Vísir - 05.05.1939, Síða 2

Vísir - 05.05.1939, Síða 2
2 V I S í R Föstudaginn 5. maí. 1939. VÍSIR DAGBLA0 Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F. Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson. Skrifstofa: Hverfisgötu 12. Afgreiðsla: Hverfisgötu 12. (Gengið inn frá Ingólfsstræti). S í m a r : Afgreiðsla 3400 Ritstjórn 4578 Auglýsingastjóri 2834 (kl. 9—12 5377) Ver8 kr. 2.50 á mánuði. Lausasala 10 aurar. Félagsprentsmiöjan h/f. Viðskiftamál- in og stjórn- arsamvinnan. k llir, sem þekkja til íslenskra “ stjórnmála, vita, að síðustu árin hefir mestur ágreingur verið um viðskiftamálin. Það er ekkert einstakt fyrir okkur íslendinga, að hér hafa verið í gildi miklar takmarkanir á inn- flutningi erlendra vara. Og ekki heldur liitt, að eftirlit hefir verið með þeim gjaldeyri, sem inn hefir komið fyrir vörur, seldar til útlanda Aðrar þjóðir eiga við hvorttveggja þetta að búa. En um framkvæmd þess- ara mála hefir verið farið hér eftir reglum, sem hvergi gilda, þar sem til þekkist. Þetla hefir valdið réttmætri óánægju og sú óánægja hjaðnar ekki fyr en úr verður bætt. í öðrum löndum j>ar sem innflutningsliöft hafa verið lög. leidd, hefir alstaðar verið farið eftir þeirri meginreglu, að miða innflulningsmagn hvers einstaks innflytjanda við það sem var áður en höftin gengu í gildi Ef heildarinnflutningurinn til landsins liefir verið skorinn niður um t. d. 10% hefir hver innflytjandi orðið að sætta sig við 10% minni innflutning en hann hafði fyrir höftin. Valdhafarnir liafa hvergi nema á íslandi flokkað inn- flytjendur eftir því, hvort um væri að ræða kaupmenn eða kaupfélög. Sama hefir gilt um liáðar álmur verslunarinnar, kaupmannaverslun og kaupfé- lagaverslun. Það er fróðlegt fyi’ir okkur Islendinga að líta til sambands- lands okkar, Danmerkur. Þar hefir sósíalistastjórn setið að völdum undir forustu Staun- ings forsætisráðherra. Allir vita að Stauning er meðal þektustu sósíalista Evrópu. Það er þess- vegna alveg gefið, að hann hefir enga tilhneigingu til þess að efla hag kaupmanna á kostnað kaupfélaga. En þær óskir, sem íslenska verslunarstéttin hefir borið fram, eru ekki aðrar en þær, að hér yrðu látnar gilda samskonar reglur um úthlutun innflutningsins og í Danmörku. Verslunarstéttin hefir ekki kraf- ist forréttinda heldur jafnréttis. En við þetta hefir ekki verið komandi. Valdhafarnir hafa ekki einungis skelt skollaeyrum við jafnréttiskröfunum heldur beinlínis brugðist illa við þeim. Þótt innflutningurinn hafi minkað til Iandsins, hafa kaup- félögin aukið sinn innflutning. Skerðingin hefir öll bitnað á verslunarstéttinni. Um þetta hefir verið deilt að undanförnu og um þetta verður að sjálf- sögðu deilt þangað til rétting er fengin þessara mála. Það er öllum kunnugt að Sjálfstæðisflokkurinn stendur óskiftur að þeirri kröfu, að jafnrétti náist í viðskiftamálun- um. I umræðum þeim, sem fram fóru milli flokkanna, áður en þjóðstjórnin vaT mynduð, kom þetta svo berlega fram, að ekki var um að villast. Þess- vegna