Vísir - 23.03.1940, Síða 1
Ritst jóri:
KRISTJÁN GUÐLAUGSSON.
RLitstjórnarskrifstofur:
í’élagsprentsmiðjan (3. hæð).
30. ár.
Reykjavík, Iaugardaginn 23. mars 1940.
Ritstjóri
Blaðamenn Sími:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 línur
Afgreiðsla
68. tbl.
Poul Reynaud hefir
myndað stjórn í
Frakklandi.
Níiwi'iiiiini vel tekið
í Frakklandi, Bret-
landi og 1. N. A.
EINKASKEYTI frá United Press. — Khöfn í morgun.
Þegar Daladier, fyrrverandi forsætis- og hermála-
ráðherra Frakklands hafði færst undan beiðni
Lebruns ríkisforseta að mynda nýja stjórn,
sneri Lebrun sér til Poul Reynaud, fjármálaráðherra
Daladierstjórnarinnar, og bað hann að taka að sér
stjórnarmyndun. Félst Reynaud á, að taka hlutverkið
að sér. Þótti hann manna líklegastur til þess að mynda
nýja, sterka stjórn skjótlega, enda leið ekki á löngu, uns
hann gat tilkynt Lebrun, að hann hef ði ráðherralistann
tilbúinn. Reynaud er kunnastur fyrir hina aðdá-
unarverðu fjármálastjórn sína, en honum er manna
mest að þakka hin f járhagslega viðreisn í Frakklandi.
Stjórnin er mynduð með þátttöku flestra stjórnmála-
flokka landsins og m. a. eiga jafnaðarmenn 3 aðalráð-
herra í stjórninni og 3 aðstoðarráðherra. Leon Blum,
leiðtogi socialista, hafnaði þátttöku í stjórninni. Rey-
naud er forsætis- og utanríkismálaráðherra og Daladier
þjóðvarnarmála og hermálaráðherra. Alls eiga 22 ráð-
herrar sæti í stjórninni, þar af 12 sem voru í Daladier-
stjórninni og gegna 10 þeirra sömu embættum og áður.
Innan stjórnarinnar verður starf andi sérstök styrjaldar-
nefnd eða stríðsstjórn, sem 8 menn eiga sæti í, og kem-
ur nefndin saman þrisvar í viku og oftar, ef þörf krefur.
Einnig sérstök nefnd, sem hefir fjárhags og viðskifta-
málin til meðferðar. Þykja allar þær ráðstafanir, sem
gerðar hafa verið benda til þess, að Frakkar séu stað-
ráðnir í, að herða á öllum framkvæmdum, til þess að
vinna sem skjótastan sigur í styrjöldinni. Hefir og gagn-
rýni sú, sem fram hefir komið í Frakklandi að undan-
förnu átt sinn þátt í að stjómarskiftin urðu. Hinni nýju
stjórn er ágætlega tekið í Frakklandi, Bretlandi og
Bandaríkjunum.
Fréttar*tari Un ted
Press heimsækir
SylÞeyju.
Tjúnið af loftárásfnnl
lítií.
Einkaskeyti frá United Press.
K.höfn í morgun.
1 loftárás Breta á eyjuna Sylt
á þriðjudagskvöld varð lítið
tjón. Sprengikúlur komu ekki
niður á önnur hús en sjúkrahús-
ið, og nokkurt tjón varð á öðrum
stöðum. Hindenburggarðurinn
er óskemdur, loftskeytatumar,
og „hegrar“, sem notaðir eru til
þess að lyfta flugbátum og færa
þá til, eru óskemdir. Þetta hefir
fréttaritari United Press sann-
fært sig um í eigin heimsókn til
eyjarinnar.
Þýsk blöð neita ákaft fregn-
um þeim, sem breska útvarpið
og blöðin flytja um tjón af völd-
um loftárásarinnar á Sylt-eyju.
Vísa þau til fregna hlutlausra
fréttaritara í Þýskalandi, sem
þau telja réttar í öllu.
TILKYNNING ÞJÓÐVERJA
UM LOFTÁRÁSINA Á SYLT.
