Vísir - 13.09.1939, Qupperneq 2
VISIR
VÍSIR
ÐAGBLAS
Útgefandi:
BLAÐAÚ TGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson
Skrifstofa: Hverfisgötu 12
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
j(GengiS inn frá Ingólfsstræti)
S i m a r:
Afgreiðsla 3400
Ritstjórn 4578
Auglýsingastjóri 2834
— (kl. 9—12) 5377
Verð kr. 2.50 á mánuði.
Lausasala 10, 15 og 20 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
...........
Útílutnings-
verslunin.
ÖLL milliríkjaviðskifti í heim-
inum hafa á undanfömum
árum verið ýmsum erfiðleikum
háð. Þar -sem áður mátti heita
frjáls verslun hefir komið opin-
ber íhlutun, takmörkun inn-
flutnings og vöruskifti. Allar
þjóðir hafa orðið að breyta við-
skiftaaðferðum sínum sam-
kvæmt þessu. Einstaklingsfram-
takið liefir eldíi notið sín eins
og áður. Hið almenna viðskifta-
ástand hefir leitt i ljós að hag-
kvæmt liefir verið að hafa
meira samstarf, en þörf var á
meðan viðskiftin voru frjálsari
og minni takmörkunum háð.
Hér á landi hafa t. d. fiskútflytj-
endur bundist frjálsum samtök-
um um sölu á framleiðsluvöru
sinni. Stofnun S.Í.F. var eðlilegt
svar við því ástandi, sem þá var
að skapast í viðskiftalöndunum.
Upphaflega var þetta fyrirtæki
alveg óháð opinberri íhlutun.
Síðar voru sett lög, sem einnig
snertu það. Nú er svo komið að
mestöll útflutningsverslun
landsmanna er í höndum opin-
Iierra eða liálfopinberra stofn-
ana: S.Í.F., Fiskimálanefndar,
Síldarútvegsnefndar og S.Í.S.
Auk þess er útflutningsverslun-
in háð ýmsum fyrirmæ'lum um
ákveðin viðskifti til ákveðinna
Ianda vegna verslunarsamninga
og jafnvirðiskaupa. SHk hefir
stefnan verið á undanförnum
árum.
Með styrjöldinni skapast ný
viðhorf í þessum efnum. Eins
og frá var skýrt í Vísi í gær hef-
ir ríkisstjórnin með bráða-
birgðalögum sett alla útflutn-
ingsverslunina undir sameigin-
legt eftirlit. Tilgangur rikis-
stjórnarinnar með þessari á-
kvörðun er sá, að hagnýta fyrir
þjóðina, svo sem við verður
komið, þær snöggu verðbreyt-
ingar, sem af styrjöldinni leiða.
Nefnd sú, sem skipuð verður
samkvæmt bráðabirgaðlögun-
um á ekki að hafa sölu afurð-
anna með höndum, heldur að-
eins veitingu útflutningsleyfa.
Henni er fyrst og fremst ætlað
að ná sem hæstu verði fyrir af-
urðirnar. Þvínæst að hafa eftir-
lit með því, að öllum gjaldeyri
sé skilað. Og loks er hlutverk
hennar að beina viðskifta-
slraumnum eftir þvi sem kring-
umstæður krefjast á hverjum
tima.
Þvi verður ekki neitað, að
nefnd þessi fær mikið og áhrifa-
ríkt valdsvið. Henni er ætlað að
starfa í náinni samvinnu við
ríkisstjórnina og heyrir undir
atvinnumálaráðuneytið.
Fyrsta grein bráðabirgðalag-
anna vekur sérstaka athygh.
