Vísir - 07.04.1941, Blaðsíða 2

Vísir - 07.04.1941, Blaðsíða 2
2 VlSIR DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Ritstjóri: Iíristján Guðlaugsson Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni Afgreiðsla: Hverfisgötu 12 (Gengið inn frá Ingólfsstræti) Simar 1 6 6 0 (5 línur). Verð kr. 3,00 á mánuði. Lausasala 15 og 25 aurar. Félagsprentsmiðjan h.f. »Viðskifti eins og venjulegacc ÞESSA dagana eru liðin ná- kvæmlega tvö ár frá því að lokið var undirbúningi að þvi samstarfi stjórnmálaílokkanna liér á landi, sem síðan hefir staðið. Leiðtogum hinna „á- byrgu“ flokka þótti ástandið þá svo ískyggilegt, að ekki kæmi til mála að liafa áfram' „við- skipti eins og venjulega“. Það var ekki einungis erfiður hag- ur framleiðenda og bágar fjár- hagsástæður ríkisins, sem ollu því, að nauðsyn þótti að breyta um viðskiptaliætti í íslenzkum stjórnmálum, heldur hitt, að i suðrinu sást iskyggileg vígbhka á lofti. Hernaðarþjóðirnar kept- ust við að vigbúast. Vopnabrak- ið barst alla leið til hinna fjar- lægu stranda í norðrinu. Ilin af- skekta smáþjóð átti að efla samheldni sína. Með því gæti hún treyst viðnámsþrótt sinn og verið viðbúin, hvað sem í skær- ist, Þannig voru málin lögð fyrir. Fyrir tveimur árum var á- standið svo alvarlegt, að dómi þeirra, sem fyrir samstarfinu gengust, að goðgá þótti, að tala um „viðskipti eins og venju- lega.“ Stöku menn héldu því fram, að rétt væri að láta kjós- endur sjálfa leggja grundvöll- inn að því samstarfi, sem um var rætt. En það var ekki við þetta komandi. Ástandið þótti svo alvarlegt, að ekki væri leggjandi út í kosningabaráttu. Þetla var nálega 5 mánuðum áður en styrjöldin liófst. Eng- inn vissi, hvort friður yrði rof- inn eða ekki. Og engum datt í hug, að afleiðingarnar yrðu þær fyrir okkur, sein raun hefir á orðið, þólt friðurinn yrði rof- inn. Allir bjuggust við því, að við fengjum að vera í friði, hvemig sem allt veltist í um- heiminum. I fyrravor gerðist sá alburð- ur, sem kollvarpaði öllum von- um okkar um, að fá að sitja lijá, meðan valdabarátta stór- þjóðanna stæði yfir. Landið var liertekið. Óþarft er að Iýsa af- leiðingum þessa verknaðar. Þær eru að sumu leyti komnar í Ijós og að sumu leyti yfirvofandi. ísland er komið inn á hernaðar- svæðið. Þar með er raunar allt sagt. Það er verið að æfa borg- ara lándsins að verjast loftárás- um. Það er verið að reyna að koma sem flestum af bættu- svæðunum :á óhultari staði. Það er verið að tala um hvernig við eigum að halda uppi flutning- um á nauðsynjavörum til lands- ins og framleiðsluvörum frá landinu. íslenzka þjóðin hefir aldrei verið í jafn mikilli hættu stödd af mannavöldum og nú um þessar mundir. Kosningar eiga að fara fram í vor. Sú tillaga hefir komið fram, að fresta þessum kosn- ingum til haustsins. Samkvæmt stjórnarskránni eiga kosningar að fara fram á 4 ára fresti. Það er þess vegna ekki hægt að fresta kosningum lil næsta árs, nema brjóta stjórnarSkrána. Hinsvegar er kjördagurinn á- kveðinn í kosningalögunum, og virðist því nfega færa hann til með einfaldri lagabreytingu. Það er allt útlil á, að þjóðin geti verið mjög illa við því bú- in, að ganga til kosninga á venjulegum tíma, í júnímánuði. Allar likur benda til þess, að baráttan um Atlantzhafið verði liörðust á þessu sumri. Þótt þeirri baráttu yrði ekki