Vísir - 13.09.1939, Blaðsíða 2

Vísir - 13.09.1939, Blaðsíða 2
VISIR VÍSIR ÐAGBLAS Útgefandi: BLAÐAÚ TGÁFAN VÍSIR H/F. Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifstofa: Hverfisgötu 12 Afgreiðsla: Hverfisgötu 12 j(GengiS inn frá Ingólfsstræti) S i m a r: Afgreiðsla 3400 Ritstjórn 4578 Auglýsingastjóri 2834 — (kl. 9—12) 5377 Verð kr. 2.50 á mánuði. Lausasala 10, 15 og 20 aurar. Félagsprentsmiðjan h/f. ........... Útílutnings- verslunin. ÖLL milliríkjaviðskifti í heim- inum hafa á undanfömum árum verið ýmsum erfiðleikum háð. Þar -sem áður mátti heita frjáls verslun hefir komið opin- ber íhlutun, takmörkun inn- flutnings og vöruskifti. Allar þjóðir hafa orðið að breyta við- skiftaaðferðum sínum sam- kvæmt þessu. Einstaklingsfram- takið liefir eldíi notið sín eins og áður. Hið almenna viðskifta- ástand hefir leitt i ljós að hag- kvæmt liefir verið að hafa meira samstarf, en þörf var á meðan viðskiftin voru frjálsari og minni takmörkunum háð. Hér á landi hafa t. d. fiskútflytj- endur bundist frjálsum samtök- um um sölu á framleiðsluvöru sinni. Stofnun S.Í.F. var eðlilegt svar við því ástandi, sem þá var að skapast í viðskiftalöndunum. Upphaflega var þetta fyrirtæki alveg óháð opinberri íhlutun. Síðar voru sett lög, sem einnig snertu það. Nú er svo komið að mestöll útflutningsverslun landsmanna er í höndum opin- Iierra eða liálfopinberra stofn- ana: S.Í.F., Fiskimálanefndar, Síldarútvegsnefndar og S.Í.S. Auk þess er útflutningsverslun- in háð ýmsum fyrirmæ'lum um ákveðin viðskifti til ákveðinna Ianda vegna verslunarsamninga og jafnvirðiskaupa. SHk hefir stefnan verið á undanförnum árum. Með styrjöldinni skapast ný viðhorf í þessum efnum. Eins og frá var skýrt í Vísi í gær hef- ir ríkisstjórnin með bráða- birgðalögum sett alla útflutn- ingsverslunina undir sameigin- legt eftirlit. Tilgangur rikis- stjórnarinnar með þessari á- kvörðun er sá, að hagnýta fyrir þjóðina, svo sem við verður komið, þær snöggu verðbreyt- ingar, sem af styrjöldinni leiða. Nefnd sú, sem skipuð verður samkvæmt bráðabirgaðlögun- um á ekki að hafa sölu afurð- anna með höndum, heldur að- eins veitingu útflutningsleyfa. Henni er fyrst og fremst ætlað að ná sem hæstu verði fyrir af- urðirnar. Þvínæst að hafa eftir- lit með því, að öllum gjaldeyri sé skilað. Og loks er hlutverk hennar að beina viðskifta- slraumnum eftir þvi sem kring- umstæður krefjast á hverjum tima. Þvi verður ekki neitað, að nefnd þessi fær mikið og áhrifa- ríkt valdsvið. Henni er ætlað að starfa í náinni samvinnu við ríkisstjórnina og heyrir undir atvinnumálaráðuneytið. Fyrsta grein bráðabirgðalag- anna vekur sérstaka athygh. Hún &r á þessa leið: „Rikis- stjórninni er heimilt að ákveða, að engar vörur megi bjóða til sölu, selja til útlanda eða flytja úr landi nema að fengnu leyfi liennar.“ Eftir röglugerðinni hefir stjórnin þó ekki notað þessa heimild enn sem komið er. — Það getur vel verið, að sú þörf verði fyrir hendi, að nauðsyn- legt reynist að beita þeim á- kvæðum laganna, sem hér var hent á. En engum getur dulist, að vandfarið er með svona mik- ið vald. Mest veltur á, að reynt sé að raska sem minst atvinnu- möguleikum þeirra, sem hafa haft útflutning með höndurn að undanförnu. Snöggar breytingar krefjast skjótra úrræða og er erfitt að íáða fram úr þeim erfiðleikum, sem nú steðja að, svo að vel sé. í síðustu styrjöld var gripið til þess að koma upp landsverslun, bæði með útfluttar og aðfluttar vörur. Vísir er algerlega and- stæður slíkum úrræðum. Það fyrirkomulag, sem hér hefir verið upptekið, virðist miklu aðgengilegra, sem sé, að salan sé sem mest í höndum þeirra, söm hafa annast hana, en verð- skráningin í höndum stjórn- skipaðrar eftirlitsnefndar. a BORGIN LODZ AFTUR í HÖNDUM PÖLVERJA. Framsókn Þjódverja stödvud á öll- um vígstöðvum, segja