Vísir - 30.10.1940, Síða 3
VISIR
FATAEFNI
- toest - ALAFOSS. Verslið við ALAFOSS
--l¥ý fataefni, ágræt í skolaföt, komin.-
ÞINGHOLTSSTRÆTI 2
lagi, ef skáldið gengi að eins
sínar eigin leiðir, liversu fráleit-
ar og óskiljanlegar sem þær
væru. En því er nú ekki að
heilsa í þessu tilfelli.
Þegar eg las fyrstu bækur Ól-
afs Jóh., barnasögurnar,og vissi
aldur hans og aðstöðu alla, þótti
mér líklegt að þarna væri skáld-
efni á ferðinni sem komist gæti
flestum framar, ef honum auðn-
aðist að ná góðum þroska og
afla sér mentunar. Hann var að
eins 16—17 ára, en hafði lifandi
og eðlilega frásagnargáfu, ríkt
og heilbrigt hugmyndaflug, og
einfaldan upprunalegan stíl.
Frásögn lians var að vísu ekki
margbrotin, en Iiún var hans
eigin og engum öðrum lík.
Þetta unga skáld mætti, að von-
um, miklum skilningi, meiri en
alment gerist meðal Islendinga.
Márgir góðir menn liöfðu feng-
ið áhuga fyrir gáfum hans og
gengi. Honum var boðið að
kosta hann til skólagöngu hér í
Reykjavík, en skáldið virtist
ekki mega vera að því að menta
sig á þann hátt. Haiin þurfti að
hafa sig allan við að skrifa bæk-
ur, og gerðist nú skáld hér í
höfuðstaðnum, — skáld án lífs-
reynslu og mentunar. Það gat
naumast vel farið. Að visu kom
út eftir liann, litlu siðar, eftir-
tektarverð skáldsaga, er nefnist:
„Skuggarnir af bænum“. Það
var margt vel um þá sögu, en þó
var nú skáldið ekki lengur sjálf-
stætt í stíl né málfæri, heldur
minti óþægilega mikið á Hall-
dór Laxness. Reyndar er nú al-
veg eðlilegt að svo ungur liöf.
taki sér fyrirmyndir og minni
á þær; ef eitthvað er í manninn
spunnið, losnar hann oftast
fljótlega undan þeim áhrifum.
Nú liðu nokkur ár. Frá Ólafi
komu nokkurar smásögur í
blöðum og tímaritum, sumar
góðar, sumar slæmar, eins og
gengur. Ekkert nýtt um skáldið
kom fram í þessum sögum,
nema ef vera skyldi einni (Kuldi
i Rauðum Pennum III). Nokkur
kvæði komu og á prent, sum
dálagleg. Mér fanst alt sem eg
las eftir Ólaf á þessum árum,
benda á að hann væri i vonum,
og langa vegu frá því að finna
sjálfan sig: virtist ekkert hafa
að slcrifa um, engin áhugamál
og ekkert að stefna að.
Svo kemur í sumar bók sem
hann er búinn að vinna að lengi:
„Liggur vegurinn þangað?“
Eg verð að segja að mér þótli
óhugnanlegt að lesa þessa bók!
Svo langt frá uppruna sínum,
eðli og heilbrigði liefi eg aldrei
séð neitt ungt skáld fara — á
jafn stuttum tíma! Og hefi eg
þó um margra ára skeið lesið
handrit ungra skálda, svo
hundruðum skiftir. En það er
ljótur ósiður að dæma skáldrit
eftir tilfinningum sínum einum
saman. Það má líka segja margt
gott um þessa bók, þó slæm sé!
ólafur Jóh. líkist ekki fyrri
fyrirmynd sinn i „Liggur veg-
urinn þangað“. Nú eru það hinir
svokölluðu „harðsoðnu“(!) am-
erísku rithöfundar sem eiga hug
hans allan. En þeir karlar hafa
flestir tækni sína i lagi, en ekki
ber bók Ólafs þess vott að hann
hafi tileinkað sér kosti þeirra, og
vill svo fara jafnan þegar apað
er eftir hlutum sem eru mannj
fjarskyldir og óeðlilegir. Sagan,
ef sögu skyldi kalla, er öll sund-
urlaus og í molum, án heildar-
svips eða samræmis. Hún gerist
í Reykjavik, og kemur viða við.
Sumum pörtum hennar er ber-
sýnilega stefnt að ýmsum borg-
urum bæjarins, og' eru sum
höggin hátt reidd, en klámhögg
eru þau flest. „Satýra“ höfund-
arins er enn harla máttlaus; þó
Jjregður fyrir dálitlum gíampa á
einum stað, í sögunni um tíma-
ritstjórann.
Bókin er öll i molurn, en
nokkurir þessara mola ex-u
brotnir úr góðu bergi og glitrar
eðall málmur í sárinu. Ólafur
er enn mikið skáldefni, og liann
er enn barnungur maður!
(23 ára?) En nú vei'ður hann að
hætta þessu göltri við tildur og
hjóm, hætta að gei'a anda sinn
að skækju allra „isma“, en fara
að skrifa fi'á eigin bi'jósti, og
um það sem bann þekkir sjálf-
ur. Þá trúi eg ekki öðru en að
þetta gamla „undrabarn“ úr
Grafningnum geti enn orðið
það sem vinir hans liafa ávalt
vonað að hann yrði: gott og
mikið skáld!
Dansleikor stúdenta.
Dansleikur verður haldinn í kvöld í OddfellowhöII-
inni og hefst kl. 10.
