Vísir - 15.09.1939, Blaðsíða 2
2
VlSIR
Föstudaginn, 15. septbr. 1939»
100
| Eftir Óskar Gíslason ljósmyndara.
ára iiíiiiirli
1| osmyitdasnií ðimrar,
Ljósmyndasmíði í þeirri
mynd, sem hún birtist okk-
ur í dag er vissulega eitt
þeirra fyrirbæra á sviði
tækninnar, sem verðskuld-
ar almenna athygli. Það er
því ekki ótilhiýðilegt að
minnast hennar að nokkru
á þeim merkilegu tímamót-
um, sem aldarafmæli ávalt
hlýtur að vera.
Það liggur þá beinast við, að
rifja upp fyrir okkur, sem lif-
um á öld hinna hraðstígu fram-
fara, hvernig umhorfs var fyrir
einni öld á sviði ljósmynda-
tækninnar. En áður en út í það
verður farið er óhjákvæmilegt
að minnast nokkurum orðum á
forsögu málsins.
Alheimsorðið Photographie,
— sem á íslensku hefir verið
þýtt Ijósmynd, — táknar eins
og menn vita ljósletur eða Ijós-
teikning og er sú hugmynd æva-
gömul. Sjálf var Ijósmyndavél-
in þannig úr garði gerð: Svartur
kassi með gati framaná, en það
var hið svokallaða Camera ob-
scura — myrkra kompa — sem
þekt var aftur úr forneskju.
Þegar Ijósinu var lileypt inn
um opið þá kom fram mynd
af lilutnum, sem fyrir framan
stóð, á bakveggnum í kassan-
um. Baptista Porta fann upp á
því að setja bjúggler í gatið
1559. Myndina sem þannig birt-
ist mjög greinilega á gagnsæju
bretti aftarlega í kassanum, var
síðan teiknuð með ritblýi.
Mörgum kom til bugar hvernig
hægt væri að láta Ijósið sjálft
teikna myndina. Hinn gamli
gullgerðarmaður Fabricius hafði
þegar á sextándu öld tekið eftir
þvi að sólin hefir hæfileika til
að sverta hluti. Silfrið úr Frei-
burgnálnunum, sem bann ætl-
aði að breyta í gull, varð svart
fyrir ábrif sólarljóssins. Löngu
seinna eða um 1805 hélt Frakk-
inn Joseph Niépce áfram rann-
sóknum, sem grundvölluðust á
þessari uppgötvun. Hann og
leiktjaldamálarinn Jacque Da-
guerre unnu síðan í félagi að
þessum rannsóknum, með þeim
glæsilega árangri að þeir síðan
— aðallega þó Daguerre — eru
taldir hinir eiginlegu höfundar
I j ósmyndasmíðinnar.
Þeir visindamenn, sem unnið
hafa að uppgötvun þessa merki-
lega fyrirbæris — ljósmynda-
smíðinnar, eru fjölmargir, og
frá öllum löndum. Þar sem einn
hætti tók annar við og svo koll
af kolli. En þetta er sameigin-
leg saga allra merkustu upp-
götvaná mannsandans.
Þegar minst er höfunda Ijós-
myndasmíðinnar er það samt
einn maður, sem ber aðalheið-
urinn. Enda er hann alment
talinn aðalhöfundur hennar, en
það er Frakkinn Louis Jacque
Mandé Daguerre. Um Dagueri’e
vita menn raunverulega miklu
minna en hinn fræga félaga
hans, Joseph Niépce.
Daguerre er fæddur árið 1789
í Cormeilles í úthverfi Parísar,
þar sem faðir hans gegndi hin'u
auðmjúka starfi réttarþjóns í
hinum litla rétti hverfisins.
Snemma á dögum byltingar-
innar, þegar Daguerre var
fiinm ára, fékk faðir hans aðra
atvinnu i Orleans. Á þessum
erfiðu tímUm fór mentun hans
af skiljanlegum ástæðum mjög
forgörðum. Hann var snenuna
ráðinn Iijá húsameistara í
bænum og er sagt að þar hafi
komið fyrst í ljós-hjá honum
miklir hæfileikar í teikningu.
