Vísir - 01.02.1940, Side 2
p
VI
9AGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Iíristján Guólaugsson
Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla: Hveifisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstræti)
Símar: 2834, 3400, 4578 og 5377.
Verð kr. 2.50 á mánuði.
Lausasala 10 og 20 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Alþýðublaðið og
Hlífarkosningm.
AÐ er ekkert óeðlilegl, þótt
Alþýðublaðið sé hnuggið
yfir stjórnarkosningunni í
verkamannafélaginu Hlíf i
Hafnarfirði. En það hefði ver-
ið karlmannlegra að láta ekki
bera alveg svona mikið á von-
brigðunum. En siðan kosning
þessi fór fram liefir blaðið varla
getað um annað talað. I fyrra-
dag liefir blaðið við orð, að
verkamenn þeir, sem Alþýðu-
flokknum fylgja gangi úr félag-
inu. í gær fræðir það lesendur
sína á því, að því aðeins hafi
listi sjálfstæðismanna náð kosn-
ingu, að kommúnistar hafi
hjálpað til þess. Það er rétt að
líta á atkvæðatölurnar til þess
að sjá, við hvað þessi fullyrð-
ing hefir að styðjast.
Eins og menn muna fór for-
mannskosningin fram í tvennu
lagi. í fyrri umferðinni fékk
Hermann Guðmundsson (Sjálf-
stæðisfl.) 129 atkvæði, Þórður
Þórðarson (Alþýðufl.) 97 at-
kvæði, Helgi Sigurðsson
(Kommúnistafl.) 40 atkvæði.
Auk þess fékk Gísli Sigurgeirs-
son, sjálfstæðismaður, G atkv.
og Gísli Kristjánsson, Alþýðu-
flokksmaður, 1 atkvæði.
í síðari umferðinni er kosið
milli Hermanns og Þórðar.
Hermann fær 144 atkvæði og
Þórður 110. Hermann eykur
með öðrum orðum atkvæðatölu
sina um 15 atkvæði, en Þórður
sína um 13. Af þessum atkvæð-
um, sem við Hermann bætasí
má með vissu telja 6 sjálf-
síæðisatkvæði, sem áður féllu á
Gisla Sigurgeirsson. Þannig
hefir Hermann fengið 135 sjálf-
stæðisatkvæði, svo að víst megi
telja. AIIs komu fram 254 gild
atkvæði við síðari kosninguna,
svo að hér er um hreinan meiri-
hluta sjálfstæðismanna að ræða.
Hermann Guðmmidsson hefði
þannig sigrað þótt ekkert
kommúnistaatkvæði hefði á
hann fallið. En hvað varð af
þessum 40 atkæðum kommún-
ista, sem komu fram í fyrrí
umferðinni? Því er til að svara,
að 24 seðlar voru auðir í seinni
umferðinni. Þeir hafa vafalaust
verið frá kommúnistum. Eru
þá eftir 16 konnnúnistaatkvæði,
sem útlit er á, að skifst hafi
milli frambjóðenda Sjálfstæðis-
flokksins og Alþýðuflokksins.
Þórður bætti við sig 13 atkvæð-
um í seinni umferð. Þar með
má telja hið eina atkvæði, sem
féll á Gísla Kristjánsson. Að
öðru leyti eru viðbótaratkvæð-
in að meira eða minna leyti frá
kommúnistum. Hermann gat í
hæsta lagi bafa fengið 9 af 16
kommúnistaatkvæðunum, sem
fram komu í seinni umferð.
Þórður gat liafa fengið 12 af
þeim. Það er þess vegna síður
en svo, að kommúnistar hafi
frekað hjálpað Sjálfstæðis-
flokknum en Alþýðuflokknum
við þessa kosningu. Hermann
hefði fengið ríflegan meirihluta,
þótt öll kommúnistaatkvæðin,
sem fram komu í seinni um-
ferð, hefðu lent á Þórði.
