Alþýðublaðið - 31.07.1928, Qupperneq 4
4
alþýðublaðið
I
r
Veðdeijdarbrjef.
Bankavaxtabrjef (veðdeildar-
brjef) 7. flokks veðdeildar
Landsbankans fást keypt í
Landsbankanum og útbútim
hans.
Vextir af bankavaxtabrjefum
þessa flokks eru 5%, er greið-
ast í tvennu lagi, 2. janúar og
1. júlí ár hvert.
Söluverð brjer'anna er 89
krónur fyrir 100 króna brjef
að nafnverði.
Brjefin hljóða á 100 kr,
500 kr., 1000 kr. og 5000 kr
Landsbanki Íslands
kvöld kl. 7. Æfingar þessar verða
út ágústmánuð.
Drengjasundið,
sem frestað hefir verið sökum
sjávarfaila, fer fram í kvöld frá
sundskálainum í Örfirisey.
Veðrið.
Hiti mestur 12 stig h,ér og á
ísafirði; minstur 7 stig á Seyðis-
firði. Otlit: Suðaustlæg átt á suð-
vesturlandi í dag. Norðlæg í nótt
— Annars staðar austan og norð-
ánátt.
Heimiiisiðnaður Morgunblaðs-
ins.
Valtý „Morgunblaðs“-ritstjóra
langaði, sem kunnugt er, til að
fá styrk til utanfarar á prentlistar-
og blaða-sýninguna í Köln til
íþess að auðga anda sinn og læra
dálítið í iðninni, sem hann nú
stundar. Harmakvein hans út af
því, að Halibjörn skyldi fá styrk-
Snn, birtist nú daglega í dálkum
„Mgbl.“ og finst lesendum sam-
setningurinn bera greinilegan vott
um, að frakara náms sé honum
fuli pörf. Heimílisiðnaður „Morg-
unbiaðsins“ er alt af auðþektur.
Slys.
Þaö slys vildi til á laugardag-
inn, að maður, er var að vi-nnu
við „Hegrann", lenti með hend-
urnar inni í opi byróunnar og
hún iokaðist; 'gat hann losað
hendur sínar nokkuð, en mistf pó
framan af einum fingri og særð-
i.st nokiutð á hinni hendinni. Fyr-
ir snarræði manns þ'ess, er stjórn-
ar „Hegranum", varð slysið ekki
verra. Eftir því, sem Alþýðublað-
inu hefir verið skýrt frá, var
maðurinn, sem meiddist, að róta
kolum inn í byrðuna með hönd-
unuin.
Áheit á Strandarkirkju
frá J. K. kr. 5,00, frá R. kr.
5,00.
Bezta skemtiferð sumarsins
Næst komandi sunnudag fara
Jaf naðannan nafél ag íslands og
Félag ungra jafnaðarmamna sam-
eiginlega skemtiferð austur í
Þrastarskóg. Nefndir úr báðum
félögunum sitja nú á rökstólum,
og verður förin liklega auglýst
hér í biaðinu á morgun. Alþbl.
efast ekki um, að för þessi \erði
hin skemtilegasta. í henni samein-
ast ungir og gamlir, konur og
karlar, piltar og stúlkur, alt
jafnaðarmenn. Þarf ekki að efa,
að sungið verður mikið og að
glatt verður á Hjalla í Þrastar-
skógi á sunnudaginn kemur. —
Nánar síðar. - .
Knattspyrniifélag Reykjavíkur
fer skemtiferð næst komandi
sunnudag upp í Marardal. Lagt
GEGARANDEERD
WORMERN
j hverfisQötu 8, siml Í294, j
j t-vur irð sér alls bonar tæblfærisprent- j
í urr. svo sem r rhljóð, aðgðngumiða, brél, j
Íretltninba, kvirtanir o. s, frv., og af- 1
ereiðir vinntina fijótt og við réttu verðl. j
verður af stað kl. 8 f. h. og farið
í bilum að Kolviðarhóii; þaðan
gengið í dalinn; er það klukku-
tíma gangur röskur. Heimleiðis
yerður haldið kl. 'llk að kvöldi
frá Kolviöarhóli í bílum; komið
í bæinn kl. 8Va- Farseðlar eru
ódýrir, og geta félagar fengið þá
í verzlun Haraldar Ámasonar og
hjá Guðmundi Ólafssyni, Vestur-
götu 24.
„Vísis“lalli
fer enn á stúfana. Endurprentar
„Vísir“ nú fyrri saurmælgi hans
útþynta nokkuð og yfirlýsingiu um
að hann muni framvegis veija sér
„Morgunblaðið“ til fyrirmyndar,
þrátt íyrir vel meint heilræði frá
g :mla k’ nnmgja „Vísis“-l lla.
Reykingamenn
vilia helzt hinar góðkunnu ensku
rey któbaks-tegundir:
Waverley Mixture,
Glasgow ——------------
Capstan -----------—
Fást í Öllum verzlunum.
