Vísir - 27.12.1940, Side 2
V 1 S I R
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTpÁFAN VÍSIR H/F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugssón
Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstræti)..
Símar 1 6 6 0 (5 línur).
Verð kr. 2.50 á mánuði.
Lausasala 10 og 25 aurar.
Féiagsprentsmiðjan h/f.
Um jólin.
J DAG fer fólk aftur til iðju
sinnar eftir jólahvíldina.
ÞaS liefir verið einmuna hlíða
þessa daga, kyrt veður og hlýtt.
Og það liafa heldur ekki ver-
ið neinar æsandi stríðsfréttir
til þess að koma róti á hug-
ina. Jólahelgin á svo mikil í-
tök í hugum þeirra þjóða, sem
hú berjast Iiinni örlagaríkustu
baráttir, að vopnaviðskifti falla
niður eins og af sjálfu sér þessa
daga. Menn hljóta að spyrja,
hvernig á því standi, að þjóð-
ir, sem kunna svo að meta frið-
arboðskap jólanna, að þær
hætta að berjast þessa daga,
skuli hafa lagt út í þennan
ægilega hildarleik. Því augljóst
er, að ef þær myndu eftir frið-
, arboðskapnum aðra daga árs-
ins, þá yrði komist lijá öllum
þessum ógnum. Ef til vill verð-
ur mönnum enn ljósara, liví-
lík ógæfa styrjöldin er, þegar
það kemur svona áþreifanlega
i ljós, að þeir aðiljar, sem bar-
áttuna heyja, hera þrátt fyrir alt
slíka virðingu fyrir hugsjón-
um friðar og bræðralags. Það
er ennþá hryllilegra að ganga
út til víga, eftir að Iiafa um
stund helgað liug sinn þeirri
kenningu, að allir menn séu
bræður.
Jólin hjá okkur hafa verið
friðsæl og hlý. Menn hafa hlýtt
á g'uðsþjónustur og heimsótt
ættingja og vini. IJér í Reykja-
vík hefir talið þessa dagana
horist mjög að liinum nýaf-
stöðnu prestskosningum. Þess
mun tæplega langt að híða, að
vitneskja liggi fyrir um það,
hvernig þeim málum verður
skipað. í því efni verður ekki
svo gert, að öllum líki, en hitt
er annað mál, að menn hljóta
að sætta sig við úrslit, ef rétt-
látlega er á málum haldið.
Á þessum lýðræðistimum
virðist ekki annað koma til
greina, en að lýðræðið fái að
njóta sín, eftir því sem lcostur
er á. Og það er óhætt að full-
yrða, að menn vænta þess af
veitingavaldinu, og þá ekki
síst biskupi landsins, að lýð-
ræðið fái fulla viðurkenningu,
Kjósendurnir liafa jafnan rétt.
En hvað yrði úr því jafnrétti,
ef gengið væri fram hjá þeim
mönnum, sem flest atkvæði
hafa fengið?
Þótt hver og einn hafi auð-
vitað óskað þess, að frambjóð-
andi hans yrði fyrir valinu, þá
munu allir sanngjarnir menn
viðui’kenna, að réttlátasta
laiísnin er sú, að þeir um-
sækjendur, sem mest fylgi
hafa, verði skipaðir.
Hér er um viðkvæm mál að
ræða. Það vill jafnan verða
svo, að nokkur hiti hleypur í
kosningar. Að þessu sinni lief-
ir ekkert það gerst, að ágrein-
ingur geti ekki jafnast von
bráðar, ef réttlátlega er á mál-
um haldið. Hitinn hefir ekki
verið meiri en það, að liann
niundi fljótt sjatna, ef ekkert
væri til að næra hann. Hins
vegar er sú hætta, að menn
ættu bágt með að una þvi, ef
menn þættust órétti beittir.
Hinn nýi biskup er áhuga-
samur maður um málefni
kirkjunnar. Honum lilýtur að
vera það keppikefli umfram
aðra menn, að ekki komi upp
varanleg sundrung. Og hon-
um er sjálfsagt óhætt að treysta
því, að hjá slíkri sundrungu
verður komist, ef ekki verður
gengið á snið við vilja kjós-
enda. Hann getur aldrei gert
öllum til hæfis, en allir verða
að sætta sig við að vilji flestra
verði tekinn til greina.
