Vísir - 30.05.1939, Blaðsíða 4
V ISI R
Jjannig að aldrei hefir verið
eins.
Baprinn lætur vinna að gatna-
&erS og hafa allmargir atvinnu
fsiS það, en sennilegt er, að hæj-
ervínnunni verði liætt mjög
Enjög bráðlega, eða þegar síld-
sarannir hefjast fyrir alvöru.
Sildar hefir elcki orðið vart
svo neinu nemi siðustu dagana,
ien margir bátar eru þegar til-
íbúnir á veiðar.
Siglfirðingar leggja nú alt
Ekapjp á nð koma því í fram-
&vaemd að ný verksmiðja verði
|>ar reist i stað Rauðku og gera
mcnn sér alment vonir um að
loaálíð nái fram að ganga.
JAPAN OG STÓRVELDIN.
Frh. af 2. bls.
lag vseri milli Rússa og Breta,
mmm Japanir eiga í höggi á sjó
jviö Breta að sunnan og Rússa
ffyrir norðan og vestan sig, en
Rússar hafa mikínn flota lítilla
herskipa i Wladivostock, aðal-
léga íundurspilla, kafbáta og
mjög hrað'skreiða mótorbáta,
auk fjölda flugvéla á ýmsum
stöðum aústur í Sibiríu. Loks
vofir sú liætta yfir, ef til ófriðar
kemur, að Baudaríkin verði
þátítatcandi, og þá er einmg
Míyr rah af sf lo t a þeirra að
snæía, en engrar aðstoðar frá
samherjum. Það er ekki talið
Ifldegt, að lýðræðisstórveldin
skélfíst við hótanir Japana,
jafnvel þótt hætt væri við, að
þeir gerði einhverja þá örþrifa-
ráðstöfun, er styrjöld gæti af
leitt
SJÓRÆNINGJAR
VAÐA UPPI.
Fregn frá Shanghai hermir,
að sjóræningjar hafi sig meira í
í frammi á ný, vegna deilu Jap-
ana og stói'veldanna — en að
•undanlornu hefir lítið borið á
jþeim, vegna liins mikla her-
skipafjölda, sem er í nánd við
Kína. — Réðust sjóræningjar í
gær lil uppgöngu á portugalslct
skíþ og rændu farþegana ýmsu
verðmæti.
United Press.
London, í morgun.
Foringi herstjórnar og lög-
regluliðs í Jerúsalem og grend
heflr gefið út fyrirmæli, þar
sem öllum Gyðingum er skip-
að að loka kvikmyndahúsum í
Jerúsalem, sem eru í þeirra
mgu.
Ástæðan til þess að tilskipan
jiessi var gefin út, er sú, að sá
atburður skeði í Rex-kvik-
tnyndahúsinu í Jerúsalem nú
om hátíðina að sprengja sprakk
sneðan á sýningu stóð og varð
fjórum mönnum að bana, en
ttuttugu og tveir særðust, og
somir það alvarlega að þeim er
vart hugað líf.
Þrátt fyrir allar öryggisráð-
stafanir, sem gerðar hafa verið
af hálfu yfirvaldanna í Palest-
liú gengur þar á sífeldum
iiryðjuverkum, og hefir síst úr
þeim dregið þrátt fjTÍr allar
aamningaumleitanimar að und-
anfömu.
United Press.
Ðjónaefni.
Um hvítasunnuna hafa opinber-
að trúlofun sína ungfrú SigríÖur
Jónsdóttir, Þórsgötu 14, og Þor-
hjörn Jónsson, bóndi, Vesturholti,
J>ykkvabæ.
BæadafOr flr DOiam 09 af
Snæfellssnesi.
Fréttir af Snæfellsnesi.
Dalamenn og Snæfellingar eru nú að undirbúa bændaför í
næsta mánuði til Árness- og Rangárvallasýslna.
Er ráðgert að lagt verði upp
í förina um eða eftir miðjan
júní, en búist er við að þátttak-
endur verði hátt á annað
liundrað. Þó mun það draga all-
mjög úr þátttökunni, hversu vel
er sprottið vestra. Búast menn
jafnvel við að sláttur geti byrjað
slrax eftir miðjan júní, haldist
veðurfar svo gott sem undan-
farið.
