Vísir - 29.04.1940, Blaðsíða 1
Ritstjórí s
Kristján Guðlauc sson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
Ritstjóri 1
Blaðamenn Sími:
AugSýsingar 1660
Gjafdkeri 5 línur
Afgreiðsla J
30. ár.
Reykjavík, mánudaginn 29. apríl 1940.
98. tbl.
Norska stjórnin og Hambro
Stórþingsforseti' svara
von Ribbentrop - -
Norðmeim staðráðnir í
ad berjast vid Þjóðverja
uns þeir hafa fengið
f relsi og sjálfstæði á ný
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Von Ribbentrop, utanríkismálaráðherra Þýska-
lands, birti allítarlega greinargerð um afstöðu
Þýskalands til Noregs, s. 1. laugardag, þar sem
innrás Þjóðverja í Noreg er réttlætt með því
að Bandamenn haf i áf ormað innrás í Noreg. Þetta hef ir
orðið til þess, að mótmæli hafa verið borin fram gegn
staðhæf ngum von Ribbentrops af hálf u Breta og Norð-
manna,
Norska stjórnin hefir birta látið yfirlýsingu, þar sem hún lýs-
ir yfir því aö hún sé staðráðin í að halda áfram styrjöldinni við
Þýskaland, þar til Þjóðverjar hafi verið hraktir úr Noregi og
þjóðin hafi endurheimt sjálfstæði sitt og frelsi. I yfirl. er því
haldið fram, að innrásin í Þýskaland hafi verið áformuð og und-
irbúin löngu áður en hún var gerð, og kveðst norska stjómin
hafa sannanir fyrir þessu. Var sendiherra hennar í Berlín kunn-
ugt um það nokkrum dögum áður en innrásin hófst, að þýskt
herflutningaskip létu úr höfn og er hann gerði fyrirspurn um
þetta fékk hann það svar, að engir herliðsflutningar væri áform-
aðir til Noregs. 1 yfirlýsingu þessari er því einnig haldið fram,
að Norðmenn hafi ekki haft bandalag við neina þjóð og ekki á
nokkurn hátt troðið öðrum þjóðum um tær, heldur viljað í hvi-
vetna varðveita hlutleysi sitt. Stjórnin ásakar Þjóðverja urh of-
beldi í garð smáþjóða og brot á alþjóðalögum, og lætur í Ijós
ósk og von um, að Bandamenn sigri, og þakkar stuðning þeirra
við Norðmenn.
Hambro, forseti Stórþingsins
norska sem enn dvelst í Sviþjóð,
hefir i viðtali gert staðhæf-
ingar von Bibbentrops að um-
talsefni. Neitar hann því, að
Bandamenn hafi áformað inn-
rás í Noreg. Hambro birtir
harðar ásakanir í garð þýska
ræðismannsins i Narvik, sem
hann telur hafa átt manna
mestan þátt i undirbúningi
innrásarinnar. Ræðismaður
þessi var i Le Havre, segir
Hambro, þegar línuskipið Par-
is brann, og gefur i skyn, að
hann háfi verið bendlaður við
t>að mál, þvi að hann segir, að
ræðismanríinum hafi þótt
hyggilegast atS hverf a heim til
Þýskalands skömmu siðar.
Hambro varaði við að tekin
væri gild útnefning þessa
manns sem ræðismanns i Nar-
vik, en aðvörun hans var ekki
sint. Þá heldur Hambro þvi
fram, að Þjóðverjar hafi siglt
herflutningaskipum til Noregs
fyrir innrásina undir fánum
annar þjóða, og tilnefnir þýskt
skip, sem fékk leiðsögn hafn-
sögumanns inn Oslofjörð, og
hafði það uppi Bandaríkjafán-
ann. Fyrir þessu og því, að neit-
að var, að þýsk herflutningaskip
ætti að sigla til Noregs, kveðst
hann hafa sannanir fyrir
hendi.
Baráttan um Niðar-
ós heldur áfram.
Sókn Þjóðverja stöðvaðist í gær.
Kyrt á öðrum vígstöðvum yfir helgina.
EINKASKEYTI frá United Press.
Samkvæmt fregnum sem bárust frá Noregi í gær hafa Banda-
menn enn sett aukið herlið á land á Andalsnesi. Ekki var kunn-
ugt hversu mikið lið var sett á land, en opinber tilkynning var
birt um þetta í London, og tekið fram, að liðflutningurinn hefði
gengið að óskum. Einnig bárust fregnir um, að sókn Þjóðverja
í Guðbrandsdal hefði verið stöðvuð.
