Vísir - 29.01.1940, Page 1
Ritstjóri:
KRISTJÁN GUÐLAUGSSON.
Sími: 4578.
Rií itstjórnarskrifstof ur:
í’élagsprentsmiðjan (3. hæð).
30. ár.
Afgreiðsla:
HVERFISGÖTU 12.
Sími: 3400.
AUGLÝSINGASTJÓRI:
Sími: 2834.
23. tbl.
Margra mánaða styrjöld
framundan í Finnlandi.
Rússar verða að fresta frekari sókn
þar til snemma i vor
EINKASKEYTI frá United Press.
Kaupm.höfn í morgun.
Átökin um rúm-
'TBUTtf, þegar um það bil tveir mánuðir eru liðnir frá því
I Rússar hófu innrás sína í Finnland og ætluðu að
sigra Finna í nokkurra daga skyndistyrjöld og gefa
Stalin Finnland í afmælisgjöf — drepa fréttaritarar hlutlausra
þjóða I Finnlandi á það í skeytum sínum, hvernig aðstaðan
hefir að ýmsu leyti breyst Finnum í vil. (Innrásin byrjaði 30.
nóv. f. á.) Mistök Rússa hafa verið, mikil, skipulag slæmt og
herstjómin slæm, kapp meira en forsjá, öll áhersla lögð, á skjót-
an árangur, ekkert sparað, hvorki menn eða hergögn, en ár-
angurinn sá, sem þakka má harðfengi og yfirburðum Finna,
góðri herstjóm og kænsku, samfara þekkingu á landslagi o.
s. frv., að eftir tveggja mánáða styrjöld, sem hefir kostað Rússa
ógrynni fjár, þúsundir mannslífa og tugþúsundir særðra og
mikinn hergagnamissi, að eins og stendur getur aðstaða Finna
hvergi talist hættuleg. og víðast miklum mun betri en áður.
Það er einkum leidd athvgli að því, að sóknir Rússa á Kyrjála-
nesi, fyrir norðan og noroaustan Ladogavatn, hafa mishepn-
ast svo og tilraun þeirra til þess að brjótast til Helsingjabotns
yfir þvert Finnland frá austurlandamærunum. Loks er það tal-
ið mjög mikilvægt, að kjarkur þjóðarinnar finsku er óbilaður,
þrátt fjTÍr allar loftárásirnar.
Webb MiIIer, sem gerir þetta að umtalsefni, símar í morgun,
að svo mjög hafi dregið úr sókninni fyrir norðan og norð-
austan Ladogavatn, að allir líkur bendi til, að Rússar neyðist
til þess að fresta frekari sókn þarna þar til snemm í vor (mars).
STÓRSKOTALIÐ FINNA
GERIR HARÐA HRlÐ
AÐ RÚSSUM.
Webb Miller símar ennfrem-
ur, að stórskotalið Finna hafi
gert harða hríð að Rússum á
Kyrjálanesi í gær. Hæfðu skytt-
ur Finna oft beint í mark og
eyðilögðu margar fallbyssur
fyrir Rússum, svo að þær urðu
ónolbæfar með öllu.
EINN UPPISTANDANDI AF
80 MANNA FLOKKI.
Eg hefi talað við rússneskan
fanga, sem fluttur var til Vi-
borgar, eftir bardagana á laug-
ardaginn. Þessi fangi var liinn
eini, sem uppi stóð af 80 manna
flokki, sem réðist á fámenna
sveit finskra hermanna, er tók
svo rösklega á móti Rússunum,
að þessi eini maður slapp lif-
andi.
VIÐTÖL VIÐ FINSKA
FLUGMENN.
Webb Miller kveðst hafa tal-
að við marga finska flugmenn,
sem halda því fram, að flugvél-
ar Rússa hafi marga góða
kosti og flugmennirnir séu dug-
legir, en ekkl nógu vel þjálfað-
ir í hernaðarflugi og í að skjóta
af vélbyssum og varpa niður
sprengikúlum. Þess vegna sé ár-
angurinn af loftárásunum, mið-
að við flugvélafjölda, miklu
minni en ella myndi.
VIÐ ÞURFUM 200 ÁRÁSAR-
FLUGVÉLAR — ÞÁ —
Einn af finsku flugmönnun-
um sagði við mig: „Það, sem
liáir okkur mest, er það, að
hafa ekki nógu margar lirað-
fleygar árásarflugvélar. Ef við
fáum 200 slíkar flugvélar til
viðbótar getum við tekið á móti
rússnesku flugmönnunum, svo
að þeir muni eftir ráðningun-
um, sem þeir fá“.
ensku olíuna.
