Vísir - 03.06.1940, Page 3
VlSIR
Hættnlegar leikur.
Frönsk kvikmynd leikin af
Huguette Duflos og Jean-Pierre Aumont.
AÐALFUNDUR
H.F. EIMKIPAFÉLAGN ÍSLAAM
verður haldinn laugardaginn 8. júní kl. 1 e. h.
í Kaupþingssalnum í húsi félagsins. — Að-
göngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir
hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra á mið-
vikudag 5. og fimtudag 6. júní kl. 1—5 e. h.
báða dagana.
STJÓRNIN.
Reykjavíkurmótið
Meistaraflokkur
1 kvöld
kl. 8,30
FRAM-K.R.
Hvað skeður nú?? Hvor sigrar?
Heilsuíræðingar
telja, að frekar megi spara flestar
aðrar fæðutegundir en
mjólk og mjólkurafuröir.
Þetta ætti hver og einn að hafa hug-
fast, ekki sist nú.
Berið mjólkurverðið saman við nú-
verandi verð á ýmsum öðrum fæðu-
tegundum og minnist þess, að verðið
á skyri og mjólkurostum er enn þá
óbreytt.
Til brúðargjafa
1. flokks handslípaður kristall og ekta kúnst-keramik.
K. Einarsson & Bj örnsson.
Vegna jarðarfarar
verður ver§lunin París lok-
uð allan das'iim á morgtm.
Hjartkær móðir og tengdamóðir okkar,
Benónía Jósefsdóttir,
andaðist 1. júní að lieimili sínu, Laufásvegi 50. Jarðarförin
auglýst síðar.
Margrét Magnúsdóttir. Jónas Magnússon.
Rristinn St. Jónsson. Vilhelmína Tómasdóttir.
Útför
Sigríðar Halldórsdóttur,
ekkju síra Janusar Jönssonar, fer fram þriðjudaginn 4. júní
fná heimili minu, Bókhlöðustíg 9; hefst kl. 14/2 e. h.
Fyrir hönd vandamanna.
Kristinn Daníelsson.
Maðurinn minn elskulegur,
Sveinn Hallgrímsson,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 5.
júní, kl. 2 e. h.
Anna Hallgrímsson.
Sykur og mjölvömskamtur breytt-
ist um mánaðamótin.
Tilkynnirtg írá Skömtunarskrifstofu ríkisins.
Sú breyting hefir verið gerð á
matvælaskömtuninni frá 1. júní
n.k. að úthlutað er á einum seðli
fyrir báða mánuðina júní og júlí.
Kornvöruskamturinn hefir
verið ákveðinn 5500 gr. handa
hverjum manni á mánuði, en
kornvörurnar hafa jafnframt
verið settar saman á reiti, þann-
ig að hverjum manni er í sjálfs-
vald sett hvaða tegundir korn-
vara liann kaupir út á kornvöru-
reitina.
Ivornvörureitirnir á hinum
nýja tveggja mánaða seðli eru
110, hver á 100 g, eða samtals 11
kg. til tveggja mánaða. Hin
smáa sölueining 100 g. er af-
leiðing þeirrar breytingar að
skiftingin milli kornvaranna er
feld niður, og þær settar saman
á reiti. Kornvörureitina þai-f að
nota til kaupa á hveitihrauðum
og rúgbrauðum, þar sem hrauð-
gerðarhús éi’u, en hlutfallið milli
brauðanna sjálfra og kornvara
þeirra, sem til þeirra ganga er
það að fyrir 250 g. af hveiti-
brauði (minnsta hvtýtibrauð)
skal láta reiti fyrir 200 g af
kornvörum, en fyrir 750 g af
rúgbrauði skal láta reiti fyrir
500 g .af kornvörúm. Það þötti
ekki fært að liafa tvennskonar
sölueiningar af kornvörum á
seðlinum, þ. e. sumar 200 g og
aðrar 500 g, með því að hendur
þeirra, sem brauð kaupa, liefðu
verið um of hundnar með þeirri
skiftingu, þar sem sölueining-
una 500 g hefði ekki verið liægt
að nota til kaupa á algengustu
hveitibrauðsstærðinni, og sölu-
eininguna 200 g ekki til kaupa
á algengustu rúgbrauðastærð-
inni. Þetta var því leyst með því
að ákveða sölueiningu kornvar-
anna 100 g, og er fólk beðið að
klippa ekki kornvörseðlana
sundur heima, og eklti fyrri en
ákveðið er livað nota skal í einu
í hverri verslun eða brauðgerð-
arhúsi.