Seinna fékk hann talið for-
eklra sína á að senda sig lil Par-
isar og fékk liann þar atvinnu
hjá leiktjaldamálaranum De-
golli. Ilann sýndi brátt mikla
hæfileika og hugvitssemi í
þessari köllun sinni og málaði
leiktjöld bæði fyrir bið fræga
Opera Comique og önnur leik-
Iiús. Brátt varð hann æðsti mað-
ur á vinnustofu meistara síns,
sem hann síðar eignaðist. Hann
aflaði sér brált mikils álits í
þessari grein og var m. a. höf-
undur að mörgum umbótum á
ljósaútbúnaði í leikhúsum. Ár-
í;ð 1822 uppgöitváðj. (Daguerre
hið svokallaða Diorama (sem
mikið er notað núna á lieims-
sýningunni), en það var gagn-
sæ mynd, sem mótuð var á
þunt léreft. Léreftinu var stilt
upp við glugga t. d. eða annan
Ijósgjafa, svo að liægt væri að
lýsa það upp hvoru megin sem
væri. Síðan var styrkleika lit-
anna og litatóninum breytt með
því að skjóta inn í lituðu gleri,
án þess að áborfendur sjái. Af
Ijósinu, sem ýmist féll í gegn
um eða endurspeglaðist, var
bægt að mynda ýmsar breyting-
ar á landslaginu, sem málað
var, t. d. breyla morgunlands-
lagi í kvölíllandslag o. s. frv.
Oft var landslagið lífgað upp
með því að hafa hreyfanlega
hluti á bak við, sem féllu vel
inn í landslagið t. d. mylluhjól
á hreyfingu o. s. frv. Þetta
minnir ósjálfrátt á kvikmyndir
nútímans og sýnir m. a. hugar-
flug og snilli Daguerre. Þessar
Diorama myndir vöktu óhemju
eftirtekt í París, þar sem hann
sýndi þær við gífurlega aðsókn,
þangað til alt brann 1839. En
það er einmitt um þetta leyti,
sem Daguerre fullgerði bina
miklu uppgölvun sína, sem
gerði bann heimsfrægan og
nafn hans ógleymanlegt.
Menn höfðu Iengi þekt hæfi-
leika silfursalts til að skifta
um lit fyrir áhrif sólarljóssins,
en myndir þær er menn bjuggu
til fyrst í stað, urðu ávalt svart-
ar í dagsbirtunni. Þá vantaði
að finna efni, sem gat fest
(fixerað) þær, svo þær þyldu
dagsbirtuna án þess að verða
svartar. Það var ekki fyr en
með tilraunum vísindamanns-
ins Joseph Nicephore Niépce að
þetta tókst.
Árið 1826 frétti Niepce að
Daguerre ynni að sömu rann-
sóknum og hann sjálfur, kom
sér í samband við hann og þess-
ir tveir vísindamenn gerðust
síðan samstarfsmenn það sama
ár og unnu nú kappsamlega að
hinu setta marki. Þetta samstarf
bar mjög heillavænlegan árang-
ur. Niepce dó að vísu árið 1833,
en Daguerre endurbætti svo
mjög aðferð hans, að aðalheið-
urinn af uppgötvuninni féll í
hans hlut. j
Daguerreotype var uppgötvun ,
hans kölluð eftir nafni lians.
Tók hann mynd á málmplötu, :
sem búið var að selja á Ijós- I
næm efni, og festi (fixeraði) j
hana svo hún þoldi jafnvel .
sterkasta sólarljós. Tveir gallar í
voru þó á þessari miklu upp- j
götvun, var annar sá, að ekki j
var liægt að fá nema eina mynd j
af því sem tekið var af; ef t. d.
DAGUERRE.
stúlka vildi fá sex myndir af
sér, varð Daguerre að taka sex
málmplötur, því ekki var hægt
að prenta (kopiera) eftir þess-
um plötum. Var lýsingartíminn
margar mínútur á hverri plötu.
Svo það hefir verið liarla erfitt
að láta mynda sig í þá daga.
Hinn gallinn var sá, að myndin
kom öfug eða eins og mynd í
spegli.
19. ágúst 1839, eða fyrir 100
árum, útskýrði stjörnuspeking-
urinn og stjórnmálamaðurinn
Francois Arago uppgötvunina í
franska Akademíinu, með
þeim árangri, að ríkið veitti
Daguerre sama ár 6000 franka
árlegan styrk til æviloka, en
erfingjar Niepces fengu 4000
franka samskonar styrk, gegn
því að uppgötvunin yrði gerð að
almennings eign.
