Vísir - 18.05.1940, Side 2
VÍSIR
Orðsendingar milii bresku
og íslensku ríkisstjórnanna,
áður en hernámið fór fram.
VISIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Krist'ján Guðlaugsson
Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar 16 60 (5 línur).
Verð kr. 2.50 á mánuði.
Lausasala 10 og 20 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Tíminn og
gæfuleysið.
J síðasta blaði Tímans er löng
grein um gjaldeyrismálin og
er í henni ráðist persónulega á
Bjöm ólafsson með heiftarlegu
og óþvegnu orðbragði fyrir
grein þá, er hann skrifaði fyrir
nokkru í Vísi og nefndi „Gæfu-
leysið í gjaldeyrismálunum“.
Þeir, sem lesið hafa báðar
þessar greinar, munu fljótt
veita því athygli, að Tíminn
forðast að koma nálægt aðalat-
riðunum í grein B. ó. og ræðir
málið á þann hátt, sem blað-
inu hentar best til þess að leiða
athyglina frá aðalröksemdum
Björns. Röksemdirnar, sem
hann færir fram fyrir gæfuleys-
inu i gjaldeyrismálunum, eru
svo fábrotnar og ljósar, að eng-
um getur dulist að hann fer með
rétt mál. En þessi augljósu rök,
sem bregða skýru Ijósi yfir ráðs-
mensku Framsóknarflokksins,
hafa komið ónotalega við suma.
Höfuðástæðurnar fyrir gæfu-
leysinu í þessum málum segir
B. Ó. að séu þessar: I fyrsta
lagi, að viðskiftamálaráðherra
(áður fjármálaráðherra) skuli
hafa látið það viðgangast árum
saman, að innflytjendur hefðu
ástæðu til að tortryggja sterk-
Iega gerðir gjaldeyrisnefndar
sökum pólitískrar hlutdrægni
og á þann hátt skapa andstöðu
og óvild, sem á allan hátt tor-
veldaði skynsamlegt og heil-
brigt samstarf í gjaldeyrismál-
unum. I öðru lagi að gefa út
gjaldeyrisleyfi fyrir tugum
miljóna á hverju ári, sem gefur
enga tryggingu fyrir greiðslu
og þess vegna urðu orsök stór-
feldrar skuldasöfnunar erlendis.
Þetta eru fáorð rök en skýr,
er innifela undirrót þess ‘ ó-
fremdarástands, sem rikt hefir
í gjaldeyrismálunum. Hversu
sem Tíminn reynir með blekk-
ingum um andstæðingana og ó-
sönnum frásögnum að fegra
málstað viðskiftamálaráðherra,
þá verður það aldrei af honum
þvegið, að hann ber ábyrgðina
og hann hefir ætið verið þrösk-
uldur í vegi fyrir því, að sam-
komulag gæti náðst í gjaldeyris-
málunum. Verslunarstéttin hef-
ir aldrei heimtað innflutning til
landsins, sem ekki væri hægt að
greiða, en hún liefir heimtað að
úthlutun gjaldeyris og innflutn-
ings færi fram hlutdrægnislaust
á þann veg, að jafnt væri látið
yfir alla ganga. Þetta hefir
aldrei fengist. Verslunarstéttin
hefir í mörg ár kvartað yfir
þeim sviknu, ógildu gjaldeyris-
Ieyfum, sem gefin voru út og
gerðu flesta innflytjendur að
vanskilamönnum. Þessu hefir
aldrei verið sint. Það hefir yfir-
leitt ekki verið sint neinum til-
lögum, sem frá verslunarstétt-
inni Iiafa komið i sambandi við
gjaldeyrismálin. Tíminn hefir
jafnan hamrað á því, að kaup-
menn heimtuðu „skefjalausan“
innflutning og alt ólagið væri
þeim að kenna, en það hefir
ekki enn hvarflað að honum,
að eitthvað gæti verið bogið við
skipulagið og framkvæmdina.
