Vísir - 01.09.1939, Page 4
4
VISIR
Föstudaginn 1. september 1939.
VtSIH
OAGBLA9
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Kitstjóri: Kristján Guðlaugsson
Skrifstofa: Hverfisgötu 12
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstræti)
8 í m a r:
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
— (kl. 9—12) 5377
Verð kr. 2.50 á mánuði.
Lausasala 10, 15 og 20 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Lokuð sund.
yONIR þeirra, sem treystu
því, að Bretum tækist að
miðla málum i Danzig-deilunni,
eru að efngu orðnar. 1 gærkvöldi
gaf Hitler út yfirlýsingu um
það, að hann gæti ekki lengur
beðið eftir svari Pólverja við
kröfum sínum. í stað þess að
senda samningame’nn til Berlín,
hefðu Pólverjar tekið að her-
væðast. Þjóðverjar hefðu beðið
eftir svari Pólve’rja í tvo daga,
og úr því ekkert heyrðist frá
þeim, yrði ekki á það litið öðru-
vísi en seta synjun við hinum
þýsku kröfum. En fyrsta krafa
Þjóðverja væri sú, að Danzig
sameinist Þýskalandi þegar í
stað skilyrðislaust. Talið er að
yfirlýsing Hitlers hafi komið
mönnum alveg á óvart í Lond-
on og því er haldið fram þar,
að Pólverjar hafi ekki vitað
neitt um skilmálana fyr en í
gærkvöldi.
Þótt þessi yfirlýsing kunni að
hafa komið að óvörum, þá er
sýnilegt á öllu þvi, sem fram
hefir farið síðustu dagana, að
stórtíðinda var vænst. Jafn-
framt hervæðingunni hafa vefrið
gerðar allar varúðarráðstafanir.
Fanska stjórnin beindi í gær til-
mælum til allra þeirra, sem
gætu því við komið, að fara frá
Paris. Flutningur barna og ör-
kumla fólks frá London og
ýmsum öðrum stórhorgum
Englands hefst í dag. 1 öllum
löndum álfunnar liafa verið
gerðar varúðarráðstafanir eftir
þvi sein við hefir verið komið
og nauðsynlegt tahð. Menn hafa
þannig búist við hinum verstu
tíðindum, þótt vonarneisti hafi
lifað fram á hina síðustu
stundu. Enn er ofsnemt að full-
yrða, að styrjöld verði ekki af-
stýrt. Danzig verður óhjá-
kvæmilefga sameinuð Þýska-
landi. En ekki er fullljóst hvað
Pólverjar gera og siðan banda-
menn þeirra. I gværkvöldi
sögðu Þjóðverjar frá smáskær-
um á austurlandamærunum, en
þegar þetta er ritað hefir ekki
enn komið til styrjaldar.
*
En hvað sem þessu líður, þá
liefir rás viðhurðanna verið sú
liina síðustu daga, að ekki er
sýnilegt, hvefrnig styrjöld verð-
ur afslýrt. Líkurnar eru á þess-
ari stundu meiri fyrir þvi, að
það sem allir hafa óttast sé nú
að verða að veruleika. Þjóðverj-
ar hafa kastað tefningunum að
því er Danzig snertir. Nú veltur
alt á því, hvernig þeim leik
verður svarað. Ekkert hefir
komið fram um það, að Pól-
verjar vilji fyrir sitt leyti slaka
til. Og Vesturríkin, Bretar og
Frakkar, hafa fram til þessa
stöðugt áréttað þær yfirlýsingar
sínar, að þeir standi við hhð
Pólverjum i þessum ágrein-
ingsefnum. Hér virðist þvi mál-
um í slíkt óefni komið, að blóðs-
úthellingar verði ekki umflún-
ar.
Þau tíðindi, sem nú eru að
gerast, eru svo geigvænleg, að ‘
eðlilegt er að menn vilji láta
segja sér þau tvisvar. Mann-
kynið liefir aldrei gert sér jafn
skýra grein fyrir hörmungum
og viðbjóð styrjalda eins og
einmitt nú. Allur þorri manna
í öllum löndum þráir friðinn
umfram alt. Á þá að trúa því,
að miljónum manna verði teflt
í opinn dauðann?