Aðgöngumiðar seldir í Háskólanum kl. 1—7 og kl.
8—10 i Oddfellow.
STÚDENTARÁÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS.
Ntrákú§tar
nýkomnir.
GEYSIR H.F.
VEIÐARFÆRAVERSLUNIN.
AÐALFUNDUR
Sölusambands ísl.
fiskíramleiðenda
verðup lialdinri í Kaup-
þingssalnum í Reykja-
vík9 laugardaginxi 23.
nóvember 1940.
Dagskrá
samkv. félagslögunum.
Stjórnin.
Mýkonsið
gott úrval af karlmannafataefnum,
frakkaefnum og káputauum.
Ennfremur margar gerðir af skóm.
VERKSMIÐJUÚTSALAN
Gefjun - Iðunn
Læknaskifti.
Þeir samlagsmenn, sem réttinda njóta og óska
að skifta um lækna frá næstu áramótum, snúi
sér til skrifstofu samlagsins fyrir þ. 15. riÓv-
ember.
Listi yfir lækna þá, sem valið verður um, ligg-
ur frammi á skrifstofunni.
Beykjavíknr.
MILO er mín sápa.
Fylgist með kröfum tím-
ans og notið MILO sápu. —
Grjótmuln-
ingsvél
til sölu strax. Uppl.
i sima 5B38.
hk Pige
kan straks faa god Hus-
post i moderne Hjem.
Kun tre i Hjemmet. Ved-
kommende f aar eget pænt
Værelse og höj Lön. Bil-
let merkt: „Höj Lön“,
sendes Visir för Morgen
Aften.
Ein ný, mislit
Karlmannsföt
á meðalnxann til sölu með
sanngjörnu verði.
Klæðaverslun
GUÐM. B. VIKAR.
Langavegi 17. Sími 3245.
K. F. U. M.
Fundur annað kveld kl. 8%.
Jóliannes Sigui'ðsson talar.
Allir karlmenn velkomnir.
RÖSKAN
OG ÁBYGGILEGAN
Sendisvein
vantar strax. — Uppl. í sínxa
3397.
AtTinna
Vönduð stúlka vön sveita-
verslun óskast í kauptún út á
land. Tilboð, ásanxt kaup-
kröfu og meðmælunx, ef eru
fyrir liexxdi, sendist á afgr.
Vísis, mex’kt: „E“, fyrir föstu-
dagskveld.
RAFTÆKJAVERZLUN 0C
1 VINNUSTOFA
LAUCAVEC46
—j SÍMI 5858
^ RAFLAGWm
VIÐGERÐIR
BÆKJUM SENDUM
Skólafólk
KAUPIÐ
Námsbækurnar
PAPPÍR OG RITFÖNG
r
1
Bókaverslun
Sigfúsar Eymundssonar
og Bókabúð Austurbæjar, B. S. E., Laugavegi 34.
3 nvjai* bækur:
Horace Mac Cay:
HOLLTUOOD HEILLAR....................
íslenskað hefir Karl Isfeld blaðamaður.
Þetta er nútímasaga og gerist í Hollywood, kvikmyndaborg-
inni heimsfrægu. Þarna koma við sögu ýmsir þeir leikarar, sem
við sjáunx liér daglega i kvikmyndahúsunum, en annars er sagan
aðallega um aukaleikarana, sem eru að reyna að ryðja sér braut
til heimsfrægðar.
Helen Bannerman:
Sagan af litla svarta Sambo.
Þessi bók er fyrir yngstu lesendurna, og segir fi'á litla negra-
drengnum Sambo. Bókin er prýdd litixiyndum á annari hveri’i
siðu.
Jonathan Swift:
Gulliver í Risalandi.
Allir þekkja söguna af Gúlliver í Putalandi. Er sagan af Gulli-
ver i Risalandi framhald hennar og segir frá Gullivei', þegar
hann kemur til Risalands og þeim ótrúlegu æfintýi'um, sem
hann lendir í þar.
§endi§vein
vantar okkur nú þegar. — Vinnutími frá kl. 2.
K. Einarsson & Björnsson
BARNAVINAFÉLAGIÐ SUMARGJÖF.
I):i$»ii<kimili
fyrir böxn á aldrinum 21/.—7 ára tekur til stai'fa á Amtmanns-
stíg 1 í byrjun næsta mánaðar. Einnig verður gei'ð tilraun með
barnagarð fyrir nokkur 4 og 5 ára börn. Uppl. gefur Þórhilduy
Ólafsdóttir forstöðukona í síma 4476, kl. 4—6 íxæstu daga. —
STJÓRNIN,
1
Verslunarstjóri
Sá sem gæti lagt fram litla fjárupphæð getur fengið fram-
tiðaratvinnu við starfandi verslun í kaupstað úti á landi. Tillxxð
sendist afgreiðslu Vísis fyrir laugardagskveld, merkt: „Verslun-
arstjóri“.
Tilkynning
til sauðíjáreigenda.
Að gefnu tilefni er athygli sauðfjáreigenda
vakin á þvi, að samkvæmt 60. gr. lögreglusam-
þyktar Reykjavíkur mega sauðkindur ekki
ganga lausar á götum bæjarins né annarsstaðar
innan lögsagnarumdæmisins, nema maður
fylgi til að gæta þeirra eða þær séu í öruggri
vörslu. Ef út af þessu er brugðið varðar það
eiganda sektum alt að 1000 krónum.
Lögreglustjórinn í Reykjavik, 29. okt. 1940.
Agnar Kofoed-Hansen.