Vísir - 13.01.1940, Side 3
Bfó
Bófinn frá
Brimstone.
Amerísk stórmynd frá
landnámstíð Norður-Am-
eríku.
Aðalhlutverkin leika:
Wallace Beery,
DENNIS O’KEEFE,
LEWIS STONE o. fl.
Börn fá ekki aðgang.
Leikfélag:
ii ; is >: l 8 .1 ;
Sherlock Holmes
It e y k | a v í k n r
Danðlim njtur lífsins.
Sýning á morgun kl. 3.
LÆKKAÐ YERÐ.
Síðasta sinn.
Sýning annað kvöld kl. 8.
Venjulegt leikhúsverð.
Hljómsveit
Dr. Y. Urbantschitsch
aðstoðar.
Aðgöngumiðar að báðum sýningunum eru seldir frá kl. 4—7
í dag og eftir kl. 1 á morgun.
Hinar tvær vinsælu hljómsveitir:
Hljómsveit Iðnó.
Hljómsveit Hótel Islands.
Með þessum ágætu
hljómsveitum skemt-
ir fólk sér best.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 6
Minkaskinn
KAUPUM VIÐ HÆSTA VERÐI.
TÖKUM EINNIG í UMBOÐSSÖLU.
Þokkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðar-
för
séra Bjarua Þórarinssonar.
Ingibjörg Einarsdóttir. Susie og Ólafur H. Ólafsson.
Móðir mín elskuleg,
Gróa Petrína Guðmundsdóttir,
Gunnlaugssonar, snikkara í Reykjavik, ekkja fátækrafull-
trúa Guðmundar Guðmundssonar frá Vegamótum (d. 8.
nóv. 1926), hlaut rólegt andlát að heimili sínu nr. 20 við
Hafnarstræti miðvikud. 10. jan., nær 92 ára að aldri (f.
14. febr. ’48).
Jarðsetningin fer fram með viðeigandi athöfn, frá Kap-
ellunni í gamla lcirkjugarðinum, miðvd. 17. þ. m., er hefst
kl. 11 f. h.
Það var ósk hinnar látnu, að kunningjar og vinir vildu,
við fráfall liennar minnast „Ekknasjóðs Reykjavikur“.
(Gjaldk. sjóðsins er Sigurj. Jónsson, verslstj. Geirsversl-
Unar).
F. li. vina og vandamanna.
Guðmundur Kr. Guðmundsson.
Yfsrá
Fpú
í dag er jörðuð frá fríkirkj-
unni í Reykjavík ein af fremstu
me'rkiskonum þessa bæjar og
þjóðarinnar. Það er frú Guðríð-
ur Guðmundsdótiir, ekkja síra
Ólafs Ólafssonar fríkirkju-
prests. Hún var ein af hinum
mörgu Arnarbælissystrum,
dætrum síra Guðmundar Ein-
arssonar Johnsens og konu
lians Guðrúnar Pétursdóttur
Hjaltested. Voru þær mjög
kunnar fyrir fríðleik og alla
kvenprýði og frú Guðriður þar
ekki síst í flokki, íturvaxin
fríðleikskona, aðsópsdrjúg, en
þó með fullkomnu yfirlætis-
leysi. Áður en síra Guðmundut'
fluttist að Arnarbæli, þar sem
hann var lengst prestur (fl873)
og þvi jafan við kendur, var
hann prestur í Möðruvalla-
klaustuirsprestakalli í Hörgár-
dal 1847—1856 og prófastur í
Eyjafjarðarprófastsdæmi og
hjó að Þrastarhóli. Þar fæddist
frú Guðríður 21. nóv. 1853 og
var því 3 ára er liún fluttist
með foreldrum sínum að Arn-
arbæli. Ekki kann eg gjörla að
segja frá uppvexti hennar, en
mentun mun liún hafa fengið
eftir því sem best gerðist þá á
fyrirmyndar prestsheimili, en
engin mynd var af kvennaskóla
fyrri en meira en 20 árum eftir
að hún fæddist. En árið 1880
giftist liún síra Ólafi og voru
það glæsileg hjón, hann einn af
fremstu ungum kandidötum og
hún slík sem ráða má af því,
sem eg hefi þegar sagt.