Um jólin hafa þessi mál mik-
ið verið rædd, Menn treysta
þvi, að þeim verði réttlátlega
skipað. a.
Flugíélagið hugleiðir
kaup á nýrri flugvél
ávo mikil eftirspum er nú
orðin eftir flugferðum, að
flugfélagið getur ekki annað
eftirspurninni. Hefir félagið því
að undanförnu verið að athuga
kaup á nýrri flugvél, tveggja
hreyfla.
Vísir átti í morgun tal við
Berg G. Gíslason, formann Flug-
félagsins, og fékk hjá honum
ýmsar upplýsingar um fyrir-
ætlanir þæi’, sem félagið hefir á
prjónunum.
Ivvað Bergur félagið helst
hafa hug á að afla sér tveggja
Iireyfla De Havilland-flugvélar,
sem getur flutt 7—8 farþega.
Hvor hreyflanna er 200 liestafla
TF—OR N er 225 ha. og TF-
SGL 285 ha. — svo að liún get-
ur flogið í 1000 m. hæð, þólt að
eins annar hreyfillinn sé í
gangi.
De Havilland-flugfélagið er
breskt, en hefir verksmiðjur
bæðH Kanada og Ástralíu. Hafa
flugvélar þess fengið góða
reynslu bæði í samveldislönd-
um Breta og annarsstaðar.
Flugvél sú, sem hér um ræð-
ir er útbúin fleiri tækjum, en
þær sem nú eru i notkun hér og
jrrði því hér um mikla framför
að ræða. Er það gleðilegt, að
Flugfélaginu skuli vera vaxinn
svo fiskur um hrygg, að það
geti fært út kvíarnar og aukið
flugvélakost sinn.
Jólakvöldvöku
heldur Verslunarmannafél. Rvík-
ur annað kvöld a'ð félagsheimili
sínu. Jólatrésskemtanir félagsins
verða 2., 3. og 4. janúar, og verð-
ur byrjað að selja aðgöngumiða í
dag.
%i‘íiiR>|öb‘ii licrsir:
Skipverjarnir sem meitld-
ust eru á góðum batavegi.
Nkipið er mjög litið ikemt.
Ríkisstjórninni barst í morgun skeyti frá Pétri
Benediktssyni, sendifulltrúa í London, um
líðan skipver janna á Arinbirni hersi. Segir í
skeytinu, að mönnum þeim, sem meiddust, er árásin
var gerð á skipið, líði öllum vel og sé þeir allir á góðum
batavegi, en tveir þeirra muni þó þurfa að dvel ja í
s júkrahúsi um þriggja vikna tíma. Er búist við að hin-
ir fari úr s júkrahúsinu bráðlega, en um það mun Pét-
ur Benediktsson síma síðar í dag.
Það er til athugunar að skipshöfnin fari strax um borð í
skipið aftur. Það er mjög lítið skemt, en upplýsingar um skemd-
irnar em ckki alveg öruggar ennþá.
Árásin var gerð á skipið um
sexleytið síðastliðinn sunnu-
dagsmorgun, en skipið hafði
lagt af stað frá Fleetwood á
laugardagskvöld. Kómu fyrslu
fregnir um árásina í skeyti frá
Pétri Benediktssyni á mánu-
dagskvöld.
í skeyti því var skýrt svo frá,
að skipverjar hefði farið í bát-
ana og hefði siglt til hafnar í
Skotlandi. Hefði fjórir skip-
verja meiðst, þó ekki hættulega.
Togarinn hefði siðan'verið dreg-
inn til hafnar.
Hinar mestu tröllasögur hafa
gengið um bæinn undanfarna
daga, í sambandi við árásina.
Var ein sagan á þá leið, að eng-
in árás hefði verið gerð á skipið
og Kveldúlfur myndi nú vera
búinn að tapa skipinu, það
hefði verið tekið sem vogrek.
Önnur saga var á þá leið, að
h.v. „Snorra goða“ hefði verið
sökt i loftárás.
