Vísir - 11.01.1939, Page 2
VISÍ R
ÐAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsia: Hverfisgötu 12.
(Gengið inn frá Ingólfsstræti).
S í m a r :
Afgrei.ðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
Verð 2 krónur á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Eitt í dag -
Kað var sagt frá því í Alþýðu-
* blaðinu í gær eða í fyrra-
dag, að einn af þingmönnum
kommúnista hefði nýlega látið
svo um mælt á opinberum
fundi, að i rauninni ætti togara-
útgerðin helst að leggjast niður
með öllu. En þó að Alþýðublað-
ið hafi þessi ummæli kommún-
istans mjög að spotti, og telji
þau af mikilli heimsku töluð,
þá er það kunnara en frá þurfi
að segja, að sú skoðun, sem að
baki þeim felst, er eldri i land-
inu en kommúnistaflokliurinn.
Það er hin ganda kenning
Framsóknarflokksins, um tog-
araútgerðina sem kommúnist-
inn hefir með þessum ummæl-
um gert að sinni. En í rauninni
er liann þó vel að henni kojninn.
Þvi að hánn er sjálfur, komm-
unistaþingmaður sá, sem þetta
er haft eftir, framsóknarmaður
að fornu fari, og alinn upp i
þessari „barnatrú“.
Sjávarútvegurinn hefir frá
upphafi notið litils ástríkis af
Framsóknarflokknum. Flokk-
urinn hefir að.vísu ekki, sökum
kjósendafylgis sins i einstökum
kjördæmum, séð sér annað fært,
en að leggja smáútgerðinni
nokkurt lið i mestu þrengingum
hennar. En togaraútgerðin, eða
stórútgerðin“ hefir til skamms
tíma ekki að eins farið alls á
mis i þeim efnum, heldur hefir
hún verið lögð í einelti með
sköttum og lálögum og margs-
konar ójafnaði.
Á þessari afstöðu Framsókn-
arflokksins til togaraútgerðar-
innar, hefir nú síðustu mánuð-
ina virst vera einhver breyting
i aðsigi. Það var léð máls á því,
á siðasta þingi, að taka l>að til
athugunar, livort nokkur þörf
væri á því, að opinberar ráð-
stafanir yrðu gerðar þessari
grein útgerðarinnar til viðreisn-
ar. Nefnd var skipuð til að rann-
saka hag útgerðarinnar, og í
blöðum Framsóknarflokksins
var jafnvel látið i veðri vaka, að
ef rannsóknin leiddi það í ljós,
að útgerðin væri í eins miklum
nauðum stödd og af væri látið,
þá mundi sá flokkur ekki láta
sitt eftir liggja, til þess að rétta
við hag hennar. Og svo flutti
forsætisráðherrann liina frægu
ræðu þ. 1. des. s. 1. í þeirri ræðu
kvað við alt annan tón í garð
„stórútgerðarinnar“ en menn
höfðu átt að venjast af ráða-
mönnum Framsóknarflokksins.
Ráðherrann lét svo um mælt,
að stórútgerðin, sem lirundið
hefði verið „af stað af ötulum
og framsýnum mönnum,“ og
megnið af þunga þjóðarbúskap-
arins lagst á, hefði síðan orðið
„meginundirstaða annara fram-
fara og velmegunar þjóðarinn-
ar“. Og síðar í ræðunni sagði
hann, að með stöðvun togara-
flotans væri „ógæfan skollin
yfir“ þjóðina, bæði inn á við og
út á við, „og sjálfstæðið i hættu
fyrr en varir“. — Slíkri hættu
skildist mönnum, að ráðherr-
ann teldi að þjóðarnauðsyn væri
að afstýra.
En nú er „annað Iiljóð kom-
ið í strokkinn“ hjá Framsókn-
arflokknum. í „leiðara“ Tím-
ans s. I. laugardag sést þess eng-
inn votlur, að það sé talin nokk-
ur Jijóðarnauðsyn að afstýra
stöðvun togaraútgerðarinnar,
heldur sé þar að eins um að
ræða einkahagsmuni „aðstand-
enda“ þeirra fyrirtækja, sem
hættast séu komin og fyrst
hljóti að stöðvast. En hagsmun-
um þjóðarinnar eða „þörf
heildarinnar“ lcomi það ekkert
við!
