Vísir - 04.05.1940, Page 3
VÍSIR
H! Gamla Bíó ig§|
Farið heiiar firaa
dygOir!
Frönsk gamanmynd.
Aðalhlutverkið leikur 1
Maorice
CheTaliea*
Síðasta sinn.
Lelkíél ng: EefkjavíkMff
„Stundum og stuudum ekki.“
Sýning annað kvöld kl. 8.
Aðgöngum. seldir frá kl. 4 til 7 í dag og eftir kl. 1 á morgun.
Fyrsta klukkutímann eftir að sala aðgöngumiða hefst verður
ekki svarað í síma. —
---Böm fá ekki aðgang. -
NKIP
lileðnr í Leitk iil Meylíjavskiir
fsasiu 11-13 fi. ni.
H.f. Eimskipafélag íslands
sín í hreinsun, pressUn eða
viðgerð lijá Fatapressun
Reykjavíkur, Hafnarstræti
17, geri svo vel og vitji þeirra
í Efnalaugin Kemiko h.f.,
Laugavegi 7. Munið að síma-
númerið er hið sama — 2742.
VÍSIS KAFFIB
gerir alla glaða.
I
Heilsuíræðingar
telja, að frekar megi spara flestar
aðrar fæðutegundir en
mjólk og mjólkurafurðir.
Þetta ætti hver og einn að hafa hug-
fast, ekki síst nú.
Berið mjólkurverðið saman við nú-
verandi verð á ýmsum öðrum fæðu-
tegundum og minnist þess, að verðið
á skyri og mjólkurostum er enn þá
óbreytt.
SndiiHSlteil-lir»likkir
hefjast mánudaginn 6. þ. m. Þátttakendur gefi sig fram
í dag og á mánudag kl. 9—11 og 2—4. Upplýsingar í síma
4059 á sömu tímum.
SUNDHÖLL REYKJAVÍKUR.
Tilkynning.
Eg undirrítaður tilkynni hér með, að eg liefi selt brauð- og
kökugerð mína herra bakarameistara Ingolf Petersen, frá 1. maí
1940. Eg þakka heiðruðum viðskiftavinum mínum traust og við-
skifti undanfarin ár, og vona að hinn nýi eigandi fái að njóta við-
skifta yðar áfram.
Virðingarfylst.
FRANZ HÁKANSSON.
Samkvæmt ofanrituðu hefi eg keypt brauð- og kökugerð herra
bakarameistara Fr. Hákansson, frá 1. maí 1940. Eg mun kapp-
kosta að bafa ávalt fyrsta flokks vörur, samfara lipurri af-
greiðslu, og leyfi mér þvi að vonast eftir áframhaldandi viðskift-
Um fyrirrennara míns.
Virðingarfylst.
INGOLF PETERSEN.
Hér með tilkynnist að jarðarför
Jóhanns Sæmundssonar,
er andaðist á Vífilsstaðaliæli 23. apríl s. I. fer fram frá dóm-
kirkjunni mánudaginn 6. maí kl. 11 árdegis.
Vinir hins látna.
Síra Þorvaldur Jakobsson
áttræður.
Upp úr nónleyti 1. október
fyrir 14 árum lá leið mín suð-
ur Hafnarfjarðarbæ, að litla
skólaliúsinu sunnan verðu við
fjörðinn. Mér hafði orðið taf-
samt á leiðinni og' því kom ég
ekki til prófs á réttum tíma. Eg
var því mcð nokkurn kvíða í
huga, er eg gekk inn ganginn
í Flensborgarskólanum og
knúði á instu dyrnar. Við mér
tók eldri maður, smár vexti,
einbeittur á svip og nokkuð
þurr í viðmóti, að mér fanst.
Meðan eg var að rita stílinn,
var eg annað veifið að skotra
augunum til Iians, og var ekki
laust við, að eg hefði af hon-
um nokkurn beig. Þannig urðu
mín fyrstu kynni af sr. Þor-
valdi Jakobssyni. Næstu þrjá
vetur áttum við samvistir svo
að segja hvern virkan dag, og
munu þær seint förlast mér í
minni. Þegar við skildum, var
í huga mér annar Þorvaldur
Jakobsson, en eg liélt mig liafa
liitt fyrir í fyrstu, og svo hef-
ir æ verið síðan.
Sr. Þorvaldur er áttræður í
dag. Hann er fæddur að Stað-
arbakka í Miðfirði 4. maí 1860.
Foreldar lians voru sr. Jakob
Finnbogason, síðast prestur í
Steinnesi, og kona hans Þuríð-
ur Þorvaldsdóttir, prófasts í
Holti, Böðvarssonar. Þegar sr.