Hernaðarundirbúningur er
ekki sama og styrjöld. Rómverj-
ar höfðu þá reglu að búast til
ófriðar til þess að friður héld-
ist. Hvað mikið af styrjaldar-
ráðstöfunum síðustu daga eT
gert beinlínis til þess að sann-
færa andstæðinginn um að nú
sé alvara á ferðum? Þjóðverjar
telja sig hafa helgan rétt til
sinna athafna. Vesturríkin telja
þá fara með ofbeldi og lögleysu.
Þjóðverjar hafa stigið örlaga-
ríkt spor. Ef Vesturrikin svara
í sömu mynt, verður það enn
örlagaríkara. Óhamingjan grúf-
ir yfir öllu mannkyni. Fram til
siðustu stundar verður að vona
að eitthvað rofi til í þeirri
hræðilegu bliku. Á þeim ákvörð-
unum, sem teknar eru á þessu
augnabliki, getur oltið velferð
og hamingja hundraða miljóna
á komandi tímum. Sundin virð-
ast algerlega lokuð, en er ekki
eihversstaðar hulin leið mihi
skersins og bárunnar út á opið
haf? Þannig spyrja menn.
Svarsins verður ekki langt að
bíða.
a
Talsamband-
inu við Eng-
land slitið.
Engar dulmálsskeyta-
sendingar.
Ritsímanum hafa borist skeyti
um það, að dulmálsskeytasend-
ingar séu bannaðar til Frakk-
lands, frönsku nýlendnanna og
Póllands.
Talsambandinu milli íslands
og Bretlands var slitið í gær.
Talsamband var enn í morg-
un árdegis við Danmörku.
Fundur utanríkismála-
herra Norðurlanda.
Oslo 31. ágúst. FB.
Fundur utanríkismálaráð-
herra Norðurlanda, sem var
settur í Oslo í morgun, hafði
mikilvæg mál til meðferðar,
sem eTu í tengslum við hlutleysi
Norðurlanda, og að Noregur,
Sviþjóð og Finnland hafa horf-
ið frá að miða gengi gjaldmiðla
sinna við sterhngspund. Loks
birgðir Norðurlanda, ef til styrj-
aldar kemur, og vöruskifti
þeirra millum. NRP.
22 þý§k her§kip
í Eptra§alti.
Oslo 1. sept. FB.
Þrettán Norðmenn komu til
Osló í gær á skipinu Balduin. —
Balduin mætti 22 þýskum her-
skipum á leiðinni. NRP.
Danzig sameinað
Stór-Þýskalandi.
Þjóðverjar gera árásir á pólsku
landamærin og Gdynia.
EINKASKEYTI frá United Press. — London í morgun.
Þjóðverjar liafa látið tii skarar
1 skríða gagnvart Póllandi
með því að heita vopnavaldi
til þess að leiða deilu þeirra til lykta.
í morgun sendi Förster, leiðtogi
nasista í Danzig, skeyti til Hitlers
og tilkynti honum að Danzig sam-
einaðist Þýskalandi.
Landvarnaráðið þýska hefir sent út ávarp til þjóðar-
innar og hersins og hvatt alla til þess að sameinast að
baki ríkisleiðtogans og leggja á sig hverja fórn, sem
nauðsynleg reynist, fyrir föðurlandið.
Göring ávarpaði flugherinn sérstaklega, Ráder að-
míráll flotann, og Keitel herinn.
Bari§t víðast hvar
á landamærnm Pól-
land§ ogr Þý§kaland$
HRAÐSKEYTI. London, árdegis.
Frá Yarsjá er símað, að samkvæmt opinberri tilkynn-
ingu hafi þýski flugherinn gert loftárás á margar járn-
brautarstöðvar, m. a. járbrautarstöðina í Czew og borg-
irnar Ypnic, Wells, Putxk, en þær eru allar nálægt Czew.
Samkvæmt upplýsingum frá hermálastjórninni
pólsku er barist víða á landamærum Póllands og Þýska-
lands. jgf
Franska stjórnin kom saman á fund í gærkvöldi og
ákvað að kvika í engu frá tekinni stefnu og standa við
allar skuldbindingar gagnvart Póllandi.
