Vísir - 03.02.1940, Qupperneq 1
Ritst jóri:
KRISTJÁN GUÐLAUGSSON.
Sími: 4578.
RL itstjórnarskrifstofur:
t’élagsprentsmiðjan (3. hæð).
Afgreiðsla:
HVERFISGÖTU 12.
Sími: 3400.
AUGLÝSINGASTJÓRI:
Sími: 2834.
30. ár. Reykjavík, laugardaginn 3. febrúar 1940. 28. tbl.
Ekkert lát Ú
loftáráisiiiii
11 úmma.
Þiiðja loftárásin á
Rovaniemi í gær.
Bpynvörðu sleðarnip peynast illa.
EINKASKEYTI frá United Press. — Kaupmannahöfn í morgun.
WEBB MILLER, fréttaritari United Press á
vígstöðvunum í Finnlandi, símar í morgun:
Tilraunir Rússa til þess að ryðja sér braut
gegnum Mannerheimvíggirðingarnar hafa enn engan
árangur borið. Þrátt fyrir það halda þeir enn áfram að
gera áhlaup. Jáfnframt er haldið uppi látlausum loft-
árásum á finskar borgir .
Hin nýju hernaðartæki Rússa, brynvörðu sleðarnir
eða „Trj óuhestarnir“ eins og farið er að kalla þá, reyn-
ast ekki vel. Þeim hefir ekki orðið neitt lið íþeimísókn-
inni. Finnar varpa óspkrt á þá handsprengjum og tekst
fljótlega að valda slíkum skemdum á þeim, að þeir
verða ónothæfir.
Loftárásunum er haldið áfram af hinu mesta kappi. Til-
gangurinn virðist, eins og eg hefi oft vikið að í skeytum mínum,
að lama viðnámsþrótt finsku þjóðarinnar, en þess sjást engin
merki, jafnvel ekki í bæjum eins og Ábæ, sem hafa orðið fyrir
loftárásum í tugatali.
Loftárásir hafa nú verið gerðar á Rovaniemi 3 daga í röð.
íbúarnir hafa nú verið fluttir á brott og borgin er víða í rúst-
um og mannlaus að kalla. Fólkið var aðdáanlega rólegt meðan
á brottflutningnum stóð og fór hann skipulega fram.
Agreininguir
á Balkanráð-
stefnunni.
Rúmenaz hóta að
leita samvirmu
við Þjóðverja.
Einkaskeyti frá K.höfn.
K.höfn í morgun.
Ballíanráðstefnan var sett í
gær og er Gafencu, utanrikis-
máláráðherra Rúmeníu, forseti
ráðstefnunnar. Fundir ráðstefn-
unnar fara fram fyrir luktum
dyrum, en að fundinum lokn-
um á sunnudagskveld verða á-
Jyktanir fundarins birtar.
Rúmenar hafa að sögn krafist
þess, að fá tryggingu fyrir því,
að Ungverjar og Bulgarar geri
ekki kröfur til Rúmena um lönd
þau, sem þessar þjóðir urðu að
láta af liendi við Rúmena upp
úr heimsstyx-jöldinni. Hafa
Rúmenar í hótunum, að leita
nánari samvinnu við Þjóðverja,
ef slík trygging fæst ekki. Hafa
menn af þessu áhyggjur mikl-
ar og óttast, að árangur af ráð-
stefnunni vex’ði allur annar en
menn liöfðu gert sér vonir um.
Sumir fréttaritarar eru þó
þeirrar skoðunar, að þetta sé
að eins herbragð af hálfu Rú-
inena, þar sem nokkurn veginn
örugt megi telja, að Iíarl kon-
ungur muni beita áhrifum sín-
um gegn því, að nokkur stefna
verði tekin, er af leiði, að Rú-
menar fjarlægist Breta og
Frakka. Rúmenar munu og ótt-
ast, segja sömu fréttaritarar, að
Þjóðverjar fái sterka áhrifaað-
-slöðu í Rúmeníu.
j Þegar Metaxas, forsætisráð-
herra Grikklands, kom til Bel-
grad, en hann er fulltrúi laíids
síns á ráðstefnunni, sagði hann í
viðtali við blaðamenn, að hann
teldi vel horfa um árangur af
ráðstefnunni. Spáði hann því,
að árangurinn yi’ði sá, að Balk-
anbandalagið efldist að áhrif-
um.