Þeir, sem vimia að undirbún-
ingi fararinnar eru Þorsteinn
Þorsteinsson, sýslumaður í
Dalasýslu, Magnús Friðriksson
í Stykkishólmi og þriðji mað-
urinn, sem Vísir kann ekki að
nafngreina.
—o—•
Tíð hefir verið eindæma góð
í vor á Snæfellsnesi og gras-
SnæfellsnesfOr
Ferðafélagsins.
Ferðafélagið gekst fyrir för
til Snæfellsness nú um hvíta-
sunnuna og tóku þátt í lienni
um 80 manns. Þátttakendur
hefi þó vafalaust orðið fleiri, ef
veðurliorfur hefði ekki verið
svo ískyggilegar upp úr hádeg-
inu á laugardag.
Á hvítasunnudag gengu flest-
ir á jökuliim og höfðu margir
sldði sín með sér. Álta manns
komust upp á austustu þúfuna,
en liinir voru í hrekkum þar í
kring.
Annan í hvítasunnu voru
sumir áfram á jöklinum, en
aðrh’ gengu vestur að Lón-
dröngum og víðar. Veður var
gott háða dagana, þótt ekki nyti
sólar óslitið. Þeir sem voru á
jöklinum síðara daginn, lentu í
hríðarhyl og urðu að láta fyrir
berast þar sem þeir voru komn-
ir, þar til bylnum slotaði. Eng-
um varð þó meint af þessu og
þótli öllum förin hafa tekist liið
hesta. Eru ferðir F. í. mjög vin-
sælar að vonum.
Komið var aftur til Reykja-
víkúr laust eftir miðnætti í nótt.
Bcejop
fréftír
Veðrið í morgun.
1 Reykjavík 8 st., heitast í gær
ii, kaldast i nótt 3 st. Úrkoma i
gær 0.1 mm. Sólskin 0.1 st. Heit-
ast á landinu í morgun 11 st., kald-
ast 4 st., á Fagradal. — Yfirlit:
Grunn lægð við suðausturströnd
Islands á hreyfingu í austur. —
Horfur: Suðvesturland og Faxa-
flói: Stinningskaldi á norðaustan í
dag, en lygnir með kvöldinu. Víð-
ast úrkomulaust.
K. R. R.
var stofnað þ. 29. maí 1919, og
var Jjví réttra tuttugu ára í gær.
Frú Soffía Magnúsdóttir,
frá Iiolti í Garði, nú til heimilis
á Brunnstíg 8 í Hafnarfirði, verð-
ur 86 ára í dag.
Mr. Adam Rutherford
flytur erindi um „Pyramidann"
mikla í Iðnó annað kvöld. Öllum
heimill aðgangur.
Togararnir.
Baldur kom af veiðum í gær og
Snorri goði í morgun, með 80 tn.
Segja togaramenn afla frekar treg-
an. —
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 2 kr. frá Jóni Jóns-
syni, 5 kr. frá G. V., 2 kr. frá V.
V., 2 kr. frá F. B.
spretta verið ágæt, svo að menn
muna vart annað eins. Sauð-
burður gengur yfirleitt vel, en
dýrbítur er skæður sumstaðar í
sýslunni, t. d. í Eyrarsveit, þar
sem hann gerir mikinn usla.
Refabú hafa annars verið
stofnuð víða á Snæfellsnesi, en
gefist misjafnlega eins og geng-
ur. Á einum bæ, Brimilsvöllum
i Fróðárhreppi, fékk bóndinn
13 yrðlinga undan tveimur
læðum og mun það talið gott.
Fróðárhreppur er eini hrepp-
urinn í Snæfellsnessýslu, þar
sem enginn bændanna hefir
leitað til Kreppulánasjóðs.
Munu jx'ir ekki vera margir
hrepparnir á landinu, sem stært
geta sig af því, ef nokkur er.
Hjúskapur.
S.l. laugardag voru gefin saman
í hjónaband ungfrú Klara Guðjóns-
dóttir og Guðmundur Jónsson, út-
framherji K.R. — Heimili þeirra
er á Bókhlöðustíg 10.