Sykurskamturinn hefir verið
ákveðinn 1700 g lianda hverj-
um manni á mánuði. Sykurreit-
irnir eru 17 á hinum nýja mat-
vælaseðli, hver á 200 g eða 3.1
kg til tveggja mánaða. Sykur-
reitirnir bera númer 1 og 2, og
er þetta gert til leiðbeiningar
fólki við dreifingu á skamtin-
um yfir all skömtunartimabil-
ið, tvo mánuði, þannig að not-
aðir verði fyrri mánuðinn reit-
irnir, sem bera númer 1 og síð-
ari mánuðinn reitirnir, sem
hera númer 2. Einn sykurreit-
urinn er stakur, og ber ekkert
númer, og mætti því nota hann
livorn mánuðinn sem vera vill.
Reynt mun verða að úthluta
dálitlum aukaskamti af sykri til
sultugerðar síðar í sumar, en
fólki er þó hent á það, að sú
úthlutun mun aldrei geta orðið
það mikil, að ekki sé nauðsyn-
legt fyrir alla, sem það á nokk-
urn liátt geta, að draga saman
af hinum venjulega sykur-
skamti vegna fyrirliugaðrar
sultugerðar.
Kaffiskamturinn er óhreytl-
ur frá því sem áður var, en
reitirnir hafa verið númeraðir
á sama hátt og sykurreitirnir.
Kaffireitirnir eru fjórir, liver á
150 g. óbrent eða 125 g. brent
kaffi, eða 600 g. til tveggja
mánaða handa hverjum manni.
Tveir kaffireitirnir bera númer
1 og eru ætlaðir til notkunar í
júní, en tveir reitirnir bera
númer 2 og eru ætlaðir til notlc-
unar í júli.
Hinn nýi matvælaseðill er
þannig gerður, að afmarkað er
með strikaformi (feit strik)
Iiver 500 g. af kornvörum og
1000 g. af sykri, til léttis fyrir
þá, sem annast afgreiðslu. Hinir
einstöku reitir eru svo að-
greindir með grönnum strikum,
til leiðbeiningar fyrir þá, sem
klippa þurfa af reiti fyrir minna
magni en 500 g. af kornvörum
eða 1000 g. af sykri.
Prentað er nú á stofn hins
nýja matvælaseðils, að ætlast
sé til að verslanir annist um að
klippa reitina af seðlinum um
leið og afgreiðsla fer fram, og
er þetta gert til þess að koma í
veg fyrir, að seðillinn verði
kliptur niður í óþarflega smáar
einingar, því slikt skapar versl-
unum og öðrum aukna fyrir-
höfn við talningu reitanna.
Sameining kornvaranna á
hinum nýja matvælaseðli ætti
að verða almenningi til mikils
liagræðis við kornvörukaupin,
og með sparsemi og aðgæslu
ætti minkun sykurskamtsins
ekki að verða almenningi mjög
tilfinnanleg.
Fólk er sérstaklega beðið að
liafa hugfast, að skamturinn á
nýja seðlinum á að endast í tvo
mánuði, og að verslunum er
stranglega bannað, að viðlögð-
um liáum sektum, að afhenda
nokkrar skömtunarvörur, nema
gegn skömtunarseðlum. Versl-
unum er þó að sjálfsögðu heim-
ilt að afgreiða vörur út á hina
tölusettu kaffi- og sykurreiti
hvenær sem er á úthlutunar-
tímabilinu, þar sem tölusetn-
ingin er eins og fyrr getur að-
eins gerð til leiðbeiningar fyrir
neytendur.
HERFULTNINGARNIR.
Frh. af 1. síðu.
vélum Þjóðverja eru nokkurra
ára, en á sviði hernaðarflug-
vélaframleiðslunnar fleygir öllu
fram. Bandamenn hafa fengið
mikið af nýjustu hernaðarflug-
vélum Bandaríkjamanna og
reynast þær einnig ágætlega. —
Hudson og Defiant flugvélarnar
hafa reynst með afbrigðunii vel.
Mikið er einnig látið af Hurri-
cane og Spitfire flugvélunum
bresku.
S. 1. laugardag skutu breskir
flugmenn niður 78 þýskar flug-
vélar yfir Dunkerque og Erm-
arsundi og hefir breski flug-
herinn aldrei skotið niður jafn-
margar flugvélar fyrir Þjóð-
verjum á einum degi, en auk
þess skutu Frakkar niður marg-
ar flugvélar. Alls skutu Bretar
niður um, 170 þýskar flugvélar
s.l. föstudag og laugardag og i
gær. Verði Bandamönnum jafn
vel ágengt í lofthernaðinum á-
fram, fer að horfa mjög alvar-
lega í þessu efni fyrir Þjóðverj-
um, ekki aðeins vegna flugvéla-
tjónsins, heldur enn frekara
vegna þess, liversu marga æfða
flugmenn þeir missa.
Knattspyrna
Nokkrir kappleikir hafa farið
fram í yngri flokkunum um
helgina.
Tveir leikir fóru fram á laug-
ardag í 3. flokki. Valur sigraði
Fram með 4 mörkum gegn
engu og Víkingur sigraði K.R.
með einu marki gegn engu.
