við liann. Hann hefir sannfærst
um það, að áframlialdandi
stjórnarsamvmna við þessa
flokka mundi leiða til glötunar
fyrir land og lýð, alveg eins og
Mac Donald liafði sannfærst um
það 1931, að verkamannaflokk-
urinn breski mundi steypa
Bretlandi í glötun, ef hann færi
áfram með völd og breytti ekki
um stjórnarstefnu.
Sama daginn sem Timinn
birtir grein J. J. um Mac Don-
ald, birtir blaðið einnig grein
um Daladier og það sem nú er
að gerast í Frakklandi. Ber
blaðið franska forsætisráðherr-
anum söguna hið besta og segir
að liann hafi nú brotið á bak
aftur „öfgarnar til vinstri“, til
þess að bjarga landi sinu frá
glötun. En það segir ekki sög-
una nema til hálfs, þvi að það
lætur í veðri vaka, að það sé að
eins vald eða öfgar kommún-
istaflokksins, sem Daladier hafi
brotið á bak aftur, í stað þess,
að hann hefir í því efni engan
mun gert á kommúnistum og
„ jafnaðarmönnum“.
Daladier vai- orðinn sann-
færður um það, að stjómar-
stefna „alþýðufylkingarinnar“
væri alveg að þvi komin, að
„setja Frakkland á höfuðið“.
Hann ákvað því að gerbreyta
um stjórnarstefnu, og láta
skeika að sköpuðu um „alþýðu-
fylkinguna“, eða bandalag
flokks síns við jafnaðarmenn og
kommúnista. En það varð til
þess, að þeir flokkar báðir sner-
ust á móti honum, og eru nú
jafnaðarmenn orðnir jafn hat-
ramir andstæðingar hans eins
og kommúnistar. Á því er eng-
inn munur. En Tíminn reynir að
láta líta svo út, sem „Blum og
hinir gætnari jafnaðarmenn“
séu hálft um hálft fylgjandi
hinni nýju stefnu Daladiers, í
stað þess að þeir hafa heitið
honum ævarandi fjandskap,
engu síður en kommúnistar!
Daladier sagði skilið við jafn-
aðarmenn, af þvi að hann vildi
ekki vera lengur verkfæri í
hendi þeirra, til að „setja Frakk-
land á höfuðið“. Timinn hrósar
hónum fyrir það, að liann hafi
brotið á bak aftur „öfgarnar til
vinstri“. J. J. úthúðar Mac Don-
ald fyrir að gera nákvæmlega
það sama. Og hann „þakkar sín-
um sæla“ fyrir það, að Fram-
sóknarflokkurinn eigi engan
mann, sem rækt geti hlutverk
hans hér á landi. En líklega á
Framsóknarflokkurinn þá eng-
an Daladier heldur!
Oslo 15. des.
Frakkar hefja snemma á
næsta ári að endurbæta og auka
verslunarflota sinn. Verða smíð-
uð mörg ný flutningaskip með
ríkisstyrk og er samanlögð smá-
lestatala þeirra 500.000. NRP—
FB.
BÖLUEFNI TIL KÍNA.
London 17. des. FÚ.
Þjóðabandalagsstjórnin hef-
ir ákveðið að gefa 4.000.000
skamta af bóluefni til Kína
og verða lyfin send frá Indó-
Kína. Er þetta önnur send-
ingin sem Þjóðabandalagið
lætur Kína fá til þessað berj-
ast á móti bólusýki.
Tillðgnm dr. Schachts dauffega tekið 1 Loudon.
Breskir fjánnálamern vilja ekki að
flóttamínnamáliö lé rotað til tflingar
ntflntoingsverslnn Þjóðverja.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London, í morgun.
Dr. Schacht, aðalbankastjóri þýska Ríkisbankans,
hefir nú lokið við að ræða tillögur sínar í
flóttamannamálinu, við breska stjórnmála-
og f jármálamenn. Tillögurnar hnigu í þá átt sem gert
var ráð fyrir í fyrra skeyti, að Gyðingum yrði leyft að
fara með nokkurn hluta eigna sinna úr landi, í þýskum
ríkisskuldabréfum, sem erlendar ríksstjórnir síðan
keyptu af flóttamönnunum, og notuðu verðbréfin til
kaupa á þýskum útflutningsvörum.
Bretar, sem áfellast Þjóðverja fyrir óheiðarlega við-
skiftasamkepni, og eru að grípa til aukinna ráðstafana
til þess að styðja útflutningsverslun sína, hafa tekið
dauflega í þessar tillögur.
