Vísir - 11.11.1940, Blaðsíða 1

Vísir - 11.11.1940, Blaðsíða 1
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifstofur: Féiagsprentsmiðjan (3. hæð). Ritstjóri Biaðamenn Sími: Auglýsingar 1660 Gjaldkeri 5 línur Afgreiðsla 30. ár. Reykjavík, mánudaginn 11. nóvember 1940. 261. tbi. ÓGURLEGIR LANDSKJÁLFTAR I RUMENIUIFYRRINOTT Heil hverfi í Bukarest mega heita í rústum, og stór- kostlegt tjón í íjölda bæja. — Skemdir á olíulindasvæð- inu svo miklar að bað oretur haft stórkostleg áhrif á gang ___________ Chamberlaiii látinn Hann lést að beimili sínu i Lanea- shipe s. 1. laugardagskvöld. EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. Neville Chamberlain, fyrrv. forsætisráðherra Bretlands, and- aðist að heimili sínu í Lancashire, laugardagskvöld. Hann var 72 ára að aldri. I öllum blöðum Bretlands og Bandaríkjanna er Chamberlains minst sem mikils stjórnmálamanns, og kemur víða fram viðurkenning á því, að hann hafi lagt fram alla krafta sína fyrir friðinn, eins lengi og með nokkuru móti var unt fyrir Breta að halda þeirri stefnu, en þegar sú viðleitni ekki bar ár- angur, sneri hann sér að styrjaldarbaráttunni af einbeitni og kjarki, og var áfram höfuðleiðtogi þjóðar sinnar, meðan kraft- arnir leyfðu. Þegrar knnnugrt, að á annað þnsnnd manns hafa farist. EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. Fregnir bárust í gær um hina ógurlegustu land- skjálfta í Bukarest. Hafa ekki komið eins miklir landskjálftar þar í talsvert á aðra öld eða síðan laust eftir aldamótin 1800. Þegar er kunnugt, að á annað þúsund manns hafa farist, en sú tala er vafalaust alt of lág, því að áreiðanlegt er, að fjölda margt fólk hefir farist, sem skýrslur vantar um enn. Hörðustu kippirnir stóðu í þrjár mínútur og víða hrundu hús sem spilaborgir. í Bukarest, höf uðborginni, hrundu stórhýsi, m. a. Karltonbyggingin, sem um 500 manns búa í. í gær var búið að ná á þriðja hundrað lík- um úr rústum þessarar byggingar. Fólkið þusti út á nærklæðum einum, lostið skelfingu. Margt manna beið bana á götunum, er húsin hrundu, því að grjót og brak hentist um alt. Meðal þeirra, sem fórust í Bukarest, voru allmargir þýskir og ítalskir yfirforingjar. . Stórkostlegt tjón hefir orðið á olíulindasvæðinu og í borgum við Dóná. Það er talið, að olíubrunnar hafi skekst eða fylst, vélar og tæki margskonar eyðilagst, en sumstaðar kom upp mikill eldur. Sérfróðir menn ætla, að á olíulindasvæðinu aðeins kunni að vera um svo miklar skemdir að ræða, að það hafi hin stórkostlegustu áhrif á gang styrjaldarinnar. Nú sé fyrirsjáanlegt, að Þjóðverjar geti ekki fengið nándar nærri alt það bensín magn frá Rúmeníu, sem þeir gerðu sér vonir um. — En lieilsu Ghamberlain’s fór brátt að hraka, eftir að Cliur- chill myndaði þjóðstjórn sína. Bar þó lítið á þvi fyrstu vikurn- ar, en þvi meira sem lengra leið eftir það. Cburchill bað Cham- berlain að sitja áfram í þjóð- stjórninni, sem kunnugt er, og varð Chamberlain við þeirri ósk, þar til hann fyrir nokkuru baðst lausnar frá þeim störfum, og befir bann dvalist að sveit- ai’setri sínu siðustu vikurnar. Var birt tilkynning frá konu lians fyrir helgina síðustu, þar sem sagt var, að honum, væri nú mjög farið að braka, og óttuð- ust menn það, að Chamberlain mundi eiga skamt eftir, og reyndist það svo. Þrjár borgir lirundu í rústir, Nicoresti, Romani og Panicu, en Galatz að nokkuru leyti, í land- skjálftunum á laugardag, að- faranótt sunnudags. Seinustu fregnir berma, að tjónið muni vera enn gífurlegra en í fyrstu var ætlað. Staðfestar fregnir herma, að í tveimur allmann- mörgum bæjum, Barlad og Tusi, standi varla beilt hús. Ótt- ast menn mikið tjón