Hún &r á þessa leið: „Rikis-
stjórninni er heimilt að ákveða,
að engar vörur megi bjóða til
sölu, selja til útlanda eða flytja
úr landi nema að fengnu leyfi
liennar.“ Eftir röglugerðinni
hefir stjórnin þó ekki notað
þessa heimild enn sem komið
er. —
Það getur vel verið, að sú þörf
verði fyrir hendi, að nauðsyn-
legt reynist að beita þeim á-
kvæðum laganna, sem hér var
hent á. En engum getur dulist,
að vandfarið er með svona mik-
ið vald. Mest veltur á, að reynt
sé að raska sem minst atvinnu-
möguleikum þeirra, sem hafa
haft útflutning með höndurn að
undanförnu.
Snöggar breytingar krefjast
skjótra úrræða og er erfitt að
íáða fram úr þeim erfiðleikum,
sem nú steðja að, svo að vel sé.
í síðustu styrjöld var gripið til
þess að koma upp landsverslun,
bæði með útfluttar og aðfluttar
vörur. Vísir er algerlega and-
stæður slíkum úrræðum. Það
fyrirkomulag, sem hér hefir
verið upptekið, virðist miklu
aðgengilegra, sem sé, að salan
sé sem mest í höndum þeirra,
söm hafa annast hana, en verð-
skráningin í höndum stjórn-
skipaðrar eftirlitsnefndar.
a
BORGIN LODZ AFTUR í
HÖNDUM PÖLVERJA.
Framsókn Þjódverja stödvud á öll-
um vígstöðvum, segja Pólverjar.
EINKASKEYTI frá United Press. — London í morgun.
Frá útvarpsstöðinni í Varsjá var í gærkveldi seint, útvarpað tilkynningu þess
efnis, að pólski herinn hafi hertekið Lodz, sem Þjóðverjar höfðu nýlega tek-
ið. Féll borgin í hendur Pólverjum, eftir að þeim hafði tekist að sameina lið
það, sem var fyrir suðvestan borgina, og hersveitir frá Posnan, sem Þjóðverjar
höfðu gert tilraunir til þess að stöðva að austanverðu, en þær báru engan árangur.
Það er að sjálfsögðu mikill hnekkir Þjóðverjum að hafa mist Lodz úr höndum sér — ofan á
það, að sókn þeirra við Varsjá hefir stöðvast. Það getur orðið þeim mjög erfitt að vinna þetta upp
fljótlega, og hætt við, að, dragi úr vonum Þjóðverja um skjótan sigur yfir Pólverjum. Lodz er mik-
il verslunar- og iðnaðarborg og stendur hún við Lodka-fljót um 75 mílur enskar frá Varsjá. Lodz
er miðstöð baðmullar og vefnaðarvöruiðnaðarins pólska og vélaiðnaðarins. íbúatalan er um
600.000.
Kanadamenn verja 20
milj. dollara til
stríðsþarfa.
Lodon í morgun.
— Einkaskeyti frá United Press.
Frumvarp, sem ríkisstjórnin
lagði fyrir Þjóðþingið, um fjár-
veitingar til stríðsþarfa, að upp-
hæð 20 miljónir dollara, var
samþykt með öllum atkvæðum.
Gert er ráð fyrir að afla fjár-
ins með því, að auka ágóðaskatt,
og yfirleitt verða tekjuskattar
hækkaðir með sérstöku tilliti til
þess, að hækkunin bitni á þeim,
sem hagnast vegna stríðsins. —
Einnig er aukinn skattur á vin-
um og bjór Ennfretnur ýmsum
varningi.
SKYNDIÁRÁSIR FRÁ VARSJÁ.
í Varsjá er unnið að því að treysta varnir borgarinnar sem
mest. Virki eru hlaðin og vinna að því ungir og gamlir. Skyndi-
árásir hafa verið gerðar á Þjóðverja frá ,Varsjá og hafa árásir
þessar borið góðan árangur. Yfirleitt, segja Pólverjar, hafa
Þjóðverjar nú hvarvetna verið stöðvaðir
Undangengna tvo sólarhringa hefir margt snúist Pólverjum
í vil og einkum þetta tvent, að Þjóðverjar hafa verið stöðvaðir
við Varsjá, og Lodz aftur fallin í hendur þeirra, hefir mjög
aukið þær vonir þjóðarinnar, að Þjóðverjum takist ekki að
sigra Pólland, áður en mikil sókn hefst á vesturvígstöðvunum,
en þar sem það er talið víst, að Þjóðverjar hafi þegar orðið að
flytja lið þangað frá Póllandi, er mjög líklegt að þeir neyðist
til að kalla enn aukið herlið þaðan og senda til vestur-víg-
stöðvanna.
