Vísir - 10.06.1940, Blaðsíða 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
30. ár.
Þjóðveriar hafa sótt fram til Rouen.
Le Havre í hættu.
Annar§taðar á lígfstöðvnnnm
hafa Frakkar hindrað frekari
framsokn. — HaDiit|ón Þjððverja
upp iiiKlir 500.000. — Aý «ia$»-
skipan Weygands ^firhersfor-
iugrja.
40 merkir Bandaríkjamenn krefiast
þess, að Bandarikin iari i
með Bandamðnnnm.
striðið
Roosevelt birtir mikilvæga yfirlýsingu í útvarpsræðu í kvöld.
Fregn frá Washington hermir, að 40 merkir Bandaríkjamenn hafi lagt það til í
nýbirtri yfirlýsingu, að Bandaríkin segi Þýskalandi þegar í stað stríð á hend-
ur. Jafnframt hefir verið boðað í Washington, að Roosevelt forseti muni
flytja útvarpsræðu í kvöld, og er búist við mikilvægri yfirlýsingu frá hans hendi.
* i f ttm. -7U*.
EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS. — London í morgun.
Bardagarnir á vesturvígstöðvunum í gær voru heiftarlegri en nokkuru sinni fyrr.
SamkvæmtfregnumfráParís vartalið, að Þjóðverjar hefði sent fram alt það
lið, sem þeir hafa, eða alls 90—100 herfylki, þ. e. a. s. upp undir tvær miljónir
manna. Er ljóst af þessu, að þeir ætla að brjótast í gegn nú, án tillits til manntjóns og
hergagna. f París voru horfurnar taldar mjög alvarlegar, en þó ekki, að ástæða væri til
að örvænta. Þjóðverjar gerðu hvert áhlaupið á fætur öðru áýmsum hlutum vígstöðvanna,
bæði í gær og fyrradag, í fyrradag voru þau áköfust á miðhluta vígstöðvanna, en í gær
var tilkynt, að þeir hefði einnig gert stórkostleg áhlaup á Argonne-svæðinu, og hefir því
bardagasvæðið lengst til austurs. Skriðdrekasveitir þær, sem sótt höfðu fram á vestasta
hluta vígstöðvanna, Bresle-vígstöðvunum, tókst Frökkum að einangra og voru 300
skriðdrekar eyðilagðir fyrir Þjóðverjum. En samkvæmt seinustu fregnum hefir Þjóð-
yerjum tekist að sækja fram alla leið til Rouen og haldi framsókn þeirra áfram þar,
er hafnarborgin Le Havre í mikilli hættu. En það væri Bandamönnum hinn mesti
hnekkir að missa hana, því að nú, þegar Ermarsundshafnirnar í Frakklandi og Belgíu
<eru á valdi Þjóðverja, varð Le Havre þeim enn mikilvægari en áður, vegna herflutn-
inganna frá Bretlandi.
Annarsstaðar þar sem mest var barist í gær hefir
Frökkum tekist að koma í veg fyrir, að Þjóðýerjar sækti
fram að neinu ráði. Á Aísne-vígstöðvunum, þar sem
Þjóðverjar kömust yfir ána, gerðu Frakkar gagn-
áhlaup með góðum árangri,en á Argonnesvæðinu og víð-
ar, þar sem Þjóðverjar liafa teflt fram fótgönguliði í
þéttum fylkingum, hefir verið ógurlegt mannfall í liði
Þjóðverja og hergagnatjón mikið. Hermálasérfræðing-
ar giska á, að manntjón Þjóðverja þ. e. fallnir og særðir
— í sókninni undanfarna daga, sé upp undir hálf miljón.
Frakkar halda því fram, að Þjóðverjar leggi svo mikið
kapp á að brjótast í gegn, að þeir hafi orðið að tefla fram
varaliði, sem sé ekki „fyrsta flokks“ herlið.
