Vísir - 24.07.1940, Qupperneq 3
VISIR
SUMARFÖT
Það verða allir í sólskinsskapi, sem eru í ÁLHFOSS
SUMARF ÖTUM FRÁ ÁLAFOS Sa Þingfaoltsistrœti 2.
W erkamanna-
hústaðir.
vænta. 1 gær rann hann skeið-
ið, án allrar verulegrar sam-
kepni, á 4.14.2 mín., eða rúmum
3 sek. yfir metinu, sem Geir
Gígja (K.R.) á frá 1927 (4.11.0
mín.). Allhörð lcepni varð á
milli Everts Magnússonar (Á.)
og Indriða Jónssonar (K.R.) um
2. og 3. sætið. Lyktaði henni
með sigri Everts, er hljóp vega-
lengdina á 4.23.2 mín., en Ind-
riði hljóp liana á 4.25.2 min. —
Fjórði varð Ólafur Símonarson
(Á.), 4.28.4 mín.
Hástökkið.
í þvi keptu margir góðir og
vanir hástökkvarar, þeirra með-
al methafinn Sigurður Sigurðs-
son (I.R.), metið er 1.85 m.,
sett 1938), Sigurður Nordahl
(Á.), og fleiri. Leikar fóru
þannig, að Sigurður sigraði með
170 cm. stökkhæð. Hann gerði
tilraun til að stökkva 1.75, en
mistókst. Sigurður. Norðdalil
varð annar, stökk 1671/! cm. í
þriðja sætið komst nýr maður,
Hafnfirðingur,efnilegur stökkv-
ari, Oliver Steinn að nafni.
Hann slökk 162 cm. og mun
siðar, með góðri æfingu, geta
bætt miklu við þá hæð. Oliver
virðist einnig vera skápaður fyr-
ir hlaup, og eftir líkamsbygg-
ingu lians að dæma mætti vænta
nokkurs árangurs af honum, á
því sviði. Fjórði maður var
hinn 16 ái’a gamli kastmaður
K.R.-inga, Gunnar Huseby.
Hann stökk 153 cm.
110 m. grindahlaupið.
Þátttakan var léleg, enda er
grindalilaupið einhver vanrækt-
asta íþróttagrein í frjálsum i-
þróttum hér á landi, og sjaldn-
ast náðst góður árangur í því.
Metið á Ólafur Guðmundsson
(K.R.) á 17.0 sek., sett 1937. 5
þátttakendur keptu að þessu
sinni. Fyrstur varð Jóliann Jó-
liannesson (Á.) 17.8 sek., 2.
Sigurður Nordalil (Á.) 19.5 sek.
3. Guðm. Sigurjónsson (Á.)
20.1 sek. og 4. Anton Björns-
son 20.9 sek.
10 km. kappgangan.
I henni voru einnig 5 þátt-
takendur. Haukur Einarsson
(K.R.) er methafi í kappgöng-
unni. Metið er sett 1937 á 52:-
48.2 mín. Hann sigraði með
miklum yfirburðum i gær á
56:16.6 min. Er það í 13. sinn,
sem Haukur hefir kept í kapp-
göngu og ávalt sigrað. Annar
varð Jóhann Jóhannesson (Á.)
60.45.2 mín. 3. Ólafur Simonar-
son (Á.) 62.26,8 mín. og 4. Hall-
dór Sigurðsson (Á.) 64.14.0
min.
Stig.
Eftir daginn í gær standa stig
mótsins þannig: K.R. 94 stig.
Ármann 63 stig, Í.R. 20 stig.
Fimleikafélag Hafnarfjarðar 8
stig og U.M.F. „Skallagrímur“
í Borgarnesi 7 stig.
Félag lömunar-
veikissjúklinga.
