Vísir - 08.11.1939, Blaðsíða 1

Vísir - 08.11.1939, Blaðsíða 1
Ritst jóri: KRISTJÁN GUÐLAUGSSON. Sími: 4578. Rk itstjórnarskrifstof ur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð). Afgreiðsla: HVERFISGÖTU 12. Sími: 3400. AUGLÝSINGASTJÓRI: Sími: 2834. 29. ar. Reykjavík, miðvikudaginn 8. nóvember 1939. 258. tbl. Leopold og Wilhelmma bjóða aðstoð sína til mála- miðlunar um leið og Hali- fax flytur ræðu sína um stefnu og markmið Breta. EINKASKEYTI frá United Press. — London í moix'un. Halifax lávarður, utanríkismálaráðherra Bret- lands, flutti ræðu í gærkveldi, þar sem hann gerði grein fyrir styrjaldarstefnu Breta, og markmiði þeirra, er styrjöldinni væri lokið. Enda þótt ræðan sé flutt rétt á eftir ræðu Molotovs, f orsætis- og ut- anríkismálaráðherra Sovét-Rússlands, sem réðist hvass- lega á Breta og Frakka í ræðu sinni á byltingarhátíð- inni, svaraði Halifax lávarður honum ekki, heldur ein- skorðaði sig við það efni sem að framan greinir, og tók enn ítarlega fram en áður hvers vegna Bretar hefði tekið þá stefnu, sem reynd ber vitni.i Vitnaði hann bæði í umrnæli Chamberlain’s forsætisráðherra hér að lút- andi og eigin ummæli máli sínu til skýringar og stuðn- ings, en lagði enn frekari áherslu á þau rök, sem áð- ur hafa verið fram lögð málstað Breta og bandamanna þeirra til stuðnings. Um sama leyti og Halifax lávarð- ur var að flytja ræðu sína varð það kunnugt, að !tveir af þjóðhöfðingjum álfunnar, Wilhelmina drottning í Hollandi og Leopold konungur í Belgíu, hefði boðist til þess að gera tilraun til þess að miðla málum í styrj- öldinni, en þau hafa sem kunnugt er áður boðist til þessa. : i-fpj Halifax lávarður kvað Breta og bandamenn þeirra berjast til þess að koma í veg fyrir, að sú sorgarsaga gerðist aftur, að of- beldi og ágengni væri höfð í frammi af þeim, sem meiri mátt- ar eru, gegn smáþjóðum, samningshelgin að engu hofð og hátíðlega gefin loforð, og hann sagði að ef framhald yrði á slíku væri öryggi Bretlands og annara þjóða í jhættu. Bretar sagði hann, hefði farið út í styrjöldina, til þess að bæla niður ofbeldið, og koma því til leiðar, að trygg skipan kæmist á sambúð þjóðanna, sambúð sem bygðist á virðingu fyrir alþjóða- lögum og samningum, þannig að þjóðimar gæti búið óttalaus- ar um framtíðina. Ef þetta gæti ekki tekist væri vissulega á- stæða til að hafa hinar mestu áhyggjur um framtíðina, en hann kvaðst trúa því að með samtökum þjóða milli mætti auðnast að ná því marki, að tryggja friðinn og friðsamlega sambúð Evrópuþjóða. Hann tók það fram, að Bretar væri ekki hefnigjarnir, og fyrir þeim vekti ekki að vinna ný lönd eða á nokkurn hátt að koma ósanngjamlega fram við þær, sem lægri hlut byði, heldur væri höfuðmarkið, að tryggja friðinn fjnrir þær sem aðrar þjóðir. 1 þessu hlutverki hefði Bretar og Frakk- ar samúð og stuðning ekki að eins allra 'pem í breskum og frönskum löndum og nýlendum búa, heldur og meginþorra þjóða heimsins. TILBOÐ LEOPOLDS KON- UNGS OG WILIIELMINU DROTTNINGAR. Það var, sem getið var í fyrstu fregnum, um fund þeirra Wilhelminu Hollandsdrottning- ar og Leopolds Belgíukonungs, ekki látið neitt uppskátt um hvert viðræðuefni þeirra væri. í fáorðum tilkynningum um viðræður þeirra var ekki vikið að þvi, sem var höfuðtilgangur- inn með fundinum, en það var að ræða livort eigi væri tíma- hært að bjóðast til þess á ný, að gera tilraun til þess að miðla málum milli þeirra þjóða, sem taka þátt í styrjöldinni. í orð- sendingum, sem sendar hafa verið til Georgs VI. Bretakon- ungs, Lebrun Frakklandsfor- seta og Ilitlers ríkisleiðtoga, lýsa þau áhyggjum sínum um hvað gerast muni, ef