S.l. þriðjudagskvöld kl. 19,57,
20,58 og 21,16 reyndu breskar
flugvélar að gera loftárás á eyj-
una Sylt Vegna skothríðar
Þjóðverja á flugvélarnar tókst
Englendingum eklci að valda
neinum skemdum, nema á einu
húsi, sem kviknaði í.
Er auðsjáanlegt, að þessi ferð
hefir aðeins verið farin með á-
róðursstarfsemi fyrir augum, til
þess að láta mönnum úr minni
líða hina eyðileggjandi loftárás
Þjóðverja á Scapa Flow þ. 16.
ÍTALSKT SKIP í NAUÐUM
STATT NÁLÆGT FÆR-
EYJUM.
Á skírdag barst Guðnt.
Vilhjálmssyni, framkv.stjóra
Eimskipafél. íslands, skeyti
crá útgerðarfélagi í Neapel,
wohljóðandi:
Eimskip vort Verbani er
í nauðum statt n.br. 61.35
v.l. 3.50, ef getið sent að-
stoð sendið skipstjóranum
loftskeyti.
Engin af skipum Eim-
skipafélagsins eru á þessum
slóðum, en fregn um þetta
var lesin upp í útvarpinu, og
hafi íslenskir togarar verið á
þessum slóðum, má gera ráð
fyrir, að þeir hafi fengið
fregnina.
Sennilegt er, að skipið hafi
náð sambandi við önnur skip,
því að bresk herskip eru tíð-
um á sveimi í nánd við Fær-
eyjar. —
þ. m. Þetta álit styrkist mjög
af því, að enska útvarpið og
Reuter fóru strax að tala um
liinn mikla árangur árásarinn-
ar, meðan hún stóð ennþá yfir,
þótt sannleikurinn væri sá, að
loftvamir Þjóðverja vísuðu
lienni alveg á hug.
Það er nú orðið fullsannað,
að þrjár breskar flugvélar voru
eyðilagðar. Ein sprengjan eyði-
lagði sjúkrastól á liermanna-
sjúkrahúsi, en gerði ekkert
frekara tjón. Nokkrar sprengj-
ur féllu á engi.
Fréttaritarar blaða hlutlausra
þjóða fengu á fimtudag tæki-
færi til þess að skoða Sylt-eyj-
una og gátu þeir þá komist að
raun urn sannleiksgikli ensku
fréttanna. Sérstaklega rann-
sökuðu hlaðamennirnir Hinden-
burggarðinn, sem Bretar kváð-
ust hafa skemt.
ítalskt hlað skrifar háðslega
í þvi tilefni, að annaðhvort hafi
Þjóðverjar endurhygt á 36 klst.
þenna garð, sem tók ár að
byggja, eða fullyrðingar Breta
um eyðileggingu hans sé úr
lausu lofti gripnar.
Fréttatilkynning frá Póststofunni.
Uaflirbúnmgur flagsam-
bands milli Amerikn og
Norðarlanda.
Það er talið, að Reynaud liafi
unnið mikinn stjórnmálalegan
sigur með myndun stjómar
sinnar, einkanlega með því að
sannfæra 10 ráðlierra og tvo
undirráðherra, sem tilheyra
róttæka flokknum (radical-so-
cialista flokknum), að það
væri skylda þeima að lialda
kyrru fyrir í stjórnínni.
Samkvæmt Parísarfregnum
er Paul Reynaud forsætis- og
utanríkismálaráðherra, Camille
Chautemps varaforsætísráð-
herra, Eduoard Daladier þjóð-
varna- og liermálaráðherra,
Henri Roy innanríkísráðherra,
Lamoureux fjármálaráðherra,
Georges Monnet hafnbanns-
málaráðherra, Georges Mandell
nýlendumálaráðherra, Campin-
chi flotamálaráðherra, Rio sigl-
ingamálaráðherra, Laurent Ey-
nac flugmálaráðherra, Frossart
upplýsingamálaráðherra (nýtt
embætti). — Meðal undirráð-
herranna er Campetier de Rib-
es.—
Allir flokkar taka þátt í
stjórninni, nema hægri flokk-
urinn.