Alþýðublaðið finnur Her-
manni það til foráttu, að hann
sé í stjórn landssambands stétt-
arfélaganna. Sannleikurinn er
sá, að Hermann var kosinn í
þe.ssa sljórn meðan liann var
fjarverandi og hefir aldrei sótl
stjórnarfund. En viðvíkjandi
þeirri lcröfu, sem Alþýðublaðið
ber fram um það, að Hlíf segi
sig tafarlaust úr landssamband-
inu, þá er því til að svara, að
ekki mun standa á þeirri úrsögn
þegar Alþýðusambandinu hefir
verið breytt í það Iiorf, sem
sjálfstæðismenn í og utan Illíf-
ar Iiafa farið fram á. Það má
kannske minna Alþýðublaðið á
það, að hin rökstudda dagskrá,
sem forsætisráðherra bar fram
út af frumvarpi Bjarna Snæ-
björnssonar fól í sér fyrirheit
um það, að Alþýðusambandinu
yrði breytt í það horf, að allir
meðlimir þess fengju þar jafn-
an rétt án tillits til stjórnmála-
skoðana. Þegar samkomulag er
fengið um þessar og aðrar
breytingar, sem. dagskrártillaga
rikisstjórnarinnar fól i sér, mun
ekki standa á sjálfstæðisverka-
mönnum. Þess vegna stæði Al-
þýðublaðinu miklu nær að ýta
á eftir þeirri friðsamlegu lausn
málsins, sem heitið var, en að
vera að brýna sjálfstæðisblöðin
á því, að þau segi verkamönn-
um flokks síns ekki nægilega
fyrir verkum. Síðan sjálfslæðis-
verkamenn hófu baráttu sína í
verldýðsfélögunum hafa þeir
sýnt að þeir kunna fótum sín-
um forráð. Sigurinn í Hafnar-
fjrði er órækasta sönnunin fyr-
ir því. Slíkum mönnum virðist
treystandi til að ráða fram úr
málum sínum án aðkomandi
leiðbeininga.
a
Kauphækkun
vesrslunarfólks.
í gær voru undrritaðir samn-
ingar af hálfu Verslunarmanna-
félags Reykjavíkur annarsveg-
ar og kaupmannafélaganna
hinsvegar, um kaup starfsfólks
þeirra.
í samkomulaginu er gerður
nokkur munur á því fólki, sem
vinnur á skrifstofum, og þvi,
sem starfar að afgreiðslu í búð-
um. Er það vegna þess að skrif-
stofufólk hefir heldur slcemri
vinnutíma. Reiknast vinnutími
þess að jafnaði 180 klst. á mán-
uði, en vinnutími afgreiðslu-
fólks 205 klst.
Samkomulag varð um 6—9%
kauphækkun og skiftast launin
i flokka, sem fá mismunandi
uppbót.
Kauphækkunarflokkar eru er
hér segir fyrir skrifstofufólk:
Á alt að 270 lcr. kaup .... 9%
Á 270—360 kr. kaup .... 8%
Á kaup yfir kr. 360 .... 6%
En fyrir afgreiðslufólk verð-
ur kauphækkunin þessi:
Á alt að kr. 307,50 .... 9%
Á kr. 307,50—410 ....... 8%
Á kaup yfir kr. 410..... 6%
Miðast þetta við mánaðar-
laun. Samkomulagið gildir til
marsloka og verður þá endur-
nýjað eða samið á ný.
Skákþing
Reykjavíkur.
Skákþing Reykjavíkur hélt
áfram í gærkveldi. Fóru svo
leikar sem hér segir í Meistara-
flokki og 1. flokki.
Meistaraf lokkur:
Ásmundur vann Hannes, Sæ-
mundur vann Sturla, Hermann
vann Áka, Gilfer vann Hafstein
og Guðmundur vann Benedikt.
1. flokkur:
Magnús vann Aðalstein, Geir
Jón vann Pétur, Kristján og
Ragnar gerðu jafntefli, en Ingi-
mundur og Óli Valdimarsson
eiga biðskák.
vísrK
r \ - '- ■
Sýning Leikíéiags Reykjavíkur á
FJALLA EYVINDI
-... ;
Frá starfsemi
iðnráðsins und-
anfarin 2 ár.
- - - .frægasta leikriti Jóhanns Sigurjónssonar.
Annað kvölid hefir Leikfélag
Reykjavíkur frumsýningu á
Fjalla-Eyvindi, leikriti Jóhanns
Sigurjónssonar, og er þessi sýn-
ing fyrst og fremst miðuð við
það að höfundurinn hefði orðið
sextugur á þessu ári, ef honum
hefði enst aldur til.
