Vísir - 29.03.1939, Blaðsíða 3
VISIR
B .v. Jón Ólafsson kom
hingað árdegis í dag.
Hinn nýi togari Alliance, Jón Ólafsson, kom í morg-
un á 10. tímanum, allur flöggum skreyttur.
Fjöldi manns var á hafnarbakkanum, þegar liið nýja skip
lagðist upp að, fram undan vörugeymsluhúsum Eimskipafé-
lagsins.
Litilsháttar óhapp kom fyrir þegar Jón Ólafsson var að leggj-
ast upp að. Tók hann þá ekki eins fljótt við stýri eins og skip-
stjóri og hafnsögumaður áttu að venjast frá Hannesi ráðherra
og braut skipið staur í uppfyllingunni. Við þetta kom örlítið
gat á stafn skipsins í vatnsborði.
Vísir átti tal við Guðmund Markússon, skipstjóra, í morgun
og spurði liann um ferðina. Kvað hann veðrið liafa verið frekar
gott alla leið, svo að þeir fengu skjóta ferð og góða. Þeir liefði
því ekki kynst skipinu i vondu veðri. Vélin hefði gengið vel
og alt liti hið besta út með skipið.
Jón Ólafsson fer að líkindum á veiðar eftir 2—3 daga. Þarf
að losa kol úr tveim lestum og ganga frá pappírum o. þ. h. áður
en skipið fer á veiðar.
Þrír þingmenn, Jóhann Jósefsson, Finnur Jónsson og Páll
Zophoníasson flytja eftirfarandi tillögu til þingsályktunar um
ákvörðun sérstaks tímareiknings:
Svoliljóðandi gi-einargerð fylgir: .
AJþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að neyta heimildar
laga nr. 8 16. febr. 1917 til þess að ákveða með reglugerð, að
klukkan verði færð fram um eina stund frá svonefndum is-
lenskum meðaltíma og verði 1 klukkustund og 28 mínútum á
undan miðtíma Reykjavíkur á tímabilinu frá 2. sunnudegi í
apríl til 1. sunnudags í október.
Tillaga þessi er flutt í þvi skyni, að gefa mönnum kost á að
njóta betur sólar heldur en alment er nú, með þeim tímareikn-
ingi, er tíðkast hér á landi. Mun almennur áhugi fyrir þessu, og
hafa raddir komið fram um það í flestum blöðum landsins.
Flutningsmenn hafa snúið sér til póst- og símamálastjóra og
fengið hjá honum upplýsingar þær um búmannsklukku í öðr-
um löndum, er felast í fylgiskjalinu liér á eftir.
Sem fylgiskjal er birt eftirfarandi umsögn Guðm, J. Hliðdal
póst- og símamálastjóra:
Reykjavík 18. inars ’39.
í tilefni af fyrirspurn yðar í
gær, leyfi eg mér að skýra frá
eftirfarandi:
í ýmsum löndum, einkum
þar sem lengd dags og nætur
er mjög misjöfn, þykir hent-
ugt að færa almennan starfs-
tíma til, þannig að hann byrji
noklcra fyrr að sumri en að
vetri. En af því að allur þorri
manna bindur lifshætti sína við
vissar klukkustundir og ákvæði
um starfstíma manna eru al-
ment bundin við sömu ákveðnu
klukkustundirnar alt árið, þá
þykir auðveldast að færa starfs-
timann til með því að flýta
klukkunni að sumrinu og halda
hnattstöðutíma að vetrinum
(sbr. summer time, daylight
saving time etc.).
Þessi lönd flýttu klukkunni
síðastliðið sumar: Bretland og
írland, Frakkland, Belgía, .Hol-
land, Luxembourg, Finnland,
Spánn og Portugal, Gríkkland,
Rúmenia, Bandaríkin og Can-
ada í Ameríku. Ennfremur
nokkur önnur fjarlæg ríki.
Ekki verðiír séð, að það þurfi
að valda neinum sérstökum
truflunum að því er snertir
rekstur pósts og síma, þótt
klukkunni sé flýtt á sumrum-
Ef til þess kæmi, væri sennilega
hentugt, að klukkunni yrði flýtt
2. sunnudag i apríl og seinkað
aftur 1. sunnudag í október,
eins og nú er gert í Bretlandi.
Þess skal getið, að íslenskur
tími er 28 mín. á undan réttum
lmattstöðutíma i Reykjavík og
4 mín. á eftir hnattstöðuíma á
Seyðisfirði, en 1 stundu á eftir
Greenwich tíma og 2 stundum
á eftir Mið-Evróputíma.