Þorvaldur var 6 vetra, misti
hann móður sina, og fluttist þá
um haustið að Gilsbakka í
Hvítársíðu, til sr. Jóns Hjart-
arsonar og konu lians, Krist-
ínar Þorvaldsdóttur, móður-
systir sinnar. Þar dvaldi liann
hin næstu sex ár, en fluttist
haustið 1872 að Reynivöllum
í Kjós, til sr. Þorvaldar Bjarna-
sonar frænda síns, er hafði
boðist til að taka hann í kenslu.
Jón Vídalín stúdent dvaldi með
Þorvaldi hinn fyrsta vetur á
Reynivöllum og kendi honum
latneska málfræði. Næsta haust
vildi Jón Vídalín taka sr. Þor-
vald með sér vestur í Akureyj-
ar á Breiðafirði og kenna hon-
um þar. Af því varð eigi, því
að sr. Þorvaldur var kyrr hjá
frænda sínum og nafna á
Revnivöllum, og las þann vet-
ur undir skóla. Haustið 1875
tók sr. Þorvaldur próf inn í
Reykjavíkurskóla og útskrifað-
ist þaðan sumarið 1881. Meðan
sr. Þorvaldur var í skóla, var
Iiann í sumarvinnu lijá nafna
sínum, fyrst á Reynivöllum og
síðar á Melstað.
Frá skólaárum sínum minn-
ist hann margra með hlýjum
hug, en ekki síst þeirra Ein-
ars Jafetssonar, verslunar-
stjóra, Teits Finnhogasonar,
föðurbróður síns, og Jakobs
Helgasonar. Þessir menn allir
voru honum góðir haukar í
liorni. Haustið 1883 útskrifað-
ist sr. Þorvaldur úr Prestaskól-
anum og vígðist þá litlu síðar
til Staðar í Grunnavík. Þjón-
aði hann því brauði veturinn
1883—84 og sat að Nesi í
Grunnavík. Á ferðalögum sín-
um þá um veturinn, varð hann
fyrir allmiklu snjóflóði, og síð-
ar mun hann aldrei liafa geng-
ið að fullu heill lil skógar. Vor-
ið 1884 fékk hann veitingu fyr-
ir Brjánslæk og þjónaði þvi
brauði þangað til 1896, að hann
fór í Sauðlauksdal, en þar var
hann prestur alt fram til 1920,
er hann lót af prestsskap.
Haustið 1921 varð sr. Þorvald-
ur kennari i Gagnfræðaskólan-
um í Flensborg og gegndi því
starfi í 13 ár. — Þannig er hin
ytri grind i lífi sr. Þorvaldar.
Árið 1889 kvæntist sr. Þor-
valdur Magdalenu Jónasdóttur,
bónda á Hallhjarnareyri, Jóns-
sonar.Þau lijón hafa nú átt sam-
leið í röska hálfa öld. Þau eiga
fimm böru á lifi, en tvö hafa
j dáið. Magðalena er hin ágæt-
asla kona, og slýrði prests-
heimilinu í Sauðlauksdal, svo
að orð fór af. Þau hjónin voru
dáð og elskuð af sveitungum
sínum, ekki síst þeim, er mið-
ur máttu sín, enda var hugar-
þel þeirra hjóna í þá átt með
eindæmum. Eitt af sóknarbörn-
um sr. Þorvaldar hefir lýst hug
sínum til þeirra hjóna í þess-
um Ijóðlínum:
„Þið áttuð þá ylgeisla að senda,
er öðrum var hjálp á leið.“
Eg ætla, að þannig liafi and-
að lil Sauðlauksdalslijónanna,
frá flestum, er kyntust þeim.
Sr. Þorvaldur er á sumum
sviðum skáldlega næmur, höfð-
inglundaður og ósmár í raun.
Hann er flestum mönnum við-'
mótsheilli og hefir skap til þess
að segja sköðun sína við hvern
sem í hlut á. Hann er flestum
leikmönnum fróðari um ís-
lenskt mál og islenska sögu, og
um þjóðlíf vort er hann svo
fróður, að fæstir munu fara á-
rangurslaust í smiðju til lians
i þeim efnum. Sr. Þorvaldur
ritar mjög lipurt og gott mál
og kennir þar augsýnilega
skyldleika við stíl sr. Þorvald-
ar Bjarnasonar frænda hans,
en hann var snillingur á því
sviði, sem sjá má á ritgerðum
hans í gömlu Iðunni. Sr. Þor-
valdur mun margt hafa num-
ið af frænda sínum á Reyni-
völlum, en liann var einn fjöl-
menntaðasti Islendingur sinn-
ar síðar. Þegar sr. Þorvaldur
á Reynivöllum andaðist, mun
hann sennilega liafa átt stærra
og fjölbreyttara bókasafn en
nokkur annar prestur á íslandi
fyrr eða síðar. Á þvi má marka,
að sr. Þorvaldur Jakobsson
liefir þegar á skólaárum sínum
átt aðgang að miklum bóka-
kosti og góðum, og dylst mér
ekki, að enn sér þess skil. En
sr. Þorvaldur getur farið viðar
með ratvísi en um liið víðáttu-
mikla skeið ísl. fræða, því hann
er ágæta vel að sér í stærð-
fræði og fornum máium.
