Vísir - 24.07.1940, Qupperneq 2
VlSIR
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson
Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar 1660 (5 Iínur).
Verð kr. 2.50 á mánuði.
Lausasala 10 og 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan h/f.
Landbúnaðar-
plágurnar.
pLÁGUR þær, sem gengið
liafa yfir landbúnaðinn á
síðustu árum, hafa opnað augu
manna fyrir þvi, hve hættulegt
það getur verið, er fáfræðin
og fyrirliyggjuleysið hvetur til
framkvæmda. Nýmælagjarnir
menn höfðu uppgötvað það.sem
flestum hafði verið kunnugt
um langan aldur, að loðvara
og feldir seldust sæmilegu
verði á erlendum markaði, og
þeim hugkvæmdist að ausa af
þessari auðlind. Ræður eru
haldnar á þingi og utan þings,
skrifað í" blöð og bumbur barð-
ar, alt i því augnamiði að
hrinda málinu í framkvæmd,
festa kaup á dýrum og flytja
þau til landsins. Þótt einstaka
'hjárórha rödd heyrist, — rödd
þeirra manna, sem vit hafa á
þeim málum, sem um ræðir, —
er hún þögguð niður, með því
að hún sé þjóðinni fjandsam-
leg. GuIIæðið hefir gripið um
sig. Allir vilja fá erlend loðdýr
til ræktunar. Fátækir bændur
fá fé að láni, veðsetja bújarðir
og bústofn, til þess að koma
sér upp nýjum stofni, sem fær-
ir þeim þúsunda gróða, en
þjóðinni miljónir króna í er-
lendum gjaldeyri vegna sölu
skinnanna. Allt hljómar þetta
vel í eyrum, menn eru auðtrúa
um það, sem þeir ekki þekkja.
Hvatamenn þessa nýja atvinnu
vegar eru lofsamaðir, fá jafn-
vel fálkakrossa og opinberar
viðurkenhingar, en karakúl-
fénaður, minkar og úlfhundar
er flutt inn í landið.
Tíminn líður og menn upp-
skera eins og þeir sá. 1 stað
dindillangs, feits og bætts fjár-
- stofns, sem gengur svo til sjálf-
ala í úthögunum, kemur upp-
dráttarsýki í þann innlenda bú-
stofn, sem fyrir var, — eftir að
karakúlfénaðurinn er dauður,
og svo vendilega hefir jafnvel
verið frá honum gengið, að
honum hefir verið sökt í salt-
an mar, til þess að tryggja það,
að dauður geti hann ekki unn-
ið þau spjöll, er liann vann í
lifanda lifi. En uppdráttarsýk-
in í innlenda fjárstofninum
heldur áfram og breiðist óð-
fluga út. Erlent girðingarefni
er keypt inn í landið fyrir of-
fjár,, þrátt fyrir gjaldeyrisskort
og vandræði, girðingum komið
upp um landið þvert og endi-
langt ,frá annnesjum til afdala,
jafnvel þvert yfir öræfin, og
hópur manna fær við það sum-
aratvinnu, að gæta girðing-
anna, en alt kemur fyrir ekki.
Sýkin breiðist út, fénaðurinn
hrynur niður, ræflarnir liggja
úti um hagann í tuga og hundr-
aða tali, margir bændur missa
allan fjárstofninn og fara á
vonarvöl, svo að eitthvað verð-
ur ríkið að gera. Ráðið liggur
i augum uppi. Nú ber að auka
loðdýraræktina, kaupa minka,
sem aukast og margfaldast eins
og rottur, þannig, að afkvæmi
þeirra verða fyr en varir eins
og sandur á sjávarströnd.
En minkarnir eru þégar tekn
ir að sýna eðli sitt. Nokkrir
Samtrygging á iast-
eignnm og vörnbirgðnm
vegna ófriðartjðns.
Ríki§stjórnin afgrreiðir itiálið næitn
dagra.