Það er talið mjög mikilvægt,
að Bandamönnum tókst að
koma auknu liði til Andalsness
einmitt nú, þvi að Þjóðverjar
höfðu sótt allliratt fram sunn-
;an að í áttina til Niðaröss, og
liil orusta tyrjoi
milll Breta oa pjúO-
Engin &stav»skot
• s
London, í morgun.
það var talið vafasamt, að auð-
ið mundi að stöðva það. Jafn-
vel í breskum og norskum til-
kynningum var viðurkent, að
horfurnar væri tvísýnar. Fregn-
ir höfðu borist um, að Þjóðvei'j-
Einkaskeyti frá United Press.
Fregnir frá landamærum
Noregs haf a borist til Stokk-
hólms þess efnis, að orusta
sé byrjuð milli herliðs Þjóð-
verja, sem fór frá Röros
yestur yf ir f jöllin, og Breta.
Orustan stendur við Hjer-
kinn í Dofrafjöllum, við
ána Driva. Er þar járnbraut-
arstöð á línunni frá Dom-
baas til Stören, en bílvegur
liggur þangað frá Austur-
dal.
Eins og getið er á öðrum
stað fóru véladeildir Þjóð-
verja úr Austurdal vestur
yf ir til þess að reyna að slíta
járnbrautarsambandið milli
Dombaas og Stören. Er mik-
ið undir komið úrslitum
þeirrar orustu, sem nú er
hafin, samkvæmt fregninni
hér að of an.
ar hefði lagt af stað úr Austur-
dal vestur yfir til Guðbrands-
dals, í þeim tilgangi að slita
samgöngurnar milh Stören og
Dombaas, tveggja mikilvægra
bæja, sem Bandamenn hafa á
valdi sinu. Var tekið fram, að
þetta væri vélaherdeildir og
fóru þær hratt yfir. Hinsvegar
hermdu fregnir í gækveldi, að
nýjum árásum Þjóðverja við
Kvam í Guðbrandsdal, þar sem
Bandamenn höfðu áður stöðvað
Þjóðverja, hefði verið hrundið.
Og enn sem komið er haf a ekki
borist fregnir um, að Þjóðverj-
um hafi orðið frekara ágengt. I
Dombaas og Stören, einkanlega
í Dombaas, hafa Bandamenn
mikið lið og þeir fá nú aðstöðu
til, vegna hins aukna hðs, sem
þeir hafa fengið, til þess að búa
enn betur um sig þar og í Stör-
en, og á öðrum mikilvægum
stöðum á þessum slóðum.
Eins og fyrr var að vikið, er
markmið Þjóðverja, að ná sanv
bandi við lið sitt i Niðarósi, en
það væri Þjóðverjum hinn
mesti hnekkir að missa borgina.
Mishepnist Þjóðverjum sóknin
til Niðaróss frá Osló, batna lik-
urnar stórlega fyrir þvi að Nið-
arós falli áður langt liður í
hendur Bandamanna.
Á öðrum vigstöðvum hefir
verið tiltölulega kyrt yfir helg-
ina. — Þjóðverjar hafa haldið
uppi loftárásum á herflutninga-
skip og hernaðarlegar bæki-
stöðvar Bandamanna, einkan-
lega á Andalsnesi og í Guð-
brandsdal, en þrátt fyrir loftá-
rásir þessar, segir breska her-
málaráðuneytið, að landganga
liðsins hafi gengið að óskum.
Þjóðverjar segja hinsvegar, að
loftárásirnar hafi borið góðan
árangur. : j í ;i'|f j*[J
„Forðum í Flosaporti",
nýja revyan, ver'Öur frumsýnd í
kvökl, og er alt löngu uppselt.
Næsta sýning verÖur annaB kvöld.
Abalæfing fór fram í gær, og var
allmargt áhorfenda. Skemtu þeir
sér ágætlega.
mM":':':
Þessir frönsku hermenn hafa skýrt fallbyssuna sína -— sem er með 155 mm.
hlaupvídd — „Rosalie", en annars er það nafn frönsku hermannanna á byssu-
stingnum. Þeir ætla að fara að senda Þjóðverjum kúlu, erí það er varla ástarkúla.
Sorglegt slys.
4ra ára
drengur
bíður bana.
Það sorglega slys varð um
tíuleytið í morgun, að fjögra
ára gamall drengur slasaðist
svo á höfði, að hann beið bana
af. —
Slysið varð með þeim hætti,
að verið var að flytja steypu-
hrærivél norður Bergstaðastræti.
