Vísir - 20.07.1939, Síða 2
* V I S I R
Umferð á tveimur járnbrautarstöðV'
um í London stöðvast vegna nýrra
hermdarverka.
ípskip hermdaFverkamenn
kveiktu í byggingum og
komst eldnrinn í járn-
brautarbrú,
EINKASKEYTI frá United Press. — London í morgun.
nemma í morgun kom upp eldur í byggingu við
Grænmetissölu-miðstöðina miklu í Southwark
Japanir óska eftir
ianmnnn Breta,
til þess ad varðvcita frið
©g' reglu í liína.
EINKASKEYTI frá United Press. — London í morgun.
Hiranuma, forsælisráðherra Japan, og Arita utanríkismála-
ráðherra ræddu saman í gær um viðhorf Japan gagnvart
stefnu Breta í Kína, en svo er ráð fyrir gert, að Arita og Sir
Robert Craigie, sendiherra Breta í Tokio, ræðist við á morgun.
og varð af hið mesta tjón. Eldurinn breiddist
út og kviknaði í járnbrautarbrú skamt frá. Eyðilögðust
símar og leiðslur og lagðist niður öll umferð um Cha-
ring Cross og London Bridge járnbrautarstöðvarnar-
Fimtíu brunabílar komu á vettvang og á þriðja
hundrað slökkviliðsmenn unnu að því að slökkva eld-
inn og hindra útbreiðslu hans. Það er talið nokkurn-
veginn víst, að hér sé um hermardarverk að ræða, sem
„írski lýðveldisherinn“ stendur að.
Það hefir jafnan verið svo, að þegar írskir hermdar-
verkamenn hafa verið dæmdir í fangelsi, hafa ný
hermdarverk verið unnin. Þetta hið milda hermdar-
verk, sem nú liefir verið unnið, er talið í tengslum við
það, að nú er verið að afgreiða ný lög, sem sett eru
vegna hermdarverkanna. En samkvæmt þessum lögum
er bresku lögreglunni heimilt að gera húsrannsóknir
án sérstakrar heimildar, ef grunur leikur á, að þar sé
aðsetur slíkra manna, en einnig er heimilt að leita á
mönnum, hvar sem er og hvernig sem á stendur, ef
grunur leikur á, að þeir hafi ilt í huga. Verður stór-
kostlega aukið alt eftirlit með byltingarsinnuðum írum,
sem búa í Irlandi, og öllum frum, sem koma frá frlandi.
Hafa aldrei áður verið sett lög, sem ganga svo nærri
heimilishelginni í Bretlandi-
Breska stjórnin telur sig nú hafa sannanir fyrir því,
að undirróðursmenn i fríríkinu séu studdir með f jár-
framlögum af erlendu veldi.
VlSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson
Skrifstofa: Hverfisgötu 12
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstræti)
S i m a r:
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
— (kl. 9—12) 5377
Verð kr. 2.50 á mánuði.
Lausasala 10, 15 og 20 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Heimssýn-
ingin í
New York.
jþV'rTTAKA Islands í lteims-
sýningunni i New York
hefir vakið allmikla athygli, —
jafnvel meiri en búist var við.
Ber mönnum yfirleitt saman
um,.að fyrirkomulag sýningar-
innar sé gott og gefi Ijósa liug-
mynd um sögu lands og þjóðar,
menningu nútímans og afrek
forfeðranna.
Sum erlend blöð hafa að vísu
látið það áht sitt í ljós, að sýn-
ingin beri vitni um nokkuð
mikla viðkvæmni íslendinga og
jafnvel hégómagirnd, og að þeir
flaggi um of með kndafundum
Leifs héþna, en það er athyglis-
vert, að slík gagnrýni lcemur að-
allega úr einni átt, frá frændum
vorum Norðmönnum, sem hafa
sjálfir látið reisa styttu af Ólafi
konungi Tryggvasyni við sýn-
ingardeild sína, til þess eins að
reyna að tileinka sér afrek
Leifs, og ber það vott um átak-
anlegan barnaskap, sem að vísu
kemur okkur Islendingum í
góðar þarfir.
Með þátttökunni i heimssýn-
ingunni í New York hafa Is-
lendingar lagt meira að sér en
nokkur önnur þjóð í lieimi, og
það, sem áunnist hefir, er fyrst
og fremst það, að við höfum
sýnt og sannað, að hér býr
menníngarþjóð, sem að vísu er
fámenn og fátæk, en sækir fram
og hefir fengið miklu áorkað á
þeim skamma tíma, sem hún
héfir sjálfstæðis notið.
