Vísir - 07.05.1941, Blaðsíða 2
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson
Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstræti)
Símar 1 6 6 0 (5 línur).
Verð kr. 3,00 á mánuði.
Lausasala 15 og 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan' h.f.
Frestun
þingkosninga.
EKKERT er um það villast,
að þingkosningar eiga, lög-
um sanikvæmt að fara fram á
þessu ári. Stjórnarskráin segir
stutt og laggott: „Þingmenn
skulu kosnir til 4 ára.“ Sam-
kvæmt strangasta skilningi á
þessu ákvæði er umboð þing-
manna rúnnið út 20. júní næst-
komandi. Til eru þó ýmsir 'lög-
fræðingar, sem telja að fresta
mætti kosningum fram eftir
þessu ári, án þess í bága kæmi
við stjórnarskráratriðið. Hafa
sjálfstæðisblöðin, svo sem
kunnugt er, bent á þessa hugs-
anlegu lausn í málinu, eú ekki
fengið neina áheyrn annarra
flokka.
Þótt ekki verði villst á því,
að stjórnarskráin ætlast til að
kosningar fari fram, 4. hvert ár,
mun það dómur flestra, sem
málið hafa hugsað, að liinir
vísu feður, sem stjórnarskrána
sömdu, hefðu skilið eftir opnar
bakdyr, ef þá hefði órað fyrir
því ástandi, sfem nú ríkir í landi
voru.*
Því yrði þess vegna tæplega
haldið fram, að brot væri franv
ið gegn andanum í stjórnar-
skránni, þótt þingkosningum
yrði slegið á frest, eins og nú
hagar til. Hér verður að meta
nauðsynina á frestuninni. Ef
iiún er nógu rík, brýlur hún lög.
Þess er þá fyrst að geta, að
landið er hertekið. Við höfum
nýlega fengið áþreifanlega
sönnun fyrir hernáminu. ís-
lenzkt blað hefir verið bannað
af erlendu herveldi. Islenzkir
menn liafa verið höndum tekn-
ir og fluttir af landi burt. Frið-
helgi sjálfs Alþingis liefir verið
rofin.
Þetta eru allt ærnar ástæður.
En þó má fleira nefna. Landið
er á ófriðarsvæði. Enginn veit
nema yfir kunni að dynja loft-
árásir hvaða dag sem er. Það
er hætt við að kosningar, t. d.
í Reykjavík, færu í handaskol-
um, ef verið væri að varpa
sprengjum yfir borgina, meðan
á þeim stæði.
Það er meira rót á fólki en
nokkru sinni fyr. Aldrei hefir
straumurinn úr sveitunum í át-
vinnuleit við sjávarsíðuna verið
jafn stríður og nú. Og jafnframt
liggur stríður straumur flýjandi
kjósenda úr kaupstöðunum
upp í sveitimar.
Það er þess vegna sýnilegt að
kjörsókn yrði mjög í molum.
Og þó er ótalið það, sem ef til
vill veldur mestu : Áhyggjurnar,
kvíðinn, öryggisleysið, glund
roðinn. Allt þetta veldur þvi,
hvað með öðru, að kjósendur
hafa hugann bundinn við sitt-
hvað annað en það, sem um á
að kjósa. En um lýðræðislegan
vilja kjósenda er varla að tala,
ef þprri þeirra er annars hugar
sjálfan kjördaginn.
Þeir, sem málinu eru kunn-
ugir, telja flestir, að meiri hluti
kjósenda muni ekki sækja það
fast að kosningar fari fram. En
ef full vissa væri fyrir því, að
meirihluti kjósenda væri and-
vígur kosningum, yrði það tæp-
lega talið freklegt lýðræðis-
brot, að fresta kosningum eins
óg sakir standa.
Þessi má'l eru til yfirvegunar
innan stuðningsflokka stjórn-
arinnar á þingi. Hér skal ekk-
ert rætt um afstöðu þingflokk-
anna. Það skal aðeins á það
bent, að þótt þingmenn viður-
kenni yfirleitt þau rök, sem hér
hafa verið talin fyrir kosninga-
frestuninni — og ýmisleg fleiri,
sem- ótalin eru — þá eru þó
ýmsir þeirra hikandi við þá
ákvörðun. Þ j óðst j órnarf riður-
inn er vissulega ekki eins trygg-
ur og vera þyrfti. Er nægilegt
í því sambandi að minna á
blaðaumræður þær, sem fram
fara um viðkvæm þjóðernis-
mál. Sjálfstæðismenn hafa lengi
verið óánægðir með forustuna í
utanríkismálunum. Framkoma
málgagns utanríkismálaráð-
herrans nú um sinn hefir sízt
verið til þess fallin, að draga
úr þeirri óánægju.