VLsir snéri sér til Gests Páls-
sonar, formanns Le'ikfélagsins,
og leitaði bjá lionum upplýs-
inga um sýninguna og skýrði
hann svo frá:
„Án efa má telja Fjalla-Ey-
vind frægasta og besta leikritið,
sem ritað hefir verið á íslenska
lungu, enda hefir það verið sýnt
víða um lönd á helstu leikhús-
um álfunnar, svo sem í Kaup-
mannahöfn, London, Munchen,
Riga, París, Helsingfors, auk
þess í New York og sjálfsagt
víðar. Hefir leikritið einnig
• verið kvikmyndað undir stjórn
hins fræga kvikmyndasnillings
Victors Sjöberg, og hefir sú
mynd verið sýnd hér.
Leikritið var fyrst sýnt hér á
jólunum 1911 og var það í
fyrsta sinn, sem leikrilið sást á
leiksviði, en nokkrum mánuð-
um seinna var það sýnt í Kaup-
mannahöfn. Helstu hlutverkin
höfðu þá með höndum, þau frú
Guðrún Indriðadóttir, er lék
Höllu, og Helgi Helgason skrif-
stofustjóri, er lék Eyvind.
Halla hefir tvímælalaust ver-
ið eitt glæsilegasta lilutverk frú
Guðrúnar, og á árunum 1911—-
1924 lék hún hlutverkið samtals
78 sinnum, ]iar af 11 sinnum á
Akureyri árið 1921 og 12 sinn-
um í Winnipeg árið 1913.
Þjóðhátíðarárið 1930 var
Fjalla-Eyvindur enn sýndur hér
í Reykjavik, og fóru þau þá með
aðalhlutverkin frú Anna Borg
og Ágúst Kvaran forstjóri. Sýn-
ingin var með ágætum, enda
var leikritið sýnt 18 sinnum við
feikimikla aðsókn, og hefði ó-
efað verið sýnt oftar, e'f frú
Anna Borg hefði ekki farið ut-
an og sýningar því fallið niður.
Má fullyrða að leikur frú önnu
Borg í þessu hlulverki liafi ver-
ið eitt hið glæsilegasta afrek,
sem sést hefir á íslensku leik-
sviði. Vegna forfalla lék eg þá
sex sinnum hlutverk Eyvindar.
Að þessu sinni förum við frú
Falsariim írá Akur-
eyri dæmdur í 14 mán.
betrunarhússvinnu.
Þórður Jónsson, frá Akureyri,
sem handtekinn var hér í
Reykjavík þ. 12. janúar var í
morgun dæmdur í 14 mánaða
betrunarhúsvinnu. Hafði Þórð-
ur falsað tékka, eina spari-
sjóðsbók og 4 víxla, auk nokk-
urra framlengingarvíxla.
Þegar Vísir sagði frá þessu,
nokkuru eftir að Þórður var
handtekinn, var uppvíst um að
hann hafði falsað tvo framleng-
ingarvixla, eimi tékk og spari-
sjóðsbók. Við nánari rannsókn
komst svo upp um frekari fals-
anir af hans hálfu.
Náði Þórður í um 1500 kr.
með þessum fölsunum sínum.
Hafði hann 400 kr. upp úr
sparisjóðsbókinni, 300 kr. fékk
hann fyrir tékk á Siglufirði og
800 krónur fyrir nýja víxla, sem
hann seldi i útbúum Lands-
bankans, Búnaðarbankans og
Útvegsbankans á Akureyri.
Þórður falsaði nafn föður
síns á 4 víxla og nafn Jakobs
Frímanns, kaupfélagsstjóra á 2
vixla og tékk.
Frú Guðrún Indriðadóttir
sem Halla.
Frú Anna Borg, sem Halla.
Soffia Guðlaugsdóttir með að-
alhlutverkin, en Haraldur
Björnsson hefir liaft leikstjórn-
ina á hendi. Önnur hlutverk
hafa nieð Iiöndum: Haraldur
Björnsson, er leikur Arnes,
Þorsteinn Ö. Stepbensen Björn
hreppstjóra, Friðfinnur Guð-
jónsson leikur Jón bónda,
Marta Indriðadóttir, er leikur
Guðfinnu, Gunnþórunn Hall-
dórsdóttir leikur konu Jóns
bónda og Brynjólfur Jóhannes-
son Arngrím holdsveika. Leik-
tjöldin hefir Freymóður Jó-
hannesson málað og eru þau hin
prýðilcgustu að öllum frágangi.
