Vísir - 30.05.1939, Qupperneq 2
VISIR
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson.
Skrifstofa: Hverfisgötu 12.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12.
(Gengið inn frá Ingólfsstræti).
S f m a r :
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
(kl. 9—12 5377)
Verð kr. 2.50 á mánuði.
Lausasala 10 aurar.
Fólagsprentsmiðjan h/f.
Framkvæmd
hitaveitunnar
IIVAÐ ætli margir Reykvík-
u ingar yrðu á móti, ef al-
menn atlcvæðagreiðsla ætti að
fara fram i dag um tilboðið frá
Höjgaard & Schultz? Liklega
elcki einn einasti maður. Jafnvel
Sigurður Jónasson mundi elcki
hætta á ævilangar sjálfsafsak-
anir yfir þvi, að hafa á úrslita-
6tundu hrugðið fæti fyrir besta
mál, sem nokkurntíma hefir
verið tekið upp á íslandi. Og þó
eru menn yfirleitt sammála um
að tilboðiðfráHöjgaard&Scliultz
sé i sjálfu sér ekkert mjög á-
kjósanlegt. En hér er um þetta
tilboð að ræða, eða ófyrirsjáan-
lega frestun á framkvæmd, sem
er mikilvægari, ekki einungis
fyrir hag og afkomu allra höf-
uðstaðarhúa, heldur allra lands-
manna, en nokkuð annað, sem
nú er á döfinni.
Fyrir rúmu ári skrifaði for-
maSur Framsóknarflokksins
Jónas Jónsson, grein i Tímann
um hitaveitumálið. I grein þess-
ari sagði Jónas Jónsson alveg
hispurslaust, að engin von væri
um að þessi framkvæmd kæm-
ist á „að óhreytíum kringum-
stæðum“. Nú hefir breyting orð-
ið á. Sjálfstæðisflokkurinn hefir
tekið höndum saman við stjórn-
arflokk'ana, sem fyrir voru, um
lausn aðkallandi vandamála.
Fyrsti árangurinn af þeim
„breyttu kringumstæðum“ er
«á, að innan fárra mánaða er
hægt a? byrja á hitaveitunni frá
Reykjilm.
Því var haldið fram, meðan
útlit var fyrir að málið leystist
ekki, að ástæðan væri sú, að á-
ætlanir verkfræðinga bæjarins
etæðist ekki gagnrýni erlendra
fjármálamanna. Þessari ástæðu
er endanlega hrundið. Þvi var
líka haldið fram, að „hitanám-
an“ á Reykjum mundi reynast
ónóg. Einnig þessari ástæðu er
hrundið. Það er meira að segja
engu líkara en að „forsjónin sé
að grípa i taumana“, því einmitt
á þeh’ri stundu, sem málið ligg-
ur fyrir til úrslita, vellur nýtt
heitt vatn upp úr jörðinni í tug-
um Iítra á sekúndu, eins og til
að sannfæra þá, sem kynnu enn
að vera efunargjarnir.
Á þessum tímum húa þjóð-
irnar sig undir ófrið með ýms-
um hætti. Smáþjóðimar, sem
ekki búast við að taka þátt í
hildarleiknum, leggja alla á-
herslu á, að þurfa sem minnst
til annara að sækja, ef til styrj-
aldar kemur. Stríðsundirbún-
ingur er einnig hafinn hér á
landi. En í þeim undirhúningi
er hitaveitan Iangsamlega
stærsti þátturinn. Hér vofir yf-
ir að þurfa að kaupa kol fyrir
300 krónur smálestina, eins og
var í síðustu styrjöld. Hver vill
hætta á það, ef hjá verður kom-
ist? Máltækið „að bera í bakka-
fullan Iækinn“ er á ensku „að
flytja kol til Newcastle“. En
Newcastle er, eins og kunnugt
er, einhver mesti kolabær þar i
landi. Eftir að skilyrði eru feng-
in til virkjunar hitanámunni á
Reykjum er jafn fráleitt að
flytja kol til upphitunar Reykja-
vik og Newcastle. Það er að bera
í bakkafullan lækinn og engum
samboðið nema Bakkabræðr-
um.