lokið fyrir haustið, eru öll líkindi lil þess að meiri kyrrð verði þá á komin. Tillagan um frestun kosn- inga til haustsins er þvi í alla staði réttmæt og skynsamleg. Þess vegna hefði mátt búast við því, að henni yrði v,el tekið af öllum þeim, sem viðurkénna að þjóðinni sé nauðsyn á að vera sem samhentust á háskatímum,. Mönnum hlýtur því að koma nokkuð á óvart, hvernig for- maður F ramsóknarflokksins bregst við þessari tillögu. Svar hans er stutl og laggott: Við eigum að segja eins og Bretar: „business as usual“ — viðskipti eins og venjulega. Við eigum að kæra okkur kollólta þótt sprengjum rigni yfir okkur sjálfan kjördaginn. Allt annað er linka og þrekleysi. Ekki er vitað, hvernig Alþingi kann að snúast við tillögunni um þingfrestunina. En ef það verður ofan á, að kosningar fari fram í júnímánuði, þá er sýni- legt að ekki má draga kosn- ingaundirbúninginn úr þessu. Sjálfstæðismenn hafa enga flokkslega ástæðu til þess að óska frestunar til haustsins. Það er vegna alþjóðar hagsmuna, að sú tillaga hefir komið fram. a BÖRNIN Í)T ÚR BÆNUM! Vantar húsnæði fyrir konur og ungbörn. Kennarar þeir, sem söfnuðu fyrir helgina skýrslum um sum- ardvöl barna, eru nú sem óðast að skila nefndinni.skýrslum sín- um, Vísir talaði við Arngrím B.v. Gulltoppur bjargar 33 skipbrotsmönnum undan Garðsskaga. Kristleifur á Stóra- Kroppi heiðraður’ Kom hingað í gærkveldi. Tslenzkur botnvörpungur hefir enn bjargað er- * lendum skipbrotsmönnum. Er það b.v. Gull- loppur, sem bjargaði í gær 33 mönnum aí’ skipinu Beaverdale, sem var 10.000 smál. að stærð. Kom Gull- toppur liingað í gær og setti mennina á land hér. Skipstjóri á Gulltoppi er Halldór Gíslason. Hafði Vísir tal af honum í morgun og sagði hann svo frá þessu: „Við voyum að veiðum vest- an til á Eldeyjarbanka, um 45 mílur vestur af Garðsskaga, rétt eftir hádegið í gær. Um klukkan rúmlega 1 kom fyrsti stýrimaður auga á segl i baf- átt, og er betur var að gáð, kom í ljós, að þarna var björg- unarbátur á ferð. Tókum við þá þegar inn vörpuna og sigldum til bátsins, en bann reyndist vera af skip- inu Beaverdale, sem bafði ver- ið á leið frá Kanada til Liver- pool. Skipið var 10.000 smál. að stærð, með 79 manna áhöfn, en í björgunarbáti þessum voru 33 af áhöfninni og var 2. stýri- maður skipsins fyrir þeim. Skipverjum sagðist svo frá, að skipið liefði fengið á sig tundurskeyti um klukkan tíu Kristjánsson, framkvæmdarstj. nefndarinnar, í morgun. Sagði hann að yfirlit um þörfina fyrir dvalarstaði myndi ekki fást fyrri en í kveld. Við skjóta at- liugun kemur þó í Ijós, að miklu fleiri óskir hefðu borist fvrir mæður með ungbörn, en nefnd- in bafði áætlað. Vonandi verður luégt að uppfylla allar óskir i þessum efnum. á þriðjudagskvöld. Höfðu þeir því verið fjóra sólarhringa og 10 klukkustundir í björgunar- bátnum, er þeir voru téknir um borð. Þgð var kl. 2 e. b. í gær. Skipið sökk ekki af tundur- skeytinu, og skaut kafbáturinn af fallbvssu á það, áður en það sökk. Skipverjar settu björgun- arbátana, fjóra að tölu, á sjó, en einn eyðilagðist af einhverri ástæðu og skiptist því skips- liöfnin í þrjá báta. Voru lang- flestir í þeim, sem við liittum þarna. Annar stýrimaður teiknaði uppdrátt af legu íslands, nokkru eftir að skipinu var sökkt, og var tekin stefna norð- ur, til þess að reyna að kom- ast hingað. Á sumum bátsverja sá ekkerl eftir volkið, en fætur þriggja eða fjögra voru orðnir nokk- uð bólgnir.