Vísir - 15.03.1941, Blaðsíða 4
VlSIR
HH Gamla Bíó |
Koliinwoii-
fjöldikyitlau
(Swiss Famity Robinson).
Stórfengleg amerísk kvik-
mynd frá Radio Pictures.
THOMAS MÍTCHELL,
EDNA BEST,
FREÐDY
BARTHOLOMEW.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Lækkað verð kl. 5.
FAIJST
Vegna margra tilmæla verð
ur FAUST sýndur í Varðar
húsinu annað kvöld kl. 8'/2.
Aðgöngumiðasalan í Varð-
arhúsinu opin í dag kl. 4—6
og á morgun eftir kl. 1.
Sími 3058.
ALLRA SÍÐASTA SINN.
Tónlistarfélagið og Leikfélag Reykjavíkur.
.AITOM IIK-
Sýning annaó kvöld ki. 8.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4—7 i dag.
Ath. Frá kl. 4 til 5 verður ekki svarað í síma. — _
mír mm
+ _srtw
Reykjavíkur Annáll h.f.
Itevyan
verður næst leikin
mánudagskvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir á morg-
un (sunnudag) kl. 4—7 og
eftir kl. 1 á mánudag. —
i Iönó í kvöld.
HIN ÁGÆTA HLJÓMSVEIT IÐNÓ LEIKUR.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 6. —
Tryggið ykkur þá tímanlega.
Að eins fyrir íslendinga.
Ölvuðum mönnum bannaður aðgangur.
Bifreiðastöðin GEYSIR BEZTU BÍLAR BÆJARINS. Nýtísku upphitun. Símar 1216 og 1633.
] b.s. Hekla f&sa. Ábyggileg afgreiðsla
Bæjop
fréttír
Messur á mDrgun.
í dómkirkjusöfnuði kl. u, síra
Friðrik Hallgrítnsson; kl. 5, síra
Bjarni Jónsson.
í fríkirkjusöfnuði kl. 2, barna-
guðsþjónusta, síra Árni Sigurðsson ;
kl. 5 síra Árni Sigurðsson.
í Hallgrímssöfnuði kl. ioj4
’barnaguðsþjónusta í Austurbæjar-
skólanum, síra Jalcob Jónsson; kl.
11 f. h. hámessa i fríkirkjunni, síra
Sigurbjörn Linarsson.
í Nessöfnuði kl. 2, guðsþjónusta
á Elliheimilinu Grund, síra Jón
Thorarensen.
1 Laugarnesskóía barnaguðsþjón-
usta kl. 10 f. h. Engin síðdegis-
messa.
í háskólakapellunni kl. 5: Stud.
íheol. Jens Beriediktsson stígur í
stólinn. — Kl. 10 f. h. sunnudaga-
skólinn. Inngangur urn aðaldyr.
í kaþólsku kirkjunni í Landakoti:
Lágmessa kl. 6)4 árd. Hámessa
(minning Sigþórs Guðmundssonar
háseta á Gullfossi) kl. 10 árd. —
Bænahald og prédikun kl. 6 síðd.
Dansk Gudstjeneste hver Söndag
kl. 11 Form. Rasmus Biering Prip
'talar í Trefoil Sailor’s Rest. í
Tryggvagata.
í Hafnarfjarðarkirkju föstuguðs-
'þjóhusta kl. 5, síra Garðar Þor-
steinsson.
í fríkirkjunni t Hafnarfirði kl. 2,
barnaguðsþjónusta. Föstuguðsþj ón-
usta kl. 5, síra Jón Auðuns.
Að Bjarnastöðum, guðsþjónusta
Jd. 2.
í Útskálaprestalcalli; Guðsþjón-
asta í Keflavík kl. 2, barnaguðs-
þjónusta kl. 5. Síra Eiríkur Brynj-
ólfsson.
Guðskepifél, fslands
heldur II. kynnikvold sitt annað
kvöld kl. 9. Aðgöngumiðar á eina
lcrónu fást við innganginn.
Háskólafyrirlestur.
Prófessor Ólafur Lárusson flyt-
ttr fyrirlestur í Hátíðasal Háskól-
ans á morgun sunnudaginn 16. rnarz
kl. 2 e. h. Efni: Hefndir. Öllum
frjáls aðgangur.