G. J. Hlíðdal.
vígbúnað Frakka og landvarnir,
með samvinnu á styrjaldartím-
um fyrir augum, en Guy la
Cliambre, franski flugmálaráð-
herrann fer innan skamms til
London til þess að ráðgast við
enska herforingja og hermála-
stjórm Bretlands.
Skíðakvikmynd f. R.
verða sýndár í Nýja Bíó í kvöld
kl. 7 í síðasta sinn. Aðgöngumið-
ar fást eftir kl. 3 hjá Árna B.
Björnssyni, Lækjargötu 2 og í
Stálhúsgögn, Laugaveg 11. Þeir
kosta kr. 1.50 fyrir fullorðna og
50 aura fyrir börn. — Allir, sem
séð hafa þessar myndir Ijúka lofs-
orði 3 kenslugildi þeirra.
SuDdmdt Olympianetndar-
Innar á morgun.
Vidtal vi5
irifessor ttomierick
Tíðindamaður Vísis leit sem
snöggvast inn til Hammericks
prófessors, sem liingað er kom-
inn til fyrirlestrahalds við Há-
skóla íslands, en hann hýr á
Hótel ísland meðan hann dvelst
hér. Er Hammerick prófessor í
germanskri málfræði við Ivaup-
mannahafnarháskóla, eins og
getið hefir verið hér i blaðinu.
„Mér þykir ákaflega vænt
um, að hafa fengið tækifæri til
þess að koma til íslands, en því
miður verður dvöl min stutt,
því að eg verð að fara heim á
Ljæu næst“.
„Þér getið þá htið ferðast nm
til þess að kynnast landi og
þjóð?“
„Því miður leyfir tíminn það
ekki, aulc þess sem eg mun
koma of snemnia til þess að geta
farið um sveitir landsins- En eg
fæ þó nokkur kynni af höfuð-
horg íslands, sem eg er mjög
hrifinn af. Hefi eg þegar skoð-
að nokkurar hyggingar, Safna-
húsið, Þjóðleikhúsið, sem eg
álít mjög sérkennilegt og fagurt,
Sundliöllina og hinn myndar-
lega barnaskóla þar skamt frá.
Háskólahygginguna hefi eg enn
ekki séð. Yfirleitt finst mér
furðulegt hvað liér liefir verið
mikið gert .— en furðulegast af
öllu þykir mér hversu mikið er
af bilum hér“.
„Þér húist ekki við að sjá
nema Reykjavik i þessari ferð
yðar?“.
„Mér hefir flogið í hug, hvort
sem nú af þvi 'getur orðið eða
ekki, að skreppa í flugvél til
Alcureyrar, og vildi eg þá geta
dvalist þar í einn eða tvo daga-
En það er fyrst og fremst undir
veðri komið, livort af þessu
getur orðið“.
„Þér flytjið fyrirlestra yðar í
dag og næstu tvo daga?“
„Já, í lagastofu Háskólans.
Eg kem hingáð sem gestur Há-
skólans og flyt fyrirlestra, eins
og þér þegar hafið tillcynt í
blaði yðar, um það hvernig
menning Miðjarðarliafsland-
anna harst til Norðurlanda. Eg
geri mér vonir um, að hér sé
eigi síður áhugi fyrir þessu
merkilega efni en annarsstaðar
á Norðurlöndum. Þeir fjalla um
það, hvernig Norðurlandabúar,
sem voru einangraðir, komust
í samhand við Miðjarðarliafs-
þjóðirnar — hvernig menning-
arstraumur frá þeim bárust |
uorður ábóginnrfyrir milligöngu
annara, Fríslendinga, Hollend- j
inga o. s. frv. og alt til þess, er j
beint menningarsamband et
komið á milli Norðurlanda og
Miðjarðarliafslandanna. Það er
mjög merkilegt viðfangsefni
hvernig þróunin hefir verið í
þessa átt“.
Viðtalið við prófessor Ham-
merick, sem er maður á hesta
aldri, fer þvi næst á þær braut-
ir, að tala um framfarir á ís-
Iandi og í Reykjavík aðállega
og fleira, sem hinn góði gestur
hefir áhuga fyrir.
Fyrsti fyrirlestur haijs er í
kvöld kl. 6 síðdegis í lagastofu
Iíáskólans, en liinir tveir á
morgun og föstudag á sama
stað og tíma.
