Vísir - 14.06.1939, Blaðsíða 2
2
VÍSIR
Miðvikudaginn 14. júni 1939,
JAPANIR LOKA ALÞJOÐA-
HVERFINU í TIENTSIN.
Þýskar og ítalskar bifreiðar fara
frjálsar ferða sinna, en allir ein-
staklingar rannsakaðir áður en
þeim er leyft að halda að eða frá
útlendingahverfinu.
EINKASKEYTI TIL VlSIS.
London, í morgun.
Frá Tientsin berast þær fregnir, að Japanir hafi í
morgun kl. 6 lokað alþjóðahverfinu þar og
sett það í einskonar umsátursástand, og nær
þetta einkum til forréttindasvæða Frakka og Breta.
Herverðir Japana gæta girðinga þeirra, sem settar
hafa verið umhverfis alþjóðahverfið og leyfa mönnum
hvorki að fara þar út né inn, nema því að eins að leitað
hafi verið nákvæmlega á þeim áður, en að öðru leyti
hafa þeir ekki hindrað umferð manna til alþjóðahverf-
isins. Þá leyfa Japanir einnig bifreiðum, sem bera ít-
alskan eða þýskan fána að fara að og frá útlendinga-
hverfinu, óhindrað og án þess að leitað sé í þeim, eða
þær rannsakaðar sérstaklega, enda eru slíkar bifreiðar
ekki stöðvaðar af hervörðum Japana.
Bretar hafa boðið út öllu fótgönguliði sínu í Tientsin til þess
að verja sérréttindasvæði sitt, og hefir fótgönguliðið staðið á
verði frá því í gær, síðari hluta dags, við úthverfi sérréttinda-
svæðisins.
Þær fregnir berast frá Hongkong að Japanir hafi hafnað
málamiðlunartillögum Breta, sem gengu í þá átt, að settur yrði
á stofn gerðardómur þriggja manna til þess að úrskurða um
ágreiningsefni Japana og Breta, og skyldi gerðardómur þessi
þannig skipaður að Bretar skyldu tilnefna í hann einn fulltrúa,
Japanir annan, en þvínæst skyldi oddamaður skipaður af ein-
hverju hlutlausu ríki eða aðila.
Amerikiimeiiii reyna
nýjan flugbát.
Ilanii g’etiir flogrið ÍOOOO km.
án viðkonau.
San Diego, Cal., 25. maí. (U.P.).
Flugvélaverksmiðjur Consolidated Aircraft hafa fyrir nokk-
uru lokið við að smíða flugbát, sem tekur 52 farþega, á að geta
flogið 16 þús. km. án þess að bæta við sig eldsneyti og flogið á
15 klst. jTir Atlanthafið. Er nú verið að reyna flugbát þenna,
en reynsluflugin fara fram með mestu leynd og er haldinn
strangur vörður um hann, dag og nótt.
VfSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson
Skrifstofa: Hverfisgötu 12
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstræti)
S i m a r:
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
— (kl. 9—12) 5377
Verð kr. 2.50 á mánuði.
Lausasala 10, 15 og 20 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Ófyrirleitni
kommúnista.
SÁ atburður gerðist um þing-
tímann í vetur, að þing-
maður einn gerði sig sekan í
því að síma til útlanda rangar
fregnir af því, sem gerst hafði
á Alþingi. Þessi þingmaður var
Einar Olgeirsson. Þá var verið
að ræða um heimild fyrir Þjóð-
verja til flugferða og var von
á þýskri sendinefnd til þess að
ræða þessi mál við ríkisstjórn-
ina. Um sömu mundir var
þýska lierskipið Emden vænt-
anlegt í heimsókn. Forsætisráð-
herra hafði sagt um ákveðið at-
riði, að um þetta yrði rætt þeg-
ar nefndin kæmi. En Einar tók
sig tii og símaði til útlanda að
forsætisráðherrann hefði sagt,
að þetta yrði tekið til umræðu
þegar Emden kæmi. Útlendir
lesendur hlutu að halda, að ís-
lendingum væri ætlað að semja
við Þjóðverja með fallbyssu-
kjafta herskipsins fyrir framan
sig. Þessi fregn hafði ýmsar
mjög óþægilegar afleiðingar í
för með sér; svo sem vita mátti.