Faust.
I gærkvöldi var önnur skólasýn-
ing á Faust. Var fullt hús og
skemmtu áhorfendur sér prýðilega.
Síðast þegar leikurinn var sýndur
opinherlega varð margt manna frá
að hverfa og hafa leikfélaginu bor-
izt margar áskoranir um að sýna
leikinn enn þá einu sinni. Vegna til-
mæla þessara og vegna fjölda að-
komumanna, sem nú dvelja í hæn-
um, verður Faust sýndur enn þá
einu sinni, anuað kvöld kl. 8)4. Að-
göngumiðasalan í Varðarhúsinu
verður opin í dag kl. 4—6 og er
þar hægt að panta aðgöngumiða í
síma 3058. Þeir, sem ekki hafa enn
séð þenna merka leik, ættu nú að
nota þetta tækifæri.
\
Operettan Nitouche
verður sýnd annað kvöld og hefst
sala aðgöngumiða kl. 4 í dag.
Sigurður Eggerz
flytur ræðu á fundi Sjálfstæðis-
félags Rvíkur í Oddfellowhúsinu
kl. 2 e. h. á morgun. Ríkisstjórn og
alþingismönnum er boðið á fund-
inn.
Næturlæknar.
I nótt: Halldór Stefánsson, Rán-
argötu 12, sími 2234. Næturvörður
í Ingólfs apóteki og Laugavegs apó-
teki.
Aðra nótt: Ólafur Þ. Þorsteins-
son, Eiríksgötu 19, sími 2255. Næt-
urvörður í Lyfjabúðinni Iðunni og
Reykjavíkur apóteki.
Helgidagslæknir.
Gunnar Cortes, Eiríksgötu 11,
sími 5995.
Útvaijpið í kvöld.
Kl. 15.30 Miðdegisútvarp. 18.30
Dönskukennsla, 1. fl. 19.00 Ensku-
kennsla, 2. fl. 19.25 Þingfréttir. —
20.00 Fréttir. 20.30 Leikrit: ,,Þeg-
ar næturgalinn söng“, eftir Michael
Arlen (Brynj. Jóhannesson, Indriði
Waage, Arndís Björnsdóttir). 21.30
Danslög til lcl. 24.
Útvarpið á morgun.
Kl. 10.00 Morguntónleikar. 12.00
Hádegisútvarp. 15.30 Miðdegisút
varp: Karnevalslög. 18.30 Barria-
tími. 19.15 Slavneskir dansar eftir
Dvorák. 20.30 Norræna félagið:
Færeyskt kvöld. a) Stefán Jóh.
Stefánsson: Ávarp. b) Chr. Djur-
huus sýslumaður: Ræða (á fær-
eysku og í þýðingu). c) Færeysk
alþýðulög (plötur). d) Aðalsteinn
Sigmundsson: Færeyjar. e) Ole
Jakob Jensen : Færeysk danzkvæði.
f) Pétur Sigurðsson: Úr sögu
Færeyinga. g) Þjóðsöngur Fær-
eyinga. 21.55 Fréttir. Danslög til
23.00.
DANMÖRK.
Frh. af 1. síðu.
verkamannsins verða slík, er
búið er við þýzk atvinnuskilyrði.
Flestir verkamennirnir eru
vegavinnumenn, jámiðnaðar-
menn, hafnar- eða flutninga-
verkamenn. Kolanámumenn
liafa verið sendir frá Kaup-
mannaliöfn til „Stinneswerke“ í
Essen. Þjóðverjar liafa lagt á-
herzlu á það, að auðveldara yrði
að selja Dönum kol og önnur
hráefni, sem, þeir þarfnast mjög
— með þessu1 móti. En nú, þeg-
ar vetrarkuldiim er í algleym-
ingi í Danmörku, reyna Danir
ennþá brigðmælgi Þjóðverja.“ '
Islendinga.