Það er óþarft, að fjölyrða um
kosti hitaveitunnar. Menn vita
að liún er í senn mesta gróða-
fyrirtækið og mesta menningar-
fyrirtækið, sem til hefir verið
stofnað frá því er land bygðist.
Hún er svo mikið stórgróðafyr-
irtæki, að liún á að vera skuld-
laus eign bæjarins á einum ára-
tug. Eftir þann tíma færir hún
bænum miljón lcróna árlega í
breinan arð. Getur nokkur var-
ið það, að stöðva þetta fyrir-
tæki ?
Sú var tíðin, að Reykvikingar
skiftust í flokka um þetta mál.
Sá tími er liðinn. Það er ekki
lengur Sjálfstæðisflokkurinn
einn, sem berst fjn-ir því. Allir
Reykvikingar, hvar í flokki sem
þeir slanda, krefjast þess af full-
trúum sínum, að þeir leggi mál-
inu lið.
a
Áfekstup:
Bíll fer á hliðíne.
Um kl. 8.30 í morgun varð á-
rekstur á gatnamótum Suður
götu og Skothúsvegai-, milli R.
55 og R. 908.
Var R. 908 á leið upp Skot-
húsveg en liinn á leið suður
Suðurgötu og átti þvi að víkja
fyrir hinum, sem átti réttiim á
gatnamótunum. Hinsvegar mun
R-908 liafa verið á mikilli ferð,
þvi að bann velti R-557 og ýtti
honum á undan sér 4—5 metra.
Málið er í rannsókn.
Hraðferíir norðnr
nm Akranes.
Hraðferðirnar norður um
Akranes byrja á morgun, eins
og tilkynt er í auglýsingu frá
Bifreiðastöð Steindórs í blaðinu
i dag. Hraðferðirnar eru þrisvar
í viku, norður á mánudögum,
miðvikudögum og föstudögum,
en frá Akureyri mánudaga,
fimludaga og laugardaga. Milli
Akraness og Reykjavíkur er m.-
s. Fagranes i förum, eú'það hef-
ir nýlega verið mjög endurbætt,
sem getið hefir verið hér i blað-
inu. Bílar þeir, sem Steindór
notar, eru útbúnir með raf-
magnshitun og útvarpi, en bíl-
stjórana þekkja allir. — Vafa-
laust verða þeir margir, sem
kjósa að fara þessa leið.
Pétri Zophoníassyni,
ættfræðingi, verður halditS sam-
sæti i Oddfellowhúsinu annað
kvöld, í tilefni af sextugsafmæli
hans, og fást aðgöngumiSar í bóka-
verslun Isafoldarprentsmiðju.
Höfnin.
Nova kom á hvítasunnudag. Fer
í lcvöld. Lyra kom í nótt. Hekla
kom á hvítasunnudag og fór í nótt
að lesta fisk á höfnum hér við fló-
ann. Súðin fer í kvöld áleiðis til
Austfjarða. Snýr þar við og fer
sömu leið til baka.
Skipafregnir.
Gullfoss er á Breiðafirði. Goða-
foss kom til Vestmannaeyja kl. n
í morgun, er1 væntalegur hingað um
miðnætti. Brúarfoss er í Kaup-
mannahöfn og Detti.foss í Reykja-
vík.
íþróttaskóiinn
á Álafossi hefst á morgun þ. 31.
þ. m. Nemendur á fyrsta námskeið-
inu eiga að mæta á morgun kl. 2 á
afgr. Álafoss, Þingholtsstr. 2, eða
að Álafossi kl. 4 sama dag.
Rússar eyðileggja
fyrir Japönum.
Haröorö mótmæli cg mikil
gremja Japana í gard Rússa.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London í morgun.
tvo fallbyssubáta
jspanir aðvara Breta og Rússa.
Víðtækar varúðarráðstafanir, ef þeir gera með sér
hernaðarbandalag, sem nær til Austur-Asíu. — Mark-
mið Japana er að sölsa undir sig öll alþjóðahverfi
í Kína.