„Okkur hefir líka borið af
leið“ í því éfni, að „tillitið til
þjóðarinnar hefir sljóvgast,“
sagði forsætisráðherrann i
fullveldisdagsræðunni. „Hin
hálfblindu stéttarsjónarmið,
hið miskunnarlausa stríð milli
flokkanna .... hefir glapið
okkur yfirsýn um þörf heild-
arinnar,“ sagði hann ennfrem-
ur. Og Framsóknarflokkurinn
virðist ætla að láta þau um-
mæli ráðherrans á sér sannast.
En hvað er þá að öðru leyti
orðið eftir af „fyrirheitum“
þeim, sem gefin voru i þessari
ræðu ráðherrans?
H.f. Valur.
Nýtt íitgeröarfélag
á ísafipdi.
Nýtt félag til útgerðar botnv.
Hávarðar Isfirðings.
27. des. vai' stofnað á Isafirði
útgerðarfélagið h.f. Valur. Hef-
ir félagið keypt botnvörpunginn
Hávarð ísfirðing af Landsbánk-
anum fyrir 140 þúsund kr. Inn-
borgað hlutafé er 35.500 kr.
Stærsti hluthafinn er ísafjarðar-
kaupstaður (bæjar-, hafnar- og
lóðasjóður) með 16 þús. kr.
Aðrir hlutliafar eru: Lúðvik Vil-
hjálmsson skipstjóri, Ágúst Jó-
hannesson versl.m., Soffía Jó-
liannesdóttir kaupkona, Ámi
Ingólfsson stýrimaður og Kaup-
félag ísfirðinga.
Stjórn félagsins skipa: Guðm.
G. Hagalín prófessor, Soffía Jó-
hannesdóttir og Kristján Jóns-
son frá Garðsstöðum.
Framkvæmdastjóri félagsins
verður Ágúst Jóhannesson.
(Vesturl.)
Hjúkronarkvema-
fðrín.
Þ. 15. janúar n.k. byrja hjúkr-
unarkonur að skrifa sig á á-
skriftarlista að för þeirri, sem
norrænar hjúkrunarkonur fara
hingað í júlí.
Segir danskt blað svo frá
þessu:
Lagt verður af sjað frá Oslo
þ. 19. júlí með Stavangerfjord
og komið aftur þ. 31. júlí. Skip-
ið tekur 695 farþega, en hinar
íslensku hjúkranarkonur hafa
tilkynt, að á Islandi sé enginn
sá samkomustaður til, sem
rúmi þær og rúmlega 600 gesti
þeirra og verða þvi 95 farþegar
með skipinu bara venjulegir
skemtiferðámenn.
Danskar hjúkrunarkonur
verða fjölmennastar, 225 sam-
tals. Hinar 375 skiftast milli
Finnlands, Noregs og Svíþjóðar.
Victop Emanuel og Mussolini fagna Chamber-
lain vid komu hans til Rómaborgar í dag.
EINKASKEYTI TIL VlSIS.
London, í morgun.
Mikill viðbúnaður hefir farið fram að undan-
förnu í Rómaborg undir komu Chamberlains
og Halifax lávarðs. Verður þeim tekið með
engu minni viðhöfn en Hitler, er hann kom þangað.
Borgin verður fagurlega skreytt og hvarvetna bresk og
ítölsk flögg, en múgur manns meðfram öllum götum,
sem ráðherrarnir aka uin. Victor Emanuel og Mússólíni
bjóða þá velkomna þegar eftir komuna.
Járnbrautarlest sú, sem Chamberlain og Halifax lávarður
fóru í til Rómaborgar fór yfir ítölsku landamærin við Modena
fsem liggur í 23 mílna fjarlægð frá ánni Po), í morgun kl. 4.45
eftir enskum tíma, og var öll venjulfcg tollskoðun látin niður
falla, en lestin hélt áfram til Genua eftir litla viðstöðu í Modena.
Öll morgunblöðin í Ítalíu bjóða Chamberlain og Halifax lá-
varð velkominn til Ítalíu, og á forsíðum þeirra allra- birtast
eingöngu greinar um þessa þýðingarmiklu heimsókn. Er farið
mjög lofsamlegum orðum um forsætisráðherrann og stjórn-
málaslefnu hans, og mjög vinsamleg ummæli viðliöfð í garð
Englendinga yfir höfuð, og lögð áliersla á það, að þessir stjórn-
málamenn túlki skoðanir enskn þjóðarinnar í heild, en nauð-
syn sé á vinsamlegi'i sambúð Itala og Englendinga.
