Vísir - 15.01.1940, Síða 2
VlSIR
Vi
DA6BLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR II/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson
Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla: Hveifisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstræti)
Símar: 2834, 3400, 4578 og 5377.
Verð kr. 2.50 á mánuði.
Lausasala 10 og 20 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Þinghaldið
og
landsfundur-
inn.
AÐ þykir afar grunsamlegt,
að sjálfstæðismenn skuli
hafa boðað til landsfundar um
miðjan febrúar. Og sérstaklega
er það þó ískyggilegt að Vísir
hefir látið i ljós, að þótt fund-
artími að vorinu sé yfirleitt
heppilegri, þá sé margt sem
mæli með því, að landsfundur-
inn dragist ekki svo lengi. Tím-
inn liefir þóst komast þarna á
tortryggilega slóð, og leggur út
af þessu á laugardaginn með
miklum spekingssvip. Manni
dettur í hug, að sá sem grein-
ina skrifar í Tímann, muni ný-
lega liafa verið i leikhúsinu og
séð Bjarna Björnsson i hlut-
verki Slierlock Holmes. Hér
vantar engan lið i röksemda-
færslu, alt er linitmiðað alveg
upp á liár, íliyglin og lieilabrot-
in hraka í liverri setningu:
Sjálfstæðisflokkurinn hefir
boðað til landsfundar — nú er
vissara að hafa gætur á Mori-
arty!
Það er sjálfsagt að lofa Tím-
anum að lialda áfram á sínu
„spori“. Bjarni Björnsson hefir
svo oft hermt eftir öðrum, að
ekki er nema maklegt að einu
sinni sé hermt eftir honum. En
vegna þeirra, sem ekki binda
sig með öllu við reyfarafrá-
sagnir má taka þetta fram:
Samkvæmt starfsreglum
Sjálfstæðisflokksins á að halda
landsfund á þessu ári. Ef eklc-
ert þinghald hefði verið í vetur,
Iiefði fundurinn vafalaust ekki
verið haldinn fyr en í vor. Ráða-
menn í Framsóknarflokknum
hafa látið svo um mælt, að vel
geti slitnað upp úr samvinn-
unni og væri þá „betra að sam-
vinnuslitin yrði í vetur eða vor,
heldur en næsta haust, þvi að
kosningar gætu þá farið fram í
byrjun næsta sumars.“. Þessi
tilvitnuðu ummæli eru tekin
upp eftir Morgunblaðinu. Tím-
inn hefir borið þau undir for-
sætisráðherra. En það er fjarri
því að hann mótmæli þeim.
Þvert á móti staðfestir hann þá
skoðun, sem í þeim felst. En
fyrstur manna af öllum þeim,
sem að stjórnarsamvinnunni
standa, hafði Jónas Jónsson far-
ið að tala um kosningar.
Nú er það raunar svo, að
ekki er altof mikið leggjandi
upp úr þessu tali Framsóknar-
manna um samvinnuslit og
kosningar. En þótt svo sé, hefði
það þó verið alveg ófyrirgefan-
leg léttúð af sjálfstæðismönn-
um, að fresta landsfundi sin-
um þangað til komið væri alveg
fast að þeim kosningum, sem
virðast hálft í hvoru vaka fyr-
ir framsóknarmönnum. Þetta
er nú það „margt“ sem mælir
með því ,að landsfundurinn er
ekki látinn dragast til vorsins.
Það er einfaldara mál en svo,
að Sherlock Holmes þurfi þess
vegna að ofreyna sinn ágæta
heila.
Hermann Jónasson segir í
Tímanum, að hann álíli alveg
nægilegan tíma til þess að und-
irhúa fjárlögin' undir þinghald
í febrúar. Það er hægt að slá
þessu fram en erfitl að rök-
styðja það I fyrravetur var
þingi frestað til hausts eftir
meira en tveggja mánaða setu.