Tengdapabbi
var leikinn i gærkveldi í Iðnó,
og var hvert einasta sæti selt löngu
fyrir miðjan dag. Fögnuður áheyr-
enda var rneiri en verið hefir við
nokkra leiksýningu síðan í fyrra-
vor. Margir urðu frá að hverfa í
gær, án þess að ná í aðgöngumiða
og sannar það, að fullorðið fólk
og börn hafa hér rnikin áhuga fyr-
ir að sjá skemtilegan og góðan leik,
ef verð ög tími ekki hamlar. Þar
sem auglýsingastjóri og einn aðal-
leikarinn er á förum til útlanda, er
ekki víst, að hægt verði að sýna
leikinn oftar, en verði það hægt,
verður það fimtudaginn 1. júní,
Verður þá verð aðgöngumiða frá
1 kr. til 3 kr. og verður byrjað
]jað snemma, að leikurinn verði úti
úr því að kl. er 10.
Tímarit iðnaðarmanna,
2. hefti 12. árg., er nýkomið út.
Iþví er þetta efni m. a.: Ullar-
iðnaður á Islandi (með 2 myndum)
eftir Halldóru Björnsdóttur, At-
vinnubætur fyrir iðnaðarmenn, eft-
ir Sigv. J. S., Iðnaðurinn á Norð-
urlöndum, eftir Arthur Nordlie,
Gengi íslensku krónunnar, „Tönn-
in til iðnaðarins", Austurstræti,
Júlíus Schou (ineð mynd), eftir
Sig. Halldórsson, Afmæli o .f 1.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 19.30 Hljómplötur: Sönglög.
19.45 Fréttir. 20.20 Hljómplötur:
Sönglög eftir Schubert 20.55 Tón-
leikar Tónlistarskólans (tríó). 21.30
Symfóníutónleikar (plötur) : Píanó-
konsert nr. 1 ,eftir Beethoven. 21.10
Fréttaágrip.
Fyrir nokkuru veiddist við S.-
Afríku beinlaus fiskur, en náttúru-
fræðingar töldu þá tegund hafa dá-
ið út fyrir 50 milj. ára. Fiskur
þessi heitir crossopterygil.
*
í Missouri í Bandaríkjunum hef-
ir lögreglan tekið upp þann sið, þeg-
ar hún stöðvar bílstjóra fyrir að
aka of hratt, að taka „switch“-lykl-
ana frá þeim og láta þá dúsa þar
sem þeir voru teknir, í 30—40 mín-
útur.
*
í San Marino í Kaliforníu er
eikartré, sem talið er 1200 ára gam-
alt af vísindamönnum. Ummál trés-
ins við ræturnar er 20 fet.
V \
Árlega fremja um 19.000 manns
sjálfsmorð í Bandaríkjunum. Flest-
ir fremja sjálfsmorð í Ohio-fylki,
eða um 1243 síðastl. ár. Hafa sjálfs-
morð aðeins tvisvar verið fleiri í
því ríki, 1931, 1261 og 1932, 1310.
— Maí er versti mánuðurinn, en
apríl kemur næst.
*
Hin heimsfræga regnhlíf Qiam-
berlains er talin vera fertug að aldri
og hefir f jórum sinnum verið „yfir-
dekt“.
London í morgun.
í fyrradag lagði ungur kal-
fornlskur flugmaður af stað frá
Maine í Bandaríkjum í Atlants-
hafsflug og hefir þetta flug hans
vakið mikla athygli. Flugvél
hans er lítil eins manns flugvél
„baby plane“ ('barnaflugvél)
eins og þær eru kallaðar í
Bandaríkjunum, og er hraðinn
að eins 85 mílur enskar á klst.
Frá því flugmaðurinn, Thomas
Smith lagði af stað fréttist ekk-
ert til hans, fyrr en í gær — og
er þó ekki full víst, að um flug-
vél Smiths hafi verið að ræða.
En síðdegis í gær sást smáflug-
vél hátt í lofti frá Londonderry
í Norður-trlandi og stefndi til
Skotlands og síðar sást til smá-
flugvélar er enn flaug hátt, frá
ýmsum stöðum á Skotlandi og
Englandi, og bjuggust menn við
að flugvélin mundi lenda við
London. En Smith hefir hvergi
lent enn svo að vitað sé, þegar
þetta er símað, og ætla menn
helst, að honum hafi hlekst á
eða hann orðið að nauðlenda
vegna bensínskorts. Komst
Smith til Englands? Yar það
flugvél hans sem sást frá ír-
landi, Skotlandi og Englandi?