í Istanbul (Tyrklandi) búast
menn ekki við því, ,að árangur
i’áðstefnunnar verði hernaðar-
bandalag eða varnarbandalag,
en fjái’hags- og viðskiftaleg
samvinna verði aukin.
var bjaroaO.
Einkaskeyti frá United Press.
London í morgun.
Eins og frá var sagt i fregn-
um fyi’ir nokkuru fói-ust þrír
breskir kafbátar i Helgolands-
flóa fyrir nokkuru. Var talið, að
meiri liluti áliafnanna hefði far-
ist. Nú er komið í ljós, að á-
höfnum tveggja kafbátanna
„Starfish“ og „Undine“ hefir
verið' hjargað. Byggja menn
þetta á nafnalista, sem lesinn
var upp í þýska útvarpinu, og
bréfspjöldum, sem ættingjar
skipverja á þessum kafbátum
hafa fengið. Er liér um 07
menn að ræða og eru þeir nú
fangar í Þýskalandi.
Helgidagslæknir.
j Kristján Grímsson, Hverfisgötu
I 39, s'mi 2845.
Komið tímazilega.
Kl. 10 voru allir miðar
uppseldir að kveldvöku
Blaðamannafélags íslands og
fengu miklu færri miða en
vildu. Miðar verða alls ekki
seldir við innganginn.
Þá skal fólki og bent á það,
að þeir sem koma fyrstir á
Kveldvökuna í kveld munu
fá bestu borðin, því að Blaða-
mannafélagið hefir gert þann
samning við hótelið, að eng-
in borð verði tekin frá.
Kveldvakan hefst kl. 9
stundvíslega og er þess vænst,
að þá verði allir komnir í
sæti sín.
Skemtiatriðin munu fara
fram á palli, sem komið er
fyrir milli gylta salsins og
„restaurationarinnar“.
VERKAMANNAHVERFI BRENNUR. — Rússar virðast vera sérstaklega lagnir við að hæfa
verkamannabústaði og sjúkraliús í Finnlandi og helst i óvíggirtum borgum. Erlend blöð segja
frá því, að rússnesku flugmennirnir sé oft svo ragir og blauðir, að þegar þeir komi auga á finskar
eltingaflugvélar, þá snúi þeir oft við og varpi sprengjum sínum niður á víðavang, til þess að auð-
velda flóttann. — Á myndinni hér að ofan eru hermenn og óbreyttir borgarar að reyna að hefta
útbreiðslu elds í verkamannahverfi finskrar borgar. —-
Fyrirlestur um frum-
kristindóminn.
Dr. theol. sira Eiríkur AI-
bertsson að Hesti er nýlega
kominn hingað til bæjarins og
mun dvelja hér um tíma og
flytja alhnarga fyrirlestra við
guðfræðideild háskólans.
Munu fyrirlestrarnir fjalla \
um frumkristnina. Þarf ekki
að efa að háskólanum er mikill
fengur að fyrirlestrum þessum,
með því að fyrirlesarinn hefir
þegar sýnt það og sannað hvers
liann er megnugur, er Iiann rei t
doktorsritgerð sína, þrátt fyrir
erfiða aðstöðu á ýmsan hátt, en
lilaut maklegt lof fyrir, enda
var hún fyrsta ritgerðin, sem
tekin hefir verið gild til varnar
doktorsnafnhótar af guðfræði-
deildinni.
Japanir herda
sóknina í Kína
Einkaskeyti frá United Press.