I gærmorgun fóru fram tveir
leikir í öðrum flokki. Fram og
K.R. gerðu jafntefli, 1:1, en
Valur sigraði Víking með þrem
mörkum gegn einu.
Knattspyrnufélagið Kári kom
í heimsókn á laugardag og
kepti við Víkinga. Fóru svo
leikar, að Víkingar sigruðu með
Mikilfengleg og spennandi amerísk sfórmynd frá Warnes
Bros. Aðalhlutverkin leika 5 af frægustu stjörnum amerískis
kvikmyndanna:
BETTE DAVIS, EDWARD G. ROBINSON, JANE BRYAN,
HUMPHREY BOGART og hinn hrausti og karlmannalegi
WAYNE MORRIS, er leikur hnefaleikarann „Kíd Galahad“
BÖRN FÁ EKKI AÐGANG.
Tilkynning.
)
Það tilkynnist hér með, að Bókaverslunín Mímir
h.f. hefir selt hr. Finni Einarssyni bóka- og ritfanga-
verslun félagsins og rekur hann liana hér eftlr undlr
nafninu Finnur Einarsson Bókavershm. fyrir eígín
reikning. Væntum við þess, að hann verði látinn njóla ,
sömu velvildar og viðskifta áfram og vér höfum noiið í
sem eigendur verslunarinnar.
Félagið heldur áfram öllum forlagsbókum sinuna
og ber að snúa sér til hr. bankaritara Axels Böðvarsson-
ar, Hólavallagötu 5, Reykjavik, um alla afgreiðsla og •
reikningsskii þeirra vegna.
Bókaverilniiin Alímir li.f.
i
■ í
Samkvæmt framanrituðu hefi eg undirrítaðiir |
keypt bóka- og ritfangavershm hlutafélagsins Mímír og
rek hana hér eftir á sama stað og bókaverslunin hefir
verið, Austurstræti 1, undir nafninu
Finnnr Ffnarsson Bókiiwerslnn •
Eg vænti þess, að viðskiftavinir verslunarmnar láti
mig njóta sömu velvildar og fvrri eigendur hennar og
mun gera mitt ítrasta til að gera þá ánægða_
Finnur Flnstrssois,
Auglýsing
um skoðun toifreiða og bifhjóla 1
Gullbringu- og Kjósarsýslu ocg
Hafnarfjardarkaupstad.
Samkvæmt bifreiðalögunum tilkynnist hér með,
að hin árlega skoðun bifreiða og bifhjóla fer á þessu .ári
fram sem hér segir:
í KEFLAVlK: Mánudag 10. júní og þriðjudag ll-
júní kl. 10—12 árdegis og 1—6 síðdegis, báðá dágaua.
Skulu þá allar bifreiðar og bifhjól úr Kenavikutr-, j
Hafna-, Miðness- og Gerða-hreppum koma til skoðunar
að húsi Stefáns Bergmanns bifreiðaeíganda..
I GRINDAVÍK: Miðvikudaginn 12. júní kk I—4
síðdegis, við verslun Einars í Garðhúsum. Skulu þasr
koma til skoðunar allar bifreiðar og biffejphúr Grintfa-
víkurhreppi.
í HAFNARFIRÐI: Fimtudaginn 13. júní oglosfu- i
daginn 14. júní kl. 10—12 árdegis og 1—6 siðdegís Mða i
dagana. Fer skoðun fram í Akurgerðispíniinu ogskulö j
þangað koma til skoðunar allar bifreiðar og bifTijali fe |
Hafnarfirði, og ennfremur úr Vatnsleysustrandar-,
Garða- og Bessastaða-hreppum. j
í REYKJAVÍK: Þriðjudaginn 18. júní kl. 10—12'1
árdegis og 1—6 síðdegis, Fer skoðun fram h já Bifreiða- 1
eftirlitinu (lögreglustöðinni), og skuSu þar koma ffl k
skoðunar allar bifreiðar og bifh jól úr K jósarsýslu.
Þeir, sem eiga farþegabyrgi á vorubií'reiðar, skulu |
koma með þau til skoðunar ásamt bifreiðum sínum.
Vanræki einhver að koma bifreið sinní eða bifhjölí J
til skoðunar, verður hann látinn sæta ábyrgð samkvæmt |
bifreiðalögunum.
Bifreiðaskattur, sem féll í gjalddaga þann 1. þ. m.,
(skattárið frá 1. júlí 1939 til 1. júli 1940), skoðunargjalá j
iðgjöld fyrir vátryggingu ökumanns, verður ina-81
heimt um leið og skoðun fer fram.
Sýna ber skilríki fyrir því, að lögboöin vátryggme
fyrir hverja bifreið sé í lagi.
Þetta tilkynntist hér með öllum, sem hlut eiga aS
máli, til eftirbreytni.
Sýslumaðurinn í Gullbringu- og K jósarsýslir
og bæjarfógetinn í Hafnarfirði, 2. júní 1940.
Bergur Jónsson.