BæjarráS
samþykti s.l. föstudag a'Ö mæla
meÖ því, að afmælisnefnd sam-
bands íslenskra barnakennara fái
endurgjaldslaust húsnæði í MiÖ-
bæjarskolanum fyrir skólasýningu
vegna 50 ára afmælis sambandsins.
AS veiðum
hafa komiÖ: Tryggvi gamli meÖ
115 föt lifrar, Reykjaborg með 145
fot og Gyllir meÖ 150—160 smál.
af ufsa.
Sundmót Olympíunefndar Is-
lands verður liáð, eins og áður
er auglýst, fimtud. 30- þ. m. —
annað kvöld — kl. 8% í Sund-
höllinni.
Kept verður í þrem sundum:
50 m. frjálsri aðferð karla, 100
m. bringusundi kvenna og 100
m. bringusundi karla. Keppa
allir heslu sundmenn og sund-
konur bæjarins í þessum sund-
um. Auk þessara framantöldu
vegal. keppir Jónas Halldórs-
son, sundkóngur, sérstaklega á
800 metrum við fjóra ágæta
sundmenn — sem hver syndir
200 m. — og metið. Verður
skemtilegt að liorfa á slíkt af-
rek, sem hér er stofnað til, þvi
lítill vafi er á, að Jónas „hreins-
ar sig“ vel af því, þótt ofurefli
yrði öllum öðrum íslendingum.
Auk kappsundanna fara fram
sýningar í tveim sundiþróttum:
dýfingum og sundknattleik. 1
dýfingunum taka þátt bæði
konur og karlar — það færasta
og fræknasta lið í þeirri skeinti-
legu íþrótt, sem hér er völ á.
Dýfingar hafa því miður of lít-
ið verið iðkaðar hér, en eru
skemtilegastar allra sundíþrótta.
Sundknattleiksliðin eru saman-
sett úr kappliðum Ármanns og
Ægis og allir bestu menn þeirra
félaga leika þarna; má þvi bú-
ast við skemtilegum og fjörleg-
um leik.
Olympíunefndin hefir efnt til
þessa móts í því augnamiði, að
safna fé til undirbúnings vænt-
anlegrar þátttöku islenskra í-
þróttamanna í Olympíuleikun-
um i Helsingfors 1940. Nefndin
Ölfar nærgðsgnlir í
bygðnm Noregs.
Oslo 28. mars. FB-
í Efri Rendal i Noregi liafa
úlfar gerst svo nærgöngulir, a'ð
þeir Iiafa sést í að eins milu
fjarlægð frá miðhluta bygðar-
innar. Veiðimenn húast í leið-
angur til þess að granda úlfum
þar í grend og sennilega verður
flugvél send á vettvang, húin
vélbyssu, í herferð gegn úlfun-
um. NRP.
liefir von um, af undangengn-
um bréfaskriftum sínum við
framkvæmdanefnd leikanna, að
hægt verði að koma islensku
glímunni að sem sýningaratriði
á leikunum í þetta sinn — þrátt
íyrir mikil vandkvæði í þvi efni
-—• auk þess sem íslensku í-
þróttalifi er lífsnauðsyn á þátt-
töku í slíku menningarsamstarfi
sem Olympíulireyfingunni.
Olympíunefndin væntir þvi,
að allir, sem hlyntir eru íþrótt-
um og iðkun þeirra, styðji mál-
efnið með þvi að sækja smid-
mót nefndarinnar á morgun. —
Allir i Sundliöllina annað kvöld
— meðan liúsrúm leyfir.
Gamla Bí6 :
KONUNGURINN
F YRIRSKIP AÐI.
í gærkveldi var frumsýning á
stórmerlcri danskri kvikmynd,
sem nefnist „Kongurinn fyrir-
skipaði“ (Kongen böd), og f jall-
ar um ánauð danskra bænda
skömmu áður en átthagafjötur-
inn var leystur af þeim. Vegna
þess að Islandsmynd sú, sem
Dam sjóliðskapteinn tólc hér,
verður sýnd á frumsýningu i
Gamla Bió í kvöld, verður ekki
liægt að sýna „Konungurinn
fyrirskipaði“ aftur fyrr en sið-
ar.