Nokkru áður hafði það gerst,
að í lieimsblaðinu Manchester
Guardian birtist löng grein um
ímyndaðar fyrirætlanir Þjóð-
verja liér á Islandi. Fregn þessi
var tekin upp af blöðum víða
um heim og varð til þess að
vekja algerlega rangar hug-
myndir um afstöðu íslands í
heimspólitíkinni. Ekki liggja
fyrir sannanir um að þessi grein
sé rituð af kommúnistum á Is-
landi, en allar líkur henda til
þess að hún sé undan þeirra
rifjum runnin.
Það er alveg óþarfi að fjöl-
yrða neitt um það hverskonar
verknaður er hér á ferðinni.
Hver maður, sem hugsar nokk-
uð um það, sem nú er að gerast
í heiminum, skilur til fullnustu
livílíkur voði sjálfstæði landsins
getur verið búinn af slíkum
söguburði. En það er æði hast-
arlegt, að kommúnistar skuli
reyna að sannfæra nokkurn
mann um þjóðhollustu sína,
eftir það, sem i ljós hefir kom-
ið. Og það er hrein fyrirmunun,
þegar Einar Olgeirsson ætlar að
fara að segja íslenskum hlöð-
um fyrir um það, hvernig þau
eigi að skrifa um utanríkismál.
Á Alþingi urðu allsnarpar
umræður út af Emdenskeyti
Einars Olgeirssonar. I þeim um-
ræðum sagði Einar frá því, að
danskur ritstjóri hefði orðið að
Iáta af starfi, samkvæmt kröfu
Þjóðverja, vegna þess að blað
hans hafði birt orðrétt ummæli
bresks þingmanns, tekin upp úr
bresku blaði. Ekki vitum vér,
hvað Einar hefir haft fyrir sér
í þessu. En ályktunin sem Einar
dró af þessu var ekki sú, að
okkur bæri að fara varlega i op-
inheru umtali um Þjóðverja,
heldur þvert á móti.
Einar Olgeirss. heldur sér enn
við sama heygarðshomið. I gær
bölsótast hann yfir því, að ís-
lensku „horgarablöðin“ séu
ekki nærri nógu dugleg að
skamma fasistaríkin og hæla
sovét-ríkjunum. Einar er svo
blindaður, að það hvarflar ekki
að lionum, að fjandskapur við
fasistai’íkin getur haft mjög al-
varlegar afleiðingar fyrir við-
skifti okkar út á við. Hann lok-
ar augunum fyrir því, að þær
afleiðingar mundu bitna sárast
á þeim stéttum, sem hann þyk-
ist bera fyrir brjósti. Hann
rennir ekki grun í, að þjóð sem
hefir hlutleysisyfirlýsingu sína
eina sér til varnar, muni ann-
að hentara, eins og nú standa
sakir í heiminum, en að gerast
opinber aðili í mestu deilumál-
um stórþjóðanna.
Yið Islendingar verðum að
viðurkenna það, hvort sem okk-
ur er ljúft eða leitt, að við verð-
um að gæta fylstu varúðar í öll-
um umræðum um utanríkis-
mál. Þess vegna líta menn á
gaspur Einars Olgeirssonar sem
fljótræði og ófyrirleitni, alveg
eins og Emdenskeytið sæla. En
fljótræðið og ófyrirleitnin geta
orðið dýrkeypt, þegar erlendar
þjóðir eiga í hlut.
a
Bifreiðarslys í
Ljósavatnsskarði
í fyrrinótt valt vörubifreið út
af veginum í Ljósavatnsskarði,
nálægt Hálsi, en tveir menn
voru í bifreiðinni.