er ekki til neins að vera að tala um það, að þessar kröf- ur séu teknar upp til þess að spilla friði i ríkisstjórninni. Framsóknarflokkurinn veit það vel, að samstarfið af hálfu sjálfstæðismanna getur ekki haldið áfram, nema að sveigt sé til í þessum efnum. Þessvegna má það furðulegt heita, að fyr- verandi atvinnumálaráðherra Framsóknar, Skúli Guðmunds- son ,skuli skrifa um þessi mál eins og’ hann gerir í Timanum síðastliðinn þriðjudag. Þess háttar skrif eru vissulega ekki til þess fallin að efla frið og eindrægni meðal þeirra, sem greint hefir á. Nafnið þjóðstjórn felur það í sér, að tekið sé jafnt tillit til allra borgara þjóðfélagsins. í viðskiftamálunum skortir mjög á, að þetta sé gert. Þess vegna getur þjóðstjórnin ekki orðið langlíf, nema sú lausn finnist í þessum málum, sem allir stuðn- mgsflokkar stjórnarinnar geta sætt sig við. a Nýtt fyrirtæki í Hafnarfirði. Fyrir forgöngu Vörubifreiða- stjórafélags Hafnarfjarðar hefir verið stofnað nýtt fyrirtæki þar í bænum, er heitir Bilaverkstæði Hafnarfjarðar h.f. Eins og nafn- ið bendir til, ætlar fyrirtæki þetta að starfrækja bílaviðgerð- ir og i þvi augnamiði keypti fé- Iagið af Utvegshanka íslands liús það, er Rafstöð Hafnar- fjarðar var áður í. Kaupverð hússins var kr. 20 þúsund. Hús- ið er stórt og rúmgott og í alla staði mjög lientugt fyrir slíka starfrækslu, sem þarna er að hefjast. Undanfarið hefir mikið af þeirri vinnu, sem þarna verður framkvæmd, verið unnin i Reykjavik. Eru þetta þvi mikil þægindi fyrir hafnfirska bif- reiðaeigendur, þar sem nú verð- ur óþarfi fyrir þá að fara með bifreiðar sinar úr bænum til viðgerðar. Félagð hefir ráðið Sigurð Þorsteinsson til sín, sem aðalviðgerðarmann og verk- stæðisformann. Félagið hefir komið sér upp talsverðum vörulager og mun hafa á boðstólum varahluti til bifreiða og bifreiðabarða. Stjórn félagsins skipa Krist- ján Steingrímsson bifrstj. og meðstjórnendur Bjargmundur Guðmundsson og Guðmundur Þ. Magnússon. Breíar báðn Beck að fara gætilega. Oslo, 4. maí. FB. Eftir samkomulagsumleitanir breska sendilierrans í Varsjá í gær og Becks er talið víst, að Beck verði hógværari í ræðu sinni á morgun en búist var við. Eru nú minni líkur en áður, að Pólverjar taki Danzig herskildi, en ýmsir óttuðust, að þeir myndi gera það til þess að verða á undan Þjóðverjum. Ófriðar- hættan er þvi elcki talin eins nálægt og ætlað var í gær. — NRP. Olium starfsmönnum rússneska utanríkismálaráöuneytisins vikið frá. ÁkvÖFÖun um þad tekin á fjögupfa klst. fundi í Kreml. EINKASKEYTI TIL VfSIS. London, í morgun. Lausnarbeiðni Litvinov’s er aðalumræðuefni heimsblaðanna í morgun og enn hafa að eins komið fram getgátur um, hverjar vera muni hinar raunverulegu ástæður fyrir því, að Litvinov varð að fara frá. Það virðist í rauninni svo enn, að ekki sé neitt fyrir hendi, sem gefi áreiðanlegar upplýsingar um orsök lausnarbeiðninnar. Er því haldið stranglega leyndu í Moskwa. Daily Express heldur því fram, að ekki að eins hafi Litvinov verið