í ráði er að stofna félagsskap
lömunarveikissjúklinga, sem
eru útilokaðir frá allri erfiðis-
vinnu. Mun þessi félagsskapur
stuðla að því, að þeir fái vinnu,
sem er við þeirra hæfi. Einnig
mun félagið sjá urn kaup á efni,
sem þeir þurfa að nota til vinn-
unnar, og leiðbeina þeirn í öllu,
sem þessu viðvíkur. Þetta félag
mun verða með líku sniði og
Blindravinafélagið. Annars er
auglýsing í hlaðinu í dag, sem
gefur lilutaðeigendum nánari
upplýsingar viðvíkjandi þessu.
Blöðin hafa getið um hin
skrautlegu, nýbygðu hús inni í
Rauðarárholti, sem kölluð eru
verkamannabústaðir. Það er
satt, að húsin eru fögur og vel
gerð og á prýðisfögrum stað og
væri ánægjulegt ef verkamenn
liefðu yfirleitt efni á að búa í
slikum húsum. En hver er sá,
sem þorir að halda þvi fram, að
árstekjur Reykvískra verka-
manna leyfi þeim slíkan luxus?
I slíkum húsum geta ekki aðrir
búið en fastráðnir menn með'
sæmilegum launum.
Eg er ekki að álasa stjórn fé-
lagsins, sem hefir séð um bygg-
ingu húsanna, jx> húsin hafi orð-
ið dýr. Henni hefir tekist miklu
betur um allar framkvæmdir
heldur en hægt var að búast við
á slikum vandræðatímum. En
eg álasa þvi opinbera, ríki og
bæ, sem leggur fram féð til þess-
ara bygginga, sem eiga að vera
fátækum mönnum til hjálpar,
mönnum, sem annars eiga enga
úrkosti að eignast sæmilega
íbúð, fyrir það fyrirliyggjuleysi,
sem sýnt hefir verið, og að ekk-
ert skuli hafa verið lært af öm-
urlegri reynslu undanfarinna
átta ára.
Eg er einn af þeim fyrstu,
sem eignaðist íbúð í verka-
mannabústöðunum og gæti því
talað af nokkurri reynslu. Eg
hefi margsinnis reynt að benda
á það, sem mér finst ábótavant,
en að mestu :án árangurs. Eg var
strax hrifinn af hinum fögru
loforðum um, að hjálpa þeim,
sem hjálpar þurftu. En reynslan
liefir í flestum tilfellum orðið
hjálp til þeirra betur stæðu, sem
margir gátu komist af án hjálp-
ar.
Þessu mótmæli eg og skal
altaf halda áfram að mótmæla,
þar til úr verður bætt. Eg mót-
mæli því, að hjálpinni verði
rænt frá þeim fátæku, sem
nauðsynlega þurfa liennar með,
til hagsbóta fyrir þá betur stæðu.
Þjóðfélagið varðar um hvern
einasta þegn, hvort það er harn
eða fullorðinn, að liann hafi
sæmilega afkomu eftir því, sem
við verður komið, og að hann
eigi frjálsa leið til þroska og
fullkomnunai’. Annað er ósann-
girni og heimska, þvi þjóðfélag-
ið er til fyrir þegnana en ekki
þegnarnir fyrir þjóðfélagið. Það
er hagsýni að hefja menn upp úr
skítnum og gera þá sjálfstæða,
en heimska að láta það ógert.
Það sem lagfæra þarf er m. a.
þetta:
Gerð og fyrirkomulag verka-
mannabústaðanna verður að
miða við þörf og getu láglauna
verkamanna, sem eiga að njóta
ibúðanna.
Gera þarf ráðstafanir til að
reksturskostnaður og hitun hús-
anna lækki, en það hefir hvort-
tveggja reynst óviðunanlega
mikið.
Gera þarf ráðstafanir til að öll
afskifti pólitískra flokka af þess-
uin félagssamtökum hverfi al-
veg. En þau hafa viðgengist og
viðgangast enn, til tjóns fyrir
málefnið.
