Vísir - 04.02.1941, Qupperneq 3
VlSIR
Kaupirðu góðan hlut, þá mundu hvar þú fékkst hann<
Hvergi fá menn betri FÖT og FRAKKA en í ÁLAFOSS -
\ý cfBii koBiaiu í bbiöb‘s:iiiii litisiBB. — Fyi'sta flokks viiBiBSB. — ¥crzlið við ÁLAFOSS I'iuglioltsstræti 2.
Verkfallið á veitingahús-
unum heldur áfram.
Helstu ágpeiningsatpidin*
Verkfallið á veitingahúsunum heldur enn áfram og hefir
ekki dregið til samkomulags. Eru nokkur veitingahúsin
nú lokuð, en á sumum hinum smærri bera gestirnir sjálfir á
borð fyrir sig, — og kunna yfirleitt vei þeirri nýbreitni. —
Einn af lesendum blaðsins hefir sent Vísi eftirfarandi grein og
beðið biríingar, en þar sem ýmsir menn hafa gaman af að kynn-
ast þessu deilumáli nánar, — ekki sízt húsmæður bæjarins og
starfsstúlkur, — og ennfremur þar, sem grein þessi virðist rit-
uð af kunnugleik og sanngirni, kemur hún hér fyrir almenn-
ingssjónir.
I sumum dagblöðum liæjar-
ins liefir birzt frásögn um deilu
þá og kröfur, sem félag starí's-
stúlkna á veitingahúsum og
matsölustöðum liefir reist.
Sú frásögn er yfirleitt of stult
til þess að hún geti sýnt rétta
mynd af deilu þessari. Hér mun
verða gerð tilraun lii þess að
lýsa þessu nokkuð ýtarlega, með
þvi að gera grein fyrir flestum
þeim atriðum, sem lelja miá að
verulegu máli skipti.
1. Kjörin, eins og þau voru til
s. 1. áramóta. — Byrjunarlaun
skyldu vera í þrjá mánuði, kr.
60.00 og kr. 5.00 fyrir þjónustu,
samtals kr. 65.00 á mán. Eftir
þriggja mánaða starf skyldi
kaupið hækka upp í kr. 75.00 iá
mánuði, en þjónustugjaldið, kr.
5.00, haldast óbreytt, samtals kr.
80.00 á mánuði. Á kaup þetta
kom svo full dýrtíðaruppbót
samkvæmt lögum, en hún nam
um síðustu áramót 27%. Sið-
ustu þrjá mánuði ársins 1940
voru þannig allar mánaðarlegar
peningagreiðslur til stúlknanna,
samkvæmt samningi, fyrir
þessa tvo launaflokka, kr. 81.20
og kr. 100.25. Auk þess var fritt
fæði, hvort sem var í starfs- eða
frítíma, en eftir þvi sem dýr-
tíðin var orðin um áramót, eða
síðustu þrjá mánuði ársins yfir-
leilt, myndi g'olt fæði varla
kosta minna yfir mánuðinn en
90—100 krónur. Stúlkur, sem
veiktust, átlu rétt á fhllu kaupi
í 14 daga á ári. Sumarleyfi
þeirra var 10 dagar fyrir 6—12
mónaða starf á sama stað.
Yinnutimi starfsstúlkna var —
eða mátti vera — 63 klst. á viku,
en þar i voru taldir matmáls-
og kaffitímar, en þeir jnunu
vei’a til jafnaðar, þótt erfitt sé
einatt að þeir séu reglubundnir,
sölcum þess sérstaka starfs, sem
hér er um að i-æða, — um 12
klst. á viku, miðað við að unnið
sé 7 daga vikunnar. Raunveru-
legur starfstími verður þá um
51 klukkustund á viku. Það
verður um 7 klst. og 20 mínútur
á sólarliring, miðað við 7 daga,
en ca 8y2 klst, ef jniðað er við
6 daga. Krafa til sérnáms vegna
starfsemi þessarar er ekki gerð
önnur en sú, sem samningurinn
geri ráð fyrir, hvað snertir
langan og skamman starfstíma.