Pólverjar. EINKASKEYTI frá United Press. — London í morgun. Frá útvarpsstöðinni í Varsjá var í gærkveldi seint, útvarpað tilkynningu þess efnis, að pólski herinn hafi hertekið Lodz, sem Þjóðverjar höfðu nýlega tek- ið. Féll borgin í hendur Pólverjum, eftir að þeim hafði tekist að sameina lið það, sem var fyrir suðvestan borgina, og hersveitir frá Posnan, sem Þjóðverjar höfðu gert tilraunir til þess að stöðva að austanverðu, en þær báru engan árangur. Það er að sjálfsögðu mikill hnekkir Þjóðverjum að hafa mist Lodz úr höndum sér — ofan á það, að sókn þeirra við Varsjá hefir stöðvast. Það getur orðið þeim mjög erfitt að vinna þetta upp fljótlega, og hætt við, að, dragi úr vonum Þjóðverja um skjótan sigur yfir Pólverjum. Lodz er mik- il verslunar- og iðnaðarborg og stendur hún við Lodka-fljót um 75 mílur enskar frá Varsjá. Lodz er miðstöð baðmullar og vefnaðarvöruiðnaðarins pólska og vélaiðnaðarins. íbúatalan er um 600.000. Kanadamenn verja 20 milj. dollara til stríðsþarfa. Lodon í morgun. — Einkaskeyti frá United Press. Frumvarp, sem ríkisstjórnin lagði fyrir Þjóðþingið, um fjár- veitingar til stríðsþarfa, að upp- hæð 20 miljónir dollara, var samþykt með öllum atkvæðum. Gert er ráð fyrir að afla fjár- ins með því, að auka ágóðaskatt, og yfirleitt verða tekjuskattar hækkaðir með sérstöku tilliti til þess, að hækkunin bitni á þeim, sem hagnast vegna stríðsins. — Einnig er aukinn skattur á vin- um og bjór Ennfretnur ýmsum varningi. SKYNDIÁRÁSIR FRÁ VARSJÁ. í Varsjá er unnið að því að treysta varnir borgarinnar sem mest. Virki eru hlaðin og vinna að því ungir og gamlir. Skyndi- árásir hafa verið gerðar á Þjóðverja frá ,Varsjá og hafa árásir þessar borið góðan árangur. Yfirleitt, segja Pólverjar, hafa Þjóðverjar nú hvarvetna verið stöðvaðir Undangengna tvo sólarhringa hefir margt snúist Pólverjum í vil og einkum þetta tvent, að Þjóðverjar hafa verið stöðvaðir við Varsjá, og Lodz aftur fallin í hendur þeirra, hefir mjög aukið þær vonir þjóðarinnar, að Þjóðverjum takist ekki að sigra Pólland, áður en mikil sókn hefst á vesturvígstöðvunum, en þar sem það er talið víst, að Þjóðverjar hafi þegar orðið að flytja lið þangað frá Póllandi, er mjög líklegt að þeir neyðist til að kalla enn aukið herlið þaðan og senda til vestur-víg- stöðvanna. Oslo 12. sept. FB. Fregnir Þjóðverja um töku Varsjá hafa reynst rangar. Verja Pólverjar borgina af miklu kappi og hafa hlaðið Virki í úthverf- unum og grafið skotgrafir fyrir utan borgina og í útjöðrunum. Borgarbúar taka þátt í vörninni. Bardagarnir eru harðastir sem stendur á nyrstu vígstöðvunum og syðst. Landslag, þar sem nú er barist, er þannig, að sóknin er Þjóðverjum erfiðari miklu en fyrstu daga innrásarinnar. — NRP. Breskt-íransltt herráð stofnað EÍNKASKEYTI frá United Press. — London í morgun. Bresku blöðin í morgun fagna yfir því, að horfið var að því þegar í stað, að stofna breskt-franskt herráð (war council) eins og í heimsstyrjöldinni. Var ákvörð- un um þetta tekin á fundi í Frakklandi í gær, sem þeir sátu Chamberlain, forsætisráðherra Bretlands, Dala- dier forsætis- og hermálaráðherra Frakklands, Game- lin yfirherforingi Frakka og Ironside, breski herfor- inginn á vesturvígstöðvunum. Það er bent á það, að slíkt ráð var ekki stofnað í Heimsstyrjöldinni fyrr en hún hafði staðið í 18 mánuði. Blöðin leggja áherslu á það, að þetta ásamt mörgu öðru sýni það og sanni, að Bretar og Frakkar séu stað- ráðnir í að leggja fram alla krafta sína, auð og mann- afía, til þess að sigra í styrjöldinni og kveða niður Hitlerismann. S. í. F. tekst að leigja skáp. Vísir skýrði frá því fyrir skemstu í sambandi við fisksöl- ur S.