Þess skal svo að lokum get-
ið, að samkvæmt áskorun Sig-
urðar Nordals prófessors verð-
ur lokaþáttur leiksins að þessu
sinni eins og Jóhann geklc frá
honum í upphafi, og er ekki á-
stæða til að víkja að því frekar,
með því að prófessorinn ræddi
það mál í útvarpinu í gær-
kveldi.“
Þetta er það, sem Gestur Páls-
son hafði um sýninguna að
segja, en Vísir getur frá eigin
brjósti bætt þvi við, að leikvinir
munu fagna því, að fá enn einu
sinni tækifæri til að sjá þetta
frægasta leikrit Jólianns Sigur-
jónssonar. Þarf ekki að efa, að
almenningur mun fjölmenna á
sýningarnar, enda er það ekki
nema verðskulduð viðurkenn-
ing á starfsemi Leilcfélagsins,
sem hefir nú í vetur sýnt hvert
leikritið öðru betra.
[undiif Versliiifiiiii
íél. ReylMr i kveld.
—o—
Rætf um launamálið
og verslunarmanna-
heimili.
Hér í blaðinu á öðrum stað
er sagt frá samningi, er stjórn
Verslunarmannafélags Reykja-
víkur hefir gert við atvinnuveit-
endur í verslunarstéttinni um
kauphækkun fyrir verslunar-
fólk vegna vaxandi dýrtíðar.
Kaupliækkunin er jafnliá og
hún frekast má vera samkvæmt
gildandi landslögum.
Samningur þessi er bygður á
frjálsu samkomulagi milli V.
R. og vinnuveitenda. Hann er
fyrsti samningur, er V. R. liefir
gert um kaupgjaldsmál.
Á fundi i Verslunarmannafé-
lagi Rcykjavíkur, sem haldinn
verður i Varðarhúsinu annað
kvöld, verður nánar sagt frá
kaupgjaldssamningi þessum og
framtíðaráformum félagsins í
kaupg j aldsmálum stéttarinnar.
Gildandi samningur er aðeins
til þriggja mánaða.
Má telja fullvíst að verslun-
arfólk i Reykjavík hafi huga á
að fylgjast með gangi þessa
máls og fjölmenni á fundinn.
Annað stórmál liggur enn-
fremur fyrir fundinum til um-
ræðu og ályktunar. Er það til-
laga um lcaup á húseign fyrir
félagið.
Húsbyggingarsjóður V. R. er
nú 18 ára og befir frá uppliafi
vaxið mjög með ári hverju.
Sjóðurinn er til orðinn með
frjálsu framlagi félagsmanna
og þannig hefir liann vaxið og
verið vottur fórnfýsi og áhuga
félagsmanna.
Margur félagsmaður ól þá
ósk i brjósti að rísa mætti i
Reykjavík nýtísku verslunar-
mannaheimili áður en félagið
verður fimtíu ára á næsta ári.
Var mikil vinna lögð fram á
siðasta ári til undirbúnings mál-
inu. En svo lcom stríðið. Alt við •
horf gerbreyttist. Aðflutt efni
til bygginga hækkaði í verði og
er svo komið, að augljóst er að
nýbyggingar stöðvist uni ófyr-
irsjáajilegan tírna.
V. R. liefir því orðið að taka
aðra stefnu. Og nú hefir félag-
inu boðist til kaups húseign hér
í Reykjavík, sem stjórn og liús-
bygginganefnd hafa við nána
alhugun orðið ásátt um að
mæla með á félagsfundi annað
kvöld, að fest verði kaup á.
Þetta er stórmál, sem skiftir
miklu um framtíð félagsins.
Engum félagsmanni er það ó-
viðkomandi.
V. R. vinnur að framgangi
fleiri mála fyrir verslunarstétt-
ina. Þess vegna ætti alt versl-
unarfólk í Reykjavík að vera
félagar i V. R. og taka þátt i
starfsemi þess.
Hver og einn í verslunarstétt-
inni, sem enn hefir ekki gengið
í V. R. ætti að gera það nú.