Tillögur dr. Schachts hafa ekki enn verið lagðar fyrir
bresku stjórnina, heldur hefir dr. Schacht rætt þær við
helstu f jármálamenn og sérjfræðinga í viðskifta-ogþjóð-
hagsmálum og munu tillögurnar nú verða teknar til at-
hugunar af stjóminni, en dr. Schacht halda heimleiðis.
Að því er United Press hefir fregnað hafa f jármála-
menn ekki tekið þessum tillögum með neinum fögnuði.
Þeir eru ekkert hrifnir af því, að flóttamannavanda-
málið sé notað í því skyni, að auka vöruflutninga frá
Þýskalandi.
United Press.
Afstada CJbLambeplains gegn
Itdlum og Þjódvepjum
liardnai*.
Engin liernaðappéttindii handa Franco, nema
ítalir kalli heim meira af herafla sinum
á Spáni.
EINKASKEYTI TIL VlSIS.
London, í morgun.
Eitt höfuðumræðuefni fréttablaðanna í álfunni um þessar
mundir er hin fyrirhugaða Rómaborgarför Chamberlains —
hvaða tillögur Chamberlain muni leggja fyrir Mússólíni, til úr-
lausnar hinum miklu vandamálum, sem enn eru á döfinni og
eru Þrándur í Götu fyrir því, að Chamberlain geti orðið nokk-
uð ágengt með friðartillögur sínar. Þessi mál eru Spánarmálin
og Afríkumálin. Þrátt fyrir ýmsar flugufregnir um hið gagn-
stæða telur United Press, samkvæmt þeim heimildum, er áreið-
anlegar teljast, að afstaða Chamberlains gagnvart ítölum og
Þjóðverjum sé harðnandi.
En Spánarmálin og Afríkumálin verður að leysa. Um Spán-
armálin er það að segja, að það er eins og kviknað hafi einhver
von um, að úr kunni að rætast, þar sem engar stórorustur hafa
verið um skeið, og litlar líkur til, að nokkur úrslit geti orðið á
vígvöllunum í náinni framtíð, og því sé ekki fjarri að álykta,
að betur horfi, ef sáttatilraun yrði gerð. En hvað gerast mun
á Spáni er enn þá mjög í óvissu.
Unted Press telur, sam-
kvæmt nýfengnum upp-
lýsingum, að, Chamberlain
muni halda því fram í
ræðum sínum við Musso-
lini, að ekki sé unt að veita
Franco hernaðarréttindi
að svo stöddu, nema því
að eins, að ítalir kalli heim
frá Spáni verulegan hluta
þess herafla, sem þeir hafa
þar.
Chamberlain og Halifax
lávarður ætla sér alls ekki
að hvika frá grundvelli
þeim, sem þeir byggja á af-
stöðu sína gagnvart Spáni.
— þetta er talið ótvírætt
merki þess, að Chamber-
lain sé í þann veginn að
taka ákveðnari stefnu
gagnvart Itölum og Þjóð,-
verjum.
Það er ennfremur talið lík-
legt, að Afríkumálin beri á
góma í viðræðum hresku ráð-
herranna við Mussolini og Ci-
ano, einkanlega Suezskurðar-
málið, en önnur vandamál, er
varða Afríku, kunna einnig að
verða rædd. Flugufregnir um,
að Chamberlain muni slaka
mikið til gagnvart Mussolini,
hafa ekki við rök að styðjast,
en um það ganga nú miklar
flugufregnir, svo sem að rætt
verði um breska Somaliland,
jafnvel að Bretar láti það af
hendi; en hið sanna virðist það,
að afstaða Chamberlains gagn-
vart einræðisrikjunum sé að
harðna, og mjög ólíklegt að
liann muni bjóða slík fríðindi
sem heilar breskar nýlendur,
enda er því yfirlýst af honum
sjálfum, að það verði ekkert
samkomulag gert í Róm nema
að því tilskildu, að þingið sam-
þylcki það, en breska þingið hef-
ir alveg nýlega látið í Ijós vilja
sinn varðandi nýlendurnar, svo
að það virðist ólíklegt í fylsta
máta, að Chamberlain stingi
upp á að láta Mussolirii fá slík-
an bita sem Breska Somaliland.
United Press.