þar, því að i hvorri borginni um sig eru 15.000 íbúar. Landskjálftanna varð vart á mælum víða um heim, í Sviss- landi, og alla leið til Kalíforniu. Jarðbræringar urðu i Tyrldandi, Júgóslavíu og víðar. Nýir landskjálftakippir urðu í Rúmeníu i morgun, en ekki vitað um manntjón af völdum þeirra. Það hefir mjög aukið á erfiðleika, að rafmagnsleiðslur biluðu. Var alt í kolamyrlcri er skelfingarnar dundu yfir. Pittman látinn. London, i morgun. Pittman öldungadeildarþing- maður er látinn. Hann var for- seti utanríkismálanefndar þjóð- þingsins, maður lireinskilinn og djarfmæltur, og var bann knnn- ur víða um lönd sem lýðræðis- '.vinur mikill. Innrásin í Egipta- land að byrja? Mussolini skiítir um herforingja á Balkanvígstöðvunum. EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun. Fregnir hafa borist frá Kairo þess efnis, að allar líkur benda til, að Graziani marskálkur, yfirherforingi ítala í Norður-Af- ríku, hafi nú lokið undirbúningnum undir innrásina í Egipta- land. Eins og kunnugt er hafa ítalir verið að koma sér fyrir í 2 mánuði hjá Sidi Barrani í Egiptalandi, eftir að þeir voru stöðvaðir þar. Hafa þeir dregið að sér miklar birgðir þarna og höfðu a. m. k. 200.000 manna her reiðubúinn til sóknarinnar. Sennilega hafa þeir dregið að sér enn meira lið nú. Bresk her- skip og flugvélar hafa valdið miklu tjóni-— í hinni miklu aðal- bækistöð ítalska innrásarhersins hjá Sidi Barrani, en nú virðist loks svo, sem Mussolini hafi ákveðið að láta til. skarar skríða. Flugmenn, sem farið hafa í eftirlitsflugferðir yfir svæðið, segja að óvenjulega mikið sé um að vera, og aðrar fregnir staðfesta þetta. Mikla athygli vekur, að tvö herfylki innfæddra manna frá Libyu hafa verið sett í fylkingarbrjóst, hjá Sidi Barrani, og lítur út fyrir, að Graziani ætli að láta hina innfæddu Libyuher- menn bera hita og þunga dagsins, er innrásin hefst. ítölsku her- sveitirnar hafa verið, færðar aftar. — Við Kassala og Galabad í Bresk-egipska Sudan er enn barist, en ekki viðurkenna Bretar fregn frá ítölum, að þeir hafi náð Galabad úr höndum Breta enn á ný. — Bretar segjast hafa tekið 262 fanga við Kassala að undanförnu, en ekki getið um hversu margir voru teknir við Galabad. i NÝR HERFORINGI EFTIR HÁLFS MÁNAÐAR STYRJÖLD. í morgun var liöinn liálfur mánuður frá þvi, er vopnavið- skifti liófust milli Grikkja og Itala, en í gær, eftir tæplega liálfs mánaðar styrjöld, var við- urkent opinberlega í Rómaborg, að nýr berforingi liefði verið skipaður á Balkanvigstöðvun- um, Sotu herforingi, sem er varaformaður herforingjaráðs- ins italska, og er talinn hafa verið mjög handgenginn Grazi- ani marskálki og liafa mikið af honum lært. Fregnir berast stöðugt um, að Grikkjum gangi vel á ýms- um vígstöðvum. Taka þeir stöð- ugt allmarga fanga og herfang. Nýr flokkur 100 fanga er kom- in til Saloniki. Það var opinberlega tilkynt í Aþenuborg í morgun, að þriðja ítalska Alpaherdeildin liafi beðið algeran ósigur i við- ureign við griskar hersveitir á Epírusvígstöðyunum. Biðu ítal- ir milcið manntjón. Margt manna féll af liði þeirra, en fangar voru teknir i hundraða- tali. Leifum herfylkisins var tvístrað. — Samkvæmt áreiðan- legum fregnum eru ítalir á undanhaldi niður Kalamasdal- inn, til þess að komast hjá að verða algerlega króaðir inni. Grikkir einangruðu lieila her- deild í Pindusfjöllum og eftir það breyttist aðstaðan þeim i vil, svo Italir óttast mjög árás á her sinn að vestanverðu frá. Tvær ítalskar herdeildir, sem sóttu fram til Kalamas, hafa beðið ósigur. Var þeim báðum tvístrað, en í sumum fregnum bermir, að heilir herflokkar liafi stráfallið í viðureigninni við Grikki. CHAMBERLAIN