Strax eftir dð Island hafði verið hernumið tók ríkisstjómin
til athugunar á hvem hátt mætti tryggja eignir borgaranna gegn
tjóni, sem verða kynni sökum ófriðarathafna hér í landi, og fól
tveimur sérfræðingum í tryggingarmálum að rannsaka málið og
koma fram með tillögur í þessu efni. Voru það forstjóramir, Ás-
geir Þorsteinsson og Brynjólfur Stefánsson, sem málið fengu til
athugunar, og hafa þeir lagt skýrslur sínar fyrir ríkisstjómina.
tll.slicrjarmót I. S. f.
Gunnar Huseby sigrar
í kúluvarpi.
þeirra hafa verið fluttir i
hænsnakassa austur yfir heið-
ar, á vörubíl, eins og annar
farangur, en kassinn lætur illa
á hifreiðinni, hrekkur af og
brotnar, en minkarnír verða
frelsinu fegnir og hverfa út í
veður og vind. Ekki er lield-
ur örgrant um, að einliverjir
liafi farið úr minkabúunum,
sem þegar eru upp komin, í
landkönnunarferðir um hraun
og fjalllendi Reykjanesskag-
ans, en þar kvað slíkum dýr-
um þykja fýsilegt til dvalar.
Nokkur þessara dýra sáust
fyrir tveimur árum við sport-
veiðar í nokkrum fiskiám
landsins, og öðrum sást bregða
fyrir á heiðunum, en er hausta
tók, urðu þau mannblendin og
fóru í heimsókn til Hafnar-
fjarðar. Þar voru hsqnsnabú,
hundar og kettir, og hófst nú
ófriður mikill millum þessara
liúsdýra, sem lyktaði með
miklum liænsnadauða í Hafn-
arfirði. Athygli var vakin á
því, hverju fram fór, og rík-
isstjórnin lét málið til sín taka
og skipaði minkaskyttu í Hafn-
arfirði. Vó hún þriggja þuml-
unga mink, og siðan hefir ver-
ið hljótt um Hafnarfjörð, þar
til í sumar, er „úlfhundarnir“
komu til sögunnar. Þeir voru
fluttir inn til höfuðs minkun-
um, en átu allmargar kindur,
sem Hafnarfirðingar áttu, og
skemdu aðrar.
Þætti „úlfhundánna“ er lok-
ið og minkarnir hafa flutt sig
um set. Nú sitja þeir að veiði
i Elliðaánum, upp við Silunga-
poll og í öllu hrauninu ofan-
vert við Elliðavatn. Sjást þar
fuglshamir víða, og minkarn-
ir hafa það til, að koma í
heimsókn i sumarbústaði í ná-
grenninu og vera þar að leikj-
um, eða fagna þar sólarupp-
komunni eða fyllingu tungls.
Minkarnir kváðu hafa tímg-
ast prýðilega, og þessi litlu og
laglegu dýr skjótast um urðir
og lautir, sæ og vatnsföll í sak-
lausum leik við silung og lax,
endur og æðarkollur.
En sumir bölsýnir menn
telja ekki ósennilegt, að sil-
ungi og laxi megi útrýma með
slíkum leik, jafnvel öndum og
Eins og málið liggur fyrir
virðist aðallega um tvær leiðir
að velja. í fyrsta lagi að koma á
allsherjar samtryggingu, þar
sem fasteignir um land alt væru
trygðar, og tryggingargjaldinu
yrði dreift á nokkurra ára bil,
þannig að það yrði ekki um of
þungbært fyrir greiðendur. Ef
til ófriðarathafna dregur hér á
landi, sem elcki er óhugsandi,
er ómögulegt um það að segja,
hvar tjón kann að verða, og
yrðu því tryggingarnar að ná til
landsmanna allra, en ekki ein-
stakra kaupstaða eða kauptúna.
í öðru lagi gæti komið til
greina, að setja ekki að svo
komnu máli sérstaka löggjöf
um slikar almennar tryggingar,
en híða átekta, og leggja síðar á
sérstakan skatt, til þess að bæta
mönnum upp eignatjón, sem
verða kann. iÞessa leið hafa
Finnar valið, og sýnist hún hafa
margt til síns ágætis umfram
hina, að öðru leyti en því, að
frekari dráttur kann að verða á
endurreisnarstarfi, ef hún er
valin, en ef tryggingum hefir
æðarkollum, þannig, að ís-
lenskir bændur geti ekki hag-
nýtt sér dún í sængur og
svæfla, eða lagt sér lax eða
silung til munns. En þetta er
eðlileg lífsvenjubreyting í fullu
samræmi við hinn nýja tíma.
verið komið á, sem hlýtur þó
einnig að taka allverulegan
tíma, þar til þær eru komnar í
fast horf.