En þar liggur meinið grafið.
Ef ætti að eltast váð hll'ar
i-angfærslur Tínians í sambandi
við grein B. Ó., þyrfti að skrifa
Iangt mál. En þess er ekki þörf,
vegna þeirra, sem fylgst hafa
með þessum málum. Ástandið
eins og það er og hefir verið, ber
sterkasta vitnið á móti staðhæf-
ingum og fullyrðingum hlaðs-
ins. Allir vita að rök Jiita lítið á
aðstandendur þess.
Það er heldur barnaleg rök-
semdafærsla hjá blaðinu, að B.
Ó. liafi ekki leyfi til að skrifa
um gjaldeyrismálin af því að
liann hafi verið ásamt viðskifta-
málaráðherra kosinn í milli-
þinganefnd til að fjalla um þessi
mál. Ef til vill hefir Tíminn hú-
ist við, að hægt væri að þagga
niður alt tal um rangsleitni og
illa stjórn í gjaldeyrismálunum
ineð þvi að svæfa þau í nefnd
fram á næsta ár.
Ennfremur vill blaðið láta lita
svo út, sem samþykt gjaldeyr-
isfrumvarpsins á Alþingi hafi
verið samkomulag milli flokk-
anna um þessi mál. Slíkt liefir
hvergi komið fraln, enda var
það litla, sem Framsóknarflokk-
urinn bauð fram til slíks sam-
komulags svo lilægilegur um-
skiftingur, að furðu sætti. Var
það að vísu i samræmi við alla
stjórn þeirra á gjaldeyrismálun-
um fyrr og síðar — kák og
hlutdrægni.
Lærið að
§ynda.
I dag og á morgun eru síðustu
dagar skrásetningarinnar á
sundnámskeið Blaðamannafé-
lagsins. Fer hún fram kl. 9—11
f. h. og 2—4 e. h. báða dagana.
£ gær voru 100 manns búnir að
láta skrá sig.
Slysavarnafélagið liefir boð-
ist til að kenna lífgun úr dauða-
dái i sambandi við björgunar-
sundskensluna. Ætti sjómenn
að nota þetta tækifæri til þess
að læra hvorttveggja.
Hér fer á eftir umsögn frk.
Sigríðar Sigurjónsdóttur, sund-
kennara á gildi sundiþróttarinn-
ar:
„Eins og oft hefir verið get-
ið, er sundið sannkölluð íþrótt
íþróttanna, því um leið og
sjálfsagt er að læra að synda
lil að geta bjargað sjálfum sér
og öðrum úr lífsháska, ef til
þess kemur, þá er og sjálfsagt
að læra sund til að viðhalda
líkama sínum, því sundið er sú
eina íþrótt, sem þjálfar alla
vöðva í senn og þar að auki er
baðið heilsubrunnur.
Allir geta lært að synda, ung-
ir og gamlir, og jafnvel lamað
og lasburða fólk hefir lært að
synda og haft af því mikla
hressingu og lieilsubót, jafn-
framt ánægjunni, að geta tek-
ið þátt í einhverri íþrótt, eins
og hinir, sem alhraustir eru.
Eins er með konur, sem eru
við hússtörf og inniverk mest-
an hluta dagsins, þær ættu að
fórna 1 klukkutíma 2—3 í viku
til að læra sund og viðhalda með
því líkama sínum, því að marg-
ar af þéim konum, sem hafa
lært að synda, hjá mér, og þar
af eru margar fullorðnar, hafa
sagt, að þær séu eins og nýjar
manneskjur að starfsþreki og
vellíðan, eftir sundið og baðið,
því engum er þetta meiri þörf,
heldur en húsmæðrum og kon-
um, sem svo lítið geta farið frá
störfum sínum sér til upplyft-
ingar. Ættu þær nú að taka sig
saman og mæta í stórum flokki
á þetta námskeið Blaðamanna-
félagsins, sem er mjög ódýrt og
haganlega fyrirkomið, tii þess
að allir þeir bæjarbúar, karlar
og konur, sem ekki enn kunna
að meta þann heilsubrunn, sem
við eigum í Sundhöllinni, fái
nú það besta tækifæri til að
kynnast sundinu sem íþrótt og
heilsugjafa.“
f orðsendingum þeim, sem
farið hafa millum íslensku rík-
isstjórnarinnar og sendiherra
Breta, Mr. Howard Smith,
hefir verið vitnað til bréfa dags.