Hér mun þvi almennt um svip-
aða hæfni að ræða og hjá stúlk-
um, sem í algengum vistum
vinna. Samanburður á kjörum
starfsstúlkna í veitingahúsum
og matsölustöðum, og starfs-
stúlkna á heimilum yrði þvi
auðveldur, bæði hvað snertir
starfstíma, starfsskilyrði og
kaup. — Ef að hér værí um fag-
legt nám að ræða, þrjú til fjög-
ur ár, eins og reglan mun’ nú
vera, hvað hinar ýmsu iðngrein-
ir snertir hér í bæ, — jafnvel
þjónsstaða í veitingahúsi krefst
þriggja ára náms, gæti slíkur
samanburður vitaskuld ekki
komið til greina.
2. Breytingartillögur við
framangreindan samning. Byrj-
unarlaun skulu vera kr. 125.00
á mánuði og' á það reiknast full
dýrtíðaruppbót samkvæmt út-
reikningi verðlagsnefndar. Um
s. 1. áramót reyndist þetta ueina
42%. Samkvæmt þessu yrði
kaupið kr. 177.50 á mánuði.
Þjónustugjald o. þ. b. skyldi
bækka úr kr. 5.00 á mánuði upp
í kr. 15.00. Mánðargreiðsla í
peningum yrði þá alls kr. 192.50.
Stúlkur skyldu bafa fullt fæði
frítt, hvort sem þær væru i fríi
eða við vinnu, eins og áður. Ef
þær veiktust skyldu þær lialda
fullu kaupi í fjórar vikur á ári,
helmingi lengri tíma en áður
var. Sumarleyfi skyldi hækka
úr 10 dögum upp í 14 daga á
6—12 mánaða starfi. Þá skyldu
starfsstúlkurnar fá einn lieilan
frídag i viku. Vinnutími hina
sex daga vilcunnar skyldi vera
alls 54 klst., þar með lalið mat-
ar- og kaffihlé, sem skyldu vera
á dag — í sex daga — 1 klst. og
40 mín., alls yfir 6 daga vinnu-
viku 10 klst. Starfstími slcyldi
því vera á viku hverri réttar 44
klst., það eru 7 klst og 20 min.
í sex daga vikunnar á dag. Með
þessu fyrirkomulagi yrðu fastir
frídagar á ári í þessarí starfs-
grein 66 alls. Ef að svo erfiðlega
félli, að starfsstúlka forfallaðist
í 28- daga á ári vegna veikinda,
bæri henni fullt kaup fyrir alls
94 daga á ári, en það er rúinlega
fjórðungur ársins, án þess að
noklcurt verlc væri unnið -þá
i daga. —- Eins og i hiniim fyrra
samningi. eru hér, í þessum til-
lögum, ýms ákvæði, sem skipta
meira eða minna máli. Hér er t.
I d., auk ákvæðisins um írídaga í
viku, sem myndi verða mjög
kostnaðarsamt í framkvæmd,
annað ákvæði, sem líka myndi
viða reynast dýrt og örðugt við-
fangs. Þess er sem sé krafizt, að
við hver vaktaskipti skuli fært
inn í sérstaka bók, sem hver
starfsstúlka hefir, starfstími
þeirra. Þetta myndi hafa það í
för með sér, að lialda yrði sér-
stakan mann, til þess að færa
bók þessa. Hann vrði að mæta
við öll vaktaskipti, en þá gæti
svo farið að frítími hans vrði
litill, nema að einnig hér yrðu
vaktaskipti höfð.
3. Félag það, sem liér á lilut
að máli mun vera rúmlega árs-
gamallt. Með sanngirni og
menningárlegri uppbyggingu
meðlima sinna, mun það með
árunum eflast svo, vegna hæfni
þeirra til þeirra sérstöku verka,
sem hér er verið að vinna, að
það komist í sveit með öðrum
faglegum samtökum liér í bæ,
er mynduð eru um vissa kunn-
áttu og hæfni, bæði um það,
sem það hefir að bjóða og
þiggja. — Hvort stofnað hefir
verið til yfirstandandi deilu á
þessum tillölulega trausta
grundvelli, mun niðurstaða sú,
sem væntanlega finnst von bráð-
ar, sennilega sýna. En livað sem
því líður, þá er liitt ávallt hin
bráðasta nauðsyn, einkuhi þeg-
ar deilt er, að sannur vilji sann-
girninnar sé ríkjandi hjá báðum
aðilum.
Fundur brezkra
lýðræðissinna.
Hinn 12. janúar kom saman i
London þjóðfundur „lýðræðis-
sinna“ úr brezka heimsveldinu.