Enginn fótur er fyrir síðari
sögunni, en um hina fyri’i má
það segja, að islenskir sjómenn
eru ekki vanir því að renna af
hólmi að ástæðulausu og
meiðsli skipverjanna fjögra
segja og til um það, að um loft-
árás hefir verið að ræða.
Hefir hér verið sagður allur
sannleikur um þetta mál og ætti
menn að varast, að leggja trún-
að á eða breiða út sagnir, sem
ekki hefir fengist opinber stað-
festing á.
M.s. Súlan bjarg-
aði 32
monnum.
Viðvíkjandi fregn er Vísir
birti s.I. sunnudag um björgun
þá, er mótorskipið „Súlan“
(eign dánarbús Sig. Bjarnason-
ar á Akureyri) framkvæmdi við
Englandsstrendur rétt fyrir
miðjan mánuðinn, hefir blað-
inu borist nánari upplýsingar
um þessa björgun.
Það var þann 12. þ. m. er i
Súlan var i 10 sjómílna fjar-
lægð sunnan við eyna St. Kilda,
að bresk flugvél flaug yfir Súl-
una og skaut niður flugeldum.
Sáu skipverjar þá livar rauðan
blossa bar í stefnu á eyna og
grunaði þegai’, að þar væri ekki
alt með feldu. Breytti Súlan þá
um stefnu og stefndi á logann.
Ilafði skipið elcki siglt nema
fáeinar mínútur, er það fann
björgunarbát, sem í voru 11
menn.
Samkv#m,t lilvísun bátsverja
fann Súlan annan björgunarbát
og í honum voru 26 menn.
Mennimir voru af belgisku
skipi, „Macedonniere“ að nafni
og hafði verið skotið á það
tundurskeyti skamt undan
eynrii.
Súlan fór með mennina til
Fleetwood.
Smámynt seldist
fyrir 35 ps. kr.
á 7 klst.
Þörfin fyrir smámyntina var
orðin mjög brýn fyrir jólin og
hefir enda verið það í alt liaust.
En á Þorláksmessu rættist loks
úr þessinn sknrti. meíS þvj a'ð
nokkur hluti smámyntarinnar
kionisl þá í umferð. Var selt
fyrir rúmlega 35 þúsund krón-
ur af henni frá því á hádegi á
Þorláksmessu og þar lil á há-
degi daginn eftir (aðfangadag).
Það er ekki nema srnæsta
myntin, sem komin er til lands-
ins: Koparmyntin, 10- og 25-
eyringarnir. En það er von á
1 lcrónu og 2ja krónu peningun-
um strax eftir nýárið.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 18.30 Barnatími: ViÖ jólatréð
(Sig. Thorlacius skólastj. o. fl.).
20.00 Fréttir. 20.30 Útvarpssagan:
„Kristín Lafransdóttir", eftir Sig-
rid Undset. 21.00 Erindi: Úr sögu
tónlistarinnar, III: Forn-Grikkir og
fyrri. hluti miðalda (með tóndæm-
um) (Robert Abraham).
V. K. R.
Nýársdansleikur verður í IÖnó á
gamlaárskvöld. ASgöngumiSar
ver'Sa seldir á mánudag. Nánar aug-
lýst á morgun.
Bæjap
fréttír
Jólablað Vísis
sem jafnframt var afmælisblað,
hefir að þessu sinni hlotið meiri
vinsældir en dæmi eru til áSur, þvi
j>aÖ seldist upp á tveim dögum.
Ibúar við Nýlendugötu
sendu fyrir nokkuru bæjarráði
erindi um aS borið yrði ofan í göt-
una og henni lokað fyrir bifreiða-
umferð. Málinu var vísað til bæjar-
verkfræðings til athugunar og af-
greiðslu að því er snertir ofaní-
burð.
Pylsuvagnarnir.
Bæjarráð samþykti á síðasta fundi
sínum, að pylsuvagnarnir yrði aÖ
fara frá Útvegsbankanum. Jafn-
framt var samþ.'aÖ ætla þeim fyrst
um sinn stæði í Kolasundi, eftir
nánari tilvisun bæjarverkfræðings.