9. apr. s.I. og 11. s.m. Til þess að
almenningur geti gert sér sem
glegsta grein fyrir því, sem í
millum hefir farið, hefir Vísir
fengið bæði ofangreind bréf til
birtingar.
Breska aðalkonsúlatið,
Reykjavík.
9. apríl 1940.
Herra ráðherra,
Eg leyfi mér að tilkynna yð-
ur, að það hefir verið lagt fyr-
ir mig af breska utanríkismála-
ráðherranum að tilkynna is-
lensku ríkisstjórninni án tafar,
að með tilliti til þýsku innrás-
arinnar í Noreg og hertöku
Danmerkur, þá óttast breska
ríkisstjórnin, að aðstaða Islands
sé orðin mjög viðsjárverð.
Hinsvegar hefir bi-eska stjórn-
in ákveðið að hindra það, að
ísland hljóti sömu örlög og
Danmörk, og num gera liverja
þá ráðstöfun, sem nauðsynleg
er, til þess. Slík ráðstöfun kann
að útheimta það, að bresku rík-
isstjórnnni verði veittar vissar
tilslakanir á sjálfu íslandi.
Breska rikisstjórnin gerir ráð
fyrir, að íslenska ríkisstjórnin
muni í eigin þágu veita slíkar
tilslakanir jafnskjótt og breska
ríkisstjórnin kann að þarfnast
þeirra, og að hún muni yfirhöf-
uð ljá samvinnu sína við bresku
ríkisstjórnina sem hernaðarað-
ili og bandamaður.
Kveðjuorð,
J. Bowering
breskur aðalkonsúll.
Utanríkismálaráðuneytið.
11. apríl 1940.
Herra aðalkonsúll,
íslenska rikisstjórnin hefir
lekið erindi yðar, nr. 3, dags. 9.
þ. m., merkt leyndarmál, til
slcjótrar athugunar og leyfir sér
hér með að tjá yður eftirfarandi:
íslenska rikisstjórnin er nú
sem fyrr þakklát og glöð yfir
vináttu bresku þjóðarinnar og
áhuga bresku rikisstjórnarinnar
fyrir því, að Islandi megi vel
farnast í þeim mikla liildarleik,
sem nú er háður.
Aðsfaða íslands er liinsvegar
sú, að jiegar sjálfstæði íslands
var viðurkent 1918, lýsti það
yfir ævarandi hlutleysi og er
auk þess vopnlaust. ísland vill
því hvorki né getur tekið þátt
í hernaðarlegum aðgerðum eða
gert bandalag við nokkurn
liernaðaraðilja.
Þó að ríkisstjórn íslands
Slökkvi-
liðið
var kallað út tvisvar i morgun
og einu sinni í gærkveldi.
Kl. 6,35 var það kvatt inn að
Bústaðabletti 17, þar sem Jó-
sep Húnfjörð býr. Hafði kvikn-
að þar í heyi við fjósgafl, en
heimilisfólkið var að mestu bú-
ið að slökkva eldinn, þegar
slökkvihðið kom á vettvang.
I morgun var liðið kallað að
Vatnsstíg 3 og Mjólkurfélags-
húsinu. Hafði kviknað í hús-
gagnastoppi á fyrri staðnum,
en í rafmagnsmótor lyftunnar í
Mjólkurfélagshúsinu. Engar
skemdir urðu svo að teljandi sé.