Sigra Þjóðverjar
í olíustríðinu.
Einkaskeyti frá United Press.
llikbr truflanir á
samgöngrum í
Bretlandl.
STYRJÖLDIN I FINNLANDI.
Efri myndiri er frá bændabýli í
Finnlandi, þar sem er ein af
skíðabirgðastöðvum finska
hersins. — Á neðri myndinni
eru finskir framverðir að vinna
að þvi að sprengja brú i loft
upp.
DEUTSCHLAND FÆR NÝTT
NAFN.
Þýska flotannálastjórnin til-
i kynnir, að þýska vasa-orustu-
| skipið Deutschland sé fyrir
: nokkuru heim lcomið úr leið-
, arigri um Atlantshaf, þar sem
skijjið herjaði á flutningaskip.
Skipið fær nú nafnið Lutzow,
en stærra skip fær nafnið
Deútschland. - NRP.
411» r járubrantarl. á eftir áætlun
og’ iiin |>rjáia Iieflr eltltert frést.
EINKASKEYTI frá United Press. — London í morgun.
Járnbrautarlestir í Bretlandi hafa orðið fyrir
miklum töfum og eru þær, sem komið hafa til
London í gærkveldi og í nótt, 3 til 13 klukku-
stundir á eftir áætlun.
Um afdrif þriggja farþegalesta, sem lögðu af stað á-
leiðis til Skotlands á sunnudagsmorgun, vita menn ekk-
ert.
Farþegar svo hundruðum skifti, sem komu til Lon-
don í morgun, höfðu verið matarlausir í upp undir 20
klukkustundir.
Ólag hefir komist á talsímaleiðslur og margir staðir
hafa ekkert samband við aðra bæi.
í London hefir komist ólag á strætisvagna- og spor-
vaganumferð.
(Enda þótt ekkert sé á það minst í skeyti þessu — þar sem
að ekki er leyft að birta fregnir um veður jafnóðum i blöðum
og útvarpi Rretlands, vegna striðsins, verður að álykta, að
samgönguerfiðleikar þeir, sem bér er um að ræða, stafi af völd-
um ofviðris og fannfergis).
K.höfn í morgun.
Hvarvetna er nú beðið með
mikilli óþreyju hvað gerast
muni á Balkanráðstefnunni,
sem hefst í Belgrad 2. febrúar,
ekki síst vegna þess, að það er
nú kunnugt orðið, að Banda-
menn leitast við að koma í veg
fyrir, að Þjóðverjar fái meiri
olíu frá Rúmeníu. Hið nýja olíu-
ráð ætlar að vinna að aukningu
olíuframleiðslunnar. . . Bretar
hafa tekið olíuframleiðslumál-
in til viðræðna við rúmensku
stjórnina og krefjast þess, að
Þjóðverjum verði ekki ívilnað.
Nú hafa Frakkar boðað, að þeir
muni taka sömu stefnu og Bret-
ar í þessum málum. Sendiherr-
ar Balkanríkjanna koma saman
á fund í Berlín og vekur sá
fundur einnig mikla athygli.
Meðal ítalskra stjórnmála-
manna ríkir sú skoðun, að Þjóð-
verjar muni sigra í olíustríðinu.
— Rúmenar verði tilneyddir að
láta að kröfum þeirra um meira
olíumagn.
2 MENN BÍÐA BANA, EN 50
SÆRAST í GASSPRENGINGU
Tveir menn biðu bana, er
sprenging varð í Mjöndalen
ccllulose-verksmiðjunni, en
fjöldi manna særðist. Voru þeir
fluttir í sjúkrahús í Drammen.
Nánari fregnir vantar, en talið
er að um gassprengingu hafi
verið að ræða. - NRP.
Kosningin hófst í Góðtempl-
arahúsinu í Hafnarfirði kl. 2 e.
li. í gær. Sjálfstæðismenn komu
öllum mönnunum að í stjórn-
ina og féll kosningin þannig:
Formaður var kosinn Her-
mann Guðmundsson með 144
atkv. Ritari Sigurður Sigurðs-
son, féhirðir Ingvi Jónsson,
fjármálaritari Sumarliði And-
résson en varaformaður ísleif-
ur Guðmundsson. í varastjórn
voru kosnir Arnlaugur Þ. Sig-
urjónsson, Sigurbjörn Guð-
mundsson og Halhnundur Eyj-
ólfsson. ;— Endurskoðendur Á-
mundi Eyjólfsson og Ólafur
Jónsson, en varaendurskoðandi
Guðmundur Eggertsson.
