Vísir - 11.04.1940, Page 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Féfagsprentsmiðjan (3. hæð).
Ritstjóri
Blaðamenn Sími:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri S linur
Afgreiðsla
30. ár.
Reykjavík, fimtudaginn 11. apríl 1940.
83. tbl.
SJÓORUSTAN 1
Orustunni
er síðast
var ekki lokið,
íréttisl.
Talið,
liafi i
að. ÞJáðverjar
list mörg: lier-
EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS. -
London í morgun.
Igær hófst mikil sjóorusta í Skagerrak og Katte-
gat milli breskra og þýskra herskipa, og er
það mesta viðureign á sjó, sem sögur fara af
síðan í Heimsstyrjöldinni. Sjóorustan stóð yfir mestan
hluta dags, og var ekki lokið er síðast fréttist. Það er tal-
ið, að það hafi komið Þjóðverjum mjög á óvænt, að
bresk herskip ruddu sér braut inn í Skagerrak og
Kattegat, þvi að Þjóðverjar töldn sig hafa lokað þessari
leið með tundurduflum. Líkur benda til, að þegar breski
flotinn var kominn inn í Skagerrak hafi hann skift sér,
og fóru nokkur herskipanna inn í Oslofjörð, en hin
voru á sveimi á siglingaleiðum til Oslo, utan landhelgi
Svíþjóðar. Til átaka kom víða á stóru svæði. Þannig var
sökt skipum fyrir Þjóðverjum undan Arendal í Noregi
og Marstrand í Svíþjóð, en þar í milli eru 80 mílur.
Undan Gautaborg mun hafa verið barist skamt utan
landhelgi og voru þar norsk og sænsk fiskiskip í ná-
lægð, og er talið að fiskimenn hafi gengið djarflega
fram í að bjarga mönnum af skipum þeim, sem sökt
var. Flutningaskipin voru að flytja herlið til Noregs.
Samkvæmt áreiSanlegustu fregnum, sem borist hafa til Lon-
don, hefir að minsta kosti 6 þýskum herskipum verið sökt í
gær og 7 flutningaskipum, ef til vill fleiri. Fregnir frá Bodö, en
þaðan er norska stjórnin nú; farin að útvarpa, segja, að ura 30
skipum hafi verið. sökt fyrir Þjóðverjum, á einum sólarhring,
hafa ekki verið staðfestar. En þess er að geta, að opinberar til-
kynningar um alt það, sem gerðist í gær, eru enn ekki fyrir hendi.
Winston Churchill mun að líkindum skýra frá sjóorustunum á
þingfundi í dag. Líkur eru taldar tiL, að 9 þýskum herskipum
hafi verið sökt. Bretar og Norðmenn hafa þégar hafið sjóhern-
aðarlega samvinnu og vekja afrek norska herskipsins Olav
Tiygvason alheimsathygli.
SÖKTI OLAY TRYGVASON EMDEN EÐA
VASAORUSTUSKIPI?
Það er kunnugt, að Olav Trygvason sökti einu herskipi Þjóð-
verja í gær. 1 sumum fregnum var herskipið kallað tundurspillir
(destroyer), í öðrum að herskipið hefði sökt einu af hinum þýsku
vasaorustuskipum Þjóðverja, en af þeim áttu þeir fjögur í
stríðsbyrjun, og hafa þegar mist eitt (Graf von Spee). Enn aðrar
fregnir herma, að það hafi verið beitiskipið Emden, sem Olav
Trygvason sökti, en það er 6000 smálesta herskip. Fregn hefir
borist um, að skipherrann á Olav Trygvason hafi beðið bana í
orustunni, sem var háð undan Horten.
SÆNSKA HERSTJÖRNIN
STAÐFESTIR, AÐ BRETAR
HAFI TEKIÐ BERGEN OG
ÞRÁNDHEIM.
'Fréttaritari United Press í
Stokkhólmi segir, að sænska
herforingjaráðið hafi fengið
staðfestingu á.því frá norská
herforingjaráðinu, að Bretar
hafi náð Bergen og Þránd-
heimi úr höndum Þjóðverja.
NB. Sbr. skeyti á öðrum
stað í blaðinu, þar sem breska
flotamálaráðuneytið ber til
baka sænskar fregnir urii
>ama efni. Kemur vafalaust
brátt í ljós, hvað sannara
reynist.