Næst kemur Englendingurinn
W. H. Fox Talbot með upp-
götvun sína árið 1852. Er bans
uppgötvun grundvöllur að
þeirri aðferð, er við notum enn
þann dag í dag. Tók hann mynd
á pappír (pappírs-negativ) sem
á var klórsilfur og prentaði á
annan samskonar pappír
(positiv). Gat hann þannig
fyrstur manna framkallað
margar myndir eftir vild.
Nú tökum við myndir á fihn-
ur og glerplötur og kopierum
svo eftir þeim á pappír, sjáum
við þá að aðferð Talbots er al-
veg sú sama, sem við notum
enn í dag.
RL il
Þannig var áhugaljósmyndari
(amatör) útbúinn fyrir 80 árum
Upphaflega var plötutækn-
inni mjög ábótavant.Voru fyrstí
stað teknar myndir á plöturnar
blautar, þangað til Russel árið
1861 og J. B. Sayel og B. Bolton
árið 1864 komu með fyrstu
þuru pöturnar, en sérstaklega
urðu þær almennar, þegar Dr.
Maddox kom með hinar frægu
Gelatine þur-plötur i öskjum.
Var nú hægt að lýsa plötuna
(Exponera) í sekúndur, þegar
mynd var tekin, í staðinn fyrir
mínútur áður. Nú geta nýjustu
kvikmyndavélar tekið mynd á
einum fimtíu þúsundasta parti
úr sekúndu, en alment eru
myndir teknar úti á einum fim-
tugasta til einum hundraðasta
parti úr sekúndu. Fyrstu lands-
lagsljósmyndarar 19. aldarinn-
ar ferðuðust um með tjöld á
bakinu, er þeir urðu að slá upp
í livert skifti, sem mynd þurfti
að taka. Likt var að segja um
fyrstu áhugaljósmyndarana. —
Þegar þeir héldu af stað til að
taka myndir, urðu þeir að burð-
ast með bögla á bakinu, sem
hermenn nútímans myndu ekki
láta bjóða sér. Með hinum
merku endurbótum Amöríku-
mannsins George Eastman,
sem fann upp á því, að nota
filmur í stað glerplötunnar ár-
ið 1885, gjörbreyttist notkun
ljósmyndavélarinnar. Árangur
þessarar uppgötvunar Eastmans
er liinar lieimsfrægu Kodak-
filmur og myndavélar, sem
börn nútímans geta jafnvel haft
með sér í vasanum. Eru þess-
ar myndavélar lians notaðar um
allan heim.
í vinnustofum atvinnuljós-
myndara nútímans hefir tæknin
þegar náð svo mikilh fullkomn-
un, að hinar margbrotnu að-
ferðir binna fyrstu ljósmynd-
ara eru nú algjörlega horfnar
úr sögunni. Ekki er þar með
sagt, að minna sé krafist af at-
vinnuljósmyndara núthnans. Á
ljósmyndastofu hans er tæknin
þegar orðin svo fullkomin, að
af honum verður ekld eingöngu
krafist tækni, heldur fyrst og
fremst mannþekkingar. Fólk,
sem myndar sig í dag, vill vera
eðlilegt og fá sinn sérstaka svip
fram á myndunum. Þess vegna
hefir það aldrei verið erfiðara
— og skemtilegra — að vera
ljósmyndari en núna, þegar ljós-
myndasmíðin á 100 ára afmæli.
Um þessar mundir heldur
Dansk Fotografi Forening stór-
kostlega Ijósmyndasýningu í
Charlottenborg í Kaupmanna-
liöfn, undir vernd hans liátignar
konungsins og drotningar ís-
lands og Danmerkur, í tilefni af
aldarafmæli Ijósmyndasmíð-
innar. Verður þarna gefið sögu-
legt yfirlit yfir Ijósmyndasmíð-
ina frá Daguerre til vorra daga.
Þar verður einnig safn nýtísku
Ijósmynda, allra tegunda frá öll-
um Norðurlöndum. íslenskir
Ijósmyndarar liafa einnig sent
margar myndir á sýningu þessa.