Blaðið Messagero leggur þó áherslu á það, að menn skuli ekki
vera bjartsýnir um of, eða búast við stórfeldum árangri af þeim
viðræðum, sem nú fara fram í Róm. ítalir hafi þegar sett fram
þær kröfur, sem þeir muni halda fast við og ekki verði um þok-
að, og er þar átt við kröfur þær, sem Italir hafa gert á hendur
Frökkum. Hitt er einnig vitað að afstaða Frakka og Englend-
inga verður hin sama gagnvart kröfum ítala, og er talið að fult
samkomulag hafi náðst milli frönsku og ensku ráðherranna á
fundi þeirra i Paris í gær, sem stóð í eina klukkustund.
í Parísarblöðunum í morgun
er lögð mikil áhei-sla á það, að
skoðanir frönsku og bresku
stjórnarinnar, að því er kemur
til krafa ítala á hendur Frökk-
um, sé nákvæmlega eins —
breska stjórnin hafi gersamlega
fallist á að fylgja sömu stefnu
og franska stjórnin, en hún sé
sú, að Frakkar og ítalir geri
sjálfir út um deilumál sín, en
Bretar miðli þar ekki málum.
Blöðin eru á einu máli um, að
Chamberlain eigi ekki að miðla
málum og muni ekki gera það.
Blöðin hallast ennfremur að
þeirri skoðun, að tilgangslítið sé
að stofna til nýrrar fjögurra
velda ráðstefnu fyrr en aðal-
deilumál Itala og Frakka sé úr
sögunni, því að skilyrði til ár-
angurs af shkri ráðstefnu sé, að
þeir sem hana sækja, eigi ekki í
innbyrðis deilum, heldur geti
gefið sig að lausn þeirra við-
fangsefna, sem fyrir hendi eru,
i góðri samvinnu.
United Press.
Hlébarði brfst nt nr
bnri sínn og særir um-
sjónarmannlnn hættu-
Iega. *
Hörg hundrað manns hafa
leltað hans, en árangnrslaus*.
EINKASKEYTI.
London í morgun.
Sá atburður skeði í Paignton
í Devonshire, að hlébarði braust
út úr búri sínu, eftir að hafa
ráðist á og sært umsjónarmann-
inn stórlega. Strax og vitað var
um hvarf hlébarðans brá lög-
reglulið borgarinnar við, vopn-
aðist rifflum og hóf leit að hon-
u m, og mörg hundruð sjálf-
boðaliðar tóku þátt í leitinni og
höfðu byssur og alt það að
vopni, sem unt var að fá færi á.
Leitað var í alla nótí í borg-
inni og umhverfi hennar, en
leitin hefir engan árangur borið,
og stendur íbúum borgarinnar
stuggur af að hafa þennan vá-
\
Stannisg dregur sig i
hlé frá formannsstði f-
um í flokki sósiallsta.
Osló, í gær.
Stauning hefir dregið sig í hlé
sem formaður danska socialista
flokksins eftir f jörutíu ára virka
starfsemi í þágu flokksins. He-
detoft Hansen, ritari flokksins,
verður eftirmaður hans. NRP—
FB.
VIGTOR EMMANUEL
konungur Italiu og keisari Abessiniu tekur á móti bresku ráð-
lierrunum við komu þeirra til Rómaborgar,- — Hér sést mynd
af Victor Enunanuel, er liann var að koma úr heimsókn á
æskuheimili Mussolini. Með honum á myndinni er Ciano greifi,
tengdasonur Mussolini o. fl. —
Hersveitir* Franeos sækja
enn fram hjá Lerida.
Bareelona-stjórnin viðurkennip
að þeir sæki þar fram.
EINKASKEYTI TIL VlSIS. London, í morgun.
Fregnir frá vígstöðvunum í Spáni eru mótsagnakendar eins
og oft áður. Það virðist þó liggja ljóst fyrir, að Franco veitir
betur á Kataloníuvígstöðvunum, en stjórnarhernum á Estrema-
duravígstöðvunum. Þeir hafa rofið þar víglínu hersveita Fran-
cos á nokkurum stöðum og Franco hefir orðið að senda þangað
liðsauka, frá Suð.ur-Spáni og Kataloníu, en í tilkynningum Bur-
gosstjórnarinnar er dregið úr því, að stjórnarhernum hafi orðið
mikið ágengt þar syðra.