Framlag ihúðakaupenda verð-
ur að miða við getu þeirra. Láta
fátæka bamamenn fá íbúðir
með lítilli eða engri útborgun,
en aftur láta ]>á betur stæðu
borga meira út, t. d. alt að 30%.
Mætti þá jafnvel hækka tak-
mörkin um eign og tekjur íbúða-
kaupenda, en þau eru nú óþarf-
lega þröng.
Þeir sem kaupa iliúðir mega
aldrei selja þær sér til ábata.
Þetta er sanngjarnt. En nú getur
farið svo að verðlækkun verði á
ibúð, vegna almennrar verð-
lækkunar fasteigna. Eins og nú
er getur íbúðarkaupandi glatað
öllu framlagi sínu við slíka
verðlækkun. Fyrir sliku þarf að
tryggja hann.
En sérstaklega þarf að beina
byggingu verkamannabústaða
inn á þá braut, að talsvert land-
rými fylgi hveiTÍ íbúð. Við að
veita verkamönnum þannig að-
gang að landi ynnist mikið. Það
væri verkamönnunum leið til
sjálfshjálpar með þvi þeir gætu
þá jafnframt starfi sinu stundað
ýmsa ræktun. Það lcendi hörn-
um þeirra að skilja gróðurmátt
moldarinnar, og það gæti e. t. v.
orðið lieppilegur tengiliður til að
laða nokkur þeirra að búskap í
sveit. En kaupstaðabúa, sem
enga ræktun þekkir eða skilur,
þýðir ekki að skipa að fara í sveit
til dvalar.
Eg hefi lieyrt að Þjóðverjar
höguðu byggingu verkamanna-
bústaða þannig: Þeir létu at-
vinnulausa verkamenn reysa
hverfi smáliúsa, 2—3 lierbergi
og eldhús, í úthverfum borg-
anna. Hverju liúsi fylgi 1000
ferm. garður, sem íbúðarkaup-
andi er slcyldaður til að full-
rækta og hirða vel, en á sjálfur
afrakstur af. Húsin eru seld
Iágu verði, án útborgunar, og
greiðist upp á 25 árum, þannig,
að hver íbúðakaupandi greiðir
vikulega í vexti, afborgun og
gjöld 4—10 mörk, en eignast
allir jafnmikið. Fer greiðslan
eftir tekjum verkamanna og
heimilisaðstæðum. Gætum við
ekki eittlivað lært af ]iessu.
Það liefir ekki alt að segja
fyrir verkamanninn hvort tírna-
kaupið er, heldur hvert er árs-
kaupið. En sérstakfcga þó hverj-
ar lífsnauðsynjar hann getur
véitt sér fyrir kaupið. Sjálfstæð-
isflokkurinn þarf að láta sig
meiru skifta bagsmunamál
verkamanna, m. a. byggingar-
málin, heldur en verið liefir und-
anfarið. Yerkamenn treysta
Sjálfstæðisflokknum einum til
forustu. Því trausti má hann
ekki bregðast.
Hannes Jónsson,
Ásvallag. 65.
SKATTAHÆKIÍANIR
f BRETLANDI.
Frli. af bls. 1.
beri skattana þar sem íeknanna
er aflað, og tryggir það að
minsta kosti það, að hinar ó-
nógu tekjur innheimtast að
fullu.“
„Daily Mail“:
„Sir Kingsleý tók það þrisvar
sinnum fram í fjárlagai’æðunni,
að það þyrfti að auka skatlana
tilfinnanlega. Samt sem áður
eru fjárlög hans ekki nema
bráðabirgðalausn. Álögurnar
þurfa að vera miklu þyngri. Hér
í landi mun enginn kvarta, ef
tekjur ríkissjóðs eru notaðar
skynsamlega og byrðunum
réttilega skift.“
Síra Árni Sigurðsson,
ffíkirkjuprestur, er farinn úr
bænum í sumarleyfi. Munu þjóíS-
kirkjuprestarnir annast prestsstörf
við frikirkjuna í fjarveru hans.