Þetta er i fyrsta sinn, sem við
Islendingar tökum þátt í líkri
alþjóða sýningu sem þeirri, sem
hér um ræðir, en það verður
að eins upphaf þess, sem verða
mun. Stórþjóðirnar keppast við
að kynna búskap sinn og fram-
leiðslu og jMj livíla allra augu
á þeim, en Iivað er þá um smáu
þjóðirnar, sem enga atliygli
vekja, vegna áhrifaleysis síns í
alþjóðamiálum? Ef stóru þjóð-
unum er það nauðsynlegt, að
kynna framleiðslu sína með
þátttöku* í slíkum sýningum,
er smáþjóðunum það lifsnauð-
syn.
Það er enginn efi á því, að
þáttlaka okkar í heimssýning-
unni í New York kynnir betur
land og þjóð, en nokkuð annað,
sem gert hefir verið til þess að
vekja athygli á þjóðinni, og það
má ætla, að sá kostnaður, sem
orðið hefir af sýningunni,marg-
borgi sig, heint og óbeint. Vegna
hinna erfiðu tima, sem við nú
lifum á, eru líkindi til að við
verðum að beina viðskiftum
okkar inn á nýjar leiðir, að við
verðum að leita til Vesturheims,
á sama hátt og á stríðsárunum,
i stað þess að skifta eingöngu
við nágrannalönd vor. Takist
okkur að mynda ný verslunar-
samhönd í Ameríku, sem lik-
,indi eru til, er það eitl og út
af fyrir sig ærinn ávinningur,
en að því ber að keppa. Fram-
leiðsla okkar hefir verið alger-
lega óþekt vestra, en nú hefir
að nokkru leyti verið úr því
hætt, og má húast við auknum
viðskiftum við Vesturheim frá
})ví, sem verið liefir.
Þá hefir sýningin allmikla
þýðingu að því leyti, að líkindi
eru til að hún eigi sinn ríka þátt
í því, að örfa ferðamanna-
strauminn hingað til lands, en
það er einnig okkur nauðsyn.
Ýmsir telja að vísu annmarka
á því, að við gelum búið svo að
erlendum gestum að viðunandi
sé, og draga í efa, að slíkur
ferðamannastraumur sé okkur
hollur. Þetta virðist þó hinn
mesti barnaskapur. Við höfum
ekki efni á þvi, að byggja um
okkur kínverskan múr, og við
erum að engu leíyti sjálfum
okkur nógir. Þjóð, sem þarf að
sækja flestar nauðsynjar til
annara Ianda, getur ekki og á
ekki að búa í sóttkví.
Það, sem við verðum að
leggja megináherslu á i fram-
tiðinni, er að kynna landið, at-
vinnuvegi þess og framleiðslu,
og reyna að vinna nýja mark-
aði. Takist það, má búast við
að okkur vegni vel, en ella elcki.
Slys með minsta móti
í bænum núna.
Vísir átti tal við Erling Páls-
son, yfirlögregluþjón, í morg-
un. Sagði hann að um þessar
mundir væri slys með mínsta
móti í bænum. Þau væri að vísu
jafnan færri á sumrin, en vet-
urna, en þetta sumar Væri ó-
venjulega gott að þessu Ieyti.
I dag mun verða farið
að merkja ýms gatnamót með
nöglum, eins og gert hefir verið
i miðhænum. Verða naglarnir
t. d. settir á gatnamótin um-
liverfis spennistöðiná á Lækj-
artorgi, gatnamót Vesturgötu
og Garðastrætis og víðar. Fær
lögreglan um 100 nagla í dag.
Naglar þcssir eru steyptir úr
aluminium og stáli hjá Ámunda
Sigurðssyni, bróður Ólafs Sig-
urðssonar framfærslufulltnia.
Um næstu helgi verður að
líkindum komið á einstefnu-
akstrinum um Austurstræti.
Skiltin hafa verið steypt í
Hamri, en sakir anna hjá því
fvrirtæki, vegna þess að fiski-
f Jotinn var að fara norður, dróst
það að skiltin 5Tði tilbúin. Nú
er verið að mála þau og verða
þau tilbúin næstu daga.
Haiikur lioarssoi
syodir úr Ity.
Haukur Einarsson, hinn ágæti
íþróttagarplur K.R., hefir bætt
einu afreki enn við þau, sem
fyrir eru. í gær synti hann úr
Viðey að Steinbryggjunni, ó-
smurður, á 1 klst. 37 mín.
Haukur lagðist til sunds ld. 2
eftir hádegi og var þá sjávar-
hiti 11 stig. Hann var í einum
sundbol og sundliettu. I byrjun
sundsins fékk hann straum á
móti og tilraunaferðir hins nýja
báts tollgæslunnar töfðu hann
einnig.
Þetta mun vera annar besti
tími, sem náðst hefir í sundi úr
Viðey, þvi að 1937 synti Pétur
Eiríksson þessa vegalengd á 1
klst. og 30 mín.
I Joyri Cíeorge ver
Vprsala saiiin-
ingfana.
Lloyd George flutti ræðu fyr-
ir nokkuru og varði friðarsamn-
ingana í Versölum, sem hann
kvað orðið að lensku að fara
skammar- og smánarorðum
um. Ræða þessi var haldin í
veislu í London.
