Vísir - 01.02.1940, Page 1
Ritstjóri:
KRISTJÁN GUÐLAUGSSON.
Sínii: 4578.
Riotst jórnarskrifstof ur:
iFélagsprentsimðjan (3. hæð).
___________________________
30. ár.
•.V. "í $■
/ 'V
Sókn Finna hjá Knhmo miili
Lieksa og Soumusalmi.
-----•----
Markanið þoirrst er stð Ikrðst iiani
ðO.OOO iifisteaitst rússue§kaia Saer.
3000 ISiíisar Iistfst £ra§ið I itel st
fiessimi t í^iöðvsiiaa.
EINKASKEYTI frá United Press. — Kaupmannahöfn í morgun.
Rússar gerðu enn í gær tilraunir til þess að brjót-
ast gegnum Mannerheimvíggirðingarnar á
Kyrjálanesi en áhlaupum þeirra var hrundið
eins og áður og biðu Rússar mikið manntjón. Tala fall-
inna nemur mörgum tugum.
1 gær eyðilögðu Finna þarna fyrir Rússum tvær loft-
varnabyssur, 1 fallbyssu og nokkra skriðdreka. Rúss-
neskri hersveit á göngu var algerlega tvístrað. . Tveir
flokkar rússneskra hermanna fóru þar yfir, sem
sprengjur voru í jörð, og fórust allir hermennirnir.
Við Kuhmo, milli Soumussalmi og Lieksa, þar sem
Rússar hafa dregið að sér mikið lið, hafa Finnar byrjað
gagnsókn mikla. Leggja Finnar mikla áherslu á, að
hindra aðflutninga til þessa liðs, og er ekki loku fyrir
það skotið að þeim muni takast það, þar sem sagt er,
að þeir hafi þegar náð á sitt vald nokkrum stöðvum, á
flutningaleiðum þeim sem Rússar hafa notað. Er mik-
ill kraftur í sókn Finna.
3000 RÚSSAR FRJÓSA í HEL.
Það hefir enn komið í ljós, að rússnesku hermennirnir stand-
pst ekki eins vel kuldann og hinir finsku og útbúnaður þeirra
verri, en þegar þar við bætist, að skortur er matvæla vegna þess
að flutningar teppast, lamar það þrek þeirra. Er talið, að um
3000 rússneskir hermenn hafi frosið í hel á þessum vígstöðvum.
LOFTÁRÁS Á ROWANIEMI.
í loftárásinni á Rowaniemi í gær varð mikið tjón. Voru um
30 flugvélar á sveimi yfir borginni í einu og var varpað niður
mörgum sprengikúlum og íkveikjusprengjum. Kviknaði í mörg-
um húsum og sjúkrahús stórskemdist, en margt sjúklinga og
hjúkrunarfólks særðist.
Tólf menn biðu bana, en 55 særðust, að því er hermt er í til-
kynningu frá Rowaniemi í gærkveldi.
ÞtSK SPRENGJ UFLUGVÉL SKOTIN NIÐUR.
Flugvél þessa skaut frakkneskur flugmaður niður og hrapaði hún til jarðar Frakklandsmegin
viggirðinganna. Flugmaðurinn beið bana. — Eins og sjá má á myndinni hefir fólk safnast saman
til þess að virða í’yrir sér flugvélina.
Skipatjón Norðmanna
aldrei meira en nú.
Þeip mistu 6 skiþ s. 1. viku. Hrakn-
ingar norskra sjómanna.
SÖKN FINNA HJÁ KUHMO.
Samkvæmt fregnum, sem
bárust frá Finnlandi í gser, er
enn óvíst liver ber sigur úr být-
um á miðvígstöðvunum, en
Finnar hafa byrjað öfluga sókn
við Kuhmo, þar sem verið hefir
kyrt síðan er hin mikla orusta
var liáð við Soumussalmi. Virð-
ast Finnar hafa náð talsVerðum
árangri, en marlcmið þeirra
virðist vera að króa inni 20.000
manna rússneskan her, og eru
i honum hersveitir, seni toku
þátt i innrásinni i Pólland.
NRP—t-FB.
FINSKI FÉLAGSMÁLARÁÐ-
HERRANN í OSLO.
Finski félagsmálaráðherrann,
Fagerholm, kom til Osló i gær.
Hann kvaðst vera mjög ánægð-
ur yfir árangrinum af ferð
sinni til Noregs. Hann sagði, að
komið liefði til tals að veita
Finnum aðstoð með þvi að
senda þeim verkafólk.
Nt NORSK HJCKRUNAR-
SVEIT LEGGUR AF STAÐ
TIL FINNLANDS 7. Þ. M.