Aftur situr þingið tvo mánuði
og það er rétt með herkjubrögð-
um að fjárlögin eru hespuð af
fyrir áramótin. í fyrra var ekki
hægt að ganga frá fjárlögunum
á vetrarþinginu, vegna þeirrar
óvissu sem framundan var. Er
óvissan minni nú? Er ekki rétt-
ara að segja, að ekki sé vissa
um neitt nema óvissuna?
Gegnum alt tal Tímamanna
um samvinnuslit og kosningaf
skin í það, að sjálfstæðismenn
séu á ferðinni með einhverjar
óbilgjarnar kröfur í viðskifta-
málunum. Það verður fróðlegt
að sjá á sínum tíma, hverjar
þær „ósanngjörnu“ kröfur eru.
Þessi mál eru i höndum ríkis-
stjórnarinnar og skal ekki fjöl-
yrt um þau að sinni. En svo
mikið er óhætt að fullyrða, að
sjálfstæðisráðherrarnir munu
fyrir sitt leyti hvorki í við-
skiftamálum né öðrum efnum
bera fram aðrar kröfur en þær,
sem þeir eru viðbúnir að leggja
undir alþjóðardóm, hvenær sem
er.
a
INNBROT.
Nú um helgina var framið
innbrot í Vinnufatagerð ís-
lands h.f. við Þvergötu. Hafði
þjófurinn farið inn um glugga
og síðan komist um alt húsið.
Hefir liann augsýnilega gert sér
mikið far um að leita að þýfi,
því hann hafði rótað miklu lil
og sennilega liaft á burt með
sér eitthvað af fatnáði.
Málið er í rannsókn.
Fyrir helgina voru tvö inn-
brot framin hér i bæ, annað í
Pappirspokagerðina, en hitt í
Kexverksmiðjuna „Frón“. Fyr-
ir þeim innbrotum stóðu íveir
piltar, annar 17 ára, liinn 20
ára. Náðust þeir á laugardag-
inn og voru báðir kunnir lög-
reglunni áður vegna þjófnaðar-
mála.
Inn í Frón komust þjófarn-
ir með þeim hætti, að þeir
sprengdu upp hengilás að kola-
geymslu, og komust þaðan um
alt húsið. Brutu þeir upp nokk-
urar hirslur en fundu ekki ann-
að, sem þeir girntust, en eitt-
hvað af kexi, sem þeir höfðu á
brott með sér.
Inn í Pappírspokagerðina
komust þeir gegnum glugga.
Glugginn liggur 4—5 mtr. frá
jörðu og höfðu þeir klifrað upp
í liann eftir loftventlum, sem
liggja utan á liúsveggnum.
Einnig þar brutu þeir upp
nokkurar hirslur, en án árang-
urs, því þeir hirtu ekki annað
en lítilsháttar sælgæti og ciga-
rettur.
Höfðu þjófarnir farið með ó-
varið kertaljós um húsið og var
mesta mildi að ekki skyldi
kvikna í, þar sem eldhættan var
þarna óvenjulega mikil.
i.míiiiiií -
Vélbátaútgerð í Haín-
arfírði í vetur.
Vélbátaútgerð er nú að byrja
í Hafnarfirði í vetur og eru 5
aðkomubátar komnir til þess
að stunda þar veiðar. Eru það
þeir Barði og Vísir frá Siglu-
íirði, Sævar og Sæunn frá
Siglufirði og Vonin frá Akur-
eyri.
Auk norðanbátanna munu
Hafnarfjarðarbátarnir þrír, Ás-
björg, Auðbjörg og Njáll, róa
þaðan. ' íf' j'fPPi
Lýðræði Héðins
aldimarssonar.
Það er altaf að koma betur
og betur í ljós, hver alvara
Héðni Valdimarssyni var, þegar
hann í fyrra var að prédika um
ópólitísk stéttarfélög og jafn-
rétti í öllum greinum. Sú blekk-
ing átti nú ekki lengur að Vera
hulin sjónum verkamanna.
Það eru aðeins liðnar 4 vikur
síðan Héðinn Valdimarsson
sagði sig úr Sameiningarflokkn-
um, sökum þess að hann var
ekki fær um að náða niðurlög-
um draugs jiess, sem hann vakti
upp i sameiningu við kommún-
ista.