Allmiklar róstur hafa nýlega orðið á landamær-
um Síberíu og- Manchukuo milli rússneskra og
japanskra landamæravarða. Segir í fregn frá
Sinking, sem send var til Tokio, að rússnesku fallbyssu-
bátarnir Attsa og Sked hafi ráðist á japanska fallbyssu-
báta á Usuri-ánni og eyðilagt tvo þeirra með öllu.
Kváðu atburðir þessir hafa skeð síðastliðinn laugardag.
Japanska stjórnin hefir sent Sovét-stjórninni í Moskva harð-
orð mótmæli gegn þessu athæfi, sem mun leiða til alvarlegrar
misklíðar milli þessara tveggja ríkja. Sovét-stjómin mun bíða
eftir skýrslu frá landamæravörðum sínum um atburðina, en
vitanlegt er fyrirfram að hvor þjóðin kennir hinni um tildrögin.
HeLstu blöðin í Tokio birta
liarðorðar árásargreinar gegn
Rússum út af atburðum þessum
og fullyrða sum þeirra, að árás-
in liafi verið gerð að undirlagi
rússnesku ráðstjórnarinhar,
sem um þessar mundir standi í
samningum við Brela og
Frakka um hernaðarlega sam-
vinnu, en Rússar yfirleitt sé
öndverðir ]>essari samninga-
gerð. Telja japönsku blöðin, að
frá hendi Sovét-stjórnarinnar sé
leikurinn til þess gerður að,
dreifa athygli almennings og
breyta skoðunum lians með því
að telja þjóðum ráðstjórnarríkj-
anna trú um að Japanir sýni
Rússum yfirgang þegar þess sé
kostur, en til þess að styrkja að-
stöðu sína sé Rússum nauðsyn-
legt að taka höndum saman við
lýðræðisþjóðimai’.
Þetta telja japönsku blöðin
að sé undirrót þeiri’a atburða,
sem gerst hafa á Usuri-fljótnu,
og er mikil gremja ríkjandi í
Japan út af þessum viðburðum.
United Press.
Fer Smigly'Rydz í
beimsðkn til Loiden
til þess að ræSa vlh
breska herforingja-
ráílí?
SMIGLY-RYDZ
sókn til London, til þess að ræða
Við breska herforingjaráðið,
eins og að ofan greinir. Að
heimsókn þeirra lokinni má bú-
ast við að Pólverjar og Bretar
hafi tekið fullnaðarákvarðanir
varðandi sameiginlegar hernað-
arráðstafanir frá hendi beggja
ríkjanna.
United Press.
Bátar á ísafirði fullbúnir til slld
veiða.
Fréttaritari Vísis á tsafirði
símar blaðinu, að þar sé nú
mikill hugur í mönnum um
síldveiðar á sumrinu. Eru
flestir bátar um það bil að verða
fullbúnir á veiðar, en þegar eru
tilbúnir bátar h.f. Huginn og
munu leggja út strax er ein-
hverjar síldarfregnir berast.
EINKASKEYTI TIL YlSIS.
London, í morgun.
Það kemur æ greinilegar í ljós, að Japanir óttast mjög afleið-
ingar þess, ef fullnaðarsamkomulag næst milli Breta og Rússa.
Japanir hafa nógu að sinna vegna styrjaldarinnar í Kína og
vegna þess hversu hún hefir dregist á langinn og í hana farið
mikið af fé og starfsorku þjóðarinnar, hafa þeir ekki séð sér
fært, að takast á hendur nýjar skuldbindingar gagnvart Þýska-
landi og Ítalíu, aðal-meðlimunum að andkommúistiska sátt-
málanum. Er það þó vitað, að Þjóðverjar hafa lagt fast að Jap-
önum, að taka þátt í hernaðarbandalagi ítala og Þjóðverja, og
japanska stjómin hefir að undanfömu haft þetta mál til um-
ræðu á fundum sínum. En þótt Japanir óttist afleiðingar þrí-
veldahemaðarbandalagsins milli Stóra-Bretlands, Frakklands
og Sovét-Rússlands, gæti það, ef það nær til Austur-Asíu, haft
þau áhrif, að Japanir léti kylfu ráða kasti og gengi í hernaðar-
bandalagið með ítölum og Þjóðverjum.