r- EINKASKEYTI FRÁ U. P. London í morgun. Molotov lagði af stað frá Moskva í gær til Berlínar með 32 manna lið sér til aðstoðar. Það vekur mikla atbygli, að í ússnesku blöðin gátu um brott- förina með fáum línum aðeins, neðst í dálki, en lögðu áherslu á það, sem Kalinin sagði i ræðu á dögunum, að Rússland yrði blutlaust áfram í styrjöldinni. Þetta er í fyrsta skifti, sem rússneskur forsætisráðherra hverfur frá embætti sínu til þess að fara i heimsókn til ann- ars lands. / Talið er að Ciano greifi muni taka þátt í viðræðum þeim, sem standa fyrir dyrum i Berlín. Þýski sendiherrann í Moskva, Schulenberg, fór með Molotov. Með Schulenberg voru margir starfsmenn lians af sendisveit- arskrifstofunni. Dagsbrúnarfundin- utn var hleypt upp, — — en stjórnin fékk meiri— hluta i samninganefnd og liafði meira fylgi á fundinum. Fundur var haldinn í Verkamannafélaginu Dagsbrún í gær og hófst hann kl. 2 e. h. í Iðnó. Fyrir fundinum lá að ræða um og afgreiða þau mál, sem fram voru borin á fyrri fundi félagsins, varðandi væntanlega vinnusamninga, brottrekstur sexmenn- inganna í Alþýðuflokknum, Bretavinnu o. fl. Hjónaefni. Nýlega hafa opinberað trúlofun sína ungfrú Guðrún Eyjólfsdóttir og Björn Ól. Pálsson, kennari. Fundurinn fór lengi vel piýðilega fram og full eining var ríkjandi um veigamestu málin, en kommúnistar gerðu þó sitt til að spilla öllum mál- efnum. Tókst þeim það að sjálf- sögðu ekki. Eftirfarandi tillögur voru samþyktar: „Fundurinn skorar á ríkis- stjórnina að gera nú þegar ráð- stafanir til þess að lækka dýr- tíðina svo, að hún nemi eigi meiru en kaupjhækkun þeirri, sem verkalýðurinn befir fengið, 27%, og bendir á sem, leiðir til þess að koma þessu í fram- kvæmd: 1) að herða á verðlagseftir- litinu og láta aðeins einn að- ilja Iiafa allar verðlagsákvarð- anir með böndum, 2) að leggja sérstakan skatt á útsöluverð afurða, sem seldar eru til útlanda með stríðsgróða, og nota bann til að lækka verð á innlendum afurðum, sem seld- ar eru til neyslu innanlands, enda sé þess gætt, að jafnan sé til nægjanlegt af þeim til að fullnægja þörfum landsmanna, 3) að fella niður tolla á brýn- ustu nauðsynjavörum, kornvör- um, og ákveða hámark flutn- ingsgjalda með íslenskum skip- um. Fáist þessu ekki fram komið telur fundurinn að við væntan lega kaupsamninga eða taxtaá kvörðun sé ekki nægilegt að miða það, að kaupið sé bækkað til jafns við dýrtiðina, eins og bún þá verður, og tryggingu fyrir kauphækkun mánaðarlega, samsvarandi vaxandi dýrtið, lieldur verði kaupið að vera nokkru bærra, til þess að bæta upp það, sem á vantar til að kaupgjaldið fylgi dýrtíðinni síð- ara hluta þessa árs.“ Tillaga þessi var samþykt með öllum greiddum atkvæð- um. Þá kom fram, svoliljóðandi tillaga frá Guðmundi Ó. Guð- mundssyni: „Fundurinn ákveður að kjósa 2 menn til þess ásamt þremur mönnum úr stjórn félagsins að undirbúa og fara með kaup- samninga fyrir félagið, eða gera tillögur um kauptaxta, ef útlit er fyrir að samningar takist ekki. Stjórnin tilnefnir þrjá menn, sem sitja slculu í nefndinni af liennar hálfu. Félagsfundur telc- ur endanlegar ákvarðanir um væntánlega kaupsamninga eða kauptaxta.“ _ Tillagan var samþykt með yf- irgnæfandi meirililuta. Þá komu fram tvær aðrar til- lögur, sem fólu í sér ýms til- mæli til væntanlegrar samn- inganefndar, og voru þær sam- þyktar. Þá var fyrir tekinn næsti lið- ur á dagskrá og voru það fé- lagsmál. Ilöfðu komið tilmæli frá Jóni Rafnssyni á síðasta fundi, um aþ rætt yrði um sam- þyktir trúnaðarráðs varðandi ó- gildingu á brottvikningu sex Alþýðuflokksmanna úr félag- Frli. á 3. síðu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.