Bæjarráð
hélt fund síðastl. föstudag, og
var þar m. a. lagt fram bréf frá
lögreglustjóra dags. 16. þ. m. Sam-
jrykti bæjarráð að lýsa yfir J>ví, að
það rill ckki lcyfa föst bifreiða-
stæði í Pósthússtræti, milli Austur-
strætis og Hafnarstrætis, en bend-
ir á aS ætla megi lögreglubifreiS-
unum staéði á ,,planinu“ norðan
Hafnarstrætis 15.
Félagsmálaráðuneytið
tilkynti bæjarráði með bréfi dags.
12. þ. m., að hin nýja gjaldskrá
Rafmagnsveitunnar hefði verið
staSfest.
Samþykt
var á síðasta bæjarráÖsfundi, aS
láta setja upp aðvörunarmerki fyrir
bifreiðarstjóra á vegamótum SuSur-
götu og Vonarstrætis.
Akstur lögregluþjóna.
Bæjarráð hefir samþykt aS verja
alt að xooo kr. til aksturs á lög-
regluþjónum bæjarins með strætis-
vögnum 1940.
Næturakstur.
Aðalstöðin, Lækjartorgi, sími
1383, hefir opið í nótt.
Hjónaefni.
Á jóladag opinberuðu trúlofun
sina ungfrú Ingibjörg Sigurbjörns-
dóttir, Linnetsstig 13, Plafnarfirði,
og Stefán Ottó Helgason, Lækjar-
hvammi við Reýkjavík.
Áramótadansleikur
glímufélagsins Ármann verður haldinn í Alþýðuhúsinu
við Hverfisgötu á gamlárskvöld kl. 10 síðd.
Dansað í báðum sölunum.
Aðgöngumiða fá félagsmenn fyrir sig og gesti sína
í skrifstofu félagsins á hverju kvöldi milli 8—10 síðld.,
sími 3356. Aðeins fyrir íslendinga.
Þjúðverjar verja 500 miljónum marka
árlega til útbreiðslustarfs og njósna
í ððrnm löndnm.
Höfundar greinar þessarar eru, William J. Donovan ofursti í her Banda-
ríkjanna, og Edgar Mowrer, þektur blaðamaður vestan hafs. Mowrer
starfaði einu sinni i Þýskalandi, en var landrækur ger og fluttist þá
ti) Frakklands. flonovan ofursti var fulltrúi BandaHkjahers í Frakk-
landi í vetur og vor. — Þegar Frakkland féll, fóru þeir vestur um
haf/ og Knox hermálaráðherra fól þeim að skrifa greinar um starf
„5. herdeildarinnar" í Evrópu. Birtist hér ein þeirra.
Þar sem telja verður að hin-
ir stórfenglegu hernaðarsigrar
Ilitlers komi að miklu leyti af
beitingu „5. lierdeildarinnar“ í
óvinalöndunum, hljóta að
vakna með mönnum eftirfar-
andi spurningar: Hvernig er
þetta mögulegt? Hveynig er
hægt að fá Þjóðverja i öðrum
löndum til þess að fórna sér
svo fyrir nasistana? Og — um-
fram alt — hvernig er hægt að
fá annara þjóða menn, sem
eiga að búa við mildar og sið-
aðar rikisstjórnir, til þess að
vega að baki þjóð sinni í þágu
Ilitlers? Þetta er alt mjög dul-
arfult.
Svarið er 500 miljónir marka
sem árlega er varið til skipu-
lagningar og útbreiðslustarf-
semi í öðrum löndum. Stærð
þessarar upphæðar er leynd-
armálið. Nasi-Þýskaland er
nefnilega samsæri. Það stefnir
að heimsyfirráðum, og starfs-
menn þess eru allir þeir Þjóð-
verjar, heima og erlendis, sem
fást til að vinna fyrir það.
Fyrsta skrefið er að fá Þjóð-
verja, sem búa í öðrum lönd-
um, á sitt band. Síðan eru ó-
vinir eða ætlaðir óvinir ofsótt-
ir og komið fyrir kattarnef, og
loks er gerð uppreist í landi
því, sem Þýskaland ætlar að
leggja undir sig. Slíkar upp-
reistir voru raunveriflega gerð-
ar í Austurriki, Tékkóslóvakíu
og Hollandi.
