Vísir - 01.03.1941, Blaðsíða 1
Ritstjór i:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
Ritstjóri •
Blaðamenn Síml:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri S línur
Afgreiðsla
31. ár.
Reykjavík, laugardaginn 1. marz 1941.
49. tbl.
Ankara-fundinum lokið.
Búlgarar hafa
gerst aðilar að
Þríveldabanda'
nu.
Búlgaría hefir nú gerzt að-
ili aS þríveldabandalaginu (þ.
e. Þýzkalands, ítalíu og Jap-
an), og fór undirskriftarat.
höfnin fram með viðhöfn
í Vínarborg. Viðstaddur var
Hitler sjálfur, forsætisráð-
herra Búlgaríu og von Ribb-
entrop utanríkisráðherra
Þýzkalands og margt stór-
menni annað.
í löndum möndulveldanna
er það talið mjög mikilvægt,
að Búlgaría hefir gerzt aðili
að þríveldabandalaginu, og
talin enn ein sönnun fyrir því,
að allar meginlandsþjóðirnar
muni um það er lýkur fallast
á að hlíta leiðsögn Þjóðverja
sem forystuþjóðar í megin-
landsmálum öllum. 1 Bret-
landi er talið, að Búlgarar
hafi verið þvingaðir til þess
að gerast aðili að sáttmálan-
um, og mikill hluti þjóðar-
innar sé andvígur honum, og
vilji að stjórnin haldi fast víð
hlutleysisstefnu sína. En
Þjóðverjar hafa nú hert svo
tökin á Búlgörum, að þeir
verða að sitja og standa eins
og Þjóðverjar vilja, segja
Jiretar.
Þjóðverjar herða fökin á Búlgörum.
Það var tilkynnt opinberlega í útvarpinu í An-
kara i gærkveldi, að viðræðunum milli Eden,
Dills herforingja og tyrkneskra stjórnmála-
manna og herforingja væri nú lokið — með algeru sam-
komulagi. Tekið var fram, að rætt hafi verið um horf-
urnar í alþjóðamálum — og horfurnar á Balkanskaga
sérstaklega. Áður en þeir fóru, Eden og Dill, gengu þeir
á fund Inonu Tyrklandsforseta og voru þeir viðstaddir
Sarajoglu og sendiherra Breta. Áður en Eden fór ræddi
hann við Sir Stafford Cripps, sendiherra Breta í
Moskva.
LOFTÁRÁS Á MALTA.
MIKIÐ TJÓN.
Mikið tjón varð á eignurn og
manntjón mikið í loftárás, sem
gerð var á Malta í gær. Talið
er, að um 200 manns hafi orðið
liúsnæðisláusir. — A. m. k. ein
flugvél óvinanna var skotin
niður.
Um leið og þær fregnir hár-
ust, að handalag Tyrkja og
Breta væri traustara en nokk-
uru sinni, komu fregnir um, að
Þjóðverjar væri enn að hei'ða
tökin á Búlgörum. Er nú búist
við, að Búlgarar séu í þann veg-
inn að gerast aðilar að þrívelda-
handalaginnu, og ef til vill yrði
Hitler sjálfur viðstaddur, er
undirskriftin færi fram, senni-
lega í Vínarborg.
HÚSRANNSÓKN
OG HANDTÖKUR.
í fyrrakvöld kl. 8 og þar til
kl. 6Y2 í gærmorgun var Sofia
símasambandslaus við umheim-
inn og aðrar borgir og héruð
landsins, nema einni línu var
lialdið opinni til Belgrad. í dög-
un sló lögreglan hring um ýms
liverfi í horginni og fór fram.
húsrannsóknhjá 10 búlgörskum,
blaðamönnum, sem eru frétta-
ritarar ' erlendra blaða, t. d.
Londin Times og Chicago Daily
News. í einni fregn segir, að
blaðmennirnir liafi verið flutt-
ir i Ilýjar fangabúðir, §em kom-
ið hefir verið upp, en í Reuter-
fregn, að Rendell sendiherra
hafi mótmælt handtökunum
harðlega, og hafi a. lii. k. sumir
hlaðamennirnir verið látnir
lausir.
Ennfremur var yfirþjónn
sendiherrans, sem er Búlgari,
látinn laus, en hann liafði
skyndilega verið kvaddur í her-
þjónustu.
Verða Italir að yfirgefa
Eritreu og Somaliland
nú þegar?
Hersveitir Breta kreppa stöðugt að þeim.
Abessiniufjöllin seinustu virki ítala í
Austur-Afríku.
Það er nú talið æ líklegra, að vörn ítala í Eritreu muni bresta
þá og þegar, en hún má nú heita gersamlega þrotin í Somali-
landi. Hersveitir Breta, sem sækja til Kerin í Eritreu að norðan-
verðu frá eru nú komnar að útvirkjum Kerin og þar sem aðrar
hersveitir sækja að borginni að sunnanverðu frá og suðaustan-
verðu geta ítalir aðeins haldið undan til Asmara — en haldið
er uppi stöðugum loftárásum á járnbrautina þangað.