Stökk drengurinn upp á vélina,
en féll af henni aftur og rakst
um leið með höfuðið á járn-
skúffu á vélinni og skarst mjög
á höfði. Lést hann á leiðinni til
sjúkrahúss.
Slysið skeði móts við Bergs-
staðastræti 52, en drengurinn
var sonur Nikulásar Steingrims-
sonar, bifreiðaviðgerðarmanns,
sem á heima á Bergsstaðastræti
53. - ¦
Ágætur afli
hjá togur-
unum.
Togararnir veiða nú ágætlega
og hafa gert síðan um miðja
síðustu viku. Kom aflahrota
fyrir um hálfum niánuði, en
dró úr henni aftur, þangað til
veiðin jókst aftur í s.l. viku.
Vísir átti tal við mag. Árna
Friðriksson, fiskifræðing, i
morgun og spurði hann um
horfurnar á miðunum. Kvað
Árni þær miklu betri nú, yngri
fiskur kominn á miðin, en hefði
verið þar að undanförnu.
'Hefir hann fengið allmikið af
prufum, en ekki gefist tími til
þess ennþá að vinna úr þeim að
öllu leyti. Að þvi leyti, sem
hann hefir kynt sér þær, telur
hann horfur vænlegar um á-
framhaldandi góðan afla. Er
þessi ungi fiskstofn um allan
sjó fyrir vestan og suðvestan
land.
Dagsbrúo tekiir ekki
þátt í háííöahöldinmm
L SMSL
A fundi 1. maínefndar Verkamannafélagsins Dagsbrún 27. þ.
m. var samhljóða tillaga samþykt, sem álit meirihluta nefndar-
innar:
Full vissa er nú fyrir því, að eining um sameiginleg hátíðar-
höld verkalýðsfélaganna 1. maí getur ekki orðið á grundvelli
þeim er fullkomið samkomulag náðist um í 1. maí nefnd Dags-
brúnar, af eftirtöldum ástæðum:
1. Nokkur félög sem eru meðlimir Alþýðusambands íslands,
hafa þegar neitað þátttöku,
2. Stjórn fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna, sem eru í Alþýðu-
sambandinu neitar metJ öllu þátttöku í sameiginlegum há-
tíðarhöldum 1. mai, nema undir rauðum fána með þrem
örvum, sem er fáni Alþýðusambandsins og Alþýðuflokksins.
3. Stjórn fulltrúaráðsins neitar með öllu að gera samkomulag
við 1. maí nefnd Dagsbrúnar, þó fallist væri á fyrra skilyrðid
um prvafánann,
4. Þar sem f jórir nefndarmenn, sem tilheyra Aíþýðufiokknuni
og Sjálfstæðisflokknum í 1. maí nefnd Dagsbrúnar telja ná
útilokað að f ullkomin eining geti orðið um hátfóarhöldin 1.
maí óháð öllum pólitískum flokkum, eins og þeir ætluðust
til á fyrsta fundi nefndarinnar, vilja þeir nú afturkalla sam-
þykki sitt fyrir sameiginlegri samþykt þessa fundar.
Af framangreindum ástæðum telur 1. mainefnd Dagsbrúnar
að hún geti ekki að þessu sinni sameinað alla meðlimi félagsins
og aðra launþega í bænum um sameiginleg hátiðahöld 1. mai
og afturkallar því ákvörðun sína um hópgöngu og átifund þann
dag, og lýsir hún yfir að verkamannafélagið Dagsbrún muni ekki
taka þátt í neinum hátíðahöldum 1. maí næstkomandi.
Undir tillögu þessa skrifuðu eftirtaldir nefndarmenn:
(iuðmundur 6. Guðmundsson. Þorlákur Ottesen.
Sigurður Halldórsson. Sveinn Sveinsson.
Einar Björnsson.
Tveir nefndarmenn voru fjarverandi:
Sigurður Guðnason og Marteinn Gíslason.
Með skírskotun til framangreindrar samþyktar meiri hluta
1. maí nefndar verkamannafélagsins Dagsbrún, er það sýnt að
úr sameiginlegri hópgöngu og útifundi 1. maí n. k., með þátt-
töku allra verkalýðsfélaga í bænum getur ekki orðið, þar sem
meðal annars flest verkalýðs- og iðnfélög innan Alþýðusam-
bands Islands og auk þess félög innan Landssambands íslenskra
stéttarfélaga hafa neitað þátttöku, telur Dagsbrún öll hátíðar-
höld 1. maí næstkomandi sér algerlega óviðkomandi.
I
Stjórn verkamannafélagsins Dagsbrún.