í þessu sambandi kemur einn-
ig til athugunar, hvort ekki sé
.sjálfsagt, að tryggja vörubirgðir
þær, á sama hátt, sem fyrir-
liggjandi eru í landinu, en það
mál þarf sérstakrar athugunar
við, og verður vafalaust erfitt
að koma slíkum tryggingum
fyrir. Engu að síður virðist ó-
hjákvæmilegt að gera fullnægj-
andi ráðstafanir í því efni einn-
ig- —
Rikisstjórnin hefir afgreiðslu
málsins með höndum þessa
dagana, og er bráðlega að
vænta endanlegra ákvarðana,
hvor leiðin, sem valin kánn að
verða.
Happdrætti
fyrir sveitadvöl Reykjavikur-
barna hefir verið komið af
stað. Rauði krossinn hefir séð
um þetta happdrætti. Það þarf
að selja 10 þúsund miða, en eitt-
hvað er óselt af þeim enn þá. —
Besti drátturinn er gæðingur,
sem var í happdrætti Fáks. En
auk hestsins eru margir góðir
drættir. Ættu bæjarbúar nú að
sýna góðvild sýna og kaupa alla
miðana upp, því með því styðj-
ið þið gott málefni.
Kúluvarpið.
Kepnin i gærkvöldi hófst á
kúluvarpinu. Fyrir alla þá sem
hafa áhuga fyrir köstum, var
kepnin spennandi, því svo jafn-
ir voru bestu kastararnir. Mátti
lengi ekki á milli sjá hver sigra
myndi, en leikar fóru jx') svo, að
hinn 16 ára gamli og bráðefni-
legi kastmaður, Gunnar Huseby
(K. R.) bar sigur úr býtum með
13.14 m. löngu kasti, en metið er
13.74 m„ sett af Kristjáni Vatt-
nes (K. R.) 1938. Kristján var
meðal þátttakenda í gær, varð
3. í röðinni og kastaði 12.72 mtr.
Annar varð Sigurður Finnsson
(K. R.), kastaði 13.02 m„ en
4. varð Sveinn Stefánsson (Á.),
kastaði 12.12 m. Þátttakendur i
kúluvarpinu voru 8.
200 m. hlaup.
Undanrásir í hlaupinu höfðu
farið fram kl. 6% í gær og kom-
ust Sveinn, Ólafur Guðmundss.,
Sigurður Guðmundsson og Jó-
liann Berhard í úrslit. Lauk
þeirri kepni svo, að Sveinnlngv-
arsson (K.R.) varð fyrstur á23.9
sek. 2. varð Jóhann Bernhard,
mjög efnilegur iþróttamaður,
sem sækir i sig veðrið með
hverju árinu sem líður. Rann
hann skeiðið á 24.1 sek. Þriðji
varð Borgnesingurinn Sigurður
Guðmundsson, bráðléttur i-
þróttamaður, sem keppir nú í
fyrsta sinni hér í Reykjavík og
með ágætum árangri, enda þótt
hann sé óvanur vellinum með
öllu. Tími Sigurðar var 24.4 sek.
Fjórði í röðinni varð Ólafur
Guðmundsson (Í.R.), hljóp á
25.0 sek. Metið á Sveinn Ingv-
arsson (Iv.R.) á 23.1 sek„ sett
1938.
1500 m. hlaup.
Sú kepni yar ekki spennandi,
þvi svo voru yfirburðir sigur-
vegarans, Sigurgeirs Ársælsson-
ar (Á.) miklir. Sigurgeir er ekki
aðeins búinn að skipa sér sæti
meðal bestu hlaupara landsins,
Sveinn fyrstur að marki,
VerSlaunaafhending.
