Vísir - 10.12.1940, Side 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
Ritstjóri Blaðamenn Sími:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 línur
Afgreiðsla •
30. ár.
Reykjavík, þriðjudaginn 10. desember 1940.
286. tbl.
Hann gai skipuniaa.
Yfirhersliöfðingi breska hersins
í Egiptalandi og GyÖingalandi
er Sir Archibald Wavell, Lieut.
General, sem hér hirtist mynd
af. Að því er fregnir frá Lond-
on herma, hefir liann nú gefið
her sínum. skipun um að hefja
sókn gegn ftölum.
Heróp
Grikkja:
í Tirana
fyrir jól.
London i morgun.
f tilkynningu -grísku her-
stjórnarinnar segir, að sókninni
hafi verið haldið áfram 1 gær
og hafi grísku hersveitunum
gengið að óskum. United Press
hefir það frá áreiðanlegum
heimildum, að á öllum vígstöðv-
um er um sókn að ræða af hálfu
Grikkja.
Grísku hersveitirnar, sem
reka flóttann á ströndinni, eru
miðja 'vegu milli Sante Quar-
anta og Chiamara, en milli þess-
ara borga eru 25 mílur enskar.
Talsmaður grísku herstjóm-
arinnar sagði í gær, að vegna
hins glæsilega sigurs Grikkja í
Drinos-dalnum, væri allur
ítalski herinn á undanhaldi
norður á bóginn.
ítalir voru hraktir frá hern-
aðarlega mikilvægUm stöðvum
eftir bardaga í niávígi.
Eftir töku Argyro Castro er
heróp Grikkja „f Tirana fyrir
jóí.“ — Grikkir reka flótta ítala
frá Argyro Kastro, en þar hafa
þeir nú allmikið lið — munu
hafa þar setulið áfrám. Er setu-
liðið að koma sér þar fyrir og
er þegar, unnið að því, að koma
öllu viðskifta- og atvinnulífi i
venjulegt horf.
Eldur í olíubirgða
stöð í Rúmeníu.
London, í morgun.
Fregnir bárust um það í
morgun, að sprenging hefði
orðið i einhi mestu olíubirgða-
stöð Rúmeniu, og bréiddist eld-
urinn hratt út, þrátt fyrir það,
að mikill fjöldi þýskra her-
manna aðstoðaði við að hindra
útbreiðslu eldsins. Þarna voru
Bretar urðu fyrri
hefja sókn á Vest-
ursandauðninni-------------------------------
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Igær síðdegis var tilkynt í breska útvarpinu, að
komið hefði til átaka milli framvarðasveita
Breta og ítala á stóru svæði, í vestursand-
auðninni, þ. e. í sandauðninni vestast í Egiptalandi, þar
sem ítalir hafa vaðið inn í Egiptaland frá Libyu, og bú-
ist um hjá Sidi Barrani, til þess að hef ja þaðan sóknina
til Alexandria og Suezskurðarins. Hafa ítalir hafst
þarna við frá því í haust, dregið að sér birgðir og lokið
við að f ullgera veg að bækistöð sinni, en þeirri vegagerð
er Uú lokið. Hefir verið búist við því að undanförnu,
að ítalir myndi hefja sókn þá og þegar, og talið var
fyrir skömmu, að þeir myndi hafa verið búnir að byrja
sóknina, ef ekki hefði farið eins illa fyrir ítölum á
Balkanskaga og reynd ber vitni. Sumra ætlan var, að um
leið og ítalir brytist til Saloniki frá Koritza og frá Ar-
gyro Castro, byrjaði Graziani sóknina. En vegna þess,
að innrásin mishepnaðist varð enn frestur á sókn Gra-
ziani. Nú — vegna hinna tíðu herforingjaskifta hjá
Mússólíni, telja margir sérfræðingar, að hinir nýju
menn eigi að vera ólíkt athafnasamari en þeir, sem frá
fóru, og auk þess var búist við, að Mússólíni myndi nú
ekki draga lengur að hefjast handa í Egiptalandi. En
Bretar urðu f yrri til sem fyrr segir.
í fyrstu tilkynningunni segir lítið annað en að framvarða-
sveitir hafi ást við — og að Bretar hafi tekið 500 fanga. En með
því var gefið í skyn að um hemaðaraðgerðir í allstórum stíl,
miðað við það, sem verið hefir, væri að ræða. Og enn frekar
styrktust menn í þeirri trú, er hermálasérfræðingar í London
létu þess getið, að það myndi vera Bretar, sem hefði byrjað
viðureignina.