Vel getur veríð að sumir hafi
trúað því á tímabili að samein-
ingardraugurinn væri að gera
út af við Héðinn Qg jafnframt
að honum væri alvara í að gera
tilraun til að slíta af sér hleklci
hins rússneska valds sem hélt
honum í heljargreipum. En svo
er þó ekki, það virðist að hann
sé tengdur svo sterkum blóð-
böndum við Stalin og glæpa-
félaga hans, að hann hvorki geti
eða þori að losa sig úr þeim.
Það kemur best í ljós nú, þar
sem hann ætlar að ganga til
sameiginlegra stjórnarkosninga
í Dagsbrún með kommúnista
sér við hlið og meira að segja
kommúnislar keyra liann svo
Iangt með hnútasvipunni, að
þeir stilla honum upp í for-
mannssæti, vitandi það, að hann
við þessar kosningar hlýtur að
falla með smán, því að það er
fjarlægt hugsUn íslenskra
verkamanna að vilja hafa sendi-
boða rússneska einvaldans að
fulltrúa í hagsmunamálum sin-
um. Líka töluvert kynlegt að
fela stærsta heildsala landsins
að gæta hagsmuna verkamanna
og sérstaklega þegar heildsal-
inn er ekki vandari að virðingu
sinni en H. V. er.
Þetta virðist koma í bága við
réttlætislcenningu H. V., þegar
hann á sama tíma vísar verka-
mönnum úr Dagsbrún. Eg sem
línur þessar rita hef verið með-
limur í Dagsbrún frá því árið
1930 er eg fluttist hingað til
bæjarins þar lil í maí síðastliðn-
um að eg fæ atvinnu á Ráðn-
ingarskrifstofu Reykjavíkur.
Þegar H. V. fréttir þetta nú í
sumar bregður hann við og
vísar mér úr Dagsbrún með
þeim rökum einum, að lengur
geti eg ekki talist verkamaður
og sóma síns vegna geti hann
ekki látið það viðgangast að
þeir sem ekki stundi verka-
mannsvinnu séu í verkalýðsfé-
lagi. Maður geti nú ætlað, að við
jietta tækifæri hefði H. V. ekki
gengið fram hjá sjálfum sér og
sínum senditíkum, en hvergi
hef eg frétt að búið væri að
vísa úr Dagsbrún sálusorgara
kommúnista, Sigfúsi Sigur-
hjartarsyni eða Guðmundi Pét-
urssyni að ógleymdum sjálfum
h öf uðf j anda verkalýðssam tak-
anna H. V. Hvergi heyrist þess
getið að menn þessir séu farnir
að stunda verlcamannavinnu.
Aldrei hafa þeir látið skrá sig
sem atvinnuumsækjendur á
Vinnumiðlunarskrifstofunum.
Þetta litla atvik sýnir ljóslega,
hvílíkum óþverrabrögðum II.
V. reynir að beita við pólitíska
andstæðinga, þar eð hann skirr-
ist ekki við að beita allskonar
Njáll og Sævar hafa farið í
nokkra róðra, en aflað litið.
í ráði er að setja botnvörpu-
útbúnað í Njál og stundar hann
þá botnvörpveiðar í vetur.
Á Jaugardag réru Barði, Sæ-
var, Visir og Vonin og komu að
í gærkveldi, en öfluðu fremur
lítið.
lögleysum og gjöræði, þar sem
hann liyggst geta komið því við.