Erlendur Pétursson og 3 fyrstu
menn i 1500 metra hlaupi.
heldur og meðal bestu íþrótta-
manna okkar i heild. Hann er
i stöðugri framför, still hans
léttur og fagur, og með góðri
æfingu má mikils af honuni
--- irvid Ekman: --------------------
í greipum gullæðisins 1931 og síðar.
„Ástin mín! Eg vil að þá minnist mín ein's og
eg var, en sjáir ekki hvílík eijjahræða eg er nú
orðinn. Flugur og maurar hafa, ef eg svo má segja,
étið ajidlitið á mér. Eg get ekki varist þeim lengur.“
Harry.
Þannig hljóðaði kafli úr bréfi
landkönnuðar, sem lagði leið
sina um eyðimerkur Ástraliu.
Gullið hefir frá upphafi vega
vakið trylta löngun mannanna
til þess að leita þess og afla.
Fréttir um fund gullnámu hafa
leitt til jress að fjöldi manna
liefir horfið frá störfum sínum,
en lagt af stað út í þurra og eld-
heita eyðimörkina, eða haldið til
snjóbreiðanna 1 Alaska, norður
fyrir heimskautsbaug, i þeirri
von að finna hinn gylta málm.
Sumum hefir hepnast þetta, en
þau hafa orðið þúsunda örlög,
að bein þeirra hafa orðið skinin
af eldheitum sólargeislum á
eyðimörkunum í Ástralíu eða
í fjalllendi Alaska.
Harry Lasseter var í rauninni
fæddur gullleitarmaður, og alla
ævi sína var hann að leita að
þessurn málmi. Á æskuárum
fann hann gullauðuga námu í
eyðimörkum Mið-Ástraliu, er
hann var þar að grafa og leita
að rubinum. Svo viltist hann í
eyðimörkinni, hestarnir hans
liorféllu, og að lokum fanst hann
nær dauða en lífi af þreytu og
þorsta, en þrátt fyrir það vildi
hann alt til vinna, að finna gull-
námuna að nýju.
Er hann hafði náð sér eftir
þessar svaðilfarir fór hann til
Vestur-Australíu, til þess að fá
auðuga menn til að leggja fé
fram, þannig að rannsókn gæti
fram farið á gullnámunni hans.
Þrjátiu ár liðu þó samt, án þess
að honum tækist þetta, en að
lokum tókst honum að safna i
Sidney 5000 pundum í þetta
fyrirtæki. Leiðangur varð gerð-
Ur úr garði, með hinum full-
komnustu tækjum. Flutninga-
bifreiðar, flugvél, loftskeyta-
tæki og ýms áhöld til rannsókn-
ánna fékk hann meðferðis, og
sex sérfræðinga í gullrannsókn-
um, en leiðangrinum stjórnaði
hann sjálfur.
Dág nokkurn í janúar 1931
Iagði leiðangurinn af stað til
„Alice Springs“, sem er ysta
stöð hvítra manna við eyði-
mörkina, þar sem innbyggjarn-
ir ráða lögum og lofum. Þar réði
leiðangurinn negra sem mat-
svein, og átti hann einnig að
vera leiðsögmaður og túlkur, ef
nauðsyn krefði. Laseter hafði
sjálfur eytt miklum hluta af ævi
sinni í eyðimörkinni og talaði
ýmsar málískur innbyggjanna.
Fyrst framan af gekk alt að
óskum. Bifreiðin ekur í gegnum
grasbreiðuna, gegnum brunnin
svæði skógarelda, eftir þornuð-
um árfarvegum, og skóga, sem
þeir urðu að ryðja bifreiðinni
veg í gegnum. Það kom brátt í
ljós að Billy, en svo kölluðu þeir
kokkinn, dugði til litils sem leið-
sögumaður, er hann var kominn
út úr svæði því, sem ættflokkur
hans hafðist við á.Villimennirn-
ir á svæði því, er nú nefnist La-
setersland, eru fjandsamlegir
hvítum mönnum og gera þeim
alt til miska. Þeir eru viltir i
orðsins fylsta slcilningi, og nota
ekki einu sinni steinvopn.