Var fundurinn boðaður af
stjórnarandstæðingum, í því
skyni að gagnrýna'-gerðir stjórn-
arinnar, og voru það eins og að
líkum lætur kommúnistar, sem
béldu uppi skarpastri gagnrýni.
Engar hömlur voru lagðar á
fundaliald þetta, enda gerðist
ekki neitt það á fundi þessum,
er gefið gæti stjórninni minnstu
ástæðu lil að óttast. Ræðui’, sem
haldnar voru, voru mjög hóf-
sainlega orðaðar, og er til þess
tekið að fundur þessi beri meira
vntt um' einlægan vjlja Breta til
að vinna lýðræðinu gagn, en að
liann hafi haft neina stjórn-
málaþýðingu.
Ályktanir fundarins voru í
átta liðum, cn friður var aðeins
nefndur í áttunda liðnum —
„friður þjóðarinar, unninn af
verkalýð allra landa og byggður
á valdi lýðsins til að ráða eigin
málum“, eins og það er orðað.
Með þvi að það voru aðallega
marxistar, sem til fundarins
boðuðu, kennir náttúrlega ým-
issa grasa í fundarályktuninni.
Eru það aðallega ákærur á
hendur brezku stjórninni fyrir
tómlæti hennar i loftvarnamál-
um Lundúnaborgar, en með
þeim áróðri bafa kommúnistar
þótzt geta valcið óánægju í garð
stjórnarinnar, vegna þess, hve
viðkvæmt þetta mál er. Voru
það aðallega ræðumennirnir R.
Palme-Dult og D. N. Prilt, seni
héldu þessum áróðri uppi.
Þrátt fyrir nokkra óánægju í
garð stjórnarinnar kom fram
einlægur vilji til sigurs á fasism-
anum.
Nokkrir fundarmanna kváð-
ust vera fulltrúar verkalýðsfé-
laga og jafnaðarmannaflokka,
en bæði brezki jafnaðarmahna-
flokkurinn ogverklýðssamband-
ið hafa neilað að hafa sent full-
trúa á fundinn.
Fregnir, sem sendar hafa ver-
ið út um fund þenna hafa verið
mjög ýktar, aðallega það, sem
sagt hefir verið um andstöðuna
gegn brezku stjórninni.
Bæjap
fréttír
Tilkynningar frá Líkn.
Ungbarnavcrndin er opin hvern
þriÖjudag og föstudag kl. 3—4. —
Káðleggingarstöð íyrir barnshaf-
andi konur er opin fyrsta miðviku-
dag í hverjum mánuði kl. 3—4. ■—
Börn eru hólusett gegn barnaveiki
mánudaga og fimmtud. kl. 5—ó.
Hringja ver'ður fyrst í síma 5967
milli kl. 11 og 12 á miðvikudög-
um og laugardögum, Templara-
sundi 3.
Alþingi
héfir verið kvatt saman til fund-
ar 15. febrúar.
Sex sönglög
heitir nýtt sönglagahefti eftir Sig-
valda S. Kaldalóns tónskáld, er úl
kom á afmælisdegi hans. I heítinu
eru þessi lög: Huldur (Gr. Thom-
sen), Hamraborgin (Davíð Stefáns-
son), Heiðin há og Fjallið eina
(Grétar Fells), Með sólskinsfána
(Jak. Thorarensen), Eg syng um
þig (Kjartan Ólafsson). — Félags-
prentsmiðjan hf. gefur heftið út.
Næturakstur
hefir Aðalstöðin, Lækjartorgi,
sími 1383.
Axel Guðmundsson
á Skattstofunni biður þess getið,
að hann- sé ekki höfundur greina
þeirra, sem skrifaðar hafa verið um
verkalýðsmál í dagblaðið Vísi und-
anfarið.
Hallgrímssókn.
Fermingarbörn sirá Sigurbjarnar
Einarssonar, komi til viðtals í Aust-
urbæjarskólann næstk. fimmtudag
kl. 5 siðd. — Fermingarbörn síra
Jakobs Jónssonar komi á sama stað
og tinra. Gengið inn frá leikvell-
inum.
Heimilisfang
síra Sigurbjarnar Einarssonar er
á Freyjugötu 17, sími 4273.
Næturlæknir.