! 25 ÁRA GAMLAR j
iSTRÍÐSFRÉTTIR \
13. sept.: Þjóðverjar halda
alstaðar áfram að hopa. Bretar
hafa tekið 1500 fanga, mikið af
skotvopnum og flutningi. Þjóð-
verjar hörfa óreglulega fyrir
austan Soissons.
14. sept.: Bresku hersveitirn-
ar hafa farið yfir Ourcq og voru
í morgun á Jiraðri ferð á eftir
óvinunum. 200 fangar voru
teknir.
Fyrsti franski herinn hefir
tekið stórskotalið einnar þýskr-
ar hersveitar.
Ástralski flotinn tók í gær
eftir orustu Herbertshohe íNýja-
Pommern, sem er stærsta eyj-
an af Bismarkseyjunum.
15. sept.: Frá París er opin-
berlega tilkynt að Þjóðverjar
hafi yfirgefið Amiens. — Und-
anbaldi fyrsla, annai’s og þriðja
bers Þjóðverja er hraðað enn
meir.
Fjórði her Þjóðverja er byrj-
aður að hopa og skilja þeir al-
staðar eftir á vígvöllunum
fjölda særðra manna og mikið
af hergögnum.
Her Belga hefir haft sig á
Herafli Evrópurikja:
Landher í friði og stríði.
Það hefir verið hálferfitt að átta sig á heraukningum stór-
veldanna í Evrópu síðustu mánuðina og þeir sem hafa ekki
beinlínis reynt að fylgjast með öllum fréttum þar að lútandi,
vita nú vart upp né niður. — Þess vegna birtir Vísir nú tölurt
þær, sem hér fara á eftir, svo að menn geti nokkuð áttað sig á
hvernig sakir standa. Þær eru teknar eftir erlendu blaði, og
eru eftir sérfróðan mann í hermálum.
Þýskaland. — Friðartímaher
þess var í vor 8—900 þús.
manna. Með þeim viðbótum,
sem gerðar liafa verið i sumar
mun herinn nú vera kominn
upp í 2 milj. a. m. k. (Þéss ber
að geta, að þetta er ritað síðustu
dagana í ágúst, áður en stríðið
braust út). Þjóðverjar geta svo
smám saman aukið herliðið upp
i 8 miljónir, en aðeins lítill hluti
þess ér fullæfður og skortur er
á fyrirliðum og úlbúnaði, svo
að endurnýjun hersins tekur
alllangan tíma.
Frakkland. Friðartímaherinn
í heimalandinu er um % milj.
manna, en mun nú vera um l1/^
milj. vegna þéss hve margir
Iiafa að undanförnu verið kall-
aðir til vopna. Á ófriðartímum
getur Frakkland kallað 6 milj.
manna til vopna heima og mik-
inn fjölda í Afrílcu.
Pólland. Friðartímaher um
1/í milj., sem nú er um 1% milj.
Pólverjar liafa yfir að ráða 3V2
milj. æfðra manna og svo er
þess að gæta, að hinir yngri ár-
gangar éru fjölmennastir hjá
þjóðinni.
ftalía. Friðartímaherinn er
venjulega 300 þús. manna, en
mun nú vera IV2—2 milj. auk
þeirra sem eru í Abessiniu og
Libyu. f ófriði munu ítalir géta
kallað 8—9 milj. til vopna.
Rússland. Friðartímaherinn
mun vera um 1,8 milj. en er að
likindum nú um 3 milj. Rúss-
land mun á ófriðartímum geta
ráðið yfir 8—10 milj. manna i
bernum, en lntt er óvist, hvort
nægir fyrirliðar sé til og vopn.
England. Friðartímaherinn er
tæpléga 200 þús. og af lionum
eru deildir i nýlendunum. —
Heimaherinn enski (Territorial
Army) mun vera 340 þúsund
manna og þar við bætast þær
200 þús., sem herskyldan náði
til í sumar og éiga að fá 6 mán-
aða æfingu. f alt ættu Englend-
ingar að geta kallað um 10 milj.
til vopna, en það tekur tíma.
Loftflotarnir og endur
nýjun þeirra.