Afbrot með flesta
móti árið 1939.
Vísi barst nýlega fróðleg rit-
gerð eftir Sigurð Magnússon
kennara, er hann nefnir: „Af-
brotaæskan í Reykjavík“, en rit-
gerð þessi er skýrsla hans til
fræðslumálastjórnarinnar.
Á árinu hafa 257 börn orðið
sek um 701 afbrot, en á árinu
1938 urðu 191 börn sek um 232
afbrot, samkvæmt skýrslum
harnaverndarnefndar, og hafa
afbrotin þannig farið mjög í
vöxt og fleiri börn verið við þau
riðin. Á árinu 1939 liafa 238
piltar brotið af sér, en 19 stúlk-
ur, en á árinu 1938 voru pilt-
arnir 191, en stúlkurnar 8, sem
komust i kast við lögregluna.
Brot þau, sem hér eru tekin til
athugunar, eru þó aðeins hin
stórfeldari, svo sem: Þjófnaðir
og hnupl, innbrotsþjófnaðir,
svik og falsanir, skemdir,
meiðsl og hrekkir, misþyrming
á dýrum, flakk, útivistir og
strok, óspektir og óknyttir, laus-
læti og kynferðismál og ölvun.
Sigurður hallast að því i rit-
gerðinni, að nauðsyn beri til að
hér á landi verði komið upp
hæli fyrir afbrotabörn, og að
eftirlit með þeim verði lengra
og betra en nú tíðkast. Dr. Matt-
liías Jónasson, sem gefið hefir
skýrslu til fræðslumálastjórnar-
innar um „uppeldi vandraiða-
barna í Sviss“, hefir einnig bor-
ið fram slílcar tillögur, og kemst
að þeirri niðui’stöðu, að rekst-
ur sliks Jiælis sé mesta þjóðar-
nauðsyn, enda verkefni nóg og
arðbær, við hverahita og nær-
tælc fiskimáð. Leggur hann á-
herslu á, að það sé unglingum
nauðsynlegt að læra að vinæa,
að skilja að þéir geta það, að
finna að starfskraflar þeirra. sé
til nokkurs nýtir <og að þ.jalfa
hæfileika sýna fyTir ævistarfið.
Hér er um naúðsynjamál að
ræða, sem þarf að lirmda í
framkvæmd, með þvi að IsSend-
ingar hafa sannarlega ektd efni
á því, að láta æskulýðinn grotna
niður eins og tíðlrast héflr, og
farið í vöxt. I þessu máli ættu
kennai'ar að hafa forgöngu
una. Þeir munu bæði njóta
styrks frá foreldrum jJirleitt,
fulltíða, hugsandi rnönnum og
og ráðamönnum innan þjóðfé-
lagsins.
Havana-ráðstefnan
HðreiiiiiOir n illeið
ir [vrópuljeðð i Vest-
urállu upp koipinn.
Það er búist við því, að tillög-
ur Bandaríkjastjórnar varð-
andi nýlendur þær, sem Evrópu-
þjóðir eiga í Vesturálfu, verði
lagðar fyrir Havanaráðstefnuna
í dag. Cordell Hull gerir grein
fyrir tillögunum. Ágreiningur er
upp kominn í málinu, að því er
talið er, og mun Argentína
leggja fram sérstakar tillögur.
Frá ríkisstjórn Kuba eru einnig
væntanlegar tillögur.
Tiílögur Bandaríkjanna munu
fjalla um:
1.) Að Vesturálfulýðveldin
stofni sérstakt ráð, sem fari með
Vegrna jarðarfarar
móður minnar verður bifreiðastöð míni kikuð amotgrtua
frá kl. 1 yz til 4 eftir hádegi.
NTEI^DÓR EINARflSOK.