Um aldir og ár hafa íslend-
ingar verið að berjast fyrir fullu
frelsi þjóðinni til handa. Enda
þótt menn hafi greint á um
leiðirnar að markinu, má víst
með sanni segja, að þráin eftir
fullkomnu frelsi hafi verið og
sé öllum sönnum föðurlands-
vinum hjartans mál. Eitt hið
augljósasta tákn liverrar þjóð-
ar um fullkomið sjálfstæði, er
iviðurkenndur þjóðfáni, sem,
nota má livar í heimi, sem er,
á skipum á höfum úti, eða í er-
lendum höfnum og á bygging-
um, þar sem opinberír fulltrúar
þjóðarinnar liúa erlendis. Bar-
átta Islendinga fyrir sérstökum,
þjóðfána var hæði löng og
liörð. Það er að vonum, að þeg-
ar velja skal slílct þjóðarein-
kenni, séu merin ekld allir á eitt
sáttir; við því er varla að búast
hjá oss Islendingum, oss hefir
verið annað betur gefið en það,
að vera sammála um hlutina.
Þegár þjóðfáninn var að
skapast, héldu sumir fram blá-
hvíta fánanum og til lians voru
orkt fögur kvæði. Var. því hald-
ið fram af þeim, er hezt töldu
sig geta um dæmt, að bláhvíti
fáninn væri svo táknrænn og
hreinn, tútkaði svo vel það, sem
mest væri áberandi í íslenzkri
náttúru, að lengra yrði ekki
komizt og því bæri að velja
hann. Aðrir héldu fram þeim
fána, er ofan á varð og við nú
höfum góðu heilli. En sökum
þess, að raddir hafa komið fram
um að breyta fánanum, er farið
að tala um hann hér, eða eins
og komizt var að orði, „að
nema burtu rauða litinn“ úr
honum. Var um það rætt og á-
lyktanir gerðar í því sambandi,
að sú stund nálgaðist nú óðum,
að Alþingi fslendinga þyrfti að
talca nxargar ákvarðanir, jafn-
vel á næstu dögum, ákvarðanir,
sem orðið gætu örlagaríkar
fyrir framtíð þjóðarinnar í sam-
bandi við réttarstöðu hennar
meðal þjóðanna, og því skyldi
nota tækifærið og breyta þjóð-
fánanum.
Þótt segja megi, að blálrvíti
fáninn sé fallegur og kvæði Ein-
ars um hann þróttmikið og fag-
urt, er þó ekki hægt að segja, að
hann sé vel aðgreinilegur fná
öðrum fánum í nokkurri fjar-
lægð, t. d. fána Svía, Grikkja
og jafnvel Argentínu, en á
slíku.er liin mesta nauðsyn, sér-
staklega á þeim tímum, sem nú
eru, þar sem öll skip hlutlausra
þjóða sigla með þjóðfána sína
málaða á skipshliðar og aðra
áberandi staði, til varnar gegn
árásum og lil aðgreiningar frá
skipum hinna stríðandi þjóða.
Það er einmitt á slíkum tímum,
sem mest veltur á þvi, að liver
fáni sé sem bezt aðgreindur frá
öðrum.
,í mörgum tilfellum er það
látið nægja, að mála liti fánans
á skipshliðarnar, en sleppa
hlutföllunum, eða krossinum.
Hefir þetta sést bæði á sænsk-
um og íslenzkum skipum og
fer þá munurinn að verða lítill
á hvítu og gulu í nokkurri
fjarlægð á óhreinum, gamal-
máluðum, eða illa máluðum
fána. Með því að halda rauða
krossinum, verður ekki á hon-
um villst.
Svo liefir og fáni sá, er við
nú höfum og öllum er orðinn
kær, er undir lionum sigla, ver-
ið sverð okkar og skjöldur, síð-
an eftir heimsstyrjöldina, og
það sem af er þeirri styrjöld,
sem nú geisar. Undir honum
liafa margir sigrar verið unnir,
þótt ekki teljist til heimsvið-
hurða, fyrir hann og einmití
fyrir það, hve aðgreinanlegur
hann er frá öðrum þjóðafán-
um, hefir margur góður dreng-
ur mátt lífi lialda. Það,. sem
fáni íslands er orðinn kunnur
meðal þjóðanna, er mikið fyrir
kynningai;starf sjómannanna
íslenzku. Mun vera óhætt að
fullyrða, að hann er óflekkað-
asti þjóðfáninn, sem blaktað
hefir á lieimshöfunum á síð-
ari timum. Hann er svo fagur,
að ekki verður á betra kosið.