Síðan leiðir okkar sr. Þor-
valdar skildu, við prófhorðið
í Flensborg, hefir hann nokkr-
um sinnum leitt mig um lieima
merkilegra athurða úr isl. þjóð-
lifi, og teldi eg illa farið, ef
hann héldi þeim ekki til liaga,
ungum og óbornum til fróðleiks
og skemtunar.
Eg veit, að allir nemendur
sr. Þorvaldar munu óska hon-
um allra lieilla nú og ávalt, og
vilja gera að sínum hug þann
anda, sem felst í þessum ljóð-
línum, sem einn nemandi lians
sendi honum:
„Þú göfga, hlýja sá&mannssál,
þitt snjalla, hreina, mitda mál
skal muna lengi og vel.“
L. K.
Helgidagslæknir.
Halldór Stiefánsson, Ránargötu
12, sími 2234.
Wýja Bíó
Nina Petrovna
Frönsk afburðamynd. — Aðalhhitverk leika::
ISA MIRANDA og FERNAND GHAVEY..
Börn fá ekki aðgang. — Síðasta sínn.
Tilkynningr.
Það tilkynnist heiðruðum viðskiftavinum niinum að eg undir-
ritaður hefi selt firmað Fatapressun Reykjavskur, HafnarstræS
17, firmanu Efnalaugin Kemiko h.f., Laugavegi 7 og vona eg
að hið nýja firma megi verða aðnjótandi viðskíffa yðar í fraaas-
tíðinni.
ÞORYÁLDUR ÞORSTEINSSON.
Samkvæmt ofanrituðu höfum við undirriíaðir keýpt Fafa-
pressun Reykjavíkur, Hafnarstræti 17 og munum við hér ef'fe’
reka það sem nýtísku efnalaug.
F. h. EFNALAUGIN KEMIKO h.f„
Þorv. Þorsteinssoo.
Strætisvagnar tiikynn;
1
1. maí hófust ferðir að Vatnsþró. Ekið er frá Lækjar-
torgi um Hverfisgötu að Vatnsþró og til baka uaaa
Laugaveg. — 1. ferð kl. 7.50 og síðan á 30 mínútna fresti
til kl. 23.50. Á helgidögum er fyrsta ferð kl. 9.20.
Ferðir með Landspitalavagni féllu niður frá 1. mai.
Að Lögbergi verður ekið frá 1.-20. maí sein Iiérsegfr:
Frá Reykjavík: Kl. 7.15,13.15* og 19.15*. — Frá Lög-
bergi: Kl. 8.00, 14.15* og 20.15* (* um Fossvog),
Á helgidögum hef jas ferðir að Lögbergi kl. 8.45,.
STRÆTISVAGNAR REYKJAVÍKUR kJ»
FliilnglB Keiiko 1.1. tillmiir:
í DAG, laugardaginn 4. maí, opnum vér í fyrsta
skifti afgreiðslu vora á Laugavegi 7. — Rik
áhersla verður lögð á vinnuvöndun og fljóíá,
ábyggilega og góða afgreiðslu. Munið að vér I
hreinsum föt yðar upp úr TRIKOHL, besía
fáanlega hreinsiefninu.
Efualavigfin licntiko li.l
Laugavegi 7.-------Sími: 27421.
Sækjum. Sendum.
Revýan
1940
Forðum í
Flosaporti
Næstu tvær sýningar
mánudag og þriðjudag kl. 8
í Iðnó.
Aðgöngumiðasala að fyrri
sýningunni hefst kl. 4 á
sunnudag. Sími 3191. Fyrir-
frampantanir alla daga kl.
2—5 í síma 3850.
vantar til Ólafs Gíslasonar,
Sólvallagötu 8
SetistifikisiíBi
vönduð, 2 stólar og sóffi9 aý-
leg, til sölu. Ljósvallagöfui 12,
uppi.
Jörð
óskast tií k-igu eða kaups I
í nágrenni Reykjavíkur eða, I
Ölfusi. Tilboð, merkt „Jörð'5
sendist afgr. Visis sem fyrsi. |
K. F. U. M.
f
Á morgunr
£
KI. 10 f. h. Suimudagaskólíim. j
— iy2 e. h. Y.-D. og V.-D.
— Sy2 e. h. Unglíngadeildiö. I
— 8V2 e. h. Samkoma. Jot-
hannes Sigurðsson ©g j
Steingrimur Benedikfesso
tala. Allir velkomnír, I