Tvo menn
vana reknetaveiðum,
vantar mig.
GUNNAR ÓLAFSSON.
Lokastíg 4.
33 Labour under Nazi Rule;
34 Russian Foreign Policy;
35 Was Germany Defeated in
1918?
Bókaverslun
Snæbjarnar Jónssonar.
The English Bookshops.
BæídP
fréttír
Fiintugur
er í dag Jónas Magnússon i
Stardal á Kjalarnesi, Er hann mik-
ill dugnaðar- og atoxkumaður.
Sjötugur
er í dag Jón Rafnsson, Frakka-
stíg 15-
Lúðrasveit Reykjavíkur
leikur á Austurvelli i kvöld kl.
9, undir síjórn hr. A. Klahn.
Ægir,
mánaÖarrit Fiskifélags Islands,
er nú nýkomiÖ út. Efni blaÖsins
er sem hér segir: Sjómannadag-
urinn og sjómennirnir. — Ræða
fulltrúa útgerÖarmanna á sjó-
mannadaginn (Jóhanns Þ. Jósefs-
sonar). — Trillubátarnir. — At-
huganir um saltfisksframleiðslu. —
Með idönskum skútueiganda sum-
ariÖ 1867. — Eimskipafélag Is-
lands. — Litlar Iifrarbræðslur. —
Hálfrar aldar afmæli íslenskra
gufufikijxi. — Síldveiðamar. —
Aflinn 15. júni 1940.
Nýútökomnir
er.ta bæklingar þeir, sem hér seg-
ir: Uppeldi vandræðabarna i Sviss,
eftir Dr. Matthías Jónasson. — Af-
broteæskan i Reykjavík, eftir Sig-
urð Magnússon. Eru þessir bæk-
lingar skýrslur til fræðslumála-
stjómarinnar. Enn einn bæklingur
er .utkominn, sem heitir „Algeng-
ustu orðmyndir málsins og stafsetn-
ingarkenslan" og er gefin iit að til-
hlutan fræðslumálastjórnar.
Næturlæknir.
Pétur Jakobsson, Leifsgötu 9.
sími 3735 — Næturverðir í Lauga-
vegs apóteki og Lyfjabúðinni Ið-
unni.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 19.30 Hljómplötur: íslensk-
ir söngvarar. • 20.00 Fréttir. 20.30
Útvarpssagan: Þættir úr ferða-
sögum (V.Þ.G.). 21.00 Strokkvart-
ett útvarpsins: Lög eftir íslenska
höfunda. 21.20 Hljómplötur: Har-
móníkulög. 21.45 Fréttir. Dag-
skrárlok.
stjórn nýlendnanna meðan
styrjöldin stendur.
2. ) Að styrjöldinni lokinni
verði nýlendurnar afhentar eig-
endum sínum eða veitt sjálf-
stæði.
3. ) Öll Vesturálfulýðveldin
verndi nýlendurnar meðan
styrjöldin stendur.
Sagt er, að Argentínustjórn sé
mótfallin þessum tillögum, og
beri fram tillögur, þar sem valin
ér önnur leið í málinu.
Tv®
há§eta
vantar á togeurann Venws fxst
Hafnarfirðii.
:S
:5
Gairð-
áhnrðnr
DAGLEGA.
i/rrni
BETRA
ÓDÝEARA
GRÆNMEH
SÆÆSá,
Kcmúm
heim.
Hallur Hallsson
taxsÐlæknir.
SJDKIilli
sem bindast vilja félagsssmrt-
tökum uid útvegnn á kgnxlha
við ýmsar iðngreinié' ogefhís-
útvegun, leggi nöfiic sIíb <®g.
heimilisfang, ásaænt sSrat&5
lýsingu af lömunimii, &sdjgr.
blaðsins fýrir 1. ágúsrf
óskast léigð i nökkiir,lt ®3§d.
Upp! i sima 3302, .