styrjöldin komist á það stig, að enginn styrjaldaraðili sýni nokkra miskunn, en þessi mikla liætta vofi altaf yfir og yrði afleið- j ingarnar ekki aðeins hinar óg- ; urlegustu fyrir þær þjóðir, sem taka þátt í styrjöldinni. Ilætt- an mikla vofi einnig yfir öðr- um þjóðum og þau konungur og drotning taka það fram, að þau telji það skyldu sína gagn- vart þegnum sjálfra þeirra, að hjóðast til að aðstoða við að finna lausn á vandamálunum, en að sjálfsögðu hafi þau vel- ferð og framtíðarheill sjálfra ó- friðarþjóðanna fyrir augum. UNDIRTEKTIRNAR. — UMSAGNIR LUNDÚNA- BLAÐANNA. Blöðin í Lundúnaborg ræða flest tilboð Wilhelminu og Leopolds af hinni mestu vel- vild. Þau lofa þau fyrir áhuga þeirra til þess að vinna í þágu friðarins, cn þau eru þeirrar slcoðunar, að það séu sára litl- ar Iíkur lil þess að nokkur ár- angur verði af tilboði þeirra, eins og sakir standa. Sum blöðin gefa í skyn, að það sé vegna eigin hagsmuna Hollands og Belgíu, sem tilboð- ið hafi komið fram. Einna mesta athygli vekja ummæli blaðsins Times, sem segir, að undir engum kringumstæðum geti Bretar horfið frá þeirri stefnu, að bjarga Evrópuþjóðunum frá því, að búa áfram við þá yfir- vofandi hættu, að Þjóð- verjar fremji nýtt og nýtt ofbeldi. Af hálfu bresku stjórnarinn- hefir verið tekið fram að orð- sending Wilhelminu og Leo- polds verði athuguð vandlega, en meðal stjórnmálamanna eru engar líkur taldar til, að banda- menn taki tilboði um mála- miðlun, eða yfirleitt að þeir liviki frá þeim lágmarkskröf- um, sem þeir hafa áður sett fram. -------—rnmammmm------- Kastast 1 kekki milli Rússa og ítala. London í morgun. Einkaskeyti frá United Press. Rússar og ítalir eru nú farn- ir að hnjóða livor í annan á víxl. I ávarpi kommúnista til allra þjóða sem birt var í tilefni af 22 ára afmæli byltingarinnar voru ítalir bornir þeim sökum, að þeir sæti hjá í styrjöldinni af ásettu ráði, til þess að heimta laun fyrir að silja hjá, þegar striðinu lyki. Finst Itölum lítt sitja á Rússum að ráðast á þá fyrir að vilja vera hlutlausir í þcssaiá styrjöld, þar sem þeir sjálfir þykist vilja vinna gegn því að styrjöldin breiðist út, en Molotov hafi lýst yfir, að engar tilraunir til þess að draga Rússa inn í styrjöld muni bera árang- ur. Það er blaðamaðurinn al- kunni Signor Gayda sem fékk það hlutverk að taka í hnakka- drambið á Rússum fyrir hnjóð- ið í Itali. Segir Gayda, að allur heimurinn viti, að Rússar liafi unnið að því alt frá því þeir komust til valda, að leiða heim- inn út í ófriðarbál. „Heimsbylt- ingin“ hefir alt af verið efst á dagskrá hjá þeim og er enn í dag, segir Gayda. Það er minst á það á ný nú að Balbo landstjóri í Libyu, einn af þektustu leiðtogum fascista, réðist nýlega mjög hvasslega á kommúnista. Yfirleitt gætir þess mjög í ítölskum blöðum nú að ítalir hafa meiri ýmigust ó kommúnistum en nokkuru sinni og einnig að þeir telja litlar likur til, að samvinna haldist með Þjóðverjum og Rússum í flramtíðinni, þessar þjóðir geti aldrei átt samleið. ÞETR FÓRU ERINDISLEYSU TIL MOSKVA — EN MUNDI BRESKUM RÁÐHERRUM GANGA BETUR? Myndin er af hermálasérfræðingum þeim, sem Bretar og Frakkar sendu til Moskva sællar minn- ingar og fóru þeir erindisleysu, sem kunnugt er. Nú er um það rætt i Bretlandi, að senda breska ráðherra til Moskva (sbr. skeyli um atkvæðagreiðslu „Public Opinion“ í blaðinu nýl.). Á mynd- inni eru, vinstra megin Joseph Doumenc, franski herforinginginn, t. h. Plukett-Ernle-Erle-Drax, breski aðmírállinn. Hlutleysisbandalag á upp- siglingu á Balkanskaga. Tyrkir og Rúmenar hafa forgönguna. EINKASKEYTI frá United Press. — London í morgun. Að undanfömu hefir iðulega jverið rætt um það, að Balkan- þjóðirnár mynduðu með sér bandalag, í þeim tilgangi að tryggja það, að þær komist hjá þátttöku í styrjöldinni. Það eru Balkanþjóðirnar sjálfar, sem eru að reyna að koma þess- um samtökum á, og hafa Rúinenar og Tyrkir forgönguna. 