Vísir - 21.07.1939, Side 2
2
Ví SIR
Föstudaginn 21. júlí 1939,
I
ÐAGBLAÐ,
Útgefandi:
BLAÐAÚ TGÁFAN VÍSIlt H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson
Skrifstofa: Hverfisgötu 12
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstræti)
8 I m a r:
Afgreiðsla 3100
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
— (kl. 9—12) 5377
Verð kr. 2.50 á mánuði.
Lausasala 10, 15 og 20 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Ríkisrekstur
og einka-
rekstur.
j^LÞÝÐUBLAÐIÐ fjargviðr-
ast yfir þvi í gær, að Vísir
og Morgunblaðið liafi sýnt rík-
isrekstrinum, sem mjög hefir
farið í vöxt á síðustu árum,
hreinan fjandskap, og liafi það
stafað af umhyggju þessara
blaða fyrir gróðabrallsstéttun-
um. Það er ekki úr vegi að taka
þessi ummæli blaðsins til nokk-
urrar athugunar, en þau eru að-
eins eitt dæmi þess með hvilík-
um endemum allur málflutning-
ur þess blaðs í þjóðmálunum
er og hefir verið.
Frá þvi er Sjálfstæðisflokk-
urinn hóf starf sitt hér á landi
hefir það fyrst og fremst mið-
að að uppbyggingu í stað nið-
urrifs, en sumpart hefir þessi
starfseími flokksins snúist í
vöm vegna ásækni annara
flokka til þjóðnýtingar og ein-
okunarstarfsemi í þjóðfélaginu.
Sjálfstæðisflokkurinn hefir á-
valt verið þeirra skoðunar, að
ríkið eigi ekki að fara um of
inn á svið einstaklingsins, eða
hefta atvinnufrelsi hans að ó-
þörfu, heldur búa þannig að
lionum að hann fái notið starfs-
krafta sinna og starfsvilja, að
svo miklu leyti, sem þjóðfélag-
inu er heppilegt. Hinsvegar hef-
ir flokkurinn ávalt litið svo á,
að þar sem um væri að ræða
fyrirtæki, sem ofvaxið væri ein-
staklingum að hrinda í fram-
kvæmd, ætti hið opinbera, bæ-
ir eða ríki, að hrinda björgun-
um úr vegi, ekki til þess fyrst
og frémst að það græði aðallega
sjálft á shkum fyrirtækjum á
kostnað framleiðendanna, held-
ur til hins, að framleiðendurnir
nytu hagræðis af slíkum fram-
kvæmdum hins opinbera. Þann-
ig hefir Sjálfstæðisflokkurinn
fyrst og fremst beitt sér fyrir
því, að ríkið hefir látið reisa
síldarve'rksmiðjur á Siglufirði,
sem það rekur sjálft, og munu
allir á einu máli um það, að slík
ráðstöfun er í fylsta máta heppi-
leg, ekki vegna stórgróða rikis-
ins á slikum fyrirtækjum, held-
ur beins og óbeins hagnaðar
framleiðendanna af hinni bættu
aðstöðu*
Hinsvegar hefir Sjálfstæðis-
flokkurinn ávalt verið því frá-
hverfur, að ríkið sölsaði undir
sig allan slíkan rekstur, með til-
liti til þess að slikt kæmi at-
vinnuvegunum ekki til góða, ef
einstaklingarnir eru sjálfir fær-
ir um að reka slíkar verksmiðj-
ur samhliða ríkisrekstrinum.
Um einkasölumar er aftur
’það að segja, að Sjálfstæðis-
flokkurinn er og liefir verið
þeim andvígur, af þeim sökum
fyrst og fremst, að reynslan er
sú, að einkasölurnar hækka
vöruverðið í landinu frekar tín
lækka það, og að þær tryggja
ekki frekari vörugæði en ein-
staklingamir, og njóta auk þess
sérslakra fríðinda í sköttum og
skyldum umfram einkarekstur-
inn. I flestum tilfellum er það
því beint tap fyrir ríkið að reka
slíka starfsemi, miðað við það,
ef einstaklingarnir liefðu slíkan
rekstur með höndum, en fram-
ar öllu e'r slíkur rekstur til ó-
hagræðis fyrir allan almenning
vegna óliagkvæms vöruverðs.
í einstaka tilfellum getur þó
rikisrekstur verið heppilegur,
einkum þar sem um vörur er
að ræða, sem ekki er æskilegt
að framboð verði um of á, t.
d. áfengi.
Það, sem ber að leggja meg-
ináhersluna á, er það hvað þjóð-
inni kemur að mestu gagni, en
ekki liitt, hvort um einkarekst-
ur eða rikisrelcstur er að ræða.