Oslo 12. sept. FB.
Fregnir Þjóðverja um töku Varsjá hafa reynst rangar. Verja
Pólverjar borgina af miklu kappi og hafa hlaðið Virki í úthverf-
unum og grafið skotgrafir fyrir utan borgina og í útjöðrunum.
Borgarbúar taka þátt í vörninni. Bardagarnir eru harðastir
sem stendur á nyrstu vígstöðvunum og syðst. Landslag, þar
sem nú er barist, er þannig, að sóknin er Þjóðverjum erfiðari
miklu en fyrstu daga innrásarinnar. — NRP.
Breskt-íransltt herráð stofnað
EÍNKASKEYTI frá United Press. — London í morgun.
Bresku blöðin í morgun fagna yfir því, að horfið
var að því þegar í stað, að stofna breskt-franskt herráð
(war council) eins og í heimsstyrjöldinni. Var ákvörð-
un um þetta tekin á fundi í Frakklandi í gær, sem þeir
sátu Chamberlain, forsætisráðherra Bretlands, Dala-
dier forsætis- og hermálaráðherra Frakklands, Game-
lin yfirherforingi Frakka og Ironside, breski herfor-
inginn á vesturvígstöðvunum.
Það er bent á það, að slíkt ráð var ekki stofnað í
Heimsstyrjöldinni fyrr en hún hafði staðið í 18
mánuði.
Blöðin leggja áherslu á það, að þetta ásamt mörgu
öðru sýni það og sanni, að Bretar og Frakkar séu stað-
ráðnir í að leggja fram alla krafta sína, auð og mann-
afía, til þess að sigra í styrjöldinni og kveða niður
Hitlerismann.
S. í. F. tekst að
leigja skáp.
Vísir skýrði frá því fyrir
skemstu í sambandi við fisksöl-
ur S.Í.F. til Portugals og Ítalíu,
að vandasamt væri að fá skip til
flutninganna á fiskinum, vegna
þess, hversu erfitt væri að fá
kol.
Nú hefir ræst úr þessu þann-
ig, að S. í. F. hefir telcist að
leigja tvö skip til flutninganna.
Leigan er ekki dýrari en við
mátti búast, eins og nú er ástatt
í heiminum.
E.s. Edda, sem kom með salt-
farm til Austfjarða i gær, verð-
ur að likindum leigð til ítaliu-
farar á næstunni.
Síldarsöltun á
Hólmavík.
Hólmavík í gær.
Frá fréttaritara Vísis.
í nótt voru salíaðar hér 1150
tunnur síldar, og er það aðallega
afli þriggja báta. Fjölnir kom
með 441 tunnu, Jón Þorláksson
með 432 og síldin með 272.
Síld þessi veiddist á Bitru-
firði og fyrir mynni Hrúta-
f jarðar.
Mikil kolkrabbaveiði hefir
verið á Steingrímsfirði að und-
anförnu og er enn.
Kristján.
Sérfræðingar Oslo-
veldanna á fundi
í Briissel.
Oslo 12. sept. FB.
Sérfræðinganefnd Osloveld-
anna er sem stendur á fundi i
Briissel. Meðal þeirra mála, sem
um er rætt, er það, að ríki, sem
eiga stóran kaupskipaflota, Ieggi
liinum Osloveldunum til skip.