Þýska ríkisþingið kom saman á fund í morgun og
ávarpaði Hitler þingið. Hann sagði, að nú, þar sem
vopnaviðskifti væri byrjuð milli Þjóðverja og Pólverja,
og ekki hefði tekist að leysa deilumálin friðsamlega,
væri ekki nema um eitt mark að ræða, sem Þjóðverjar
yrði að leggja alla áherslu á, að ná og það væri að
sigra, og sigra sem skjótast.
Hitler tilkynti, að ef eitthvað kæmi fyrir hann —
svo að hann gæti ekki gegnt störfum ríkisleiðtogans,
eða ef hann félli frá, yrði Göring eftirmaður hans, en
ef Göring félli frá, þá tæki Rudolf Hess við sem ríkis-
leiðtogi.
IJr ræðn llftlers.
í ræðu sinni gerði Hitler ítarlega grein fyiir því, að hann
hefði verið allur af vilja gerður til þess að leysa deiluna frið-
samlega. Hann hefði lagt fram tillögur, sem miðuðu að frið-
samlegri lausn, og heðið eftir komu pólskra fulltrúa til samn-
inga, en þeir liefði ekki komið, og Pólverjar hefði haldið áfram
að hervæðast. Hefði þá þolinmæði hans þrotið. Hitler sagðist í
öllu hafa sýnt, að hann vildi góða sambúð við Breta og liann
endurlók sín fyrri ummæli um það, að núverandi landamæri
Frakklands og Þýskalands skyldi haldast óbreytt. Tilraunirnar
til þess að umkringja Þýskaland liefði mishepnast og andstæð-
ingar Þjóðverja myndu fá að reyna, að hinu þýska stáli myndi
beitt svo, að Þjóðverjar sigruðu.
Fundurinn var haldinn í Krollóperunni og samþykti þingið
innlimun Danzig í Stór-Þýskaland eftir að feld hafði verið úr
gildi stjórnarskrá Danzig.
I gær var gripið til mjög víðtækra ráðstafana í Bretlandi og
þótti sýnt af þeim, að breska stjórnin óttaðist að. til stórtíðinda
mundi draga. Fyrirskipuð var hervæðing herskipaflotans, og
kallað saman varalið flughers og landhers, en þjóðvarnaliðinu
skipað að vera til taks hvarvetna. Einnig var fyrirskipaður
brottflutningur bama úr helstu borgum landsins og hófst hann
í morgun. Það eru um 3 miljónir manna, sem fluttar verða úr
London og helstu iðnaðarborgum landsins, svo sem Glasgow,
Leeds ,Bradford, Manchester, Newcastle og öðmm. Fyrst verð-
ur lögð áhersla á, að flytja burt böm á skólaaldri, börn undir 5
ára og mæður þeirra, barnshafandi konur, blint fólk, heyrnar-
laust og mállaust eða kryplað, og er búist við, að þessi flutn-
ingur standi yfir í 4 daga frá London en hálfan annan sólar-
hring frá öðrum borgum í Iengsta lagi.
Hversu ófriðarblikan hafði færst nær sáu menn greinilega
á því, að sérstökum árgöngum breska sjóliðsins, svo sem kaf-
bátaskipshöfnum, var skipað að fara tafarlaust til stöðva sinna,
og jafnvel togarar, sem teknir hafa verið sem hjálparskip flot-
ans, eru lagðir úr höfn.
Blöðum verður að sjálfsögðu
tíðrætt um till. Hitlers. Bresk og
frönsk blöð fullyrða, að pólsku
ráðherrarnir hafi ekkert um til-
lögurnar vitað, fyrr en þeir
lieyrðu þær lesnar upp í þýska
útvarpið.
Hið sanna í málinu, segja
blöðin, er það, að tillögurnar
voru aldrei lagðar fomilega
fram fyrir Breta, Frakka eða
Rússa, en þær voru Iesnar upp
fyrir Henderson á viðræðu-
fundi og leit liann svo á, að þar
væri aðeins um einn þátt sam-
lcomulagsumleitananna að
ræða. Tillögumar voru ekki af-
hentar honum — og ekkert
formlega tilkynt um það, og
þess vegna hefir afstaða þýslcu
stjórnarinnar í sambandi við
þessar tillögur um friðsamlega
lausn deilunnar, komið öllum
lie’iminum á óvart.