hlés. Mestur harmur var þeim
háðum, er þau skyndilega og
fyrirvaralaust 22. maí 1935
mistu Guðmund son sinn lög-
mann, er var ellistoð þeirra og
yndi. Annan svein ungan og
efnilegan höfðu þau áður mist
og harmað. En á skýldurækni
sína og skörungsskap lét hún
hvergi slcorta. Mest mat hún að
styðja mann sinn að hinum
mörgu áhugamálum hans. Eins
og liann hafði að kalla má bygt
upp fríkirkjusöfnuðinn eins og
hann vár orðinn eftir því nær
20 ára starf hans, þannig hafði
hún árið 1906 stofnað og bygt
upp kvenfélag safnaðarins, sem
hefir lagt ósmáan skerf til þess
þroska, sem hann liefir náð og
gagns sem hann hefir gert. —
Stjórnaði hún félaginu 27 ár til
1933, eða 11 ár eftir að maður
hennar hafði látið af þjónustu
og sýnir það hvert traust til
hennar var borið. Hún hafði að
vísu ágætar lconur með sér, en
þær róma mjög forustu hennar
og samvinnu við liana, elskuðu
hana og virtu, og svo mun hafa
verið um alla, sem voru sam-
vistum við hana, þíðlyndi henn-
ar, góðvild og gestrisni laðaði .
alla að sér. Get eg um það bor- !
ið, er eg síðustu árin var nær j
daglegur gestur á heimili
þeirra. Var mér yndi að sam- ,
ræðum við hann um gamlar j
endurminningar okkar og þátt-
töku hennar í þeim og ekki síð-
ur að alúðlegn atlæti hennar.
Ekki var þó efnum fyrir að
fara til að byrja búskapinn og
ekkert lífvænlegt prestakall í
boði, ekki kostur á öðru en Sel-
vogsþingum og þótti lítt efni-
legt. Þá var það hún — sagði
síra Ólafur mér — sem tók af
skarið, að þau skyldu gifta sig
og fara þangað í drottins nafni,
og þótti þeim það blessast eins
og til var stofnað, létu vel af
Selvogsveru sinni og höfðu frá
mörgu þaðan að segja. Þar
voru þau í 4 ár. Þá fékk liann
Holtaþing í Rangárvallapró-
fastsdæmi og hjuggu þau i
Guttormsliaga í 9 ár. Þá var
honum veitt Arnarbæli i Ölfusi
árið 1893. Þar liöfðu þau stórt
og umsvifamikið hú og kom þá
vel í ljós stjórnsemi hennar, at-
orka og kvenngildi alt. — Frá
þeim árum væri frá mörgu að
segja, sem ekki er rúm fyrir.
Þá voru jarðskjálftarnir miklu
eystra 1896, er nálega öll hús
féllu í Arnarbæli. Síra Ólafur
var einn fremsti maður um
hjargi’áð öll á þvi erfiðleika-
tímabili og naut þar öruggrar
aðstoðar konu sinnar. Oftast
voru hjá þeim námspiltar, er
hann kendi undir skóla og lief
eg heyrt þá róma mjög veruna
þar, kenslu hans og ekki síður
stjórn hennar, umhyggju og ör-
læti. Eftir tæp tíu ár í Arnar-
hæli lét síra Ólafur af embætti
vegna heilsubilunar, sem gerði
hann ófæran til erfiðra ferða-
laga, og flutti þá til Reykjavilc-
ur, þar sem hann árið 1903 tók
að sér þjónustu fríkirkjusafn-
aðarins og gegndi henni til
1922.