ðll smávara til saumasbap*
ar frá því smæsta til hlns
stærsta, alt á sama stað.
Guðm. B. Vikar, Laugav. 21.
OtBala á brauðum og kökuaa
frá Alþýðubrauðgerðinni er á
Vesturgötu 50.
Hólaprentsmiðjan, Hafnarstræfl
18, prentar smekklegast og ódýr-
ast kranzaborða, erfiljóð og alla
smáprentun, sími 2170.
Utbreiðið Alþýðublaðið.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður
Haraldur Guðmundsson.
Alþýðuprentsmiðjan.
William le Queux: Njósnarlnn mikli.
gerast nærgöngull við mig. Hann var ákaf-
lega afbrýðissamur. Þess vegna réðst hann
á mig, en slepti mér, þegar þig bar -aö,
því að hann var ragmenni. Þú manst vist
eftir þessu?“
„Annaðhvort væri nú, að ég gerði það!
Já; víst geri ég það. Ég blessa það atvik
í huga mínum og hjarta þáð, sem eftir er
æfinnar, því að það varð til þess, að við
kyntumst. Atvikin til hamingju eða áham-
ingju eru margvísleg.“
„Já; en véiztu nú, hvort þetta verður til
dæmis þér heldur til hamingju en óham-
ingju ?“
„Ég treysti því, að hið fyrnefnda verði
hlutskifti mi;t. Ég treysti þvi, að ég fán
að njóta þeirrar stúlku, sem. ég ann rnest
allxa og þrái öllum stundum."
„Og ertu viss um, að þú munir elska
þessa stúiku ávalt jafn-heitt?“
„Já; það er ég,“ svaraðj ég.
„En þið segið þetta aliir," sagði hún glein-
islega og hló dátt.“ „En nú verð ég að
halda áfram sögunni. Stutiu eftir að við fór-
um að kynnast nokkuð til muna. keypti
bróðir minn húsgögn og tók á leigu íbúð
í Warwick Gardens, Kensington. Ætlun hans
var, að þar skyldu vera aðalstöðvar rúss-
neskra njósnara framvegis. Þar áttu þeir
að koma saman og ráða ráðum sínum. Við
systkinin héldum áfram að búa sainan.
Valentine, sem var maður, er ég ávalt hafði
viðbjóð á, heimsótti okkur mjög oft. Ber-
nowski hafði iíka herbergi í íbúðinni tii
afnota, sem hann þó notaði að eins einstöku
sinnum.
Næstu vikur voru neðansjávar-tundur-
spillarnir reyndir að Barrow með mjög góð-
um árangri. Auðvitað fór þetta fram með
leynd. En White tókst þó með einherjum
brögðum að vera viðstaddur. Síðar hepph-
aöist honum með aðstoð Valeníine og ein-
«.verra annara starfsmanna Vicker, Son &
Murxim. firmans að klófesta uppdrætti af
byggingarlagi skipanna. Samt duldi hann
okkur hin þessa og staðhæfði, að sér heíði
etigin vitneskja hlotnast um byggingu bál-
anna. Það kom einnig í ljós, að White hafði
ýmigust á þér, áf því að hann komst að
því, að við vorum farin að, kynnast. Hann
^élt, að það væri meira en góðu hófi gegndi,
og var æstur af aibrýðissemi. Hann fúllyrti,
að þú værir hættulegur náungi, er nauð-
synlegt væri að vera á varðbergi fyíir. H.ann
og bróðir minn og Bernowski fóru nú að
snyrjast fyrir um þig, og eftir mikla fyrir-
höfn og ótal krókaleiðir urðu þeir þess
vísir sér til ótta og skelfingar, að þú varst
skæðasti brezki njósnarin-n á þeim slóðum.
Þeir álitu, að vinsemd þín gagnvart mér
væri gildra, sem þú ætlaðir þér að veiða
okkur öll i. Þeir voru þér þess vegna mjög
óvinveittir. Þeir beinlinis hötuðu þig. Paul
grunaði White um, að hann væri bæði falsk*
ur og undirförull, og þegar hann af til-
viljun komst að þvi, að hinir stolnu upp-
drættir væru þegar í hans vörzlum, njósn-
aði bróðir minn um allar hreyfingar Whites
og fylgdi honum eins og skugginn hans.
Bróðir minn var sannifærður um, að White
ætlaði sér að svíkja félaga sina og selja
uppdrættina fyrir of fjár tii Frakklands.
Þegar White var drepinn kvöldið góða
þú manst efalaust ve! eftir því —, þá
virðist, sem hann haíi grunað, að við hefðum
mælt okkur mót, og þess vegna elt tnig frá
Kensington, því að uppi á Sydenham Hill
heilsaði hann mér, og við gengum saman,
unz við komum að bréfageyminum einmitt
þar, sem viö höfðum ákveðið að mætast.
Hann stóð þar um stund .og eggjaði mig á
að vera alls ekk-ert með þér 'framar og