Og ef svo var ekki hvaða
„furðufiugvél“ var það þá? öll-
um þessum spurningum er ó-
svarað enn sem komið er.
United Press.
Prentmyn </.1 > fo t.i n
LEIFTUR
býr til /. f/okks prc/it-
myndir fyrir Jægsta i c/-t>.
Hafn. 17. S/mi 5379.
Permanent
kpallap
Wella, með rafmagni.
Soren, án rafmagns.
Hárgreiðslnstofan
PERLA
Bergstaðastræti 1. — Sími 3895.
■.tlCISNÆflll
STOFA til leigu fyrir reglu-
sama og ráðvanda manneskju.
Spítalastíg 1 A. (1738
STÆRRI og smærri íbúðir til
leigu 1. júní. Sími 1873. (1750
HERBERGI til leigu Spitala-
stíg 8. (1752
1 HERBERGI og eldhús til
leigu í Vonarstræti 12. (1754
ÓDÝR íbúð til leigu. Hús-
verk sama stað. Sími 4738. —
________________________(1755
2 HERBERGI og eldhús til
leigu i Aðalstræti 11B, uppi.
(1758
KJALLARAHERBERGI til
leigu fyrir einlileypa á Lauga-
vegi 28 D. (1759
HERBERGI óskast. Leiga 15
—20 kr. Sími 5392. (1761
1 LOFTHERBERGI og eld-
liús til leigu á Njálsgötu 12, fyr-
ir barnlaust fólk. (1767
TIL LEIGU stór 2ja her-
hergja íbúð. Einnig forstofu-
stofa. Sími 4399. (1773
2—3 HERBERGI til leigu
fyrir einhleypa, eldunarpláss
gæti fylgt. Hringbraut 196. —
(1776
SÓLRÍK stofa með baðh»P
bergi til leigu; tvö smáherbergi
geta fylgt. Sími 2129. (1777
ÁGÆT stofa í nýju húsi til
leigu. Uppl. í síma 2402, eftir
kl. 7,_________________(1779
1—2 HERBERGI og eldhús
með þægindum óskast strax. —
Tilboð sendist afgr. Visis fyrir
kl. 6 31. maí, merkt „Þægindi“.
_______________________(1763
SÓLRÍK sumaríbúð með
fögru útsýni utan til við bæinn
til leigu nú þegar. Sími 4774.
(1765
ÚTSVARS- og skattakærur
skrifar Jón Björnsson Klappar-
stíg 5 A. (1712
ATVINNA fyrir stúlkur.
Yngri og eldri stúlkur, sem
gegna vilja störfum við heim-
ilisverlc hér 1 bænum eða utan
bæjar, geta þegar í stað fengið
vinnu á úrvals heimilum ef þær
leita til Ráðningarstofu Reykja-
víkurbæjar, Bankastræti 7,
sími 4966. (75
ÚTSVARS- og skattakærur
skrifar Pétur Jalcobsson, Kára-
stíg 12. (1674
KOKKUR óskar eftir plássi á
síldarskipi. Uppl. á Hringbraut
75, kjallaranum, eftir kl. 6. —
(1742
SENDISVEINN. — Drengur,
sem kann á lijóli, fermdur, trúr
og ábyggilegur, óskast strax í
verslun. Tilboð merkt „Sendi-
sveinn“ sendist blaðinu. (1748
ÞRIFIN og vönduð stúlka,
sem kann til húsverlca, óskast í
létta vist. Halldóra Ólafs, Öldu-
götu 2. (1749
STÚLKA vön allri vinnu ósk-
ast. Hátt lcaup. Herbergi. Sími
2577.___________________(1751
TELPA 11—12 ára óskast strax
á Grettisgötu 62, uppi. (1756
TEK FÖT til viðgerðar. Uppl.
Bergstaðastræti 9 (steinliúsið).
________________________(1760
ÞRJÁR kaupakonur óskast á
gott sveitaheimili. — Uppl. á
Bræðrahorgarstíg 39. (1762
STÚLKU vantar í vor og
sumar upp í Borgarfjörð. Uppl.