En í síðari tilkynningum var farið greinilegri orðum um þess-
ar orustur. Herstjórn Breta í Kairo tilkynti, að Bretar hefði
fyrsta dag sóknarinnar tekið yfir 1000 fanga, og liefði ítalskur
yfirherforingi fallið í bardaganum, en aðstoðarherforinginn ver-
ið tekinn til fanga. Samkvæmt fyrstu tilkynningunni var mest
barist suður af Sidi Barrani. Yopnaviðskifti hófust þegar á
laugardag, en þá kom að eins til fremur smávægilegra átaka
milli flokka úr vélahersveitum, sem sendir voru í njósna skyni
inn á svæðið milli víglína Breta og ítala.
ítalir liafa hafst við á þessum'
slóðum með mikinn her frá þvi
í september s.l. Ýmsar getur eru
að því leiddar, liversu mikinn
her þeir hafi þarna, og ber
mönnum ekki saman, en talið
er að þeir hafi a. m. k. 300 þús.
mann her búinn nýtísku véla-
hergögnum í Libyu. Ýmsir hér-
málasérfræðingar hafa vikið að
því, að vafasamt sé, að Graziani
hafi getið fengið nauðsynlegar
birgðir Iianda þessum her, frá
Ítalíu, vegna hafnbanns Breta.
En svo er og þess að geta, að
breskar sprengjuflugvélar hafa
gert tiðar árásir á birgðastöðv-
ar ítala, og nokkrum sinnum
hafa bresk herskip skotið á
herstöðvar ítala þarna á strönd- J
unum. Það er og kunnugt af til-
kynningum breska flotamála-
ráðuneytisins, að breski flotinn
veitir landhernum stuðning í
þeirri sókn, sem nú er hafin.
m. a. miklar bensínbirgðir, sem
biðu flutnings til Þýskalands.
Olíustöð sú, sem hér er um að
ræða, er í Poesti og er eign
Standard Oil Co. eða undirfé-
lags þess. — Seinustu fregnir
lierma, að eftir margra klukku-
stunda harða baráttu hafi tekist
að hindra útbreiðslu eldsins.
Eldsupptök voru ]iau, að verka-
maður kaslaði frá sér logandi
vindhngi.
Fregnimar um sóknina í
Egiptalandi eru aðalfregnir
breskra blaða í morgun og eru
þær birtar með feitletruðum
fyrirsögnum.
Breski flugherinn liefir veitt
landhernum mjög mikinri
stuðning í sókninni, aðallega
með árasum á hersveitir, véla-,
hergagna- og olíubirgðastöðvar
ítala. Á flugstöðina við Derna
var haldið uppi árás frá því
skyggja tók og þar til í birtingu
og var þá stöðin eitt eldhaf. Var
varpað á liana um 50 smálestum
spÝengikúlna og komu bresku
flugvélarnar í bylgjum inn yfir
flugstöðina.
Fyrsta lierstöð ítala, sem ít-
alir tóku í sókninni, er 15—20
enskar mílur fyrir sunnan Sidi
Barrani, og voru teknir þar 500
fangar, en næsta herstöðin, sem
tekin var er liðlega 10 enskum
mílum sunnar, og voru þar
einnig teknir á sjöunda hundi-að
fangar. Það voru aðallega Li-
hyumenn, sem teknir voru til
fanga, og sést af því, að í
fremstu línu liafa ítalir næstum
einvörðungu haft nýlenduher-
menn.
| Verkakonur!
j Munið fund Verkakvennafélags-
ins Framsókn í kvöld kl. 814 í IÖnó
uppi. Arí'Öandi mál á dagskrá. Kon-
5 ur, fjöímenni'Ö.
1 (
Badofllio marskálkir
Mur MussqIíoí.
London í morgun.
Það var opinberlega tilkynt
í Rómaborg í gær, að Badoglio
marskálkur hefði, samkvæmt
skyldu og siðvenju, er hann lét
af embætti, gengið á fund
Mussolini, i kveðju skyni. Til-
kvnt var, að þeir liefði ræðst
lengi við og vinsamlega.
United Press hefir það frá á-
reiðanlegum heimildum, að
Badoglio hafi gefið Mussolini
munnlega skýrslu um horfurn-
ar á öllum vigstöðvum, sagt frá
skýrslum einstakra lierforingja
um lið þeirra o. s. frv.