Hinsvegar tilkynnir stjórnin í Burgos, að hérsveitir hennar
sæki fram á Leridavígstöðvunum, þar sem hersveitir stjórnar-
innar eru á undanhaldi og búast við í aftari víggirðingaröð.
I opinberri tilkynningu stjórnarinnar í Barcelona eFþað viður-
kent, að uppreistarmenn hafi tekið þorpið Beppuig við Lerida-
veginn.
United Press.
Fjðrar borgir I Astraiíu í jfirvofandi
bættu vegna skúgarelda.
Tuttugu manns hafa favist en tiu er saknað.
Lnodon, í morgun.
llff ikil hitabylgja gengur nú
1 yfir Ástralíu og er hitinn
í Melbourne eitt hundrað
og þrettán gráður (á Fahren-
heitmæli) og er það miklu meiri
hiti, en áður hefir þekst þar í
borg.
Skógareldar miklir geisa í
Victoria um áttatíu og átta þús-
und fermílna svæði, og nálgast
óðfluga f jórar borgir, sem tald-
ar eru í yfirvofandi hættu, ef
hitarnir halda áfram, en þeir
hafa þegar verið langvarandi. .
Vitað er um að þegar hafa
tuttugu manns farist í eldinum,
en tíu er saknað. Miklir erfið-
leikar eru á öllu björgunar-
starfi, með því að eldurinn fer
mjög fljótt yfir, vegna hinna
miklu þurka og hitans, sem ver-
ið hefir I Ástralíu undanfarið.
Unitd Press.
gest vofandi yfir höfði sér. Leit-
inni verður haldið áfram í dag.
Setuliðið í Devonshire hefir
fengið skipun um að aðstoða
við leitina í dag, ásamt lögreglu-
liðinu og öllum sjálfboðaliðum,
sem fáanlegir eru til þess að
veita aðstoð sína.
United Press.
Slys á Isafirði
Maðup bíöur bana
af skoti.
Það sorglega slys vildi til á
Isafirði i gærkveldi, að ungur
maður, Kristján Edwald, sonur
Jóns Edwalds heitins konsúls,
beið bana af skoti, en hann var
einn i lierbergi sínu, og varð
mönnum ekki kunnugt um
þetta fyr en í morgun.
Kristján heitinn var tvitugur
að aldri og hinn mesti efnismað-
ur. Hafði hann nýlega lokið
námi í Verslunarskóla íslands,
og hafði þegar fengið góða at-
vinnu.
Er mikill liarmur kveðinn að
öllum aðstandendum, vegna
þessa skyndilega fráfalls.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: io kr. frá M. Þ.,
5 kr. frá Miss Kristbjörg Paulson,
Alameda, 512, Denny Way, Seattle,
Wash.y 2..kr. frá Jóriasi, 4 kr. frá
H. og 25 kr frá Öf)nu.
ELDUR I 16.000 SMÁLESTA
FARÞEGASKIPI.
Oslo í dag.
Eldur hefir komið upp í
breska farþegaskipinu Rumit-
hi á Suður-Kyrrahafi. Margt
farþega er með skipinu. Fjög-
ur skip frá Nýja Sjálandi
voru á leið á vettvang til
hjálpar, er síðast fréttist. Var
þá það skipið, sem næst er, í
300 sjómílna fjarlægð. Rum-
ithi er 16.000 smálestir. NRP
—FB.
Slys á Akranesi.
Maður verður fyrir
reimskifu og fót-
brotnar.
Það slys vildi til á Akranési
í gær, eftir að bátar voru komn-
ir að bryggju, að vélamaðurinn
á mb. Skirni, Jóhann B. Jóns-
son rann lil á gólfinu i vélar-
rúininu og varð fyrir reim-
skifu. Brotnaði annar fótlegg-
urinn um miðju, en auk þess
fékk hann sár á öklá og marð-
ist mikið.
Strax, að framfarinni hráða-
birgða-aðgerð vegna slýssins,
fór mb. Skírnir með manninn
liingað til Reykjavíkur, og var
liann lagður hér á sjúkrahús
i gærkveldi.