Spjótsoddana herða þeir í eldi,
en þeir eru úr tré, og land þeirra
er eyðimörk eða fjalllendi erfitt
yfirferðar, enda hafa fáir hvítir
menn komið þangað. Þarna auk-
ast ei’fiðleikarnir stöðugt og
ferðin dregst svo á langinn, að
tveir sérfræðinganna verða að
hverfa til vinnu sinnar í Sidney
að nýju. Einn góðan veðurdag
voru þeir alt í einu komnir í ó-
göngur og urðu að snúa við.
Snarbratt fjall varð fyrir þeim
og umlukti þá á þrjá vegu. Bif-
reiðin komst ekki lengra og leið-
angursmennirnir neituðu að
halda áfram. Þeir voru orðnir
fullsaddir á ferðinni. Kortin,
sem þeir höfðu meðferðis voru
öll vitlaus, en hið versta var að
innbyggjarnir voru þeim fjand-
samlegir, og höfðu tendrað bál
víðsvegar, til þess að gefa öðrum
ættbálkum til kynna að hvítir
menn höfðu brotist inn í landið.
Lasseter ákvað að halda einn á-
fram hvað sem það kostaði.
Hann keypti tvö múldýr af
veiðimönnum, er hann rakst á,
og klyf jaði þau með öllum nauð-
synjum og nokkurra vikna
forða, en kvaddi þvínæst félaga
sína og skrifaði konu sinni bréf
með þeim.
Kvöld eitt er Lasseter hafði
farið af baki til þess að búa sér
næturlægi, gleymdi hann að
hefta múldýrin, eins og ferða-
menn gera altaf í Ástralíu.
Múldýrin leituðu sér að æti og
reikuðu um nágrennið. Þegar
hann var að kveikja upp eldinn
þýtur spjót að honum, og nokk-
urir strútar (emus: í ætt við
strúta) þjóta upp við það skelfd-
ir. Múldýrin fælast og hverfa út
í veður og vind með allan far-
angurinn, og þótt Lasseter kalli
á eftir þeim, hlýða þau ekki kall-
inu, og öll viðeiltni hans til að
ná í þau reynist árangurslaus.
Hann stendur einn eftir í eyði-
mörkinni, án matar, vatns og
vopna, að því undanteknu að
hann hafði á sér eina skamm-
byssu, litla.
Hvað Lasseter hefir hafst að
úr þessu er allsendis óljóst, en
af hálfsviðnum blöðum úr dag-
bók hans, sem fundust undir
öskunni, á einum staðnum þar
sem hann hafði kynt bál að næt-
urlagi, og af bréfi, sem fanst til
konu hans, mátti sjá, að ham>
fann gullnámuna sína aftur,
merkti svæðið, en liann bjóst
við að svertingjarnir myndu
eyða öllum vegsummerkjum,
með þvi að staðurinn var {xíim
heilagt fórnarsvæði, sem hvitur
maður hafði séð og saurgað með
návist sinni. Ennfremur mátti
sjá að í tvo mánuði liefir hann
þvælst um með villimönnunum,
lifað af kosti þeirra og drukkið
fúlnað vatn. Hann segist vera
fárveikur af hitasótt og sand-
blindu. Hann getur ekki fylgst
lengur með villimönnunum, og
veit að þeir telja liann dauðans
mat og vilja þvi ekki gefa hon-
um lengur að borða. Hann lagð-
ist því niður undir tré, til þess
að bíða dauða sins, en í börkinn
hafði hann rist leiðbeiningar
um hvar dagbólc hans væri að
finna.
Bob Buck veiðimaður fann
hann seinna, þar sem liann lá,
með skammbyssuna við hlið sér.
Hann fann gullið sitt, en komsf
aldrei heini aftur.
Tveir Ieiðangrar hafa reynt að
finna gullnámu Lasseters, en
þeir hafa aldrei komið aftur, en
orðið fórn villimannanna, sem
sitja í launsátrum með spjótin
sín, eða farist af vatnsskorti i
eyðimörkinni. Þrátt fyrir það
krefst eyðimörkin vafalaust
nýrra fóma vegna gullæðisins,
sem er jafntrylt í dag og það
hefir ávalt verið.
(Lauslega þýtt).