Þótt margt sé enn í óvissu um þetta alt er það víst, að
afstaða Japana er mjög harðnandi gagnvart Bretlandi,
Bandaríkjunum og FrakkJandi í deilunum um alþjóða-
hverfinu í Kína. Og Ahasi Shimbun birtir aðvörun um það,
að Japan muni tilkynna Rússum og Bretum, ef þeir geri
með sér hernaðarbandalag, sem nái til Austur-Asíu, muni
Japanir láta hart mæta hörðu og grípa til víðtækra ráð-
stafana, en með hverjum hætti er ekki gefið í skyn.
Hversu víðtækar ráðstafnir þessar verða er að öllu leyti undir
því komið hversu víðtækt hernaðarbandalag Rússa og Breta
verður, ef til kemur.
DEILAN UM
ALÞJÖÐAHVERFIN.
Það vekur mikla atb.ygli, að
i deilunni um alþjóðahverfin
eru Japanir harðastir í garð
Breta, enda segja þeir, að Bret-
ar séu potlurinn og pannan í
mótspyrnunni gegn Japönum —
þeir liafi átt frumkvæði að þvi,
að sjóliðar voru sendir í land í
alþjóðahverfið í Koolang-Su, af
herskipum Frakka og Banda-
rikjamanna sem Breta eigin.
JAPANIR ÆTLA AÐ LEGGJA
ALÞJÓÐAHVERFIN UNDIR
SÍG.
Það er engum vafa bundið, að
Japanir ætla að leggja alþjóða-
bverfin undir sig — ekki að eins
Koolang-Su , alþjóðabverfin í
Shanghai og fl., heldur í öllum
ldnverskum borgum. Sennilega
munu þeir reyna að ná þeim
undir sína stjórn smátt og smátt
og ef stórveldin láta undan í
Ivoolang-Su, munu Japanir við-
bafa sömu aðferð annarstaðar.
EN — LÁTA STÓRVELDIN
UNDAN?
En það er margt, sem bendir
til, að stórveldin láti ekki und-
an. Enn sem komið er, hafa
Bretar, Frakkar og Bandaríkja-
menn sjóliða á verði í Koolang-
Su — livert þessara stórvelda
jafnmarga og Japan. í þessu
sambandi vekur athygli yfirlýs-
ing ástralsks ráðherra um það,
að Bretar ætli að liafa nægan
herskipaflota í hinni miklu
flotastöð Singapore, ef til ófrið-
ar kemur, til þess að gæta hags-
muna Bretavelds í Asíu. Auk
l>ess hafa Bretar aukið her-
skipaflota sinn og viggirðingar
í Hongkong og’ víðar þar eystra,
en ef til ófriðar kæmi og banda-
Frh. á 4. bls.
Einkaskeyti til Vísis.
London, í morgun.
News Chronicle flytur
fregn um það í morgun, að
Smigly-Rydz hershöfðingi
og forsætisráðherra Pól-
lands eða Kasprozycki hers-
höfðingi muni innan
skamms koma til Lundúna
til þess að ræða við breska
hershöfðingjaráðið um
hernaðarlega samvinnu
Pólverja og Englendinga.
Ens og sakir standa er sendi-
nefnd hermálasérfræðinga frá
Breta hálfu stödd í Varsjá til
þess að kynna sér hermál og
hemaðarviðhorf Pólverja og er
gert ráð fyrir, að hún muni
Ijúka störfum í þessari viku, en
þó er það ekki vitað með vissu.
Strax og nefndin hefir lokið
störfum og er komin heim, er
gert ráð fyrir að annarhvor
þeirra Smigly-Rydz eða Kaspro-
zycki hershöfðingi komi í heim-
BRETAR OG FRAKKAR
standa sem ein þjóð um allar hermálaákvarðanir, og leggja númegináherslu á það, að fá Rússa
í lið með sér. Mynd þessi sýnir Lodin Hore-Belishe, hermálaráðherra Breta og Guy la Chambre
flugmálaráðherra Frakka við herskoðun á Le Bourget-flugvellinum við Paris. Nú hefir Hore-
Belisha boðið Voroshiloff hermálaráðherra Rússa að vera Yiðstaddur hersýningar Breta í sum-
ar, og að sjálfsögðu verða frönslku hermálaráðherrarnir þar einnig.