Kvikmyndin um afnám átt-
hagafjötursins er kölluð „Kon-
ungurinn fyrirskipaði“, þvi að
þessi orð eru upphaf hinnar
frægu konunglegu fyrirskipun-
ar um afnám áttliagafjötursins,
en með fengnu frelsi og kjara-
bótum hóf hin danska bænda-
stétt þegar framsókn, til menn-
ingar, vegs og virðingar. I kvilc-
myndinni er ekki lýst ævi og ör-
lögum einnar fjölskyldu eða
eins hónda, lieldur er með til-
brev tilegum þj óðlif smyndum,
sem mynda samfelda heild, lýst
kjörum bændastéttariunar á
þeim timum er framsýnir um-
bótamenn hófu baráttu, fyrir
afnáminu, sem varð grundvöllur
að þeim umbótum og framför-
mn, sem urðu, jiegar bænda-
stéttin varð frjáls og fékk sjálf
hotið krafta sinna. Kvikmyndin
er i þremur höfuðköflum. í
fyrsta kaflanum er lýst lífí og
kjörum bænda i sjálensku
sveitaþorpi, harðneskjunni, sen*
þeir eru beittir o. s. frv. í öðr-
um kaflanum er lýst baráttu
umbótamannanna — frjáls-,
lyndra mannvina, sem beita ái
hrifum sínum til þess að fá hmu
unga ríkiserfingja á sitt band,
Það eru aðalíega A. P. Bem-
storff og Rewentlowarnir, semi
þar ganga fram fyrir skjöldu.
Bændurnir sjálfir eru kúgaðri
en svo, að þeir hefji nokkura
baráttu fvi'ir bættum kjörum.
Ríkiserfinginn fór að láðum
þessara niamia og stofnaði
landbúnaðamefndina, en að til-
lögum liennar var átthagafjöt-
urinn leyslur af dönskum bænd-
um samlcvæmt liinni frægu til-
skipun frá 20. júni 1788. 1
þriðja kaflanum er svo lýst hio,
uin nýja tíma, er bændur hafaC
fengið frelsi sitt, þegar bænd-
urnir verða sjálfseignarbændur
og erja jörðina af kappsemi og
dugnaði og bæta hag sinn og
allrar þjóðarinnar, því að hvergi
á það við betur en í Danmörku,
að „bóndi er bústólpi — bú er
landstólpi“. —- Kvikmynda-
framleiðendur i Damnörku hafa
aldrei sett sér hærra markmiS
en þegar þeir ákváðu að gera
þessa kvikmynd úr garði, nieð
aðstoð ríkisins og bestu leik-
krafta landsins. Kvikmyndin er
prýðisvel gerð og leikin og
fræðandi.
Sæjar
fréffír
Veðrið í morgun.
í Reykjavik 5 stig, heitast í gær
8 stig, kaldast í nótt 1 stig. tír-
koma í gær o ó mm. Sólskin í 0.4
klst. Heitast á landinu í morgun
6 stig, á Reykjanesi; kaldast 1 stig,
i Grímsey. Yfirlit: Hæð fyrir aust-
an land. Lægé vi8 SuÖur-Græn-
land. Horfur: SuÖvesturlarid til
Breiðaf jarÖar: SuÖaustan kaldi.
SumstaÖar smáskúrir.
Skipafregnir.
Gullfoss er 5 Reykjavík. GoSa-
foss kom til Patreksfjarðar á há-
degi í dag. Brúarfoss er i Kaup-
mannahöfn. Dettifoss kom til Rot-
terdam i gær. Lagarfoss í morgun.
Selfoss er á leið til Antwerpen.
Slökkviliðsmenn.
MuniÖ leikfirniæfinguna í Mið-
bæjarskólanum i kvöld kl. 8.
. UPPÞOT I BRATISLAVA-HÖFUÐBORG SLÓVAIÓÍU.
Mynd þessi var tekin, er til uppþots líom út af þvi, að slóvaiski ráðherrann Durcansky var sett-
ur af, og er það einkaritari lians, dr. Kirschbaum, sem er að tala til mannfjöldans. Eins og kunnugt
er varð Pragstjórnin að Ijáta í minni pokann — Slóvakía varð sjálfstætt riki méð tilstyrk Þjöð-
verja, og Durcansky varð ráðherra á ný. — En þrátt fyrir að Hiller lofaði að ábyrgjast landa-
mæri Slóvakíu horfir ekki allskostar vel um framtið hins nýja ríkis, einkanlega vegna ágengni
Ungverja, sem liafa farið með her manns inrt í landið. Samkomulagsumleitanir eru nú byrjaðar
milli Slóvaka og Ungverja, en bardagar hafa staðið yfir seinustu daga og óttast menn að þeir muni
blossa upp aftur þá og Jþegar.