Leon Blum hafnaði boði um
sæti i stjóminni á þeim grund-
velli, að hann vildi halda áfram
að veita flokki sínum (jafnað-
arm.) forstöðu og stjórna blaði
sínu (Populaire). — Stjórnar-
skif.ti eru framhald á þeirri
stefnu, sem tekin var með að
heita Finnlandi fullum sluðn-
ingi, þ. e. að gera alt, sem unt
er, til þess að leiða styrjöldina
til skjótra lykta með sigri
Bandamanna.
Stjórninni hefir hvarvetna
verið vel teldð nema i Þýska-
landi. Kemur sú skoðun víða
fram, að stjórnarskiftin sýni
stjórnmálalega einingu og
festu. Blöðin kalla Reynaud
hinn gáfaða, úrræðagóða og
djarfa stjórnmálamann, sem
hafi þegar sýnt alla þessa kosti
og ss honum manna best trú-
andi til þess að fara með stjórn
landsins á yfirstandandi timum.
Að undanfömu hafa öðru
hvoru birtst fréttir í blöðunum
um væntanlegt póstflug milli
Ameríku og Norðurlanda um
ísland.
Fréttir þessar hafa verið
gripnar mjög úr lausu lofti, að
minsta kosti að því er viðkomu
á íslandi snertir.
Hið raunverulega í þessu
máli er það, að póststjómir
Norðurlanda og flugfélögin í
þessum löndum sendu fyrir
nokkru nefnd manna vestur um
haf, til þess að rannsaka mögu-
leika fyrir því, að koma á beinu
flugsambandi um Norður-At-
lantshaf milli Ameríku og
Norðurlanda. ísland fékk á síð-
ustu stundu einn fulltrúa í
nefndina, sem var Vilhjálmur
Þór. Nefndarmennirnir eru nú
sumir komnir heim aftur til
Norðurlanda, en aðrir munu
vera á leiðinni. Eftir heimkomu
þeirra verður svo mál þetta tek-
ið til meðferðar á póststjórnar-
fundi Norðurlanda, sem haldinn
verður í Oslo í næsta mánuði,
og mun póst- og símamálastjóri
íslands mæta þar fyrir íslands
hönd.
Af störfum fulltrúanefndar-
innar, sem var send til Ameríku
til að leita hófanna þar, hefir
vitanlega ekkert verið birt, enda
ekki viðeigandi, þar sem málið
er ekki enn þá komið á þann
rekspöl, að um nokkrar niður-
stöður geti verið að ræða og
hvorki póststjómirnar né flug-
félaga-stjórnimar hafa ennþá,
sem skiljanlegt er, fengið
skýrslu frá sendinefndinni.
Stj ópnapmyndun í Fpakk-
landi mnn fiýta fyrir bpeyt-
ingum á bresku stjórninni.
EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS. — London, í morgun.
1 London er talið, að stjómarskiftin í Frakklandi muni flýta
fyrir því, að breytingar verði gerðar á skipan bresku stjómar-
innar, en orðrómur hefir gengið um það, að upp úr páskum megi
vænta tíðinda um þetta, en þó ef til vill ekki fyrr en þingið kem-
ur saman eftir páskafríið 2. apríl. Víst er, að þeir, sem vilja knýja
fram breytingarnar vinna að því af meira kappi en áður. Vilja
þeir að mynduð verði sterk, skjótráð stríðsstjóm, og farið að
dæmi Frakka, að miða alt við, að fullnaðarsigur vinnist sem
skjótast í styrjöldinni, en hverfa frá þeirri stefnu að fara sér
hægt og „bíða og sjá hvað setur“.
Það er talið líklegt, að reynt verði að fá alla helstu flokka til
þáttöku í stjóm landisns, eins og í Frakklandi. Víst er, að Attlee,
leiðtogi jafnaðarmanna, og Sir Archibald Sinclair, leiðtogi frjáls-
lyndra manna í stjómarandstöðu, hafa lofað að koma með litl-
um fyrirvara í nr. 10 Downing Street yfir páskana, ef kallað verð-
ur á þá. Ætla menn, að þeim verði boðin sæti í stjóminni.