neyddur til þess að fara frá, heldur hafi öllum starfsmönnum utanríkismála- ráðuneytisins verið vikið frá, að afstaðinni fjög- urra klukkustunda ráðstefnu í Kremlin. Enn eru uppi ýmsar spár um afleiðingar þess, að Litvinov er farinn frá. Margir ætla, að Molotov muni reynast Þjóðverj- um vinsamlegri en Litvinov og kunnugt er, að meðal herfor- ingja Rússlands hefir oft verið um nokkura vinsemd að ræða í garð Þýskalands. Mme. Tabouis, blaðamaðurinn heimskunni hallast að því að afleiðing lausnarbeiðninnar verði, að samn- ingum við Frakka og Breta verði hraðað og fleiri hallast að þeirri skoðun, jafnvel hefir komið fram, að Rússar hafi auga- stað á Póllandi, en aðrir halda, sem fyrr hefir verið að vikið, að stefna Rússa í utanríkismálum breytist ekki, en öðruvísi verði á málunum haldið. en í tíð Litvinovs og aðrar leiðir farnar. Það er búist við, að bráðlega muni koma skýrar í ljós hvað hér er að gerast eða ef til vill þegar eftir ræðu Becks. United Press. Menn eip að vera viðbúnir að grfpa til vopn gegn Bretnm fyrirvaralaust. EINKASKEYTI TIL YÍSIS. London í morgun. „írski iýðveldisherinn“, hinn ólöglegi félagsskapur írskra lýðveldissinna hefir gefið út ávarp til allra meðlima sinna og stuðningsmanna, að vera reiðubúnir til þess að berjast við Breta, því að fyrirsjáanlegt sé, að til vopnaviðskifta muni koma milli írskra lýðveldissinna og Breta. í ávarpinu er liðsforingj- um öllum fyrirskipað að vera viðbúnir — hafa til taks birgðir vopna og skotfæra og vera við því búnir, að úthluta þeim, til liðsins. Það er lalið að dómar þeir, sem upp hafa verið kveðnir í Englandi nýlega yfir stuðnings. mönnum Irskra lýðveldishers- ins, hafi haft æsandi áhrif á lýðveldissinna í írlandi. Hefir komið fram ótti við það að lýð- veldissinnar muni nota tækifær- ið, ef til Evrópustyrjaldar kem- ur, að sameina alt írland og gera Irland að lýðveldi. « Hermdarverkin í Englandi halda áfram. I Liverpool hefir tveimur táragas-sprengjum ver- ið kastað í kvikmyndahúsum og varð að flytja margt fólk á sjúkrahús og var mart af því mjög illa haldið. I Coventry var varpað sprengju í hús- gagnaverslun og annari í nánd við gasstöð og þeirri þriðju í stórverslun. Einni sprengju var varpað á götu í London. Noklc- urir menn hafa særst. United Press. Ciaio grtili ræddi i tilsti sendi- hernnu i piWi. Friösamleg lausn Danzig-deilunnar áhugamál ítala. Fréttaritari United Press í Rómaborg símar í morg- un, að hann hafi fengið fregnir um það samkvæmt áreðanlegustu heimildum, að Ciano greifi hafi rætt við pólska sendiherrann áður en hann Iagði af stað til Comovatns í Norður-ítalíu, þar sem hann ræðir við von Ribbentrop. JOSEF BECK, utanríkismálanáðherra Póllands, sem í dag flytur ræðu í pólska þinginu og gerir grein fyrir afstöðu Pólverja til krafa Hitlers um Danzig og pólska hliðið. Vegna óvissunnar sem ríkjandi er eftir lausnarheiðni Litvinovs mun Beck verða hógværari en búist var við. — ítalir reyna nú að sætta Pólverja og Þjóð- verja. LOFTÁRÁS Á CHUNGKING — AÐSETUR