Munið, að sundkenslan er ó-
keypis og að afsláttur er af að-
göngumiðum.
dyijist ekki, að íslenska þjóðin
er þess ekki megnug að verja
hlutleysi sitt, vill hún taka það
skýrt fram, að liún mun mót-
mæla hVerskonar aðgerðum
annara ríkja, sem í kynni að fel-
ast brot á þessari yfirlýstu
stefnu. Ríkisstjórnin lætur i ljós
þá einlægu von, að með því að
fylgja regluin ítrasta hlutleysis
verði komist hjá allri hættu um
skerðingu á því.
Um leið og ríkisstjórnin lief-
ir nú svarað áðurnefndu er-
indi yðar, með ósk um, að svar-
ið verði eins fljótt og mögulegt
er kunngert breska utanríkis-
málaráðherranum, vil eg að
endingu láta í Ijós þá einlægu
von mina, að breska ríkisstjórn-
in muni taka þessari ákvörðun
íslensku rikisstjórnarinnar með
velvild og skilningi.
Kveðjuorð,
Stefán Jóh. Stefánsson.
Fjársöfnun
vegna norskra
flóttamanna.
í gær voru seld hér á götun-
um merki til styrktar norskum
flóttamönnum, að tilhlutun
Rauða kross íslands og Nor-
ræna félagsins. Mun salan hafa
gengið sæmilega.
Þá var Noregs minst í útvarp-
inu með söng og hljóðfæraslætti
á norskum lögum, en Árni G.
Eylands forstjóri og frú There-
sia Guðmundsson fluttu erindi.
Á Akureyri voru tvær sam-
komur haldnar, háðar fjöl-
mennar. I kvikmyndahúsinu
var kvikmynd sýnd, erindi flutt
um Noreg og Karlakór Akur-
eyrar söng nokkur lög. í sam-
komuhúsinu söng Karlakóiánn
Geysir, en Davíð Sefánsson
skáld flutti erindi, og var gerð-
ur að hvorutveggja hinn besti
rómur. Mun nokkurt fé hafa
safnast á Akureyri.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir skopleikinn „Stundum og
stundum ekki“ annað kvöld kl. 8.
Nf bók.
H. Pálsson: Meat qualities in
tlie Sheep with special re-
ference lo Slottish breeds
and crosses. Cambrigde
University Press 1940. —
Bók þessi, sem er allmikið rit,
er að ýmsu Ieyti einstök i sinni
röð. Höf. er fyi’sti íslendingui-
inn, sem lokið Iiefir háskóla-
námi í Bretlandi og tekið þar
síðan doktors„gráðu“, að svo
miklu leyti sem mér er kunnugt.
Þetta er doktorsritgerð hans og
er efni hennar ólíkt því sem vér
eigum að venjast um doktors-
ritgerðir. Þar eru meðal annars
sjálfstæðar rannsóknir á ís-
lensku kindakjöti og gæðum
þess. Hefði vel mátt geta þess í
titli bókarinnar, þó mestur
hluti rannsóknanna taki til
kjöts af skoskum fjárkynjum.
Það má ef til vill einnig segja
um höfund bókarinnar að hann
sé sjálfur „sjaldgæfur fugl“.
Hann er sennilega einhver fjár-
glöggasti maðurinn á landinu,
vikingur að hverju sem hann
gengur, hvort lieldur sem það
er nám eða líkamleg vinna. Það
var því vel til fallið að hann
valdi hvorki læknisfræði né lög-
fræði sem námsgrein eins og
flestir gera, heldur búvisindi og
fjárrækt. Þó undarlegt sé, eru
ekki þessi fræði kend við há-
skólana á Norðurlöndum, svo
Halldór leitaði til Háskólans í
Edinborg. Skotar eru bæði góð-
ir bændur og miklir fjármenn,
enda liafa þeir komið upp frægii
búvísindadeild við Háskóla sinn,
og þangað leita námsmenn úr
öllum heimsins álfum.