London í morgun.
I opinberri tilkynningu, sem
gefin var út í Tokio í morgun,
segir að japanski herinn í Kína
hafi tekið Nuyan, sem er 130
kílómetra frá Paotow, einnig
Pingyang, sem er ramlega víg-
girt hernaðarleg bækistöð í
Kwangsi. Japanir herða nú
mjög sóknina á hendur Kín-
verj um.
Starlsemi sjalfstæðis-
félaganaa á^Akareyri.
Viötal viö Jóhann Hafstein jcand. jur.
Jóhann Hafstein, erindreki Sjálfstæðisflokksins, kom með
Esju hingað til bæjarins úr ferð sinni til Akureyrar. Hefir hann
dvalið þar liðlega hálfan mánuð og haldið uppi mælskunám-
skeiði á vegum Harðar, félags ungra Sjálfstæðismanna á Ak-
ureyri. — Yísir hitti Jóhann að máli og inti hann eftir störf-
um hans.
„Námskeiðið liófst á Akur-
eyri liinn 17. jan. s.l. og sóttu
það 20 manns frá Akureyri og
grend. Þessir menn allir. eru
nijög áhugasamir um flokks-
málin, og þótt þeir velflestir
ynni að föstum störfum á dag-
inn, sóttu þeir námskeiðið á
liverju kvöldi og stundum
nokkuð fram á nótt, eftir því
sem umræður teygðust.
Hvernig gengur starfsemi
ungra sjálfstæðismanna á Ak-
ureyri ?
Félagið Hörður er ellefu ára
og starfar nú af miklu kappi.
Hefir félögum fjölgað allveru-
lega upp á síðkastið, einkum
meðan iiins ölula formanns fé-
lagsins, Jónasar Jenssonar,
naut við, og einnig síðar undir
stjórn núverandi formanns
þe'ss, Jóns Sólness.
Meðan eg dvaldi á Akureyri
voru margir fundir haldnir í
sjálfstæðisfélögunum á Akur-
evri, bæði félagsfundir, skemti-
fundur
í Hafnarfírði
samþykti áskonm til meirihlnta bæjarstjórn-
asr um hygging öldubrjóts og hafnargerðar.
fundur og útbreiðslufundur.
Voru þeir allir vel sóttir og um-
ræður fjörugar.
Hvað um atvinnulífið á Ak-
ureyri?
í atvinnulífi bæjariris fanst
mér aðallega bera á tveipiu,
sem er livort í sínu lagi af hin-
um ólíkasta toga spunnið. —
Annarsvegar er áberandi drungi
og dapurð einstaklinganna, sem
á rætur að relcja til hins póli-
tíska harðræðis stærsta at-
vinnurekanda bæjarins, Kaup-
félags Eyfirðinga, við alla
vinnuúthlutun. — Hinsvegar
komst maður ekki hjá að taka
eftir hinni þróttmiklu von og
áræði útgerðarmanna og sjó-
manna, sem í óða önn voru að
húa livert það far, sem nokkur
tök voru á, til siglinga og
fiskiflutninga út yfir höfin -—
og freista með því að draga |
fcng i bú einstaklinga og þjóð-«j
ar —- þrátt fýrir allar hættur j
styrjaldai’, hrima og boða.
Sjálfstæðismannafél. Fram í
Hafnarfirði hélt fjölsóttan fund
í gærkveldi í Goodtemplarahús-
inu þar á staðnum.
Bjarni Snæbjörnsson alþm.
hóf umræður og rakti gang
ýmsra þingmála, og þó aðallega
þeirra, sem snertu afkomu og
rekstur Hafnarfjarðarbæjar. —
Ennfremur talaði Gunnar Thor-
oddsen um starf og skipulag
Sjálfstæðisflokksins og Ivrist-
ján Guðlaugsson um ástand og
horfur í þjóðmálunum.