CHIANG-KAI- SHEK Bridge-keppDiani lýknr í kvöld. Einkaskeyti til Vísis. London i morffun. Þrjátíu og tvær japansk- ar spre'nffjufliiffvélar fferðu skyndilega loftárás á aðset- ursborg Chiang Kai-sheks í gær. Loftvarnir eru þar eins og annarssaðar litlar og lé- legar, en auk þess kom loft- árásin svo óvænt, að sprengjur flugvélanna gátu gert hinn mesta usla. Óstaðfeslar fregnir herma að 3000 manns hafi beðið bana eða sæi'st. Þess er hins vegar ekki getið, hvort tekist hafi að skjóla niður nokkrar af hinum japönsku flugvélum. Bústaðir breska sendi- herrans og hins franska urðu fyrir sprengjum. Mörg íbúðarhverfin í borginni standa í björlu báli, eða eru þegar orðin að ösku, svo og verslunarhverfi borgarinnar. United Press. Mun Ciano og sendiherr- ann hafa rætt sambúð Pól- verja og Þjóðverja með til- liti til þess hversu nú horf- ir. — Eins og United Press gat um í gær eru ítalir mjög hlyntir því, að deilumál Þjóðverja og Pól- verja leysist friðsamlega. Mun Ciano greifi hafa rætt um það við pólska sendiherrann, að æskilegt væri, að pólska stjórn- in ræddi þessi mál af hógværð og stillingu við Þjóðverja, því að með því móti væri helst auð- ið að koma í veg fyrir alvarleg- ar afleiðingar þessarar deilu. Þótt Ciano greifi hafi rætt þarinig, að því er ætlað er, við pólska sendiherrann er talið víst, að hann muni gefa von Ribbentrop sömu ráð og óska eftir því, að Þjóðverjar einnig ræði málin af hógværð, í von um friðsamlega lausn. United Press. Bridgekepnin heldur áfram 1 kveld kl. 8/2 í Stúdentagarðin- um. ÖHum er heimill aðgangur og eru aðgöngumiðar seldir við innganginn. Nú standa leikar þannig: 1. Óskar og Kristín Norð- mann, Gunnar Pálsson og Jón Guðmundsson + 3160 st. 2. Einar B. Guðmundsson, Sveinn Ingvarsson, Stefán Stef- ánsson og Axel Böðvarsson + 840 st. 3. Pétur Magnússon, Lárus Fjeldsted, Guðmundur Guð- mundsson og Brynjólfur Stef- ánsson + 570 st. 4. Tómas Jónsson, Jón Jóns- son, Gunnar Viðar og Skúli Thorarensen -f- 4570 st. Úrslitin fara fram í kveld. Biínrjöfnnn ntsvara á Aknreyri. Nýlega er lokið niðurjöfnun útsvara á Akureyri og er heild- arniðurstöðutalan kr. 490.870. eða um 20% hærri en i fyrra. Stafar hækkunin að helmingi af auknum tekjum bæjarbúa, en 10% rálag var lagt á fyrra árs útsvar. Gjaldendur i bænum eru 1734 að tölu. Hæstu útsvörin eru sem hér greinir: K. E. A. kr. 50.000. S. I. S. (Gefjun, Sjöfn. Freyja o. fl.) kr. 44.000, Olíuverslun íslands kr. 11.000, Baldvin Ryel kr. 8.700, frú Guðrún Ólafsson kr. 8.000, Nýja Bíó h.f kr. 7.200, Kristján Árnason kaupm. (versl. Eyjafjörður) kr. 5.600, Axel Kristjánsson li.f. kr. 5.000, Jakob Kvaran kr. 5.000, h.f. ,.Shell“ á Islandi kr. 5.000. Á Akureyri er nú svo komið að K. E. A. er orðið allsráðandi. en nokkrir kaupmenn liafa þó getað þrifist þar til þessa. Gefur útsvar kaupfélagsins nokkra hugmynd um vellu þess, með því að kaupfélögin njóta enn þá sérstakra fríðinda í öllum álög- um til ríkis og bæja.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.