Eins og þjóðkunnugt er, var
síra Ólafur skörungur mikill
og stórbrotinn athafnamaður
bæði í kennimenskunni, á al-
þingi, í héraði og á fleiri svið-
um. Var þvi ekki vandalaust að
vera honum sú aðstoð, sem
duga mætti. En til þess hafði
frú Guðríður alt til að bera.
Auk annara kvennkosta sinna
átti liún milda og þýða lund,
sem átti hægt með að beygja
sig og bera það, sem á móti
| Hinrik i$.
Það er eflaust ekki í frásög-
ur færandi þó gamall maður
þrötinn að lieilsu og kröftum
yfirgefi tilveru þessa lífs, en við
sem eftir lifum getum vissulega
auðgast af því, að láta hugann
dvelja í minningum við lif
þeirra manna, sem ávalt reynd-
ust köllun sinni trúir: sem
Irúðu á guð og sjálfa sig, og
með heiðarleilc og skyldurækni
liafa afkastað miklu starfi.
Hinrik A. Hansen var fæddur
að Vorhúsum á Valnsleysu-
strönd 20. april 1859 og var því
nær 82 ára að aldri er liann and-
aðist 5. janúar s. 1. eftir stutta
legu á sjúkrahúsi Hafnarfjarð-
ar.
Fjögra ára gamall fluttist
ÍHinrik að Minni Vogum, þar
sem liann ólst upp til 16 ára
aldurs, að liann fór í vinnu-
mensku til frænda síns Klem-
ensar Egilssonar í Minni Vog-
um. Nær þrítugur kvæntist Hin-
rik fyrri konu sinni Signýu Ól-
afsdóttur, reisti hann þá ný-
býli á Mýrai'húsum i Vogum og
hjó þar í nokkur ár, uns liann
fluttist til 'Hafnarfjarðar og
keypti jörðina Jófríðarstaði, og
var liann af mörgum ávalt síð-
an kendur við þann stað; átti
hann síðan heima í Hafnarfirði
til dauðadags.
Á þessum árum stundaði
Hinrik ávalt sjómensku jafn-
hliða búskapnum, enda var sjó-
menskan veigamesti þáttur í
atvinnulífi hans alt fram á elli-
ár. Var dugnaður lians og fiski-
sæld mjög rómað, og hefir nafni
hans verið haldið á lofti, sem
eins ágætasta sjómanns þeirra
tíma.
Árið 1919 misti liann lconu
sína og tveim árum síðar brá
liann búi á Jófríðarstöðum, og
varð þá lausamaður í nokkur ár
og dvaldi þá lengst hjá Birni
Helgasyni skipstjóra í Hafnar-
firði. Með Signýu fyrri konu
Nýjft B16
Flngheijor í hernað
Síðasta sinn.
Börn fá ekki aðgang-„
En eg sé, að þetta fer að
verða of langt fyrir stutta
])laðagrein, þótt margt sé enn
ósagt, og verð því að takmarka
mig. !
Síðustu árin lifðu þau ró-
sömu og áliyggjulausu lifi
þangað til áfallið kom og þau
mistu son sinn. Mátti það
straumhvörf kalla í lífi þeirra.
Heilsa og kraftar beggja fóru
þverrandi og 25. nóv. 1937 and-
aðist sírá ÓÍáfur. Eftir fráfall
lians var frú Guðríður um hrið
hjá systursyni sinum, Sigurði
lögmanni Grímssyni og konu
hans Ástu Jónsdóttur í góðu
yfirlæti og síðan hjá systur og
téngdadóttur sinni Sigríði
Grímsdóttur og sonum hennar,
sem hún unni mjög og voru
síðasta yndis og umhugsunarefni j
hennar. Allra síðasta misserið |
naut hún góðrar umhyggju og j
atlætis á elliheimilinu og fékk
þar rólegt andlát hinn 7. þ. m.,
86 ára að aldri. .