Fyrstu njósnararnir
tflknir al lífi i Bretlaidi
London i morgun.
Það var tilkynt í London í
morgun, að tveir menn hefði
verið teknir af lífi fyrir njósnir.
Eru það fyrstu mennirnir, sem
líflátnir hafa verið í Bretlandi
fyrir slikar sakir, siðan er styrj-
öldin byrjaði. Annar þessara
manna var Þjóðverji, f. i Mainz,
hinn frá Hollandi, en af þýsk-
um ættum, f. í Koblentz. Þeir
höfðu útvarpssenditæki og mik-
ið af pundsseðlum, er þeir voru
handteknir. Njósnarar þessir
fluttust sem flóttamenn til Lon-
don, en voru fljótlega hand-
teknir.
Czakv greifi
kominn til
Jugoslavíu.
London i morgun.
Það var tilkynt i Budapesl í
gær-kveldi, að Czaky greifi, nt-
anrikismálaráðherra Ungverja-
lands, væri lagður af stað til
! Belgrad, til þess að ræða við
ríkisstjórnina í Jugoslaviu. Var
tekið fram, að hann færi í boði
hennar.
Alt frá því, er Czaky greifi
flutti ræðu á dögunum, hefir
verið allmikið rætt um liina
fyrirhuguðu ferð hans til Jugo-
slaviu. — í ræðu þessari
gerði hann að umtalsefni nauð-
syn á nánari samvinnu milli
Ungverjalands og Jugoslaviu.
Ivomu fram getgátur um það
sumstaðar, að liann væri að reka
erindi Hitlers. En Jugoslavar
hafa að undanförnu eltki þótt
líklegir til þess, að breyta þeirri
stefnu, sem þeir hafa fylgt í ó-
friðnum, þ. e. hlutleysisstefn-
unni, rig Páll ríkisstjóri lagði
áherslu á það í ræðu, sem liann
flutti nýlega, að þjóðir þær, sem
byggja Jugoslaviu, stæði ein-
til að
Trii ISiíIci'§ á
SÍgflflfl’MlBl
London i morgun.
Þýska fréttaslofan birti til-
kynniugu þess efnis í gærkveldi,
að Hitler myndi flytja ræðu á
samkomu verkamanna í Berlín
í dag. Flutti Hitler ræðuna í
inorgun og stóð hún i hálfa aðra
klukkustund. Ræðu þessari svip-
aði mjög til flestra þeirra ræða,
sem Hitler hefir haldi, í seinni
tið. Hann rakti tildrögin að
styrjöldinni, t. d. ræddi hann
Póllandsstyrjöldina allítarlega,
og hann talaði um það misrétti
sem rikjandi væri, að þvi er ný-
lendur snertir, og gerði enn á ný
grein fyrir skoðunum sínum í
þeim efnum. I ræðu Hitlers kom
fram jafnsterk trú á sigur Þjóð^
verja og nokkuru sinni. I Lon-
don vakti það mesta athygli, að
Hitler skyldi ekki ræða ófarir
Itala, stjórnmálasóknina, sem
ldé hefir orðið á, loftárásirnar á
Þýskaland o. s. frv. í einni
'breskri fregn segir, að verka-
mönnum hafi verið smalað
saman til þess að ldusta á marg-
endurteknar fullyrðingar, en lit-
ið sem ekkert nýtt hafi verið í
ræðunni.
Maðnr fellur fyrir
borð og drnknar.
S. I. sunnudag vildi það slys
til á Hornbanka undan Vest-
|
fjörðum, að einn skipverjanna j
af Agli Skallagrímssyni féll út- ^
byrðis og druknaði. Maðurinn
hét Kristján Vídalín Brandsson,
til heimilis á Njálsgötu 33 hér í
bæ, kvæntur og átti fjölda
barna. j
Það er ekki vitað með livaða
hætti slvsið bar að höndum, en
" I
það mun hafa verið kl. 4.30 sem
Kristján féll útbyrðis. Var þá
komið á versta veður og þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir til að
ná líkinu var þess ekki nokkur
kostur.
Kristján var ættaður af Akra-
nesi, 56 ára að aldri. Hann var
vel látinn af öllum sem liann
þektu, rólyndur og dagfarsgóð-
ur, ramur að afli og frábær
dugnaðarmaður að hverju sem
hann gekk.