Reynslan sýnir hinsvegar og
sannar, að yfirleitt er ríkis-
reksturinn óheilbrigður á þeim
sviðum, sem einstakhngarnir
eru þess sjálfir megnugir að
starfa á, ef engin óeðlileg liöft
eða hömlur eru lagðar á starf-
semi þeirra. Ríkisrekstur, sem
beinlínis er haldið uppi með
einkarétti og fríðindum á kostn-
að ahnennings er óheilbrigður
og til bölvunar frekar en bless-
unar, og shkan rekstur ber að
afnema sem skjótast.
Skífting jarða
vegna nýbýla-
stofnana.
Pálmi Einarsson ráðunautur
leggur af stað næstkomandi
mánudag austur á Fljótsdals-
liérað og í Norður-Þingeyjar-
sýslu. Mun hann verða um mán-
aðarlíma í ferðinni.
í þesari ferð annast hann
skiftingu Yallaness og Jaðars,
vegna nýbýlastofnana og fram-
kvæmir mælingar á Kópaskeri
og Raufarhöfn, vegna fyrirhug-
aðra ræktunaráforma við þessi
kauplún,
Ennfremur mun Pálmi Ein-
arsson, ef tími vinst til í íe'rð
þessari, vinna að mælingum á
undirlendi Axarfjarðar.
Fjölgað í atvinnu-
bótavinnunni.
1 gær var fjölgað í atvinnu-
bótavinnunni um 25 menn og
munu líkur til þess að ríkis-
stjórnin láti fjölga um aðra 25
á næstunni.
Tilkynti borgarstjóri þetta á
bæjarstjórnarfundi i gær og gat
þess að hann liefði átt tal við
atvinnumálaráðherra um þetta
mál og nefndir frá verka-
mannafélögunum hefði einnig
talað við ráðhe’rrann.
Einar Olgeirsson bar fram
tillögu um 50 manna fjölgun,
en henni var vísað lil bæjarráðs.
Ný norsk frímerki.
Oslo 21. júli. FB.
Póststjómin norska liefir
gefið út frimerki af Maud
drotningu, í minningar skyni,
og eru þau með mynd drotn-
ingar. Eru þetta 10, 15, 20 og
30 aura frimerki og eru seld
með 5 aura aukagjaldi, sem
rennur í hjálparsjóð, sem ber
nafn Maud drotningar. Upplag
frímerkjanna er ein milj. og
verður upplagið ekki endur-
prentað. Sala hefst 24. júlí. —
BRETAR HERÐA SÓKNINA
GEGN HERMDARVERKA-
MÖNNUNUM
5000 meðlimum írska lýðveldis-
hersins vísað úr landi.
Japanir §eg;jast ekki
ógfiia Bretiim, —
til þcs§ aO taka nýja stcfnu
í A ust iir- Vs«íiiiiiál iim.
EINKASKEYTI frá United Press. — London í morgun.
Breska stjórnin er staðráðin í að láta til skarar
skríða gegn írsku hermdarverkamönnunum
og þegar í stað, er lögin, sem nú liggja fyrir
þinginu, sem heimila fyrirvaralausar húsrannsóknir og
handtökur allra, sem grunur hvílir á o. s. frv. hafa ver-
ið samþykt, verður hafist handa um að vísa úr landi
öllum meðlimum írska lýðveldishersins í Bretlandi. —
Það er blaðið Daily Herald, sem birtir þessa
fregn, og fullyrðir það, að 5000 karlar og konur,
sem lögreglunni sé kunnugt um að séu í írska lýð-
veldishernum verði tekin og flutt úr landi.
Breska stjórnin, segir þetta blað, og fleiri viðhafa
ummæli í sama dúr, getur ekki lengur sætt sig við, að
veita skjól fólki, sem að staðaldri gengur með rýting-
inn í erminni. Scotland Yard hefir hafið hið strangasta
eftirliti í öllum borgum með öllum I.R.A. mönnum, sem
einkanlega þykja grunsamlegir og eru í flokki hinna
bíræfnustu I. R. A. manna um 400 og má heita, að hafn-
ar séu gætur að hverri hreyfingu þeirra.
Scotland Yard-menn eru á verði við allar járnbraut-
arstöðvar. Einnig í öllum hafnarborgum, til þess að
koma í veg fyrir að menn sem grunur hvílir á og lög-
reglan er á hnotskógi eftir, geti flúið land.
EINKASKEYTI frá United Press. —London í morgun.
Embættismaður í japanska utanríkismálaráðuneytinu neitaði
því í morgun, að því er fregn frá fréttaritara United Press í
Tokio hermir — að Japanir væri að gera tilraun til þess með
hótunum eða ofbeldislegri framkomu, að neyða Breta til þess
að taka nýja stefnu í Austur-Asíumálunum.
Hinsvegar kvað japanski embættismaðurinn það vera von
japönsku stjórnarinnar, að Bretar tæki nýja stefnu í þessum
málum og fengi réttan skilning á afstöðu Japana í Kína og
myndi þá af sjálfsdáðum viðurkenna, að rétt væri að koma á
nýju skipulagi í Kína í líkingu við það, sem Japanir vildu.