Það er engin hindrun, þó að
Þjóðverjar í öðrum löndum
hafi fengið þar borgararétt.
Þýskaland keisaratímans
leyfði, að Þjóðverjar fengi
horgararéttindi í öðrum lönd-
um, án þess að missa borgara-
réttinn þýska. Weimar-lýð-
veldið bréytti þvi elcki og nas-
istar hafa notað sér það til að
smíða sína „Troju-hesta“.
Þjóðverjar, sem fengu borg-
araréttindi í öðrn landi fyrir
50 árum, eru enn þýskir ríkis-
horgarar og þeir eru óspart
látnir vita það. Þótt aðallega
sé reynt að fá norræna menn
í lið með nasistum, eru annara
kynflokka menn einnig vel-
komnir.
Miðdepillinn er nasista-
flokkurinn, verkfærið Die Aus-
lands-Organisation lians. í
þeirri deild hans eru nú 4 mil-
jónir Þjóðverja. Sex liundruð
félög eru í 45 landadeildum
(Landesgruppen).
Miðstöðin er Stuttgart, en
öllum deildunum er stjórnað
af einum manni í Berlín, Ernst
Wilhelm Bohle, Gauleiter, sem
hefir um 800 aðstoðarmenn.
Að nafninu til er liann fulltrúi
í utanrikisriáðuneytinu.
Þar sem deildirnar þora ekki
að sýna réttan lit, ganga þær
undir ýmsum nöfnum, eins og
t .d. Járnvarðliðið í Rúmeníu,
„Sannir samveldismenn“ i
Sviss og „Amerikadeutsclier
Volksbund“ í Bandaríkjunum.
En markið er altaf það sama,
að ná völdunum fyrir Hitler.
Skipulagning er líka altaf sú
sama: Stofnun stormsveita,
æskulýðsfylkinga og göngufé-
laga, hátiðahöld vegna nasista-
lietja og afmælisdags Ilitlers.
Á friðartímum gera þær skrár
yfir fjandmenn sína, sem á að
útmá, þegar tíminn kemur.
En utanríkisdeild nasista-
flokksins er ekki eini aðilinn,
sem starfar fyrir IJitler í öðr-
um löndum. Þeir eru átta alls.
IJinir eru Gestapo, úllireiðslu-
málaráðuneyti dr. Göbbels,
verkalýðsfyllcingin, njósna-
deildir hersins, flotans og loft-
hersins og loks utanríkismála-
ráðuneytið, sem hefir sendi-
sveitir og ræðismenn um allar
jarðir.
Ulanríkisstarfsemi þessara
átta aðila kostar samtals 500
miljónir marka. Það er mikil
fúlga, en Hitler hefir sagt, að
starfseminni skuli lialdið á-
fram af fullum krafti, enda
þótt hann yrði þá að kalla 50
—60 þúsund færri menn til
vopna. En þar sem þessi starf-
semi getur þakkað sér að
miklu leyti hversu Hitler sigr-
aði víða auðveldlega, þykir
varla of miklu til liennar varið.
Menn geta gert sér grein fyr-
ir hvað öllum þeim mönnum,
sem laun hljóta frá Þýska-
landi, sé ællað að gera. Þeir
eiga að gæta að öllu, sem að
gagni má koma fyrir Þýska-
land. Silt af hverju, sem spæj-
ararnir komast að, þykir
kannske einskis virði, þegar
það er athugað út af fyrir sig.
En þegar safnað er saman ár-
angrinum af starfi margra
þeirra, fást heilsteyptar mynd-
ir, sem marga ályktun má
drága af, og þá verður margt
ljósara, sem áður var óskýrt
og virtist vera alveg út i blá-
inn.
Við höldum þvi ekki fram,
að þetta sé tæmandi skýrsla.
Vel má vera, að til séu ein-
hverjar leynistofnanir, sem
menn vita ekki um. En það,
sem hér hefir verið sagt, gef-
ur mönnUm nokkra hugmynd
um það, hvers vegna Hitier
hefir tekist svo vel að „beisla“
þá Þjóðverja, sem búsettir eru
erlendis. Það hefir tekist, af
því að það er ekki unnið að
þvi hangandi hendi og fé ekki
skorið við nögl i því skyni.
/