Því er heldur ekki að leyna,
að menn hafa allt frá öndverðu
þótzt heyra leiðinlegt þrusk
milli þils og veggjar í þjóð-
stjórnarhúsinu. Og á ótrúlegum
stöðum verður vart furðulegrai'
linkindar við þau öfl„ sejn þar
virðast vera að verki. Ef það
kæmi skýrlega í-ljós, að full við-
leitni væri á að fyrirbyggja
þruskið, mundu ýmsir þing-
menn ekki vera eins hikandi í
afstöðunni til kosningafrestun-
arinnar og raun er á.
Hér hefir verið rætt um, fá-
ein atriði, sem snerta frestun
kosninganna, með og móti.
Mörgu hefir verið slept á báða
bóga. Að endingu skal aðeins
þetta sagt: Til þess að menn
sælti sig við þingfrestunina
verður ríkisstjórnin að einbeita
huganum að því, að gera það
eitt, seín samboðið er sann-
nefndri þjóðstjórn, en forðast
hvað eitt, sem vekur réttmæta
tortryggni hjá stuðningsmönn-
um hennar.
a
Samningar
togarasjómanna
°g
útgerðarmanna.
Ekkert hefir gerzt í samning-
um togarasjómanna og útgerð-
armanna undanfarna daga.
Ætlunin hafði verið að halda
fund í gær, en liann fórst fyrir
-vegna þess, að tillögur voru
ekki komnar fram frá sjómönn-
um um, áhættuþóknunina.
Er þær væntanlegar hvað af
hverju og verður þá strax liaf-
izt handa um samninga.
Frá starfsemi Blindra-
k
vinafélagsins á síð-
asta ári,
Blindravinafélag íslands hélt
aðalfund sinn fyrir nokkru. For-
maður skýrði frá störfum fé-
lagsins á síðasta ári.
Eins og skýrt hefir verið frá
í blaðinu gaf Þorsteinn Jónsson,
bilstjóri, félaginu húseignina
Bárugötu 33 við andlát sitt. Er
það lirein eign kr. 28394.52.
Félaginu barst og 1000 kr.
minningargjöf um Jónas Gott-
sveinsson, er var blindur síð-
ustu ár æfi sinnar. Gjöf þessi
hefir verið lögð i útvarpsnot-
endasjóð blindra.
Þá var félaginu gefið viðtæki
og 300 kr. gjöf til minningar
um fyrsta formann félagsins,
Sigurð P. Sivertsen, sem látin
var í bókasjóð blindra. Auk þess
bárust félaginu ýmsar smágjaf-
ir. —-
»Með flösiim skal
land feyg'gjsa, en með
öflögrum eyða«.
Húseigendur hér i bæ eru gramir mjög yfir þvi live Alþingi
hefir sinnt kröfum lieirra slælega, varðandi breytingu á gildandi
löggjöf um húsaleigu o. fl. Hefir Fasteignaeigendafélagið boðað
til fundar i kvökl þar sem nokkrum alþingismönnum er boðið
að koma, svo og formanni liúsaleigunefndar.
Húseigandi einn hefir ritað eftirfarandi grein um ríkjandi
ástand í þessu efni, en af skiljanlegum ástæðum vill liann ekki
láta nafns síns getið. Þótt Vísir birti ekki framvegis nafnlausar
aðsendar greinar gerir blaðið að þessu sinni undantekningu,
með tilliti til allrar aðstöðu.
Hver er réttarstaða húsráð-
enda i islenzka ríkinu? Er hún
spegilmynd af réttarstöðu ís-
lands í danska ríkinu á einok-
unartimabilinu? Eru íiúsráð-
endur eins konar þrælaríki í
rikiini, þar sem liægt er að
flengja einstaklingana eins og
krakka, svo sem, gert var við
landa vora á hinum mesta nið-
urlægingartíma, sem gengið
hefir yfir þessa þjóð, ef þeir
keyptu og seldu barðfisk eða
tólgarmola utan við sinn af-
markaða bás. — Húsaleigulög-
in í núverandi ástandi eru sófl-
inn, en húsaleigunefndin mun
einkum eiga að beita verkfær-
inu.
Alltaf hefir nú sóflinn verið
Ijótur sem refsingartæki, enda
tákn vanmáttar og úrræðaleys-
is. En ekki er hann faljegri, þeg-
ar hann er notaður sem nauð-
ungarverkfæri í höndum svo
rangsýnna manna, áð þeir bein-
línis virðast trúa á hann, og
beita liverjum anga hans, hverri
einustu smágrein til hins ýtr-
asta.