Annar maðurinn, sem í hif-
reiðinni var, Friðjón Axfjörð
múrarameistari, skarst töluvert
á úlnlið og varð fyrir allmiklu
blóðtapi. Frá Hálsi var strax
símað til Akureyrar og bná hér-
aðslæknirinn Jóhann Þorkels-
son þegar við og hélt á slysstað-
inn um nóttina. Gerði hann við
sár Friðjóns til bráðabirgða, en
flutti hann þvínæst til Akur-
eyrar, á sjúkrahúsið þar sem
sár hans voru saumuð.
Friðjón er talinn úr allri
liættu, en hinsvegar er við því
búið að liann eigi alllengi í þess-
um meiðslum og ekki vitað
hvort hendin verður jafngóð og
áður.
Job.
Lúðrasvcit
IScvkj avikiir.
Lúðrasveit Reykjavíkur ætl-
ar að skemta bæjarbúum með
lúðrablæstri á hverjum mið-
vikudegi framvegis, og í kVeld
verður þetta í fyrsta skifti í
skemtigarðinum við Lækjar-
götu.
Lúðrasveitin liefir verið
hrakningi með hljómleika sína
síðan girðingin var tekin burt af
Austurvelli, en það er áhuga-
mál sveitarinnar, að koma sér
upp „pavillion“, þar sem hún
getur liaft aðsetur sitt með
hljómleika í framtíðinni.
En L. R. er ekki fjársterk og
verður því að fara sömu leið
og mörg önnur félög, sem líkt
er ástatt með, nefnilega að selja
merki til ágóða fyrir sig. Verða
merkin seld í kveld og þess
vænst, að bæjarhúar styðji
lúðrasveilina, sem náð liefir
miklum vinsældum í bænum,
með því að kaupa merki.
Aðalfundur
Dýraverndunarfélags Islands
verður haldinn í kvöld í húsi K. F.
U. M. við Amtmannsstíg, salnum
uppi.
Gerðardómur þessi átti aðal-
lega að útkljá ágreining þann,
sem komið hefir upp milli
Breta og Japana, af þeim sök-
um, að fjórir kínverskir flótta-
menn leituðu hælis í hinum
breska hluta alþjóðahverfisins
en Japanir gáfu þeim að sök,
að þeir hefðu myrt japanska
hermenn og kröfðust af bresk-
um stjórnarvöldum í borginni,
að menn þessir yrðu framseld-
ir. Þessari kröfu Japana vísuðu
bresku stjórnarvöldin á bug,
með því fyrsta lagi að þeim
bæri engin lagaleg né siðferði-
leg skylda til slíks, og í öðru
lagi hefði Japanir engar full-
gildar sannanir í höndum fyrir
því, að menn þessir væru morð-
ingjar, en Japanir höfðu knúð
fram játningu frá þeirra hendi
með hinum grimmúðugustu
pyndingum.
Litu bresk stjórnarVöld svo á,
að þar sem málið lægi svo fyrir
sem að ofan greinir, leiddi
framsal Kínverjanna til þess
eins, að þeir mundu verða tekn-
ir af lífi án fullgildra sannana,
en myndu ef til vill verða kvald-
ir til frekari játninga. Töldu
Bretar þVí að framsal mann-
anna væri ómannúðlegt og á-
stæðulaust, eins og málið lægi
fyrir, en eðlileg leið til þess að
leysa málið væri sú, sem að of-
an greinir, að gerðardómur yrði
skipaður, sem siðan úrskurðaði
um það, hvort mennirnir skyldu
afhentir eða ekki.
Það er vitað, að í Japan er
mikil gremja ríkjandi, einkum
í garð Breta, Frakka og Banda-
ríkjamanna, sem þeir telja að
slyrki Kínverja bæði beint og
óbeint, enda hefir barátta Jap-
ana í Kína fyrst og fremst mið-
að að þvi, að brjóta á bak aftur
áhrifavald stórveldanna í Kína,
en þau eiga þar aftur stórfeldra
hagsmuna að gæta, einkum
fjárhagslegra, enda fá þau það-
an óhemju af nauðsynlegum
liráefnum og liafa sett mikið
fjármagri í ýins fyrirtæki í
Kína.