Ný norslc hjúkrunarsveit
leggur af stað til Finnlands 7.
febrúar. Nikolaysen yfirlæknir
er yfirmaður leiðangursins. En
í leiðangrinum taka 5 aðrir
læknar þátt, tveir læknanemar,
14 hj úkrunarkonur og 4 að-
stoðarmenn org hdlstjórar, svo
og fulltrúar frá Rauða Krossi
Noregs. — NRP.
Norska stýrimannafélagið
hefir gefið 5000 kr. til finskra
sjómanna eða aðstandenda
þeirra, sem eiga um sárt að
binda af völdum stríðsins. —
NRP—FB.
¥ið§kiftí Itala og
Norðiiianiia.
Viðhótar-viðskiftasamkomu-
lag hefir náðst milh Noregs og
ítalíu. Upphæðin er 1.9 milj. kr.
og að meðtalinni uppliæð þeirri,
sem um var samið í fyrri samn-
ingnum, verður liér alls um að
ræða viðskifti að upphæð 6.3
milj. kr. Fá ítalir saltfisk, að
verðmæti 1 milj. kr. og láta
flugvélar í staðinn, en fyrir
900.000 kr. geta Norðmenn
keypt iivað sem þeir vilja, en
sennilega kalipa þeir flugvélar
fyrir þá uppliæð líka. — NRP.
Loftvarnabyrgi í Oslo
fyrir 3*/2 milj. kr.
Bæjarstjórnin í Oslo vinnur
nú að því, að komið verði upp
loftvarnabyrgjum fyrir 40.000
manns. Þegar eru tilbúin loft-
varnabyrgi sem rúma 15.000
manns, 300 manns vinna að
því að ganga frá nýjum loft-
varnabyrgjum sem stendur.
Bærinn hefir lagt fram til lóft-
varnabyrgja 3y2 milj. kr. og er
það bnáðabirgðafjárveiting. —
iiijiífíírar
yflrur Irá lliu, ei
lliiir lol l stiiiie.
K.höfn í morgun.
Einkaskeyti frá United Press.
Eins og áður hefir verið sím-
að um, sendi þýska stjórnin við-
skiftasérfræðinginn Clodius lii
Rómaborgar fyrir nokkuru.
Elckert var látið uppskátt opin-
berlega um ferð lians, en al-
ment var talið, að hann ætti að
ræða breytingar á gildandi við-
skif tasamkomulagi Þ j óðver j a
og ítala. Ýmsar getgátur liafa
og komið fram um erindi Clo-
diusar, m. a. að hann hafi átt að
hvetja ítali til þess að krefjast
aukins olíumagns frá Rúmeníu,
og Italir því næst að leyfa að
Þjóðverjar fengi nokkurn hluta
þess olíumagns, sem ítalir hafa
fengið frá Rúmeníu. Ennfrem-
ur, að Clodius ætti að fara fram
á það, að Italir lánuðu Þjóð-
verjum járnbrautarvagna, en
Þjóðverjar eru fremur illa
| staddir í þeim efnum vegna
! þess, liversu flytja þarf mikið
herlið á járnbrautunum.
Nú er svo komið, að Clodius
mun geta farið lieim í yfir-
standandi viku.
Seinustu fregnir herma, að
árangurinn hafi orðið sá, að
samkomulag hafi náðst um það,
að Þjóðverjar fái ýmsar afurð-
ir og vörutegundir frá ítölum,
sem fá kol í staðinn frá Þýska-
landi.
Arita neitaði því, að Japanir
óskuðu eftir þvi, að afnema öll
réttindi annara þjóða í Kína, og
tilkynti, að ríkisstjórn Wang
Cliing Wei yrði brátt fullmynd-
uð.
Arita lagði mikla áherslu á,
að aukin vinátta væri að takast
með Japönum og ítölum, og
kvað Japani ávalt mundu minn-
ast þess me’ð þakklæti, að ítalir
liefði altaf sýnt þeim mikla
samúð frá því er Kínastyrjöldin
byrjaði.
Yonai talaði í efri deild þings-
ins og boðaði aukið eftirht á
sviði fjárhags og viðskifta. —
Sjöfartstidende leiðir atliygli
að því að smálestatala skipa,
sem sökt liefir verið i stríðinu,
er nú yfir 1.000.000. I síðustu
viku var sökt 15 skipum, þar
af voru 13 skip hlutlausra
þjóða. Norðmenn mistu 6 skip,
og liafa aldrei mist fleiri á jafn-
skömmum tíma. Englendingar
mistu að eins eitt smáskip. —
NRP.—FB.
Nokkuru nánari fregnir
liafa nú borist um e.s. Faro frá
Oslo. Skipið fórst s. 1. sunnudag
og rak flakið upp að eyju við
Skotland. Skipstjórinn og 6
menn björguðust á land. Aðrir
skipsmenn, 8 talsins, fóru, í
björgunarbátinn, en að eins
Iívaðst hann vona, að þjóðin
væri reiðubúin að leggja á sig
enn þá þyngri byrðar, til þess
að unt væri að leiða japönsk-
kínversku styrjöldina sem fyrst
lil lykta.