I þennan mislita hóp bættist
nú einn íslendingur, ókunnug-
ur flestu í Skotlandi og óæfður í
málinu. Hvernig farnaðist hon-
um í þessum Babelsturni?
Kandidatsprófið tókst þannig, að
íslendingurinn flaut ofan á öllu
hinu kraðakinu og fékk ágætis-
einkunn í flestum námsgrein-
um.
Nú vildi svo til að í þetta sinn
gafst þeim, sem tóku burtfarar-
próf, kostur á því að keppa um
svo nefnd Van Dunlops verð-
laun. Þau námu 300 pundum og
skyldu notuð til vísindalegra
rannsókna eða framhaldsnáms.
En til þess að ná í skildingana
þurftu menn að ganga undir
sérstakt, allþungt aukapróf.
Halldór vildi ekki láta þetta
ganga úr greipum sér, gekk
undir prófið, varð lilutskarpast-
ur og náði í þessi £ 300 hjá nísk-
um Skotanum.
Nú var eftir að vita livað gera
skyldi með skildingana. Halldór
afréð að nota þá til þess að rann-
saka, hversu helst skyldi meta
gæði kindakjöts og verðmæti,
og hver ráð væri álitlegust til
þess að framleiða sem best og
verðmætast kjöt, sérstaklega
fyrir enskan markað. Rannsókn-
ir þessar framkvæmdi höf. að
nokkuru leyti liér á landi, en að-
allega við háskólana i Cam-
bridge og Edinborg. Bók þessi
segir frá rannsóknum lians og
niðurstöðum, en jiað liggur i
augum uppi, að hér er að ræða
um mjög mikilsvert mál fyrir
islenska bændur.
Á Norðurlöndum er mönnum
skylt að láta prenta doktorsrit-
gerðir sínar á sinn kostnað. Þess
gerist ekki þörf í Englandi. Þar
velja háskólakennararnir úr þær
ritgerðir, sem þeir telja að hafi
varanlegt vísindalegt gildi og
láta prenta þær fyrir fé, sem
ætlað er til vísindastarfa. Það
eru því úrvalsrit ein, sem prent-
uð eru, og ritgerð Halldórs hef-
ir komist í þann virðulega flokk.
Það er ekki unt að gera sæmi-
lega grein fyrir efni bókar þess-
arar í stuttu máli, og fæstum
myndi þykja það skemtilestur.
Þess skal að eins getið, að efninu
er skift í 3 aðalkafla: Hinn fyrsti
er um ýms mál á kindaskrokk-
um og hverja leiðbeiningu þau
geti gefið um kjötið og gæði
þess, hve mikið sé af vöðvum,
fitu og beinum o. s. frv. Sum af
málum þessum hefir H. tekið
upp fyrstur manna og sannað
gildi þeirra. Þá er og rannsókn
é þvi, að hve miklu leyli megi
dæma kjötið eftir einstökum
kjötstykkjum. Rannsóknir þess-
ar liafa ekki verið álilaupaverk,
því rannsaka þurfti marga
skrokka, en hver þeirra var ær-
ið dagsverk fyrir sex æfða menn,
með 12—14 ldst. vinnu.
Annar kafhnn er samanburð-
ur á kjöti ýmsra fjárkynja og
kvnblendinga, þar á meðal is-
Frh. af 2. síðu.
DANSKLÚBBURINN
Kátir voru
karlar
heldur sinn fyrsta siimar-
dansleik í OddfelJowhúsinu
í kvöld.
Bæjarins vinsælustu harmo-
nikuleikarar leika undir
dansinum og Hljómsveit
Aage Lorange.
Eldri dansarnir uppi.
Nýju dansarnir niðri.
Aðgöngumiðasalan hefst kl.
6 í Oddfellow.
(MEISTARAFLOKKUB)
bef§( á anorgrun kl. 5 með
spennandi kapplelk milli
K.R. ogr VÍItllGS
Fjölmennið á fyrsta kappleik ársins.
Lúdrasveit Reykjavíkur leikur á Austurvelli kl. 4.15