Ekkert sannar betur hversu horfurnar eru alvarlegar en það,
að Weygand yfirherforingi gaf út nýja dagskipun til franska
hersins í gær. Dagskipanin var í líkum anda og sú, sem hann
gaf út fyrir skemstu. Hann fyrirskipaði hverjum einasta her-
manni að horfa að eins fram og hörfa ekki um fet. Weygand
fór viðurkenningarorðum um vaskleika hermannanna og dugn-
að, ómetanlega aðstoð breska og franska flughersins o. s. frv.
„En Frakkland krefst enn meira af yður,“ sagði hann. „Yfirfor-
ingjar, undirforingjar og óbreyttir hermenn, beitið öllum hæfi-
leikum yðar og atorku í baráttunni. Óvinaherinn hefir hafið
lokatilraun til þess að brjótast í gegn — víkið ekki um fet.“
í yfirlýsingu þeirra 40 merku Bandaríkjamanna, sem að framan er að vikið, segir m. a., að Banda-
ríkin geti ekki sent Bandamönnum nægilega mikið af hergögnum og nægilega fljótt, meðan þau
séu hlutlaus í styrjöldinni.
Meðal þeirra Bandaríkjamanna, sem skrifað hafa undir áskorunina er rithöfundurinn Lewis
Winford, William Stahdley, sem áður gegndi einu mikilvægasta embætti í flotamálastjóra Banda-
ríkjanna, og ritstjóri Lousville Courier, William Hessler.
Tilkynning var birt í Hvíta húsinu (forsetabústaðnum) varð-
andi ræðu þá, sem Roosevelt flytur í kvöld. Ennfremur var til-
kynt, að forsetinn hefði ákveðið í gærkvöldi, að fara frá Was-
hington snemma í dag, til þess að vera viðstaddur uppsögn Vir-
giniaháskóla í Charlottesville, en þá fara fram heræfingar.
Einkaritari Roosevelts komst svo að orði við blaðamenn: „Eg
tel yður óhætt að skýra frá því, að forsetinn muni birta mikil-
væga yfirlýsingu varðandi afstöðu Bandaríkjanna til styrjald-
arinnar.“
Talið er að ræða forsetans standi yfir í að minsta kosti tíu mín-
útur. Hún verður þýdd á sjö tungumál og útvarpað á ný og
endurvarpað víða um lönd.
í Bandaríkjunum kemur það æ skýrar í ljós, að samúðin með
Bandamönnum er hratt vaxandi. Blöðin ræða mörg hvort Banda-
ríkin ætti að fara í stríðið. Stimson, fyrrverandi utanríkismála-
ráðherra Bandaríkjanna, hefir opinberlega hvatt til þess, að
Bandaríkin veitti Bandamönnum miklu meiri stuðning en þau
hafa gert til þessa.
Allir breskir hermálasérfræð-
íngar bíða milli vonar og ótta
fréttanna, sem berast af orustu
þeirri, sem nú stendur yfir í
Norður-Frakklandi, og ber þeim
öllum saman um að þetta sé
stórkostlegasta orusta, sem
nokkuru sinni hafi verið háð í
heiminum, bæði að því er snert-
ir fjölda hermanna og dráps-
tæki þau, sem þar er beitt. Her-
málasérfræðingarnir hafa látið
þá skoðun sína í ljós, að hættan
sé stórkostleg, en margir þeirra
telja að sókn Þjóðverja muni
kikna undir eigin þunga, og
kveðast vera vongóðir um úr-
slitin, þótt engu verði um þau
spáð með fullu öryggi fyrr en
orustan hafi náð hámarki, en
Iþað telja þeir að muni ske nú í
dag.
Hermálasérfræðingur Times
kemst m. a. svo að orði, að aldrei
hafi Frakkland verið í jafn stór-
kostlegri hættu og nú. Atburðir
heimsstyrjaldarinnar séu barna-
leikur miðað við þá orustu, sem
nú stendur yfir, og hættan hafi
aldrei þá komist í hálfkvisti við
það, sem hún sé nú. Þessi stór-
kostlega hætta aukist með hverri
stundu sem líður, hver sem úr-
slitin kunni að reynast að lokum.