Heimsstyrjöldin varð til þess, að flugtækin tóku geysilegum
framförum. Eftir stríðið voru framfarirnar fyrst hægfara, en
síðustu ár hafa þær orðið mjög stórstígar á nýjan leik. Nú er
svo komið að, flugherinn er orðinn fastur liður í vígbúnaði
hverrar þjóðar. En það er erfitt að afla réttra upplýsinga unt'
flugheri þjóðanna, því að forráðamennirnir halda öllu leyndu
og það er frekar auðvelt.
En þegar talað er um flug-
herina, verður að taka eitt at-
riði til greina, sém er afar á-
ríðandi. Það eru möguleikarnir
fyrir endurnýjun og stækkun
flotans í slríði. „Æfi“ flugvél-
ar i stríði er ekki talin lengri
en 3 mán., þ. é. það verður að
endumýja allan flugflotann
fjórum sinnum árlega. Auk
þess þarf svo að endurnýja
mennina, aðrir verða að koma
í stað þeirra, sem falla. Það má
því ségja, að ef þjóð á góðar
flugvélaverksmiðjur og hún
hefir áhuga fyrir flugi — er
,.air-minded“ —■ þá hefir hún
góð skilyrði til að endurnýja og
auka fluglier sinn.
Þær tölur, sem hér fara á eft-
ir, éru þær áreiðanlegustu, sem
hægt hefir verið að afla.
Þýskaland. Fram til 1935 átlu
Þjóðverjar engan lofther, en þá
tilkynlu þeir í xnars, að þeir
hefði komið sér upp flóla, ér
væi’i jafnsterkur flugflota Eng-
lands eða 6—800 vélar. Síðan
hefir aukningin orðið svo mik-
il, að flugvélaeign Þjóðverja
vérður að teljast 7—8000 í aðal-
liðinu og 2—3000 til vara. Skil-
yrði eru góð til éndurnýjunar:
Vei’ksmiðjur max’gai’, þar af all-
margar í Tékkóslóvakíu og al-
menningar lengi haft hægan að-
gang að flugskólum.
England fór ekld að vígbúast
i lofti af alvöru fyrri en í maí
1935 og nú mun flugvélaeign
þeirra vera um 3000 og 1500 til
vara. Að auki eru, svo flugsveit-
kreik og hafið sókn til suðurs
við Lieuge.
Orustan i Galiziu, sem staðið
Ixefir í 17 daga, liefir endað með
miklum sigri fyrir rússneska
herinn.
irnar i nýlendunum. Endurnýj-
unarskilyrði ágæt.
Frakkland mun eiga 3000—
3500 flugvélar í aðalhei-num og
1500 til vara. Skilyrði til endur-
nýjunar og aukningar eru góð.
Ítalía hefir lagt mikla áherslu
á að eignast sterlcan flughér og
hefir tekist það. Nú munu Ital-
ir eiga um 2500—3000 flugvél-
ar í aðalhei’num og um 1000 til
vara, auk þeirra, sem eru í ný-
lendunum.
Pólland mun eiga- uxn 2000
vélar i aðallxernum og jafn-
margar til vara. Skilyi’ði til end-
urnýjunar munu vera lieldur
góð.
Rússland hefir lagt rnilcla á-
herslu á að auka fluglierinn og
mörg félög hafi verið stofnuð
til þess að vekja áhuga ahnénn-
ings fyrir flugi. Nú munu Rúss-
ar eiga um 5000 flugvélar í að-
alhernum og uxxi 2000 til vara.
Telja verður, að endurnýjun
þessa flugflota sé ei’fiðari en
endurnýjun og stækkun flug-
flota ofannefndx’a þjóða.
Kona nokkur vestur í Oi’egon-
fylki i Bandaríkjunum vildi fá
heimild til þess að aka bíl. Hlut-
aðeigaxxdi yfirvöld synjuðu xxm
leyfið, xxema því að eins, að liún
segði lil unx aldur sinxx. En það
vildi liún ekki með neiixu íxióti
gera og hvarf frá við svo búið.
Skönnxiu síðar var húxx tekin og
dregin fyi’ir lög og dóm, er hún
ók lxíl sínunx leyfislaust. Húxx
var dæmd í 50 daga fangelsi og
þótli mikið, seixi von var. En
heldur kvaðst hún vilja taka út
refsinguna, en að segja til ald-
urs síixs, ]xó að þess kynni að
hafa verið einliver kostur að
sleppa með það.