Hákon konunpr hafn-
aði kröfum Þjóðverja--
Yfirlýsing írá norsku stjórninni.
Loridon i morgun.
Einkaskeyti frá United Press.
Norska stjórnin hefir birt yf-
irlýsingu þess efnis, að Hákon
konungur VII. hafi hafnað
kröfum Þjóðverja um að Nor-
egur viðurkendi stjóm Quislings
og sætti sig við, að Þýskaland
tæki að sér hernaðarlega vernd
Noregs
í yfirlýsingunni segir, að Nor-
egur muni verjast áfram gegn
Þýskalandi og eru allir Norð-
menn hvattir til þess að Verja
land sitt og frelsi.
Þá er það tekið fram í yfir-
lýsingunni, að rikisstjórain (þ.
e. stjórn Nygaardsvolds) sé hin
eina löglega stjórn landsins og
hún hafi yfirgefið höfuðborg-
ina með þeim ásetningi, að
berjast áfram, þrátt fyrir hina
hrottalegu innrás Þjóðverja,
sem allur heimurinn fordæmi.
Sjóorustan
gerrak
aftur
í Ska-
í morgun.
Hákon VH. Noregskonungur.
Einkaskeyti frá United Press. London i morgun.
Sjóorustan í Skagerrak byrjaði aftur í morgun. Áköf fall-
byssuskothríð heyrðist á strönd Svíþjóðar. Nánari upplýsingar
um viðureignina í gær eru væntanlegar síðdegis í dag, er Wins-
ton Churchill flytur ræðu í neðri málstofunni.
Herskipið Emden, sem fregnir hafa borist um,
Olav Trygvason hafi sökt.
að
FRÁ ORUSTUNNI UNDAN GAUTABORG.
FJÓRUM BEITISKIPUM ÞJÓÐVERJA OG FIMM HERFLUTN-
INGASKIPUM ÞEIRRA SÖKT, AÐ ÞVÍ ER GAUTABORGAR-
FREGNIR HERMA.
í skeyti frá United Press í London kl. 8.23 segir svo:
Gautaborgarfregnir herma, að fjórum þýskum beitiskipum
hafi verið sökt og fimm herflutningaskipum. Sjóorustan var háð
í Skagerrak, nokkurar mílur norðvestur af eyjunni Hippeln.
Orustan hófst kl. 3 e. h. og var viðureignin hörðust um kl. 5.
KI. 8 var lokið fyrsta þætti sjóorustunnar en kl. 10 í gærkveldi
var aftur barist af kappi og heyrðist skothríð fram yfir mið-
nætti við og við.
1 flutningaskipaflota Þjóðverja voru 11 herflutningaskip og
voru tólf vopnaðir togarar í fylgd með þeim, auk stærri herskipa.
íbúar á Ekersö segja, að þeir hafi séð tvö herskip sökkva og
eitt þýskt beitiskip sáu þeir í björtu báli. Þá sáu þeir, er tvö her-
skip, sennilega herflutningaskip, voru sprengd í loft upp. Fiski-
menn segja, að hermenn og sjóliðar í hundraðatali hafi svaml-
að í sjónum, á orustusvæðinu, og muni f jölda margir hafa
drukknað, en mörgum tókst fiskimönnum að bjarga, þótt þeir
yrði að bíða nokkura stund til þess að byrja björgunarstarfsemi
sína, vegna þess hyersu skothríðin var áköf. Á eyjunni lék alt á
reiðiskjálfi í skothríðinni og rúður brotnuðu í- flestum húsum.
Sjúkrahús í Gautaborg hafa verið tekin í riotkun vegna særðra
og þjakaðra sjóliða og heririanna, sem bjargað hefir verið.
1 Oslofirði stendur ennfremur yfir orusta og er nokkur hluti
breska flotans, sem komst ini í Skagerrak þangað kominn.
Bæði breskar og þýskar flugvélar taka þátt í sjóorustunum.
Norski
hefir liertekið
Hamar aftur.
Earðnandi vörn Norðmanna
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Sænsku blöðin birta fregnir um það frá Oslo, að norski herinn
hafi náð Hamri aftur úr höndum Þjóðverja. Norska stjórnin
hafði tekið sér aðsetur á Hamri sem kunnugt er, en Þjóðverjar
sendu herlið þangað í flutningabifreiðum og náðu borginni, en
áður hafði stjórnin flutt sig norðar. Konungur var einnig farinn
þaðan. Martha krónprinsessa er farin til Svíþjóðar.