Hitt er svo annað mál, að
Pólverjar mundu ekki hafa litið
Auk loftárása þeirra, sem að framan getur, hafa Þjóðverjar
gert árás á hafnarborgina Gdynia, úr lofti, og hafa verið skotn-
ar niður 3 þýskar flugvélar, en vitað er, að Þjóðverjar hafa
talsvert sterkan flota í Eystrasalti. Ekki hefir enn frést, að árás
hafi verið gerð af sjó á Gdynia, en menn óttast, að hún standi
fyrir dyrum.
Fnndur I lnrsltn stjórniimi kl. 11.
Breska stjórnin kemur saman á fund kl. 11 áregis í dag. Ætla
menn, að þar muni verða tekin hin mikilvægasta ákvörðun,
vegna árásar Þýskalands á Pólland.
Þýski herinn hefir gert árásir á landamæri Póllands í mörg-
um áttum, sunnan frá Slovakíu, frá Austur-Prússlandi, til suð-
urs, á landamærum Efri-Slesíu og beggja megin pólska hliðsins.
Loftárás hefir verið gerð á Varsjá og varð mikið tjón af völd-
um hennar. Meðal þeirra sem fórust er margt kvenna og barna.
Sendiherra Þjóðverja fóráíund Chamberlains.
Settur sendiherra Þýskalands í London fór á fund
Chamberlains í nr. 10 Downing Street árdegis í dag.
Enn hefir ekkert verið tilkynt um hvað þeim fór í milli.
Roosevelt Bandaríkjaforsétí hefír fyrirskipað, að
senda skuli loftskeyti til allra amerískra herskipa, og
tilkynna þeim, að stríð sé byrjað milli Pólverja og
Þjóðverja.
við þessum tillögum, og hefir
pólska stjórnin þegar tilkynt, að
þær væri ekki þannig, að hún
hefði getað geíngið að þeim.
Tillögurnar gengu út á það
aðallega, að Þýskaland fengi
Danzig, en þjóðaratkvæði færi
fram í pólska hliðinu, að ári
liðnu, undir stjórn alþjóða-
nefndar.
í Berlín
höfðu menn almefnt sannfærst
um það í gær, að stórtíðindi
væru í vændum, enda fluttu
hlöð og útvarp miklar fregnir
um ágengni Pólverja. Svo kom
fregnin í gærkveldi um árás
pólskra hermanna á útvarps-
stöðina í Gleiwitz, sem er
Þýskalands megin og sló þar í
bardaga milli Þjóðverja og Pól-
verja, og féllu margir af Pól-
verjum. Pólska útvarpið hefir
ekki efnn birt neina fregn um
þessa viðureign.
f París
er öllum viðbúnaði hraðað
sem mest má verða. Allsherjar-
hervæðing hetfir verið fyrirskip-
uð og hermálaráðherrann (Dal-
adier) hefir kvatt Gamdin yf-
irhershöfðingja á sinn fund.
Allir herforingjamir frönsku í
Frakklandi, Algier, Tunis, Sýr-
landi og annarstaðar, þar sem
Frakkar fara með völd, hafa
fengið sínar fyrirskipanir.
I London.
Tilkynningar hafa ekki enn
verið birtar um niðurstöður
ráðherrafundarins og stóð hann
enn yfir, er síðast fréttist.
í Varsjá
er fólkið sagt rólegt, jþrátt
fyrir, að styrjaldarhörmungam-
ar eru nú famar að dynja yfir
pólsku þjóðina. Pólverjar eru
staðráðnir í að verja Iand sitt.
Á HEIMLEIÐ FRÁ MOSKVA.
Hermálafulltrúar Breta og Frakka á Iieimleið frá Moskva,
14 talsins, fóru í gær um Oslo til Bergen. Breska beitiskipið
Sheffield sækir þá þangað. — NBP.
NORSKA KRÓNAN OG STERLINGSPUNDIÐ.
Noregshanki hefir hætt að skrásetja gengi krónunnar í hlut-
falli við sterlingspund. — NBP.