Samkomulag hefir náðst í
Noregi um 9% dýrtíðaruppbót
á laun starfsmanna bæjarfé-
laga. Af þessu leiðir aukin út-
gjöld -sem nema 1.4 milj. kr.
og verða 10.000 starfsmenn
hækkunarinnar aðnjótandi. —
NRÍP—FB.
einn maður var á lífi í bátnum,
er hann rak á land, en 3 menn
dauðir. Hina 4 mun liafa tekið
út. Það er enn óvíst livort skipið
fórst ó tundurdufli eða var skot-
ið í kaf.
í gær rak á land mannlausan
fleka á Shetlandseyjum. Hann
var svo gerður, að borð liöfðu
verið negld ofan á tómar tunn-
ur, tólf talsins, og einnig var
norskt flagg á stöng á flekan-
um. Ekkert annað gaf bending-
ar um frá hvaða skipi flekinn
væri.
Norsk skipafélög
gpæða.
Fyrstu skipaútgerðarskýrslur
fyrir 1939 er nú ve'rið að birta
og nemur arðúthlutun 10—15%
þrátt fyrir stórkostlega aukin
útgjöld vegna stríðsvátrygging-
ar o. fl. — NRP—FB.
Breskt skip ferst
í Norðursjó.
Einkaskeyti frá United Press.
London í morgun.
Frá Soulli Shields er símað,
að breska eimskipið Royal
Crowri, 4354 smálestir, hafi
soklrið á Norðursjó. Fimtán
menn af áhöfninni, sem af
komust, hafa verið settir á land
í hafnarborg á austurströnd
Englands.
Sjö menn af áhöfninni drukn-
uðu, er björgunarbát hvolfdi.
Sprengjuárásir Þjóð-
verja á ílutninga- og
fiskiskip.
Þjóðverjar lialda því fram,
að þýskar sprengjuflugvélar
liafi sökt 9 slripum á siglinga-
leiðum við Bretland í fyrradag.
Þessu neita Bretar og segja, að
sökt hafi verið að eins 2—3
skipum en nokkur önnur hafi
orðið fyrir tjóni. NRP—FB.
80-90 hátar gerð-
ir út frá Eyjum.
Frá fréttaritara Vísis.
Vestm.eyjum í morgun.
Undanfarna tvo daga iiefir
verið iiið hesta sjóveður hér í
Eyjum og liafa því allir bátar
róið, sem tilbúnir eru. Þeir
munu vera 30—40 að tölu.
Afli liefir verið heldur tregur
en þó hafa sumir bátanna lcom-
ið með 2—3 tonn úr róðri.
Mestur hluti aflans er seldur til
ísunar.
Menn húast við að héðan
muni verða gerðir út 80—90
velbátar, þegar alt verður kom-
ið í fullan gang. Loftur.
ISSfi*eióari§it|oB*i
§ýknaðnr.
I morgun var í lögreglurétti
kveðinn upp dómur yfir bíl-
stjóranum, sem ók á barn inn
við Sunnuhvol 4. okt. s. 1. Var
bílstjórinn sýknaður.
Atvik málsins voru þau, að
bílstjórinn liafði ekið druknum
manni inn að Sunnuhvoli.
Stöðvaði hann bifreiðina, en
flutti liana svo til ofurlítið rétt
á eftir. Fann liann þá að fram-
lijól bilsins fór yfir eitthvað og
sté þá lir úr bílnum til þess að
athuga hvað það liefði verið. Lá
þá tveggja ára gamali drengur
fyrir aftan framhjólið og hafði
hjólið farið yfir höfuð hans. —
Lést drengurinn nokkru síðar.
Dulapfull innbrot
1 Oslo.
Allmörg dularfull innbrot
liafa verið framin í Oslo að
undanförnu — öll á skrifstof-
um slripaútgerðarfélaga. Það er
einkennandi fyrir öll innbrotin,
að rótað hefir verið í skjala-
skápum og skúffum, en litlu
sem engu stolið. Óttast menn,
að hér séu á ferðinni menn,
sem eru að afla sér upplýsinga
um ferðir skipa eða annað
varðandi útgerðina. — NRP—
FB.
Arita heldur mikla ræðu
og gerir grein fyrir stefnu
japönsku stjómarinnar.
Japanip vilja ekki uppræta réttindi
annara þjóða í Kína.
EINKASKEYTI frá United Press. — London í morgun.
Arita, utanríkismálaráðherra Japans hefir ávarpað þing Jap-
ana og endurtekið, að sú sé stefna Japans að taka ekki þátt í
styrjöldum Evrópuþjóða, en hinsvegar muni japanska stjórnin
gefa nánar gætur að öliu varðandi styrjöldina og afleiðingar
hennar.