Nýir félagar eru velkomnir á
fundinn annað kvöld.
A.
Póstferðir á morgun.
Frá Rvík: Vestur-Skaftafells-
sýslupóstur, Rangárvallasýslupóst-
ut, Akranes, Borgarnes. — Til
Rvíkur: Borgarnes, Akranes.
Kosningar til iðnráðsins í
Reykjavík liafa staðið yfir i iðn-
félögunum undanfarið, og kom
hið nýkosna iðnráð saman til
fyrsta fundar 28. jan.
Á fundinum flutti formaður
skýrslu um starfsemi iðnráðsins
undanfarin 2 ár (kjörtímabil-
ið), og er þetta aðalefni hennar:
I iðnráðinu liafa verið 42 full-
trúar, frá 27 iðngreinum (sam-
tals um 1800 iðnaðarmenn).
I sameinuðu iðnráði hafa ver-
ið haldnir 6 fundir á kjörtíma-
bilinu. Afgreiðsla mála hefir.að-
allega verið í höndum fram-
kvæmdastjórnar, sem er skipuð
5 mönnum. Framkvæmda-
stjórn hefir haldið 49 fundi og
haft til meðferðar 190 mál alls.
Eftir iðngreinum skiftast mál-
in þannig:
Aktýgja- og söðlasmíði 1,
böykisiðn 1, bifvélavirkjun 5,
blikksmíði 5, bókband 1, brauð-
gerð 1, gullsmíði 5, liárgreiðsla
9, húsasmíði 14, húsgagna-
bólstrun 1, húsgagnasmíði ll,
járniðnaður 14, klæðskurður 8,
kvenliattasaum 18, ljósmyndun
1, pípulagning 7, mótasmíði 2,
málaraiðn 7, múraraiðn 7, neta-
gerð 5, prentmyndagerð 3,
prentun 1, rafvirkjun 9, rakara-
iðn 7, skipasmíði 7, skósmíði 16,
úrsmíði 2, veggfóðrun 2, aðrar
iðnir og önnur mál 22. Samtals
190.
Eftir efni skiftast málin
þannig: Varðandi iðnnám og
iðnpróf 27, prófnefndir 16,
meistararéttindi 36, undanþág-
ur frá iðnskóla 24, vafamál um
iðnrétlindi 40, ýms önnur mál
47. —•. Framkvæmdastjórnin
hefir ritað 187 bréf, þar af til
lögreglustjóra 94, ráðuneytis 25
og ýmsra 68. Aulc þess fjölda
tilkynninga og orðsendinga til
iðnráðsfulltrúa.
Á fundinum fór fram lcosn-
ing framkvæmdastjórnar fyrir
næstu 2 ár. Formaður iðnráðs-
ins var endukpsinn PéluX' G.
Guðmundsson, og með honum
í framkvæmdastjórn þeir: Ein-
ar Gíslason málarameistari,
Guðbrandur Guðjónsson múr-
ari, Guðmundur Eiriksson
liúsasmíðameistari og Guð-
mundur Ilalldórsson prentari,
allir endurkosninr, nema Guð'-
mundur Eiríksson.
Ritari iðnráðsins var kosinn
Júlíus Björnsson rafvirkja-
meistari.
Njósnaraflokknr
skotinn hjá
Petsarao.
Um líkt leyti og Rússar hófu
innrás sína í Finnland komst
upp um víðtæka njósnastarf-
semi í grend við Petsamo. Voru
um 60 manns flæktir í málið.
Þessi starfsemi liafði staðið í
8 ár og foringinn var höfuðs-
maður í finska hernum, Par-
kkina að nafni. Æðsti foringi
höfuðmannsins var bans hægri
bönd í allri þessari starfsemi.
Lappakona ein var notuð sem
sendiboði lil Rússa og fór hún
jafnan til Murmansk með öll
skilaboð frá binum finsku svilc-
urum.
Þegar njósnirnar lcomust upp
voru allir njósnararnir, að höf-
uðsmanninum undanskildum,
skotnir. Ilann fékk leyfi til þess
að fremja sjálfsmorð.
Sókn Rússa gekk svo vel frá
Petsamo vegna þess að njósn-
ararnir voru búnir að láta þá
vita, hvernig öllum vörnum
Finna væri hagað.