Að sjálfsögðu hefir H. V.
fundið hvað ísinn var ótraustur
við síðustu stjórnarkosningu í
Dagsbrún og hvað sjálfstæðis-
menn hertu lielsið að liálsi hans
við þær kosningar, þá var sjálf-
sagt að finna leið til að reyna
til að fækka kjósendatölu
Sjálfstæðismanna innan Dags-
brúnar og þótti það besta lausn-
in á þvi vandamáli að víkja
Sjólfstæðisverkamönnum úr fé-
laginu, en það get eg sagt H. V.
að þar hefir hann ekki náð til-
gangi sinum, því að kjósendum
Sjálfstæðisflokksins liefir stór-
um fjölgað innan Dagsbrúnar á
síðasta ári. Skoðun H. V. er sú,
að Dagsbrún eigi eingöngu að
vera til að vernda pólitíska
hagsmuni sjálfs lians, án þess
að hann liirði neitt um hags-
muni verkamanna. Það liefir
hann sýnt með framlcomu sinni
i verkalýðsmálunum undanfar-
in ár.
Verkamenn, sem línur þessar
lesið, ykkur vil eg segja það, að
nú standa fyrir dyrum stjórn-
arkosningar í Dagsbrún og að
vanda stilla kommúnistar upp
lista með II. V. sem formanni.
Þennan lista ætla kommúnistar
ykkur að kjósa, en gleymið því
ekki, að menn þessir sem stilt
er upp á listann lijá konmiúnist-
um eru einmitt málsvarar of-
beldis þess sem framið er nú
um þessar mundir á frændþjóð
okkar Finnlendingum. Menn
þessir berjast fyrir þeirri stefnu
sem lætur myrða saklaust og
varnarlítið fólk og það sama
gerðu þeir hiklaust við ykkur ef
tækifæri gæfist til þess. Að lok-
um vil eg hvetja ykkur til að
muna eftir að greiða gjöld ykk-
ar til Dagsbrúnar annars gæti
viljað til að H. V. flýgi í hug að
strika ykkur út úr ykkar eigin
félagi, ef þið reyndust honum
ekki auðsveipir þjónar.
Axel Guðmundsson.
¥élbátarnir
konuiir fram.
I gær og fram eflir kveldi var
stormur út af Vestfjörðum og
hvassviðri við Suðurland. Átt
var norðlæg.
Allmargir bálar voru á sjó og
var Slysavarnafélaginu gert að-
vart um báta, sem óttast var
um. Voru skip beðin um að
gefa gætur að þeim og‘veita
þeim aðstoð. Einn þessara gáta
var v.b. Anna frá Sandgerði. —-
Ilafði vélin bilað. Var samband
við bátinn, sem liefir talstöð.
Komst hann til Sandgerðis kl.
um 1 í nótt.
Þá barst Slysavarnafélaginu
tilkynning frá ísafirði þess efn-
is, að bátsins Hjördísar væri
saknað, en hann kom til Ön-
undarfjarðar kl. 2 í nótt. — t
morgun var svo tilkynt frá ísa-
firði, að v.b. Valdísi vantaði, en
hún er nú einnig komin fram.
Menn ætti að muna eftir þvi,
að nú er leitað samskota og
gjafa til þess að unt verði að
halda Sæbjörgu út á vertíðinni.
Fréttin hér að ofan bendir til
þess, hversu nauðsynlegt það er,
að hafa björgunarskútur, enda
þótt að þessu sinni hafi bátarn-
ir lcomist að landi hjálparlaust.
Oft þurfa bátarnir aðstoð til
þess, og berist hún ekki, farast
kannske mörg mannslíf.
Fyrirlestur
Howards Little í kvöld: „How
a great detective was made“.
SamoiDpr nm framboð
i stjórn Dagsbrónar.
Samningur milli Alþýðuflokksverkamanna og Sjálfstæðis-
flokksverkamanna um uppstillingu í Verkamannafélaginu
Dagsbrún við kosningar í félaginu í janúar 1940 og önnur mál
í því sambandi.
I.
Uppstillingu til kosninga í verkamannafélaginu Dagsbrún í
janúar 1940 skal þannig hagað (sbr. 24. gr. gildandi félagslaga
Dagsbrúnar).
Alþýðuflokksverkamenn stilla í formanns og gjaldkerasæti,
en Sjálfstæðisflokksverkamenn í varaformanns, ritara og fjár-
málaritara sæti.
í varastjórn skal stilla tveimur alþýðuflokksmönnum og ein- j
um sjálfstæðismanni.
f trúnaðarráð, sem er skipað 100 félagsmönnum, skal stilla
jafnt af hvorum flokki.