Þetta er í stystu og ófull- '
komnu máli saga um langt og
merkilegt líf og hefði hún
lengri orðið, ef timi og rúm
leyfði. [
Nú veit eg, að hún er komin
til endurfunda við þá, sem hún
mest elskaði í lífinu. Guð blessi
henni þá endurfundi.
Með þökk fyrir samleiðar- ,
spottann.
Kristinn Daníelsson.
sinni eignaðist Hinrik 3 hörn,
og lifir eitt þeirra Guðlaug gift
í Hafnarfirði. Af systkinum
lians er einn hiálfbróðir á lífi,
Sveinhjörn Stefánsson húsettur
í Reykjavik. Voru þeir ávalt
mjög samliendir og iiéldust
bræðrabönd þeirra traust og
einlæg alla tíð.
Árið 1925 kvæntist Hinrik eft-
irlifandi konu sinni, Gíslínu Eg-
ilsdóttur, og eignuðust þau 6
hörn, sem öll lifa í æsku. Á þess-
um árum rennur upp nýr þátt-
ur í lífi hans. Ný æfi — ný har-
átta, nú var þrekið og kraftarn-
ir á þrotum en áhuginn og
starfsgleði óhilað. Eg kynntist
lionum mest á þeim árum, og
oft fanst mér sem í fari iians
vottaði fyrir söknuði yfir þvi
að geta ekki ennþá notið hug-
sjóna æskumannsins, og þó átti
Iiann svo hágt með að trúa því
að hann væri ekki megnugur,
að standa af sér straum lifsins,
sem svo oft var svo þungur. Og
nú á síðustu árum þegar kraft-
arnir voru þrotnir að mestu,
þegar líkaminn var liættur að
hlýða rödd áhugans, þá var það
oft að hann safnaði orkunni
saman með hvíld í daga og næt-
ur, og svo var haráttunni lialdið
áfram, — þar til orkugeymir-
inn var tómur — baráttunni er
Eggert Claessen
hæstaréttarmálaflutningsmaðaar.
Skrifstofa: Oddfellowhiismm.
Vonarstræti 10, anstnrdjr.
Sími: 1171.
Viðtalstími: 10—12 ár$L
Ný egg
á 3,50 kg.
0,20 stik.
Grettisg. 57. — Njálsg. 106.
Sítrónnr
stórar og göðary
nýkomnar.
vmn
Laugavegi 1.
Útbú: Fjölnisveg 2„
var lielguð æðstu Iiugsjön þessa
aldraða manns, að sjá farfaorða
ástvinunum sem vonr. sswo
margir smáir og þörfmaðust aS—
stoðar. En eg sá líka Hinrik B£a>
í ljúfum minningum frá liðn-
um árum, frá J)eim tíina er lífs-
aflið var óbilað Jiegar Jirátíap:
æskumannsins var í engu skert-
ur og lífið M framundan svo
bjart og skuggalausf. Hnjgnr
lians dvaldi J>á oft við mínnnig-
ar frá sjómannsárunum, bar-
áttunni við Ægi, sem svo of£
iijá sjómanninum er háö upp ss
líf og daliða, en liann víssi a®
liann mátti aidrei missa trúna át
hinn stjórnandi mátt, og su fr«
olli honum aldrei vonhrigða fil
dauðadags. Og eflausf fieíír
Hinrik lika liaft óbilandi trú &
sinum eigin mætti, — mælli
sem Jxí ávalt var sfrangfegssi
haldið í bönduin heiðarleiks og
trúmensku.
Við kveðjum þig Hinrík. 1
dag eru jarðneskar leifar þmai?
bomar til hinstu hvilu. f fmg-
um allra Jieirra sem kynfeast
þér á lífsleiðinní, framkalTasf
nú þakklæti til þín fyrir trúlegai
unnið æfistarf og í hjörtumásf-
vina þinna mUnu vfesurcgjEi
geymast Ijúfar mmnirrgar frai
samverustundunum og þear
munu ávalt minnast þess aS Jþ®
vildir öllu fóma þeirra vegiEa.
Blessuð &é minning þínr.