1 fregn frá Istanbul í morg- un er sagt frá því, að Sarajoglu utanríkismálaráðherra Tyrk- lands og sendiherra Rúmeníu i Tyrklandi Iiafi ræðst lengi við í gærkveldi. Að viðtalinu loknu lagði sendiherrann af stað í skyndi á- leiðis til Bukarest, til þess að gefa Karli konungi skýrslu um viðræðufundinn. Herliðsflutningarnir til landa- mæra Ilollands hafa að sjálf- sögðu vakið mikla athygli og sumstaðar kemur það fram, að það sé vegna þeirra, sem Wil- hehnina drottning og Leopold Belgíukonungur hafi gert aðra tilraun til þess að fá ófriðar- þjóðirnar til þess að setjast að samningaborði — þau óttist innrás af hálfu Þjóðverja, ann- aðhvort í Hollandi eða Belgíu, og telji nú seinustu forvöð, að koma í veg fyrir, að styrjöldin komist í algleyming. Það er talið, samkvæmt á- reiðanlegustu heimildum, að viðræður Sarajoglu og sendi- herrans í gær, liafi snúist um væntanlegt hlulleysisbandalag á Balkanskaga. Það vekur mikla aihygli að sendiherrann lagði af stað þeg- ar í stað að fundinum lokuum. BRESKIR HERMÁLA- SÉRFRÆÐINGAR UM LIÐSSAMDRÁTTINN. Hermálasérfræðingar breskra blaða líta svo á, að það þurfi ekki nauðsynlega að vera svoy að liðssamdrátturinn í Norð- vestur-Þýskalandi fari fram með það fyrir augum, að gera innrás í Holland eða Belgíu, heldur sé þetta gert til þess að treysta aðstöðu liersins í vestur- hluta Þýskalands yfirleitt. Sum- ir þeirra leiða athygli manna að því, að Þjóðverjar hafi æ meiri bevg af flugferðum Bandamanna inn yfir Þýska- land, og standi til að koma upp fleiri flugbækistöðvum í Yest- ur- og Norðvestur-Þýskalandi til þess að gera tilraun til þess að hrekja flugmenn banda- manna á flótla, er þeir senda flugvélaflokka í könnunarflug- ferðir inn yfir Þýskaland. ------—« MBU9SIW—.----- Mor ferfilíliislis í pkveldí. Erindi fyrv. biskups dr. Jóns Helgasonar. Ferðafélag Islands boðaði til fundar í gærkveldi að Hótel Borg og var fundurinn mjög f jölsóttur, þannig að nærri mun íáta, að þar hafi verið 400—500 manns. Fyrverandi biskup íslands dr. .Tón Ilelgason fíulti fróðlegt er- indi um Reykjavík, eins og hún var i uppvexti hans, og erindi sínu til skýringar lét liann sýna skuggamyndir af flestum hverf- um bæjarins. Kryddaði hann frásögn sína með ýmsum gam- anyrðum og frásögnum, og dró upp glögga mynd af lífinu í höfuðstaðnum á síðari hluta 19. aldar. Að erindi herra bislcupsins loknu þökkuðu áheyrendur honum það með dynjandi lófa- taki, og formaður félagsins, Geir G. Zoéga vegamálastóri á- varjiaði ræðumanninn sérstak- lega og þakkáði honum flutn- inginn sem og störf lians til að viðhalda minningunni um gömlu Reylcjavik. Tóku áheyr- endur undir með dynjandi lófa- taki. Að erindinu loknu setlust menn að borðum og hófst þá dans, er stóð yfir til kl. 1 og skemtu menn sér hið besta. Síldveiðarnar. í gær komu þessir bátar til Hafn- arfjarðar: Freyja með 14 tunnur, Goðafoss með 23, Ásbjörg með 35 og Rafn með 50 tunnur. EINKASKEYTI frá United Press. — London í morgun. Þjóðverjar hafa að undanförnu flutt mikið lið til hollensku landamæranna og' í sumum fregnum segir, að þetta sé árásarlið það, sem aðallega bar hita og þunga dagsins í Póllandi. I þýskum fregnum er vikið að því, að herlið þetta hafi verið sent til hollensku landamæranna, þar sem ekki sé þörf fyrir það á vígstöðvunum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.