Þegar Vísir hafði tal af
Kjartani Thors, forstjóra, í dag
til þess að spyrjast fyrir með
hvaða hætti slysið hefði borið
að, sagðist hann ekki liafa feng-
ið neinar nánari fregnir um
það, en hinsvegar sagði hann
að skipstjórar togaranna liefðu
kvartað undan því, hve erfitt
væri að leita vars undan ofviðr-
um á Honibanka eftir að lokun-
in var gerð. Flest stórviðri þarna
koma af norðaustri, og þá verða
skipin annaðhvart að sigla beint
móti veðri austur á Ilúnaflóa,
sem liggur opinn fyrir sjóum og
auk þess liættulegur vegna
skerja, eða þá að sigla fram með
ströndum Vestfjarða innan
landhelgis, og leita skjóls inn á
ísafjarðardjúpi. En sú leið er
yfirleitt ekki fær þegar veður
er orðið vont.
liuga saman, og myndi verja
land sitt, ef á það yrði ráðist.
ENGAR
SPRENGINGAR
Á GAMLAÁRS-
KVELD!
Lögreglustjóri hefir ákveð-
ið, að á gamlaárskvöld skuli
að þessu sinni ekki leyfðar
neinar sprengingar. Hefir
undanfarín ár verið leyft að
sprengja Kínverja, púður-
kerlingar og bombur á opn-
um svæðum í bænum, en nú
eru þau öll bygð.
Menn munu og geta fallist
á, að „ástandið“ breyti veru-
lega öllum ástæðum á þessu
sviði.
Hinsvegar mun ekki verða
amast neitt við því, að menn
brenni blysum, sólum eða
stjörnuljósum.
Jólatrén konui.
%
Eftir því sem Pétur Þ. J.
Gunnarsson heildsali hefir tjáð
Vísi, munu jólatré vera vænt-
anleg með skipi frá útlöndum
síðast í þessari viku.
Þetta eru gleðitíðindi fyrir
bæjarbúa, og þeim mun meirí
fyrir það, að margir hugðu að
þessi jól yrðu með öllu jólatrés-
laus. Þess má þó geta, að inn-
flutningur á jólatrjám verður
minni í ár en að undanförnu.
( fyrra tæpar 6000 kr.
hversn mikií nú?
JQ^nnað kveld fara skátar í
fyrri för sína um bæinn
fyrir Vetrarhjálpina. Þeir fara
um Miðbæ, Vesturbæ og Skerja-
f jörð í kveld, en Austurbæ ann-
að kveld.
í fyrra safnaðist um 50%
meira af peningum í lieimsókn-
um skátanna en árið 1932. Alls
söfnuðust um 6000 krónur.
Vesturbæingar, Miðbæingar
og Skerfirðingar lögðu fram um
2000 krónur af því. Árið áður
höfðu þeir lagt fram 1100 kr.
í fyrra lagði Austurbærinn
til 3900 kr. Er það miklum mun
meira en 1938.
Nú þurfa bæjarbúar að sýna,
að þeir vilja og geta hjálpað,
ef þess er þörf. Sýnið annað
kveld og á fimtudaginn, áð þið
viljið að enginn verði kaldur
eða svangur um jólin. Leggið
yðar skerf fram og reynið að
hafa hann sem ríflegastan.
Næturtæknir.
Gísli Pálsson, Latigavegi 15, sími
2474. Næturvörður í Lyfjabúðinni
I'ðunni og Reykjavíkur apóteki.
Næturakstur.
Bst. Hekla, Lækjargötu 4, simi
1515, hefir opið i nótt.
Varðarfundur
verður haldinn annað kvöld kl.
814, á venjulegum staÖ. Próf.
Magnús Jónsson hefur umræður
um „Stjórnarsamstarfið og kosn-
ingarnar“. Varðarfélagar eru á-
mintir um að fjölmenna.
Síra Ragnar Benediktsson,
umsækjandi ^esprestakalls, mess-
ar í Ellihcimilinu Grund i kvöld
kl. 8.
Barnabækur.
Trölli, æfintýr með myndum, eft-
ir Atla Má og Árna Óla. — Ljós-
móðirin í Stöðlakoti, eftir sömu
höfunda, gerist hér i Reykjavík og
,í Beneventum. Báðar þessar bæk-
ur, sem eru ramíslenskar að efni,
eru nú komnar í bókaverslanir.
\
ft
t