Bretar leggja nú megináherslu
á það, að efla varnir sínar heima
fyrir, meðan enn gefst tími til
og stórorustur *standa yfir í
Frakklandi, og miða þessar ráð-
stafanir allar að því að, tryggja
landið gegn innrás. Gaddavírs-
girðingum hefir víðsvegar verið
komið upp, ennfremur sand-
pokagirðingum og vélbyssu-
hreiðrum, um landið þvert og
endilangt, og fjölgar slíkum
vígjum með hverri stund er
líður.
Búast menn við að allar þess-
ar ráðstafanir verði ræddar á
lokuðum fundi í neðri málstofu
breska þingsins sem haldinn
verður á morgun, og að Churc-
hill hefji umræður um mál-
ið þar í deildinni, en Anthony
Eden muni reifa það frekar á
eftir honum. Chamberlain mun
síðar í vikunni halda ræðu, og
gefa yfirlit um gang styrjaldar-
innar.
London í morgun.
Lundúnablöðin í morgun
ræða viðureignirnar í Norður-
Frakklandi og láta yfirleitt í
Ijós ánægju yfir þvi, hve vel
Weygand hershöfðingja hafi
tekist að liefta hina ofsalegu
framsókn Þjóðverja.
„Daily Telegraph“ lýsir j>ess-
um viðureignum og kallar þær
mestu orustur veraldarsögunn-
ar. —
„Weygand tilkynti her sin-
uni í gær, að sókn Þjóðverja
næði nú alla leið frá sjó, aust-
ur til Montmédy, og að í dag
myndi sóknin að öllum líkind-
um ná alla leið til Sviss. I París
er það áætlað, að Þjóðverjar
hafi IV2—2 miljónir manna á
vígstöðvunum, auk vélaher-
sveitanna. Þetta er einhver stór-
kostlegasta sókn, sem sögur
fara af. Breiðar fylkingar
skriðdreka sækja fram, en á eft-
ir þeim sækja miklar fylkingar
af „fallbyssufóðri“, sem, nas-
istastjórnin rekur hlindandi út
i tortímingu. Það er óþarfi að
lilaða lofi á hina dæmalausu
vörn Frakkanna. Þeir hafa hlýtt
boði Weygand’s og hörfa aftur
skref fyrir skref, ef þeir geta
ekki haldið stöðum sínum, en
það gera þeir, meðan mannleg-
ur máttur megnar. Breski loft-
herinn lierjar á baksveitir óvin-
anna og liggur ekki á liði sínu.
1918 fyrirskipaði Foch mar-
skálkur að undanhaldið ætti að
vera skref fyrir skref. Á þessu
ári er barist á sömu vigstöðv-
um og dagsskipun hershöfðingj-
ans er mjög lík. Orustan hefir
verið kölluð „orustan um
Frakkland“ og hver einasti
franskur og breskur hermað-
ur veit, hvað i húfi er. En óvin-
unum hefir enn ekki tekist að
rjúfa varnarlínuna, þrátt fyrir
gifurlegar fórnir. Þeir hafa orð-
ið að kaupa það landssvæði,
sem þeir hafa unnið, dýru verði.
Þjóðverjum er það ljóst, að tak-
ist þeim ekki að hrjótast í gegn
nú, hiða þeir fyr eða siðar
hroðalegan ósigur. En með
hverri klukkustundinni sem
líður, verður erfiðara fyrir þá
að halda sókninni áfram með
sama krafti, þvi að stöðugt
dynja árásirnar á samgönguæð-
ar þeirra og það lið, sem á að
leysa af og hvíla liðið, sem
fram sækir. Weygand hers-
höfðingi þykist þess fullviss, að
sóknin sé senn um garð geng-
London i morgun.