Þórður Þórðarson, sem stilt
var í formannssætið af hálfu
Alþýðuflokksmanna, hlaut 110
atkvæði, en Helgi Sigurðsson
frá Sameiningarflokki alþýðu
hlaut 40 atkv. Samkvæmt lög-
um í Verkamannafélaginu Hlíf
verður að kjósa tvisvar, ef alger
meirihluti atkvæða næst ekki
með einhverjum manninum í
uppliafi. Sé kosið tvisvar, er við
siðari kosninguna aðeins kosið
um þá tvo menný sem
flest atkvæði fengu við fyrri
kosninguna. Að þessu sinni
HERMANN GUÐMUNDSSON.
varð að endurtaka kosninguna
þar eð sjálfstæðismenn fengu
ekki fullan helming greiddra
atkvæða við fyrri kosninguna.
Varð að kjósa milli Hermanns
Guðmundssonar og Þórðar
Þórðarsonar, en Iielgi Sigurðs-
son kom samkvæmt félagslög-
um ekki til greina. Við þessa
síðari kosningu skilaði liðlega
hehningur Sameiningarflokks
Alþýðu auðum seðlum, en liin
atkvæðin skiftust milh Her-
manns og Þórðar. í
Að kosningu afstaðinni flutti
Frh. á 3. síðu.
FINSKIR SKÍÐAMENN Á NORÐURVÍGSTÖÐVUNUM.
,Hér sést fámennur flokkur úr einni hinni frægu skíðamannahersveit Finna. Skiðamannaflokk-
arnir eru vanalega fámennir, 10—20 menn í flokki. Þeir eru vopnaðir hand-vélbyssum og hafa
með sér sprengiefni, til þess að sprengja í loft upp brýr og járnbrautir Rússa.
H&utleysássteínan
sigrar í Búlgaríu.
Einkaskeyti frá United Press.
London í morgun.
Kosningar eru um garð gengn-
ar í Búlgaríu. Það var aðallega
hlutleysisstefnan, sem um var
deilt í kosningunum, og hafði
ríkisstjórnin lýst yfir -því, að
hún mundi í öllu fylgja hlut-
leysisstefnunni fram, og gera
alt, sem í hennar valdi stend-
ur til þess að forða því, að Búl-
garía flæktist inn í styrjöldina.
Þessi stefna stjórnarinnar fékk
góðar undirtektir hjá þjóðinni.
Stuðningsmenn stjórnarinnar
fengu 140 þingsæti, en stjórn-
arandstæðingar að eins 20. Áð-
ur hafði stjórnin 104 þingsæti,
en stjórnarandstæðingar 56. Er
því sigur stjórnarinnar hinn
glæsilegasti.
Stórkostieger sigar
sjálfstæðisverkamanna
i Hafnarfirði.
Áhrif sósíalista þurkuð út úr samtökum hafnfirskra
verkamanna. — Sjálfstæðismenn fá hreinan meiri-
hluta atkvæða á aðalfundi |Hlífar, 'og þar með alla
frambjóðendur sína kosna í stjórn félagsins.
Sjálfstæðisverkamenn í Hafnarfirði unnu í gær glæsilegasta
sigur við stjórnarkosninguna í verkamannafélaginu „Hlíf“, sem
sjálfstæðismenn hafa nokkuru sinni unnið í baráttumálum
verkalýðsins hér á landi.
Þessi sigur er þeim mun glæsilegri sem Sjálfstæðisverka-
menn hafa til þessa verið í minni hluta við allar kosningar í
verkamannafélaginu og aldrei átt mann í stjórn þess, og hann
er líka sérstaklega glæsilegur fyrir það, að Alþýðuflokksmenn-
irnir sem stilt var upp við kosningarnar börðust harðvítugri
kosningabaráttu og gerðu alt sem þeir gátu til að hrifsa völdin
í sínar hendur. Bæði Þórður Þórðarson og Guðm. Eggertsson
sem stilt var upp af hálfu Alþýðuflokksmanna sitja í stjórn
Verkamannafélags Hafnarfjarðar sem er flokksfélag þeirra
jafnaðarmannanna.