Ágreiningur
um Rússa
miUi Breta
og Frakka.
Bretar þora ekki að
láta hernaðarleg
leyndarmál í hend-
ur Rússa.
EINKASKEYTI TIL VÍSIS.
London, í morgun.
Samkomulag hefir ekki
enn náðst í Moskva vegna
ágreinings milli Breta og
Frakka um sameiginlega af-
stöðu þeirra til ltraf a Rússa.
Seeds, sendiherra Breta í
Moskva, bíður því enn eftir
frekari fyrirskipunum frá
London-
Að því er United Press hefir
fengið vilja Frakkar ganga eins
langt í tilslökununum við
Rússa og frekast er unt, en
Bretum er óljúft að verða við
öllum kröfum Rússa einkanlega
að því er snertir skilning Rússa
á hvað sé óbein árás og hvenær
koma skuli öðrum ríkjum til
aðstoðar. Einnig eru Bretar
mótfallnir því að þegar í stað
verði hafnar sameiginlegar við-
ræður breskra, franskra og
rússneskra hermálasérfræðinga.
Að því er blöð einræðisríkj-
anna lialda fram, er það mesti
Þrándur í Götu fyrir því, að
samkomulag takist, að Bretar
treysta ekki Rússum - né Rúss-
ar Bretum. Blöðin segja hik-
laust, að það sem standi í vegi
fyrir þríveldasaukomulagi sé nú
aðallega það, að Bretar þÖri eklci
að láta Rússum í té liin sameig-
inlegu heyrnaðarleyndarmál
Breta og Fakka, en það væri ó-
hjákvæmilegt, ef fallist væri á
kröfuna um viðræður hermála-
sérfræðinga Sovél-Rússlands,
Bretlancls og Frakklands. Þessi
blöð gera sér einnig mat úr því,
Þrátt fyrir, að þessi orð hins
japanska embættismanns beri
minni ágengni vitni en ætla
mætti, er af ýmsum tahð,
að samkomulagsumleitanirnar
hafi raunverulega strandað í
bili vegna ágreinings um stefnu
Breta. Arita utanríkismálaráð-
herra, fór hvað eftir annað á
fund liermála- og flotamálaráð-
herranna í gær, og samkvæmt
tilkynningu, er látin var Dom-
ei-fréttastofunni í té af opin-
berri liálfu, ætla Japanir sér
ekki að slaka til á kröfum sín-
um. ■ ; |
að fullnaðarsamkomulag hefir
ekki enn náðst um kröfur Pól-
verja um lán til hergagnakaupa
í Bretlandi. Hafi Bre'luin ekki
tekist að verða við óskum Pól-
verja í því efni, enn sem komið
er.
Sjómannakveðja.
FB. fimtudag.
Erum á leið til Englands. Vel-
Iiðan. Kærar kveðjur.
Skipshöfnin á Jupiter.
Brakið var úr
Saltdöliiig'cii.
Oslo 21. júlí. FB.
Brak það úr skipsflaki, sem
fyrir nokkuru var sent frá ís-
landi til Noregs til athugunar,
reyndist við fi-ekari rannsóknir
ekki vera úr selveiðiskipinu
Nyken, lieldur úr selveiðiskip-
inu Saltdölingen. — NRP.
Frækilegt sund. Norsk
stúlka syndir yfir
Þrándheimsfjörð.
Osló 20. júlí. FB.
Ung sundmær, Guðrún Dahle,
synti í gær yfir Þrándlieims-
fjörð, frá Vanviken lil Trond-
heim, en vegalengdin er 20 kilo-
metrar. Hún var 8 klst. og 20
mínútur á leiðinni. Er þe'tta tal-
ið glæsilegt afrek, ekki síst
vegna þess, að sjávarliiti var
aðeins 10 stig. Ungfrú Dahle
hefir nú lýst yfir, að hún ætli
að gera tilraun til að þrtíýta
sund yfir Ermarsund. — NRP;
VlGBÚNAÐUR BRETA
hefir aldrei verið meiii á friðartímum en nú. Jafnframt er stöðugt unnið að því að efla og full-
komna herinn. Nýlega hófu fyrstu 30.000 nýliðarnir heræfingar samkvæmt hinum nýju herskyldu-
lögum, og komu allir á veltvang til æfinganna, nema einn maður, en hann Iiafði þá nýlega verið
genginn í fastaherinn. í Bretlandi hefir að sögn orðið alger breyting á hugarfari þjóðarinnar frá
því er Hitler fór með her lil Prag, og braul þar með fyrri loforð. Bretar liafa sannfærst um, að eng-
in leið sé til að stöðva ógengni og ofbeldi í málefnum þjóðanna nema vera viðbúnr, að leggja alt í
sölurnar lil þess. Og það ætla þeir sér að gera. — Á myndinni sjást bresku konungshjónin á æf-
ingarstöð hersins.