„Minnumst þess, hvernig fór
1918“, segir News Chronichle i
foiystugrein í morgun. „Sú
sókn Þjóðverja, sem nú stendur
yfir, er liin gífurlegasta sókn,
sem veraldarsagan getur um.
Þó að aðstaða Frakklands sé
engan veginn vonlaus, þá er
hún mjög alvarleg. En einmitt
það, hve sóknin er ofsafengin,
sýnir, að Ilitler teflir nú fram
öllu sínu liði til fullra úrslita.
Ilann teflir um alt eða ekkert—
líf sitt eða dauða. Hann vonast
til að geta unnið lokasigur fyrir
haustið."
„Daily Herald“ hirtir grein,
sem nefnist „Orusta miljón-
anna“, og segir þar m. a.:
„Nú er sjötti morgun hinnar
ægilegu viðureignar i Norður-
Frakklandi. Það er nú kunnugt
orðið, að Frakkar hafa orðíð
að hörfa undan á nokkrum,
stöðum á mið- og vestur-víg-
stöðvunum. Þetta var óumflýj-
anlegt. Óvinirnir hafa eytt svo
mildu af mönnum og liergögn-
um, að vitað var fyrir víst, að
þeim myndi einhversstaðar tak-
ast að brjótast fram. En ef liver
ldlómetar á að kosta þá sama
mannfall og verið hefir, hve
langt tekst þeirn þá að sækjg
með sama krafti?“
De Veleri flytur riu
um íire 09 styrjöldiua.
Einkaskeyti frá United Press.
London i morgun.
De Valera flutti ræðu i gær
og var henni útvarpað um alt
fríríkið. Gerði hann að umtals-
efni Eire og styi'jöldina og
kvað stjórnina hafa fullan liug
á að gera það, sem i liennar
valdi stæði til þess að koma i
veg fyrir, að írland yrði orustu-
völlur. Hefði því verið gripið
til viðtækra varúðarráðstafana,
herinn aukinn o. s. frv. De Val-
era hvatti menn til þess að
ganga i herinn, sjálfhoðavarnar-
liðssyeitir, og yfirleitt verða
stjórninni til aðstoðar á allan
liátt, til þess að vernda hlutleysi
landsins og verja það, ef þörf
krefur. De Valera kvað marga
ihúa landsins ekki hafa gert sér
nægilega Ijóst, hver hætta væri
á ferðum og hað alla landsmenn
vera vel á verði gegn hverskon-
ar liættum, sem að steðja.
Hafa Þjóðverjar
sökt bresku ílug-
vélamóðurskipi ?
Einkaskeyti frá United Press.
London i morgun.
Þjóðverjar tilkyntu í lok sið-
ustu viku, að þeir hefði sökt
hresku flugvélastöðvarskipi, en
hreska flotamálaráðuneytið hef-
ir ekki enn gert þessa staðhæf-
ingu Þjóðverja að umtalsefni i
tilkynningum sínum. Það er þó
kunnugt orðið að til viðureignar
á sjó hefir komið milli Breta og
Þjóðverja, því að henni er vik-
ið i tilk. flotamálaráðuneytisins
í gærkveldi.
Viðureignin átti sér stað i
Norður-Atlantsliafi (i nánd við
ísland?) s.l. laugardag.
Fregnir hafa borist um, að
Hákon Noregskonungur hafi
■efið fyrirskipanir um, að
hætta mótspyraunni gegn
Þjóðverjum, þar sem Banda-
menn geti ekki veitt Norð-
mönnum hernaðarlegan
stuðning lengur.
Brottflutningur herliðs
Bandamanna frá Narvik og
öðrum stöðum í Norður-Nor-
egi er hafinn og Hákon Nor-
egskonungur og fjölskylda
hans komin til Englands. —
Friðarsamningar eru byrjað-
ir í Noregi.
3. flokks mótið
heldur áfram í kvöld. Kl. 8 keppa
þá Fram og Víkingur og kl. 9 K.R.
og Valur.