Hann er einnig svo táknrænn,
sem bezt verður á Icosið, blámi
fjallanna, jöklarnir og sá eld-
ur, sem inni fyrir býr, bæði í
iðrum fósturjarðarinnar og í
hinni óslökkvandi frelsisþrá,
sem búið hefir, allt frá land-
námstíð, í öllum sönnum ís-
lendmgum.
Þegar gerður er samanburð-
ur á þjóðfánanum og þeim blá-
iivíta, mætti benda á,' að í blá-
hvíta fánann vantar eitt meg-
in-tákn jarðsögu íslands, Það,
að hvítt, eða snjór, sé nokkuð
sérstakt fyrir ísland, er alltaf
betur og betur að sýna sig, að
ekki er rétt, það ætti alveg eins
vel við, að tala um að bafa
krossinn grænan, þvi hvergi er
grasið grænna en á íslandi.
Það væri öllu meiri þjóðar-
sómi, að beita sér fyrir því, að
mörg þau skip og mörg þau
hús, sem fáninn nú blaktir yfir,
væru betur úr gárði gerð og
fegurri en þau eru nú, en að
fara að vekja upp deilur um
þjóðfánann að ástæðulausu.
Þjóðfáninn, eins og hann er
nú, er sá fegursti, sem blaktir á
höfunum, sjómönnunum þykir
vænt um hann og þeir mótmæla
]>ví allir sem, einn, að honum
verði breytt.
Á. S.
6
RUGLVSINGflR
BRÉFHHUSB
BÓKflKÓPUR
EK
QUSTURSTR.12.
Eggert Claessen
hæstaréttarmálaflutninicsniaéur
Skrifstofa: OddfellowhiiHinu
i
Vonarstræti 10, austurdyr.
Sími: 1171.
Viðtalstími: 10—12 Arrí.
Kvennadeild
Slysavarnafélags íslands.
Skemmti luadi
sem halda átti mánudaginn
17. þ. m. er frestað um sinn.
I
STJÓRNIN.
'FUNDÍKmPTÍtíVNMNQ
UNGLINGASTÚKAN UNNUR
nr. 38. — Fundur á morgun á
venjulegum stað og tíma. Fjöl-
sækið. Gæzlumenn. (310
ST. REYKJAYÍK nr. 256.
Fundur á mánudagskvöld kl. 8.
Fundarefni: Inntaka nýna fé-
laga. Að loknum fundi kl. 9
hefst
KVÖLDSKEMMTUN.
Skemmtiatriði:
1. Sira Jakob Jónsson, ræða.
2. Hr. Eggert Gilfer, píanósóló.
3. ?
4. D A N S.
Aðgöngumiðar seldir í G.-T,-
húsinu eftir ld. 4 síðd. á mánu-
dag.
Templarar fjölmennið. (311
ST. VERÐANDI nr. 9. Árshá-
líð stúkunnar verður næstk.
þriðjudag (18. þ. m.). Kaffi-
samsæti, fjölbreytt skemmti-
skrá og dans. Verðandi-félagar
vitji aðgöngumiða fyrir sig og
gesti sína (ókeypis fyrir skuld-
lausa félaga) á morgun (sunnu-
dag) kl. 2—4 í G.T.-húsið. Fjár-
málaritari tekur á móti árs-
gjöldum á sama tíma. Nefndin.
(313
| Félagslíf |
BETANIA. — Samkoma á
morgun kl. 8% e. h. Sira Magn-
ús Guðmundsson talar. Barna-
samkoma kl. 3. (306
N ýj n& ** í 0
Gold Diggers
í París.
Fyndin og- f jörug amerísk
„revy“-mynd.
Aðalhlutverkin leika og
syngja:
RUDY VALLEE og
ROSEMARY LANE.
Sýnd kl. 7 og 9.