“ Sandpokar fást keyptir. Loftvarnanefncl hefir beðið Vísi að láta bæjarliúa vita, að þeir geta fengið keypta sandpoka í Slökkvi- stöðinni. Pöntunum er veitt móttaka daglega kl. 9—12 f. h., og greiðist pokarnir um leið og þeir eru pant- aðir. Á Iaugardaginn varð Krist- leifur Þorsteinsson, bóndi og rit- höfudnur á Stóra-Iíroppi í Reykholtsdal, áttræður. í tilefni af áttræðisafmælinu héldu sýslungar hans honum samsæti að Reykholti og mættu þar eittlivað á 3. hundrað gesta, víðsvegar að úr héraðinu og einnig úr Reykjavik. Héðan fór Laxfoss upp í Borgarnes i tilefni af afmæli Kristleifs og sömu- leiðis flaug „Örninn“ upp að Stóra-Kroppi með gesti, er beimsóttu afmælisbarnið. Tók flugvélin Iíristleif með sér upp í háloftin og flaug með liann um héraðið. Kl. 3 hófst guðsþjónusta í Reykholtskirkju, en að henni lokinni hófst samsætið í leik- fimisal skólans. Hafði salurinn áður verið skreyttur. Bauð skólastjóri, Jóhann Frímann, gesti velkomna á staðinn, en ræður fluttu þeir alþingismenn- irnir Pétur Ottesen og Bjarni Ásgeirsson fyrir minni heiðurs- gestsins, en Páll Zophoníasson fyrir minni konu hans, frú Snjófríðar Pétursdóttuiv Sjálfur hélt Kristleifur snjalla ræðu. Kvæði til Kristleifs voru flutt eflir Halldór Helgason, Ás- bjarnarstöðum, Guðlaug Jó- hannesson, Signýjarstöðum,, Jórunni Guðmundsdóttur, Arn- þórsholti, og Þorstein Jónsson, Úlfsstöðum. Undir borðum var sungið, en auk þess skemmti karlakórinn „Bræðurnir“ með söng, Magnús Ásgeirsson lækn- ir með einsöng og Guðmundur Frímann kennari með upplestri. Heillaóskaskeyti og gjafir bárust Kristleifi unnvörpum, en aðalgjöfin, sem héraðsbúar færðu honum sameiginlega var skrifborð og tveir hægindastól- ar, mjög vandað að frágangi og fagurt á að líta. Um áttaleytið um kvöldið voru borð rudd, og að þvi loknu b.pfst dans og annar gleðskapur fram eftir kvöldi. Mun þetta vera einstæðasta afmælisveizla og sú fjölmenn- asta, sem getur um í sögu Borg- arfjarðar, því þess hafa ekki þekkst dæmi áður, að bæði sldp og flugvél hafi verið gerð út til sömu afmælisveizlunnar. En Kristleifur er maður, sem öllum jiykir vænt um, sem honum Iiafa kynnst og það er j>ví ekki nein tilviljun, að j>etta er eitt fjölmennasta samsæti, sem ein- um Borgfirðingi hefir verið lialdið. Kristleifur’ hefir lofað Vísi nokkurum bernskuminningum sínum og munu j>ær birtast innan skamms í Sunnudags- blaðinu. HENRY D’ALBIAC, undirmarskálkur í brezka flug- hernum, sem hér birtist mynd af, hefir á hendi yfirstjórn brezka flughersins í Grikklandi. D’Albaic byrjaði feril sinn í Heimsstyrjöldinni og var þá flugnjósnari (observer). Síðan hefir hann stjórnað flugsveitum í Indlandi, Egiptalandi, Trans- jordaniu og Palestinu. Stundin kom út í inorgún. Flytur hún m. a. svar til Jóns Eyj>órssonar frá ritstjóranum. Bökunarefni allskonar, Sýróp, Púðursykur, Egg. Smjör, Hólsfjallahangikjöt, Gr. Baunir, Aspas, Spinat, Carottur, Snittubaunir, Vitamon-súpuefni, Oliven, Cocktail-Kirsiber, Piparrót, Sandw. Spread. Ýmsar Heinz- og Libbys-vörur, Orangeade. HJÁ OKKUR ERUf) ÞAÐ ÞÉR, SEM SEGIÐ FYRIR VERKUM! HVAÐ VANTAR í PÁSKAMATINN ? BARA HRINGJA SVO KEMUR ÞAÐ!

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.