í síma 5072. (1764
STÚLKA óskast til að gegna
ráðskonustörfum á litlu heimili
í sveit. A. v. á. (1766
TELPA 12—-13 ára óslcast
suður í Hafnir. Uppl. á Smiðju-
stíg 12 (bakdyr). (1769
SÍLDARSTÚLKUR vantar.
Uppl. á Frakkastíg 22,1. liæð, til
lielgarinnar. — Ennfremur ný
dragt til sölu sama stað. (1772
STÚLKA vön matreiðslu óslc-
ast strax. Gott kaup. Sérher-
bergi. Engir þvottar. A. v. á.
(1778
KFÆf)lH
GOTT og ódýrt fæði, einnig
án lcjöts, fyrir nokkra skilvísa
reglumenn í miðbænum. A. v. á.
(1771
iKAUi’SKAFIiii
MUNIÐ góða harðfiskinn ó-
dýra við steinbryggjuna. (1659
PRJÓNATUSKUR, tautusk-
ur, hreinar, kaupir hæsta verði
Afgr. Álafoss, Þingholtsstræti 2
(531
FORNSALAN, Hafnamrtræti
18, Selur með sérstöku tækífær-
isverði ný og notuð húsghgn og
litið notaða karlmannafatnaði.
Simi 2200,_______________g51
KAUPUM FLÖSKUR, stórar
og smáar, whiskypela, glös og
bóndósir. Flöskubúðin, Berg-
staðastræti 10. Simi 5395. —
Sækjum. Opið allan daginB.. •—
KOPAR keyptur i Lands-
smiöjunni. (14
MÓTORHJÓL. Vil kaupa gír-
kassa úr mótorhjóli eða gamalt
mótorhjól, strax. — UppL síma
5322. (1740
TIL SÖLU: Stofuskápur og
klæðaskápar, margar gerðir, á
Víðimel 31, sími 4531. (1741
VOR- og sumartíska 1939:
Svaggerar. Dragtir. Kvenfrakk-
ar og sumarkápur. Tískuhtir.
Fallegt úrval. — Verslun Krist-
ínar Sigurðardóttur. (1743
LJÓSIR sumarkjólar. Nýjasta
tíska. Verð frá kr. 29,75. Versl-
un Kristínar Sigurðardóttur. —
(1744
KVENPEYSUR, mjög vand-
aðar. Mikið og fallegt úrval. —
Vei’slun Kristínar Sigurðardótt-
ur.____________________(1745
HÁLEISTAR og ullarsport-
sokkar fyrirliggjandi, margar
stærðir. — Versiun Kristínar
Sigurðardóttur. (1746
SELKIUNDIRFATNAÐUR
KVENNA. Verð frá 8,95 settið.
Versl. Kristínar Sigurðardóttur.
_______________________(1747
PLÖNTUR, vel þroskaðar,
mörg afhrigði, fást á Suðurgötu
31. Sími 1860. Einkar hentugt
fyrir þá, sem þurfa að planta i
kirkjugarðinn. (1753
VANTAR noklcrar eldavélar.
Uppl. síma 4433. (1768
GARÐMOLD fæst á Klappar-
stig 13,_______________(1770
KVENMANNSHJÓL til sölu
vegna burtfarar. Uppl. á Víði-
mel 53 (niðri). (1775
UNGUR köttur, þrílitur (gul-
ur, hvítur, svartur) tapaðist s.l.
sunnudagsnótt frá Grettisgötu
51. Skilist þangað. Fundarlaun.
(1739
TAPAST hefir svartur kven-
skinnhanski. Sldlist i Raf-
tækjaversl. Ljósafoss. (1757
tTILK/NNINCAUI
FILADELFIA, Hverfisgötu
44. Opinber samkoma i kvöld
kl. 8y2. Herbert Larsson ásamt
fleirum vitna um Drottinn. All-
ir velkomnir! (1780
ÍÞAKA. Fundur i kvöld. Stór-
stúkuþingsmál rædd. (1774
ST. VERÐANDI nr. 9. Fund-
ur í kvöld kl. 8. Inntaka. Haf-
steinn Björnsson: Dulrænar frá-
sagnir. (1781