Bretar óttast tiða loft-
bardaga það sem eftir
er styrjaldarinnar-
Óvanalega mikið brottstreymi frá London
og öðrum bæjum um páskana.
EINKASKEYTI frá United Press. — London í morgun.
í Bretlandi búast menn alment við því, að loftbardagar færist
nú mjög í aukana, og að það sem eftir er styrjaldarinnar megi
búast við því, að loftorustur verði að, kalla daglegir viðburðir.
Mun hér vafalaust valda nokkum um, að menn búast við að
Þjóðverjar reyni að hefna hinnar miklu loftárásar á Sylt-eyju,
enda hefir verið óvanalega mikill straumur fólks frá London
og öðrum borgum Bretlands um páskana.
Það er nú kunnugt orðið, að 49 breskar flugvélar tóku þátt í
loftárásinni á Sylt-eyju, og ljósmyndir, sem teknar hafa verið í
könnunarflugferðum, eftir að loftárásin var gerð, sýna, að mikl-
ar skemdir hafa orðið, olíugeymar, hermannaskálar, birgða-
skemmur og fleira hefir eyðilagst og brunnið, og skemdir hafa
orðið á flugbáta-dráttarbrautum og járnbrautum.
5000 smðlesía sl
skotil l kaf við
streadar Oanerkir
London í morgun.
Einkaskeyti frá United Press.
Samkv. tilkynningu breska
flotamálaráðuneytisins hefir
breskur kafbátur sökt 5000
smálesta þýsku flutningaskipi,
Hedenheim. Var það á leið frá
Narvik í Noregi til Þýskalands
með málmgrjót. Skipinu var
sökt við strendur Danmerkur.
Skipshöfnin fékk frest til þess
að fara í bátana og komst hún
heilu og liöldnu til lands í Dan-
mörku og var á heimleið til
Þýskalands, er síðast fréttist.
í Bretlandi er lögð áhersla á,
að kafbátsskipsliöfnin hafi
slranglega fylgt ákvæðum al-
þjóðalaga og samþykta um sjó-
hernað og gefið skipshöfninni
nægilegan frest til þess að yfir-
gefa skipið.
Allar fréttabirtingar um á-
kvarðanir eða niðurstöður í
þessu mikilsverða máli, eru því
ennþá lítið annað en ágiskanir
eða spádómar um það, sem
menn vilja að verði. Og enda
þótt eitthvað kunni að verða úr
flugsambandinu, þá er samt því
miður mjög óvíst að viðkoma
fáist á IslandL
3 innbrot
í nöflfl.
Þrjú innbrot hafa verið fram-
in nú um bænadagana.
Innbrotin voru framin á þess-
um stöðum: í kaffihúsið Paris,
Skólavörðustíg 3, og var þar
stolið um 25 krónum og ein-
hverju af sælgæti, í verslun á
Reykjavikurvegi 5, Skerjafirði,
þar sem stolið var sælgæti og í
skósmiðavinnustofu á Vitastíg,
þar sem stolið var um 70 pör-
um af skóreimum og einhverju
af skiftimynt.
Rannsóknarlögreglan liefir
þessi mál til meðferðar.
Húsniæðrafélag Reykjavíkur
hefir í hyggju að halda basar í
byrjun apríl til ágóða fyrir efnalitl-
ar konur og börn. Væntir stjórn fé-
lagsins, að félagskonur og aðrir vél-
unnarar félagsins styrki basarinn
með gjöfum. Þeir, sem eitthvað
vildu láta af hendi rakna, eru vin-
samlega beðnir að snúa sér til ein-
hverrar undirritaðra: Formanns
basarnefndarinnar frú Jónínu Guð-
mundsdóttur, Barónsstíg 8o, simi
4740, frk. Maríu Maack, Þingholts-
stræti 25, sími 415, frú Kristínar
Sigurðardóttur, Bjarkargötu 14,
sími 3607, frú Maríu Thoroddsen,
Frikirkjuveg 3, sími 3227, Soffíu
Ólafsdóttur, Skólavörðustíg 19.
Aðalfundur
sjálfstæðiskvennafélagsins Hvöt,
verður haldinn í Oddfellowhúsinu
á miðvikudaginn kemur, og hefst
ki. sy2.