Öllum fregnum ber saman um, að viðnám norska hersins sé
mjög að aukast. Hervæðingunni er ekki lokið, en varaliðsmenn-
irnir streyma í herinn og sjálfboðaliðar koma í flokkum frá
Svíþjóð.
Orustan stendur yfir fyrir norðan Oslo, við Elverum og
Kongsvinger, og við Narvik hafa norskar hersveitir búist til
varnar í f jallaskörðunum.
Samkvæm t Svíþ j óðarfregn-
um hefir 4 þýskum beitiskipum
verið sökt i Skagerak, og af 11
herflutningaskipum var a.m.k.
5 sökt. Lík er víða farið að reka
á ströndum Svíþjóðar. Eitt af
Irinum flutningaskipunum sást i
ljósum loga, annað lagði á flótta
nörður á hóginn og er ekki
kunnugt um afdrif þess, tveim
fylgdu sænsk lierskip til hafn-
ar. Þeir, sem af komust af
einu flutningaskipinu, sem sökt
var, eru komnir á land í Sví-
þjóð. Var það 2600 smálesta
skip.
Horten í höndum Þjóðverja.
Olav Trygvason sökti Emd-
en, að því er talið er undan
Horten, en það halda Norð-
menn ennþá strandvirkjunum,
þótt borgin sé í liöndum Þjóð-
verja. Strandvirki annarsstaðar
við Oslofjörð eru í höndum
Þjóðverja.
Bardagarnir um Hamar.
Norska stjórnin.
Hákon konungur.
Þjóðverjar hertóku Hamar í
gærkveldi, en Norðmenn tóku
borgina aftur i morgun. Mann-
fall var mikið i liði Þjóðverja.
Norska stjórnin flutti til Elve-
rum ,en þar geisar nú orusta,
og er norska stjómin komin til
smábæjar skamt frá landamær-
um Sviþjóðar. Hákon lconungur
er enn í Elverum. Þýsku lier-
sveitirnar þar eru sagðar í liættu
staddar. Er þetta liaft eftir
Hamhro stórþingsforseta, sem
sagði við komuna til Stokk-
hólms, að þegar Hákon konung-
ur kom til Lilleström, hafi verið
gerð loftárás þar skamt frá og
hafi konungur og fylgdarlið
hans orðið að leita skjóls.
Gullforða Noregs hefir verið
komið fyrir á öruggum stað. —
Hersveitir Norðmanna við Nar-
vik hafa komið í veg fyrir til-
raunir Þjóðverja til þess að
sækja fram þaðan meðfram
járnbrautinni til Sviþjóðar, en
eftir lienni er málmgrjótið flutt
frá Sviþjóð.
Uppnám í Oslo.
Þegar fregnin komst á kreik
um það í Oslo, að bresk herskip
ætluðu að skjóta á borgina,
varð uppnám sumstaðar i borg-
inni, og fólk reyndi að þyrpast
á brott, en Þjóðverjar gerðu alt
sem þeir gátu til að koma í veg
fyrir sþað með útvarpstilkynn-
ingum og á annan þátt. — Til
London hafa borist fregnir um,
að mikill: fögnuður sé..rikjandi
í Qslo í, dag, vegna . þess, að
menn vita nú, að hjálp er nærri.
í Berlín.
í Berlín eru miklir fundir
lialdnir og koma sjórnmála- og
hernaðarleiðtogar stöðugt á
fund Hitlers, Göring var á fundi
hans, er síðast fréttist.
Breska flotamálaráðuneyt-
ið ber til baka fregnirnar
um að Bretar hafi tekið
Bergen og Trondheim.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Flotamálaráðuneytið breska hefir birt yfirlýsingu
þess efnis, að fyrstu fregnir um að Bretar hefði náð
Bergen og Trondheim úr höndum Þjóðverja, hefði ekki
reynst réttar. Komu fregnir frá Svíþjóð þessa efnis í
gærkveldi, og Hambro, forseti norska Stórþingsins, en
hann kom til Stokkhólms í nótt, staðfesti skömmu eftir
komuna, að Bergen væri í höndum Breta.
Þá hefir því verið neitað í London, að f oringi breskra
herskipa í Oslofirði hafi sett Osloborg og Þjóðverjum
þar úrslitakosti, og hótað að skjóta borgina í rústir, ef
hún gæfist ekki upp innan 18 klukkustunda.