TAPAZT liefir svört kven-
taska frá Smjörhúsinu upp á
Laugaveg 72. (309
Kkaupskapugi
HESTUR til sölu og sýnis i
Ijungu kl. 11—12 f. h. þann
16. þ. m. (304
VORUR ALLSKONAR
HNAPPAMÓT, margar stærð-
ir. Húlsaumur. Pliseringar. —
Harpa, Lækjargötu 6. (139
HEIMALITUN hephast best
úr Heitman’s litum. Hjörtur
Hjartarson, Bræðraborgarstíg
1. —____________________(18
HÚSMÆÐUR! Tek að róér
hreingerningar ásamt málará-
vinnu minni. Reynið viðskiptin.
Fritz Berndsen, málaram. Sími
2048. (17
BRYNJÓLFUR ÞORLÁKSSON,
Eíriksgötu 15. — Sími 4633. —
Stilling og viðgerðir á Píanóum
og Orgel-harmóníum. (142
NOTAÐIR MUNIR
TIL SÖLU
SKANDIA-MÓTOR, 4—5 ha.,
til sölu. Uppl. Þingholtsstræti
24, kl. 4—5.___________(284
FERMINGARFÖT til sölu.
Lítið notuð en vönduð. Uppl.
Ilallveigarstig 9, simi 1883.
______________________ (289
FERMINGARKJÓLL til sölu
á Vesturgötu 11, uppi. (292
FERMIN G ARFÖT til sölu.
Uppl. Ásvaliagötu 17 eða í sima
4463.__________________(294
NÝIR drengjaskór nr. 38 til
sölu. TæSkifæirisverð. Þórsgötu
21 A, uppi. (295
NYUPPGERÐ kommóða til
sölu Meðalholti 4. (297
HANDVAGN til sölu Meðal-
holti 4. (298
HÚSSTÖRF
STÚLKA óskast hálfan eða
allan daginn. Uppl. í VON,
Laugavegi 55. (290
IHCÍ$NÆfiÍl
2 HERBERGI og eldhús óslc-
ast frá 14. maí. Þrennt fullorð-
ið í heimili. Uppl. í síma 5153.
(218
2—4 HERBERGI og eldliús
óskast 14. maí. Tilboð sendist
afgr. Vísis fyrir 18. þ. m. merkt
„Fjögur“.________(291
LÍTIÐ lierhergi óskast strax.
Fyrirframgreiðsla fyrir hvern
mánuð. Uppl. í síma 5192. (293
DÖNSK stúlka óskar eftir
lierhergi 1 .eða 14. mai. Uppl. í
síma 5599. (296
SJÓMAÐUR . óskar eftir 2
herbergjum og eldhúsi 14. maí.
Þrennt í heimili. Uppl. í síma
2006 eftir kl. 6. (302
nAPAU’fUNuro]
TAP^T hefir gúmmistakk-
ur og stígvél. Skilvís finnandi
er vinsamlegast beðinn að gera
aðvart á Lokastíg 19, gegn góð-
um fundarlaunum. (308
SEM NÝTT stofuborð, nýr
herrarykfrakki og stand-
grammófónn til sölu Skeggja-
. götu 13, kjallaranum. — Sími
4863.__________________(299
FERMINGARFÖT, svört, til
sölu. Uppl. Njálsgötu 94. (301
PHILIPS útvarpstæki, 4
lampa, til sölu ódýrt. — Sími
2351._____________________(305
FERMINGARFÖT til sölu á
frekar háan dreng. Til sýnis á
Lokastig 19. (307
SVARTUR karlmannsfrakki
til sölu. Skeggjagötu 5. (312
NOTAÐIR MUNIR
ÓSKAST KEYPTIR:
KAUPUM FLÖSKUR og GLÖS.
háu verði. Sækjum samstundis.
Sjmi 5333. Flöskuverzlunin,
Kalkofnsvegi við Vörubílastöð-
ina. (69
RÁÐSKONA óskast, vel að
sér til allra heimilisverka. Um,-
sókn ásamt mynd og upplýs-
ingum um alla hagi og aldur
sendist afgr. Vísis fyrir 20. þ.
m., merkt „Framtíð“. Myndin
endursendist. (285
NOTAÐUR ottoman óskast
keyptur. Uppl. í síma 5906 (300