Mikla athygli vekur, að ítölsku blöðin virðast vera
að undirbúa ítölsku þjóðina undir tíðindin um, að
ekki að eins Somaliland, heldur og Eritrea -r elzta og
þjóðinni kærasta nýlendan — séu í þann veginn að
falla.
Blaðið Popolo di Italia viðurkenndi í gær, að ekki væri auðið
fyrir Itali í Austur-Afríku, er væri einangraðir frá ættjörð sinni,
að verjast öflugum nútímaherjum, og væri því líkur til, að yfir-
gefa yrði Somaliland og Eritreu, en haldið yrði áfram að veita
viðnám í hálendi Abessiniu. Öllum er Ijóst, að það er aðeins sagt
í hughreystingar skyni, að þar verði varist, því að þegar búið er
að taka Eritreu og Somaliland verður sókninni haldið#áfram af
enn meira kappi gegn ít ilum í Abessiniu.
Sendiherrann ræddi við for-
sætisráðherra Búlgaríu um her-
væðinguna þar í landi og mun
hafa krafizt skýringa á henni,
sérstaklega þar sem lierlið hef-
ir ^erið sent til landamæra
Tjyrklands og Grikklands,
bandamanna Breta, en frá þess-
um þjóðum þurfa Búlgarir ekki
að óttast neina árás.
ALFONSO LÁTINN.
Alfonso fyrr Spánarkonung-
ur létzt í Rómahorg í gær, 51
ára að aldri. — Þriggja daga
þjóðarsorg hefir verið fyrir-
skipuð á Spáni í tilefni af frá-
falli hans. Alfonso liafði verið
landflótta um, 10 ár.
ítalska þjóðin
fær loks að
heyra sann-
leikann.
ítölslcu hlöðin eru smám, sam-
an að segja þjóðinni meira og
meira um ósigra ítála. M. a. er
nýhúið að segja frá því, að 5
itölskum herflutningaskipum
liafi verið sökkt á leið til' Al-
haníu.
Reikningur fyrir
hernaðarlega aðstoð.
Eitthvert gleggsta merkið um
vandræði Mussolini er það, að
hann liefir nú sent Franco
fju-ir aðstoð veitta í Spánar-
reilcning upp á 68 milj. stpd.
styrjöldinni, en það var aldrei
minnst á það áður, að Spán-
verjar yrði að greiða fyrir þá
aðstoð. Nú segir Mussolini, að
ítalir hafi lamast hernaðarlega
vegna aðstoðarinnar við Spán,
og reynir að a'fsaka hrakfar-
irnar fyrir Bretum með því.
Loftárásir á Tripoli.
Ljósmyndir, sem teknar liafa
verið úr flugvélum yfir Tripoli,
sýna að miklar skemmdir hafa
orðið þar í seinustu loftárásum.
M. a. hrunnu tvær rafmagns-
stöðvarhyggingar til kaldra
kola.
300 kr. sekt fyrir lirot
á Msaieigulögunnm.
J*yrir nokkuru var kveðinn
upp dórnur gegn Guð-
mundi H. Þórðarsyni stórkaup-
manni fyrir brot á húsaleigu-
lögunum í nokkurum tilfellum.
Guðmundur var dæmdur í
300 kr. sekt og til að greiða
málskostnað. Hann hafði tekið
of háa leigu af fimm leigutök-
um og sagt tveim upp íhúðurh
að ólögum.
Loftbelgur
næst fyrír
innan bæinn.
T MORGUN veittu bæjarbúar
því eftirtekt, að loftbelgur,
eins og þeir, sem notaðir eru í
Bretlandi, sveif fyrir innan bæ-
inn. Datt ýmsum í hug, hvort
hér myndi vera að ræða um
auknar loftvarnir af hálfu
Breta.
Svo er þó ekki, því að i hirt-
ingu í morgun kom belgurinn
svífandi úr norðri og dró á eftir
sér langan vírstreng, eins og
þeir belgir liafa gert, sem liafa
valdið tjóni á símalinum hér á
landi.
Belgurinn sveif fram lijá
Kleppi, en skanimt þar fyrir
sunnan tókst brezkum her-
mönnum að ná í virinn og gátu
þar með stöðvað belginn.
Undir hádegið fór helgurinn
að lækka i lofti og náðu Bretar
honum niður.
Belgur þessi skemmdi síma-
línur á Kjalarnesi, en viðgerð-
armenn simans voru þar nær-
staddir og kipptu því strax í
lag.
Vestmannaeyja-
bátar sluppu
margir nauðu-
lega úr róðri,
AHir eða flestir Vestmanna-
eyjabátanna réru í fyrrinótt og
höfðu landvar lengi fram eftir
degi.
Bátar þeir, sem héldu sig á
eystra hluta veiðisvæðisins
sluppu vel í land, en hinir
nauðulega, sem lengra fóru
vestur.