Talsmaður utanríkismála-
deildar japönsku ríkisstjórnar-
innar í Tolcio, lýsti í gær yfir
þvi, að það, sem fyrst og fremst
vekti fyrir Japönum með ráð-
1 fyrsta reynslufluginu reynd-
ist flugbáturinn svo miklu bet-
ur, en vonast hafði verið til, að
starfsmenn framleiðendanna og
opinberir embættismenn á-
kváðu þegar, að eingöngu trún-
aðarmenn beggja mætti kynn-
ast smíði flugbátsins og fyrir-
komulagi hans.
Smíði á lionum var liafin
fyrir luktum dyrum 1. ágúst s.l.
og har verksmiðjan jafnan á
móti því, þegar blöðin sögðu frá
því að verið væri að smíða
undraflugbát hjá Consolidated
Aircraft.
Það eru aðallega tvær nýj-
ungar í smíði flugbátsins, sem
ekki má fréttast nánara um.
Önnur er vængirnir, sem eru
smíðaðir með nýju, svokölluðu
Davis lagi, og hreyflarnir, sem
eru aðeins tveir. Er hvor hreyf-
stöfun þeirri að einangra al-
þjóðahverfið, væri að hafa eft-
irlit með mynt og fjármagni,
sem streymdi að og frá útlend-
ingahverfinu í Tientsin. Hélt
hann því fram, að óhemja af
er lendu fjármagni streymdi
þaðan til Kínverja, og væri það
undirstaða baráttu þeirrar, sem
Kínverjar héldu enn uppi gegn
Japönum.
Talsmaður japönsku stjóm-
Frh. hls. 8.
ill 18 cyl. og framleiðir 2000
hestöfl.
Davis-vængirnir eru fundnir
upp af verkfræðingi að nafni
David R. Ravis, sem löngum
var hjá Douglas-flugvéíaverk-
smiðjunum. Davis vann að
þessari uppfinningu sinni í 10
ár. Telja sérfræðingar að Davis-
vængirnir gefi 20% meiri hraða
en ef notaðir væri venjulegir
vængir. Mesti hraði flugbátsins
er áætlaður 440 km. á klst.
Gert er ráð fyrir að flugbát-
urinn flytji að jafnaði 52 far-
þega, en svefnklefar aðeins fyr-
ir 28. Auk þess er 5 manna á-
liöfn: þrír flugmenn, vélamað-
ur og loftskeytamaður. Einn af
áhöfninni verður jafnframt út-
lærður matsveinn.
Bensíngeymar verða fyrir um
16 þúsund lítra, en stærstu
sprengjuflugvélar Bandaríkj-
anna liafa „aðeins“ rúm fyrir
um 5500 1.
Búist er við að flugfélagið
American Export Airlines, sem
er skæður lceppinautur Pan-
American Airsvays, kaupi þenn-
an flugbát og marga fleiri. Er
gert ráð fyrir, að liann geti flog:
ið frá Boston til Azoreyja á 15
klst. Flugbáturinn Yankee Clip-
per, sem ér eign P.A.A., flaug
26. mars s.l. frá Baltimore til
Azoreyja á 17 klst. 33 mín. —
Leiðin er 4200 km.
ÞEGAR PÁLL PRINS VAR I BERLIN.
Það var ekki litið um að vera í Þýskalandi, þegar Páll prins, rikisstjórn-
andi Jugoslavíu, var gestur Hitlers á dögunum, ásamt Olgu' prinsessu, konu sinni,
og Markowitz, utanríkismálaráðherra. Þjóðverjar reyna nú að vingast sem mest
við Júgóslava, og var ríkisstjórnandanum sýnt margt, til þess að sannfæra hann
um hernaðarlegan mátt Þýskalands, og að gott væri að eiga vel vígbúna vini.
Hvort breyting verður á utanríkismálastefnu Júgóslava, er þó með öllu óvist.
Þeirra megin-boðorð er að fara sem gætilegast. — Myndin var tekin á hernað-
arsýningunni í Berlín. Páll prins stendur við hlið Hitlers.