Björgvin Finnsson, Laufásveg
11, sími 2415. Næturvörður í
Reykjavikur apóteki og Lyfjabúð-
inni Iðunni.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 18.30 Dönskuennsla, 1. fl.
19.00 Enskukennsla, 2. fl. 19.25 Er-
indi: Uppeldismál, II (dr. Símon
Jóh. Ágústsson). 20.00 Fréttir.
20.30 Erindi: Kynþættir Evrópu
(Ólafur Þ. Kristjánsson, kennari).
21.00 Tónleikar Tónlistarskólans:
Sónata fyrir celló og píanó, C-dúr,
eftir Beethoven (cello: dr. Edel-
stein; píanó: dr. Urbantschitch).
21.20 Hljómplötur: Symfónía nr.
1, eftir Sibelius.
IR
er seldup á eftirtöldum stööum s
Veitingástofunni, Laugavegi 28.
Veitingastofunni, Laugavegi 45.
Veitingastofunni, Laugavegi 46.
Veitingastofunni, Laugavegi 72.
Veitingastofunni Inn, Hverfisgötu 32.
Verzluninni Rangá, Hverfisgötu 71.
Stefáns Café, Skólavörðustig 3.
Ávaxtabúðinni, Týsgötu 8.
Testofunni Drangey, Grettisgötu 1.
Brauðsölubúðinni, Njálsgöu 40.
Brauðsölubúðinni, Bergþórugötu 2.
Skóvinnustofunni, Vitastíg 11.
Brauðsölubúðinni, Hringbraut 61.
Verzluninni, Bergstaðastræti 40.
Mjólkurbúðinni, Miðstræti 12.
Hótel Borg.
Brauðsölubúðinni, Tjarnargötu 5.
Bókabúð Eimreiðarinnar, Áðalstræti 6.
Búðinni í Kolasundi 1.
Kaffistofunni í Hafnarhúsinu.
Konfektgerðinni Fjólu, Vesturgötu 29.
Veitingastofunni, Vesturgötu 48.
Brauðsölubúðinni, Bræðraborgarstíg 29.
Brauðsölubúðinni, Brávallagötu 10.
Verzluninni á Víðimel 35.
Jj o
IIjartans þakkir iil vina og vandamanna, nær og g
/jær, fgrir allbr þær gjafir og góðu óskii;, cr mér bár- i?
« nst á sjötugs afmæli rriinu og skópu mér ógleumanlega
o gleðistund. J?
« Þ ó r ð u r B j a r na s o n. 5J
» g
luOOOOUOOOOOOCKSOOOOQOOOOO;XÍOOOO»CKlCaQO»OCKK>OQaO»QOOCXX
300 kr. fær sá,
er getur útvegað STRAX 3—4—5 herbergja nýtízku
íbúð á góðum stað, með baði og eldhúsi. — Tilboð,
merkt „300 kr.“, sendist afgr. Vísis.
Borðal
II
anök
Borðalmanakablokkir
V eggalmanök
Finnup Einarsson Bókaverzlun
Austurstræti 1. Sími: 1336.
FYRIRLIGGJANDI FJÖLBREYTT IJRVAL AF
Karlmannafata
«§■ Frakkaefnm
GEFJUN-IÐUNN
I
Aðalstræti. — Sími: 2838.
(áður eign Böðvarsbræðra í Hafnarfirði)
er til sölu, með íbúðar- og geymsluhúsum, Jóðum og öll-
um tilheyrandi mannvirkjum. Ennl'remur fiskreitur
12050 fermetrar að stærð, á svonefndu Háahrauni, á-
samt fiskgeymsluhúsi.
Tilboð óskast.
Nánari upplýsingar eru gefnar í útgerðarlána- eða
lögfræðingadeild bankans.
LANDSBANKI ÍSLANDS.
VÍSIS-KAFFIÐ gerir alla glaða
Hér með tilkynnist vinum og ættingjum, að Jóhannes Indriðason skósmiður andaðist á heimili sinu, Bergstaðastræti 12, að- faranótt þess 4. Aðstandendur.
Jarðarför sonar mins, Jóns Guðmundssonar, fer fram frá dómkirkjunni og hefst með liúskveðju á heim- ili hans, Óðinsgötu 18, miðvikudaginn 5. febrúar kl. 2 e. h. Jarðað verður i Fossvogi. Sigríður Jónsdóttir, Bókhlöðust. 6 A og aðrir aðstandendur.
X.