I stjórn Vinnudeilusjóðs skal stilla tveimur alþýðuflokks-
mönnum og einum sjálfstæðisflokksmanni, en í varasæti sín-
um af hvorum flokki.
f sæti endurskoðenda skal stilla sínum af hvorum flokki.
En varamanni úr hópi Sjálfstæðisflokksmanna.
n.
Ef listinn nær kosningu, skal gerð samþykt á fyrsta trúnað-
arráðsfundi umaðDagsbrún segi sigúrLandssambandi íslenskra
stéttarfélaga, og sé utan sambanda út kjörtímabilið, nema gerð
verði sú breyting á lögum Alþýðusambandsins, sem báðir samn-
ingsaðilar telja viðunandi.
Á sama fundi skal og kjósa til viðbótar í stjórn félagsins í
trúnaðarmannaráð þannig að í því fullskipuðu skulu eiga sæti
5 Alþýðuflokksmenn og 4 Sjálfstæðisflokksmenn, og skulu
varamenn kosnir í sömu hlutföllum.
Á lögmætum félagsfundi skal kjósa 20 menn til vara í trún-
aðarráð — 10 af hvorum flokki — er mæti í forföllum aðal-
manna og skal þá jafnan kalla samflokksmann forfallaðs að-
almanns til starfa.
Ráðsmaður félagsins skal vera Alþýðuflokksmaður, en verði
ráðinn aðstoðarmaður, skal hann vera úr hópi Sjálfstæðis-
flokksmanna.
Jafnhliða þessu samkomulagi skal gera annað um þau hags-
mál Dagsbrúnarverkamanna, sem þörf er á að færa í betra horf,
og sem félagsstjórn er ætlað að berjast fyrir og framkvæma á
árinu.
1. Sjá um að lög og samþyktir félagsins séu haldin.
2. Að reyna að ná samningum við ríki og bæ sem og aðra
atvinnuveitendur sem ekki hafa náðst samningar við.
3. Að koma fjárhag félagsins í viðunandi horf.
Dagsbrúnar-
kosningin.
Listinn til kosninga í Verka-
niannafélaginu Dagsbrún í jan.
1940 skv. 24. grein félagslag-
anna, borinn fram af Alþýðu-
flokks- og Sjálfstæðisflokks-
verkamönnum í félaginu, er
skipaður þeám mönnum, er hér
greinir:
Formaður: Einar Björnsson,
Laugavegi 137.
Varform.: Sigurður Halldórs-
son, Laufásvegi 47.
Ritari: Gisli Guðnason, Lauga-
vegi 28 C.
Gjaldkeri: Torfi Þorbjörnsson,
Ásvallagötu 23.
Fjárm.ritari: Sveinn Jónsson,
Laugavegi 64.
Varastjórn:
Jón S. Jónsson, Aðalbóli.
Kristinn H. Kristjánsson,
Vitastíg 11.
Sigurbjörn Maríusson, Sól-
vallagötu 14.
Stjórn Vinnudeilusjóðs:
Formaður: Sigui’ður Guð-
mundsson, Freyjugötu 10 A.
Meðstjórn: Bjarni Sæmundsson
Grettisgötu 17 A.
Ágúst Jósefsson, Framnes-
vegi 22 A.
Varamenn: Jón B. Thorarensen,
Laugavegi 24 B.
Magnús Gíslason, Þórsgötu 9.
Endurskoðendur: Auðunn Auð-
unsson, Lindargötu 38.
Eggei't Ó. Jóhannesson, Ný-
lendugötu 19.
Varaendurskoðandi: Björgvin
Kr. Grímsson, Frakkast. 26A.
Næturlæknir:
Páll Sigurðsson, Hávallagötu 15,
sími 4959. Næturvörður í Ingólfs
apóteki og Laugavegs apóteki.
SIGURÐUR HALLDÓRSSON.
GÍSLI GUÐNASON.
SVEINN JÓNSSON.