David Lloyd George benti á
það, að vegna friðarsamning-
anna hefði margar undirokaðar
þjóðir fengið frelsi sitt á ný, en
nú væri búið að hefta sumar
þeirra í þrældómsviðjar á ný —
og það væri ekki Versalasamn-
ingunum að kenna.
Ólafur konungsefni
og Martha sæmd
heiðursmerki.
Osló, 19. júlí. — FB.
I veislunni, sem Hákon kon-
ungur efndi til — i heiðurs skyni
við Ólaf konungsefni og Mörtliu
krónprinsessu, sæmdi liann þau
hæði nýju Ólafsorðunni, fyrir
hið mikilvæga starf sem þau
hefði int af hendi fyrir Noreg í
Ameríkuferð sinni. Sagði kon-
ungur, að engimi, sem þessa
orðu hefði fengið, gæti borið
hana með meiri sæmd en þau.
NRP.
Zog' I \orrini*-
laiirialiefiiisókn.
Osló, 19. júlí. — FB.
Frá Stokkhóhni er símað, að
Zog fyrrverandi Albaníukon-
ungur sé væntanlegur til Sví-
þjóðar innah fárra daga ásamt
drotningu sinni og tveimUr
börnum. Frá Svíþjóð fer hann i
ferðalag lil Noregs og mun þá
Að því er United Press hefir
fregnað, mun Sir Robert Crai-
gie þegar hafa verið tilkynt,
hver niðurstaðan varð af við-
ræðum Arita og Hiranuma og
hefir hann gert stjórn sinni að-
vart þar um, og var tilkynt í
neðri málstofunni í gær, að Sir
Robert hefði fengið nýjar fyrir-
skipanir.
Að því er United Press hef-
ir fregnað, mun japanska
stjórnin hafa farið fram á
það, að Bretar undirgeng-
ist að hafa framvegis; sam-
vinnu við japanska herinn
um að viðhalda friði og
reglu í Kína — og einnig,
að Bretar viðurkenni, að
styrjaldartímaástand sé
ríkjandi í Kína.
Af þessu er ljóst, að það er
ekki lítið djúp, sem þarf að
brúa milli Breta og Japana, og
er lítil bjartsýni ríkjandi um ár-
angur af samkomulagsumleit-
ununum.
Japönsku böðin hvetja stjórn-
ina til þess, að koma fram af
festu við Breta.
SONJA HENIE
KOMIN TIL OSLO.
Oslo 18. júlí. FB.
Sonja Ilenie er komin aftur
til Oslo eftir flugferðalag sitt
til Norður-Noregs. — NRP.
koma við á fjörðunum á Vestur-
landinu, sem heimsfrægir eru
fyrir fegurð sína. — NRP.
Fjórum breskum her-
skípum hleypt af
stokkunum á tveim
sólarhringum.
Fjórum breskum herskipum
hefir verið hleypt af stokkun-
| um í skipasmíðastöðvum við
Tynefljót undangengna tvo sól-
arhringa. Jafnframt hefir verið
lagður kjölur að tveim nýjutrt
herskipum. Hefir það aldrei
komið fyrir áður í sögu breskra
herskipasmíða, að fjórum her-
skipum sé hleypt að stokkunum
á tveimur sólarhringum.
Er unnið af miklu kappi að
því, að Ijúka smíði margra her-
skipa í Bretlandi.
I rkoiiiui'iuir í
\oi»egri.
Osló, 19. júlí. — FB.
Miklar úrkomur undanfarna
daga á Vestfold, Þelamörk og
Buskerud hafa valdið stjórtjóni.
ITafa víða komið flóð og er það
óvanalegt á þessum tíma árs.
Ur þessum sveitum berast
fregnir um, að ár hafi flætt yfir
akra, skolað burt vegum og
valdið skemdum á járnbraut-
um. Víða hafa jarðhrun valdið
tjóni og í Bredal hefir flætt
kringum allstórt, bygt svæði, og
hafa margar fjölskyldur neyðst
til þess að flýja heimili sín. NRP
RÁÐGJAFI HITLERS í HEIMSÓKN í KAUPMANNAHÖFN.
Myndin er tekin á aðaljárnbrautarstöðinni i Khöfn, er ráðherrann, dr. jur. Hans Frank, kom
þangað, ásamt frú sinni. Dr. Frank kom til þess að halda fyrirlestra fyrir Lögfræðingasambandið
danska. Frá vinstri: Sendilierrafrú von Rentlie Fink, dr. Frank og kona hans, Reitzel-Nielsen lands-
réttarmálaflutningsmaður og þýski sendiheiTann í Kliöfn, von Renthe Fink. —• Þýski ráðherrann
Frank er nú í fjármála og stjórnmálaerindum í Hollandi.