Í.F. til Portugals og Ítalíu, að vandasamt væri að fá skip til flutninganna á fiskinum, vegna þess, hversu erfitt væri að fá kol. Nú hefir ræst úr þessu þann- ig, að S. í. F. hefir telcist að leigja tvö skip til flutninganna. Leigan er ekki dýrari en við mátti búast, eins og nú er ástatt í heiminum. E.s. Edda, sem kom með salt- farm til Austfjarða i gær, verð- ur að likindum leigð til ítaliu- farar á næstunni. Síldarsöltun á Hólmavík. Hólmavík í gær. Frá fréttaritara Vísis. í nótt voru salíaðar hér 1150 tunnur síldar, og er það aðallega afli þriggja báta. Fjölnir kom með 441 tunnu, Jón Þorláksson með 432 og síldin með 272. Síld þessi veiddist á Bitru- firði og fyrir mynni Hrúta- f jarðar. Mikil kolkrabbaveiði hefir verið á Steingrímsfirði að und- anförnu og er enn. Kristján. Sérfræðingar Oslo- veldanna á fundi í Briissel. Oslo 12. sept. FB. Sérfræðinganefnd Osloveld- anna er sem stendur á fundi i Briissel. Meðal þeirra mála, sem um er rætt, er það, að ríki, sem eiga stóran kaupskipaflota, Ieggi liinum Osloveldunum til skip. Koht, utanríkismálaráðherra Norðmanna, svaraði fyrirspurn um þetta, að það væri ekki nema eðlile'gt, að þjóðirnar hjálpuðu hver annari með þvi að leggja til skip, eftir þvi sem hægt væri. Utánrikisráðherrann Iagði áherslu á, að hér væri að eins rætt um hvað ef til vill væri hægt að gera, en engar ákvarð- anir teknar að svo stöddu. NRP. Pólska stjórnin flutt til Bsrest- Litovsk. Oslo í dag. FB. Pólska stjórnin hefir flutt að- setur sitt til Brest Litovsk um stundarsakir. Brest-Litovsk er mikil iðnaö- arborg og stendur við Bug-ána. Borgin er mikilvægjárnhrautar- miðstöð, en borgin er ekki stór, — íbúatalan að eins 30—40.000. Borgin liefir komið mjög við sögu og þar voru friðarsamn- ingar gerðir á stríðstímanum, sem kunnugt er. Ármenningar. Skíðamenn halda fund á morgun kl. 9 á skrifstofu Ármanns. StFÍds trygrg1 isigai* liækka. Oslo i dag. FB. Stríðstryggingar, að því er pólsk, bresk og frönsk skip í förum um Norður-Atlantshaf snertir, hafa verið liækkuð um 50%. Ntyrj ald ari'áö- sitafaniF \«i*d- manna. Oslo 12. sept. FB. Eftirhtsráðið var kallað sam- an á fund í gær, ásamt fulltrú- um atvinnu- og viðskiftalífs, til til þess að athuga verðhækkun nauðsynja. Formaður eftirlits- ráðsins benti á, að bannið gegn verðhækkun væri að eins til bráðabirgða, því að menn væri á einu máli um það, að veírð- bækkun væri óhjákvæmileg, en binsvegar er nauðsynlegt að halda henni í skefjum eins og auðið er. Ennfremur varð sam- komulag um að fastákveða verðlag í samvinnu við land- búnaðarfélögin. Ef ekkert sérstakt kemur fyr- ir mun Stórþingið hafa lokið störfum sínum í næstu viku. Tillögur voru lagðar fyrir Stórþingið í gær um stofnun sérstaks ráðuneytis, sem fer með þau vandamál, sem koma fram vegna styrjaldarerfiðleik- anna. Ennfemur tillögur um, að ríkið taki að sér stríðstiygging- ar fiskiflotans, ennfremur um fjárveitingu vegna hlutleysis- gæslunnar og fl. NRP. Láðrasveit Reykjavíkur. Vísir hefir verið beðinn að geta þess, að LúSrasveitin leiki ekki á Austurvelli i kvöld, eins og undan- farin miðvikudagskvöld. VAXANDI ÓLGA í GÖMLU TÉKKÓSLÓVAKÍU. Ýmsar fregnir benda til, að vaxandi ólga sé í gömlu Tékkóslóvakiu, ekki síst í Slóvakiu. Ýmsar fregnir herma, að slóvakiskir hermenn hafi i þúsundatali gerst liðhlaupar, af ótta við að verða sendir gegn Pólverjum, sem þeir hafa samúð með. Þjóðverjar hafa bannað slóvakiskum flugmönn- um að fljúga yfir Þýskaland. — í Póllandi, Palestinu, Frakklandi, Englandi og víðar er verið að stofna tékkneskar hersveitir, til þess að berjast með Bretum, Frökkum og Pólverjum. — Ef banda- menn vinna er lítill vafi á þvi, að hin gamla Tékkóslóvakía verður endurreist að mestu. —• Mynd- in er af Hradschin kastala í Prag, þar sem ríkisforsetar Tékkóslóvakíu höfðu aðsetur, þar til Hitl- er sendi her Þýskalands inn í landið og tékkóslóvakiska lýðveldið hrundi til grunna.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.