Hófust því næst hinar fjörug-
ustu umræður og tóku m. a. til
máls Sigurgeir Gíslason verk-
stjóri, Jón Mathiesen formaður
félagsins, Stefán Jónsson, Her-
mann Guðmundsson, Þorleifur
Jónsson, Pálína Jónsdóttir
og Rristinn Helgason, er
har fram tillögu þess efnis, að
fundurinn skoraði á hæjar-
stjórn að leggja fram fé til
liafnargerðar og ölduhrjóts
móti framlagi ríkisins, sem á-
kveðið er í fjárlögum og liafist
skyldi handa um verkið hið
allra hráðasta. Var tillaga þessi
samþykt einróma með öllum at-
kvæðum fundarmanna.
Þá ræddi Julius Nyborg um
starfsemi Sjálfstæðisflokksins í
Hafnarfirði og hvatti menn til
þess að gerast félagar í Fram
og styrkja þannig starfsemina.
Innrituðust allmargir i félagið
þegar að fundi loknum.
Það upplýstist m. a. á fund-
inum, að þrátt fyrir ítrekaðar
áslcoranir frá verkalýðsfélögun-
um i Hafnarfirði, liefir meiri-
hluti bæjarstjórnar engan liug
á þvi að koma þar upp þeim
hafnarmannvirkjum, sem þar
eru fyrirliuguð, og á það mál
þó ósldftan • hug karla og
kvenna þar í bænum. Atvinnu-
leysi er nú svo mikið í Hafnar-
firði, að heita má að atvinnu-
hótavinnpna eina sé þar um að
ræða, en þar hafa 30 manns at-
vinnu. Fátækraframfærið hvíl-
ir með miklum þunga á bæjar-
búum, og telja greinargóðir
menn, að þriðji hver maður
þiggi þar framfærslustyrk og
lifi á honum að einhverju eða
öllu leyti. Varið er úr bæjar-
sjóði um 300 þús. kr. á ári
hverju vegna fátækramálanna
og stöðugt seilst dýpra og
dýpra niður í vasa manna, til
þess að unt sé að halda við
rekstri bæjarfélagsins. Þykir
mönnum að vonum, að allmik-
illar kyrrstöðu gæti hjá bæjar-
stjórnarmeirihlutanum, sem
virðist leggja á það meginá-
herslu, að innheimta bæjar-
gjöldin, en hefir engan skilning
á nauðsyn atvinnuaukningar í
bænum.
Aukin atvinna verður það,
sem verkamannafélagið Hlíf og
hinn nýkjörni formaður þess,
Hermann Guðmundsson, mun
berjast fyrir, og munu allir
sjálfstæðismenn veita félaginu
brautargengi eftir föngum.
Gera margir sér vonir um
hatnandi tíma í Hafnarfirði á
næstu árum, enda er löngu
kominn tími til að svo megi
verða.
f Sunnudagsblaði Vísis
í dag birtist m. a. grein urn Jó-
hann Sigurjónsson skáld, eftir próf.
Árna Pálsson. Sneri blaðið sér til
Árna og bað hann áð rita grein um
Jóhann, í tilefni af sýningu Leik-
félagsins á Fjalla-Eyvindi og 60
ára afmæli skáldsins. En Árni
Pálsson prófessor hafði skrifað
grein um Jóhann árið 1919, er birt-
ist árið eftir í „Eimreiðinni", og
kvaðst hann engu hafa þar við að
bæta, þar sem nú er löngu liðið
frá því, er grein þessi birtist, hef-
ir blaðið snúið sér til ritstjóra Eim-
reiðarinnar, hr. Sveins Sigurðsson-
ar og hefir hann góðfúslega leyft
birtingu hennar.
fþróttafélag Hósliólans
heldur dansleik að Garði í kvöld
og hefst hann kl. 10. Að gefnu til-
efni skal það tekið fram, að rnenn
eru beðnir að mæta í dökkum föt-
um.