ANTHONY EDEN,
fyrrverandi utanríkismálaráðlierra Bretlands, er einn þeírra
stjómmálamanna Bretlands, sem sætt hafa harðri gagnrýni í
þýskum blöðum, enda er hann einna fremstur í flokki
þeirra, sem vilja enga undanlátssemi í skiftum við einræðis-
ríkin, og var það ágreiningur um þetta, sem olli því, að Eden
baðst lausnar. En þótt hann hafi margsinnis gagnrýnt stjórn-
ina fyrir utanríkismálastefnu hennar, er Eden enn talinn hklegt
ráðherraefni, og ef Chamberlain neyðist til að taka afstöðu
gagnvart einræðisríkjunum líka þvi, sem Eden vildi, er ekki
ólíklegt að hann fái aftur sæti í stjórninni, en þó sennilega
ekki sem utanríkismálaráðherra fyrst í stað. Er talað um, að
hann verði samveldismálaráðherra, en því embætti gegnir Mal-
colm MacD.onald nýlendumálaráðherra nú til bráðabirgða. —
Anthony Eden er nú í heimsókn í Bandaríkjunum og verið þar
ágætalega tekið. Hann hefir verið gestur Roosevelts í Hvíta
húsinu. Hér á myndinni er hann (t. li.) með einkaritara sín-
um.
Kynningarkvðld
Alliance Fraicaise.
Alliance Francaise hélt fyrsta
kynningarkvöld sitt s. 1. fimtu-
dag í Oddfellowhúsinu. Yara-
forseli félagsins Björn L. Jóns-
son setti fundinn um kl.'níú.
Fyrsta atriði á dagskránni var
það, að Jean Haupt sendikenn-
ari flutti slutt erindi um Frakk-
land á frönsku og var þvi mjög
vel tekið. Síðan flutti Sigurður
Nordal, háskólakennari fyrir-
lestur um París á íslensku, sem
var gerður liinn besti rómur að.
Næsti liður á dagskránni átti að
vera sá, að H. Edelstein léki á
hnéfiðlu, með undirleik Páls
ísólfssonar. Vegna veikinda gat
Edelstein ekki leikið, en Þór-
hallur Árnason lék í hans stað.
Léku þeir Páll ísólfsson nokk-
ur frönsk lög við ágætar undir-
tektir áheyrenda. Þá lásu þeir
upp og léku Björn L. Jónsson
og Magnús Jochumsson kafla,
þýddan á íslensku, úr liinu bráð-
skemtilega leikriti „Knock“ eftir
franska rithöfundinn Jules
Romains. Skemtu menn sér liið
besta við upplesturinn. Næst las
Jean Haupt upp kvæði á
frönsku eftir Victor Hugo. Var
flutningurinn hinn skörulegasti. -
Loks ávarpaði Pétur Þ. J.
Gunnarsson, stórkaupmaður,
forseti félagsins, fundarmenn.
Þakkaði hann sérstaklega öllum
þeim, sem lagt höfðu fram lið
sitt 'til þess að gjöra þennan
fund sem ánægjulegastan. Síðan
lýsti hann Alliance Francaise,
tilgangi þess og starfsháttum og
hvatti menn til þess að ganga í
félagið.
Var nú lokið hinum eiginlega
fundi, og hófst kaffidrykkja og
dans. Skemtu menn sér fram
yfir miðnætti. Um sjötíu manns
voru saman komnir og nokkrir
nýir meðlimir hættust félaginu.
Fundurinn hafði farið hið besta
fram, svo sem venja er til með
fundi félagsins.
„E G H E I T I E K K I
CHAMBERLAIN—“
I Bournemouth á Englandi
býr maður, er heitir Abraham
Richard Hewitt.
Er hann járnvörukaup-
maður, en þótt hann selji
mikið af járn-öskutunnum,
notar hann sjálfur trékassa.
Þetta er bannað í Bourne-
mouth. Hewitt var dreginn
fyrir dómara og var skipað
að brejda um sorpílát. Hann
neitaði.
— Látið þér aldrei undan?
spurði dómarinn Hewitt.
— Eg heiti ekki Chamber-
lain, svaraði Hewitt. — Þér
getið ekki komið, fram sem
Hitler við mig!
. Hewitt var dæmdur í 3
stpd. sekt strax og 5 sh. fyrir
hvern dag, sem hann breytti
ekki um sorpílát.
U. P. Red Letter.
Peningagjafir til Vetrarhjálparinnar.
Starfsfólk Sjóvátryggingarfél. ís-
lands kr. 175.50, Merkjasalan 11.
des. kr. 251.50, Áheit kr. 5.00,
Starfsfólk hjá Sjóklæðagerð Is-
lands kr. 76.00, Síra Jón Finnsson
kr. 10.00, Starfsfólk á Vitamála-
skrifstofunni kr. 70.00, Anna og
Árni Jóhannsson kr. 10.00, S. Ó.
kr. 5.00, Á. G. kr. 5.00, H. Þ. kr.
400.00, Frú Ellingsen kr. 20.00, J.
H. Vesturgötu 21 kr. 5.00. Kærar
þakkir. f. h. Vetrarhjálparinnar.
Stefán A. Pálsson.