Telja sjómenn í Eyjum, að
þeir hafi aldrei lent í verra
veðri á sjó né komizt í hann
jafnkrappan. Veðurhæðin var
geysimikil og ísing svo mikil,
að illt var að athafna sig.
Allir bátarnir náðu þó landi
klakklaust og ennfremur einn
útilegubátur af þremur, sem
veiðar stunda frá Vestmanna-
eyjum. Bátar þeir, sem ókomnir
eru lieita Kári og Baldur, en
ekki er talin ástæða til að ótt-
ast um þá.
Laxfoss, sem var á leið til
Vestmannaeyja er óveðrið skall
á, komst þangað heilu og höldnu
í gærmorgun. Hafði hann lengst
af legið út af Stokkseyri, og
liafði förin reynst liin erfiðasta
á allan hátt.
Óðni, Rúnu og
Estelle náð út.
Engar frekari skemmdir urðu
af veðrinu í nótt hér í höfninni,
að því er Vísi Var tjáð í morg-
un. —
Magni byrjaði í morgun að
ná út livalveiðabátnum Estelle,
línuveiðaranum Rúnu og varð-
bátnum Óðni, sem liöfðu rekið
upp fyrir vestan Ægisgarð.
Gekk þetta greiðlega og munu
skipin ekki liafa orðið fyrir
neinum skemmdum, sen> telj-
andiN eru.
Strandið á Mýrdalssandi:
Björgun gengur
ágætlega.
—— . *
Kl. 10,30 var búið að bjarga
21 af 44 skipverjum.
m hádegi í gær strandaði
5000 smál. belgiskt skip
við Kötlutanga á Mýrdalssandi.
Sendi skipið þegar frá sér neyð-
armerki, en Skipaútgerð ríkis-
ins sendi Ægi á vettvang, því að
hann var þá staddur fyrir sunn-
an land.
Þegar Ægir kom á strand-
staðinn reyndist ómögulegt að
gera björgunartilraunir fró sjó
og sendi liann skeyti um það til
Reykjavíkur, að mennirnir í ná-
grenni strandstaðarins gerði að-
vart um strandið.
Sími var bilaður austan Mark-
arfljóts og var því birt tilkynn-
ing um þetta í útvarpinu. Fóru
þá menn fyrir austan þegar á
strandstaðinn, en gátu ekkert
aðhafst fyrri en undir morgun.
Lýsti Ægir skipið upp í nótt.
Snemma í morgun fékk svo
Pálmi Loftsson, forstjóri Skipa-
útgerðar ríkisins, skeyti frá Ægi
um það, að búið væri að koma
linu úr landi i belgiska skipið.
Kl. ÍO1/^ sendi Ægir aftur
skeyti um það að búið væri a'ó
bjarga 21 manni af 44, sem á
skipinu eru. Virðist björgun þvi
ganga mjög vel og má búast við
að tekizt liafi að bjarga öllum
skipverjum um eða eftir liádeg-
ið.
Víntunnu
stolið.
I gær var einni víntunnu
stolið af bifreið Áfengisverzlun-
arinnar, er hún var að aka vín-
tunnunum sem rak úr portú-
galska skipinu, inn í Nýborg. —
Fékk lögreglan vitneskju um
það utan úr hæ, að i liúsi einu
væri verið að koma ámu fyrir í
kjallara hússins. Fór lögreglan
jiegar á vettvang og fann þar
liina stolnu tunnu. Voru tveir
menn í félagi um stuldinn og
náðist til þeirra beggja.
Annars bar talsvert á þvi i
gærmorgun, að menn töppuðu
vín af tunnunum sem rak úr
strandaða skipinu og gerðust
ölvaðir. Voru menn með mesta
móti teknir úr umferð í gær og
nótt og mun þessi óvænti reki
liafa átt sinn þátt í því.
Metafli
700 kr. hlutur á ein»
um degi.
Meðal Vestmannaeyjabáta,
sem réru í fyrrinótt var m.b.
Leo, eign Þorvalds Guðjónsson-
ar, sem jafnframt er skipstjóri
á bátnum.
Lá m.h. Leó suður af Bjarn^
arey í allan gærdag að lieita
mátti og fiskaði í vari af eyj-
unni.
Aflaði báturinn 30 smálestir
fiskjar og telur formaðurinn að
það muni nema um kr. 700.00
í hlut.
Ef hér er ekki orðum aukið,
sem engin ástæða er til að ætla,
mun þetta vera alger metafli á
bát af sömu stærð og Leo er.
Hér á myndinni
sjást skipinþrjú,
l sem rak- upp hjá
Slippnum.
Fremst er Óð-
in, vinstra meg-
in við hann er
Rúna, en yfir
Óðinn sést i
reykháf og
siglutré á norska
skipinu Estelle.
Vélbátarnir
„Vestri“ og
„Kristín“ mara í
kafi í krikanum
vestan Grófar-
bryggju.