Koht, utanríkismálaráðherra
Norðmanna, svaraði fyrirspurn
um þetta, að það væri ekki
nema eðlile'gt, að þjóðirnar
hjálpuðu hver annari með þvi
að leggja til skip, eftir þvi sem
hægt væri. Utánrikisráðherrann
Iagði áherslu á, að hér væri að
eins rætt um hvað ef til vill væri
hægt að gera, en engar ákvarð-
anir teknar að svo stöddu. NRP.
Pólska stjórnin
flutt til Bsrest-
Litovsk.
Oslo í dag. FB.
Pólska stjórnin hefir flutt að-
setur sitt til Brest Litovsk um
stundarsakir.
Brest-Litovsk er mikil iðnaö-
arborg og stendur við Bug-ána.
Borgin er mikilvægjárnhrautar-
miðstöð, en borgin er ekki stór,
— íbúatalan að eins 30—40.000.
Borgin liefir komið mjög við
sögu og þar voru friðarsamn-
ingar gerðir á stríðstímanum,
sem kunnugt er.
Ármenningar.
Skíðamenn halda fund á morgun
kl. 9 á skrifstofu Ármanns.
StFÍds trygrg1 isigai*
liækka.
Oslo i dag. FB.
Stríðstryggingar, að því er
pólsk, bresk og frönsk skip í
förum um Norður-Atlantshaf
snertir, hafa verið liækkuð um
50%.
Ntyrj ald ari'áö-
sitafaniF \«i*d-
manna.
Oslo 12. sept. FB.
Eftirhtsráðið var kallað sam-
an á fund í gær, ásamt fulltrú-
um atvinnu- og viðskiftalífs, til
til þess að athuga verðhækkun
nauðsynja. Formaður eftirlits-
ráðsins benti á, að bannið gegn
verðhækkun væri að eins til
bráðabirgða, því að menn væri
á einu máli um það, að veírð-
bækkun væri óhjákvæmileg, en
binsvegar er nauðsynlegt að
halda henni í skefjum eins og
auðið er. Ennfremur varð sam-
komulag um að fastákveða
verðlag í samvinnu við land-
búnaðarfélögin.
Ef ekkert sérstakt kemur fyr-
ir mun Stórþingið hafa lokið
störfum sínum í næstu viku.
Tillögur voru lagðar fyrir
Stórþingið í gær um stofnun
sérstaks ráðuneytis, sem fer
með þau vandamál, sem koma
fram vegna styrjaldarerfiðleik-
anna. Ennfemur tillögur um, að
ríkið taki að sér stríðstiygging-
ar fiskiflotans, ennfremur um
fjárveitingu vegna hlutleysis-
gæslunnar og fl. NRP.
Láðrasveit Reykjavíkur.
Vísir hefir verið beðinn að geta
þess, að LúSrasveitin leiki ekki á
Austurvelli i kvöld, eins og undan-
farin miðvikudagskvöld.
VAXANDI ÓLGA í GÖMLU TÉKKÓSLÓVAKÍU.
Ýmsar fregnir benda til, að vaxandi ólga sé í gömlu Tékkóslóvakiu, ekki síst í Slóvakiu. Ýmsar
fregnir herma, að slóvakiskir hermenn hafi i þúsundatali gerst liðhlaupar, af ótta við að verða
sendir gegn Pólverjum, sem þeir hafa samúð með. Þjóðverjar hafa bannað slóvakiskum flugmönn-
um að fljúga yfir Þýskaland. — í Póllandi, Palestinu, Frakklandi, Englandi og víðar er verið að
stofna tékkneskar hersveitir, til þess að berjast með Bretum, Frökkum og Pólverjum. — Ef banda-
menn vinna er lítill vafi á þvi, að hin gamla Tékkóslóvakía verður endurreist að mestu. —• Mynd-
in er af Hradschin kastala í Prag, þar sem ríkisforsetar Tékkóslóvakíu höfðu aðsetur, þar til Hitl-
er sendi her Þýskalands inn í landið og tékkóslóvakiska lýðveldið hrundi til grunna.