Nú er auðvitað ekki hægt að
tala um maðkaða vöru í þessu
sambandi, eins og á einokunar-
tímabilinu, því að lifandi menn
eru aldrei maðkaðir, þó að
hugsunarháttur sumra þeirra
geti verið mjög rotinn, jafnvel
svo, áð andlegt pestarloft mynd-
ist, þar sem þeir dvelja. Við
þetta er eklci hægt að losna, ef
viðkomandi hefir greitt fyrir
sig. En vilanlega verður heimil-
is- eða húsfriður aldrei metinn
til peninga fremur en allt það,
sem dýrmætast er hér í heimi.
Fremur virðist það því grunn-
færin heimspeki hjá löggjafan-
um, ef hann heldur, að liúsa-
leigugreiðslurnar geti bætt oss
upp rofinn heimilisfrið. Eða
lieldur hann, að liúsráðendur
séu eins og smáböm, sem
þagna, þegar stungið er upp í
þau „túttunni“. — Heimilið á
að vera heilagur staður hjá
hverri þjóð, staður, þar sem
frið og skjól er að fá. Vér höf-
um þegnlegan rétt til þess að
geta gert heimili vor að slíkum
stað og til þess að forða þeim
frá óhollum eða skaðlegum ytri
áhrifum. Því verður ekki neit-
t
að, að hér hefir verið troðið á
helgum rétti vorum með aur-
ugum iljum. Og um leið hefir
skítug stjórnmálamennska
traðkað niður einn þátt hins ís-
lenzka lýðræðis.
Ef einhver ókunnur, sem
grein þessa Ies, trúir því ekki,
að þetta sé svona, þá vil eg
benda honum á lagagreinina
sjálfa (2. gr.) Þar stendur: „Þó
heldur leigusali óskertum rétti
sínum til þess að slíta leigu-
mála vegna vanskila .... “ —
Samkvæmt þessu er það þvi
undantekning, að vér fáum
lialdið rétti vorum. Og svo kem-
ur það, sem kórónar svívirð-
inguna og mannúðarleysið. Það
er þetta: að ódyggðir annarra
manna eru eina leiðin, til þess
að halda rétti sínum óskertum.
Er þetta íslenzkt réttarfar? Er
þetta ekki bersýnilegt öfug-
streymi og vísir til hrynjandi
þjóðfélags?
Þau eru ekki orðin fá dæmi
þess, að ágætir leigjendur hafa
orðið að segja upp beztu íbúð-
um vegna ömurlegra mótleigj-
enda, sem setið hafa svo eftir
„hæstráðandi til sjós og lands“,
eins og hundadagakonungurinn.
Þetta eru álirif nefndra laga á
frumstigi. En afleiðingarnar eru
tvímælalaust lcomnar á hærra
stig, þar sem leigjendur hafá
„sparkað“ húseigendum §jálf-
um út úr húsum sínum. Og
þess eru líka dæmi. Þeim hús-
eigendum hefir farið fjölgandi,
sem neyðzt liafa til að selja
liúsin og yfirgefa lögheimili sín
beinlínis eða óbeinlínis vegna
þessara megnu ólaga, sem eng-
inn sannur Islendingur lætur
sér detta í hug að nota sér. Þau
virðast því eingöngu vera stíluð
handa úrhraki þjóðarinnar, sem
sannarlega þarfnast annarra
uppeldismeðala en þeirra, sem
önnur grein húsaleigulaganna
elur á. Hér hefir t. d. verið
gleymt að gefa gaum að þeirri
háttprýði og siðferðislegu þjálf-
un, sem viðunandi samlíf
manna byggist á, og þeirri knýj -
andi nauðsyn og sjálfsögðu
uppörfun hafa þeir, er minnst
áttu, verið rændir með þessari
lagasetningu.
Leiguliðinn hefir rekið liús-
bóndann á dyr. — Er þetta það,
sem koma skal á öllum sviðum ?
Er ísland tilraunadeigla hinnar
nýju Evrópu? — Erum, vér hús-
ráðendur eðá réttlausir þrælar?
Vér biðjum elcki um skrif-
legt svar, heldur réttmætar
framkvæmdir. — .Tafnrétti
þegnanna er hyrningarsteinn
þjóðfélagsins.
Húseigandi.
Skipaskagi
eða Akranes?
Á nesi þvi liinu milcla er Akra-
nes heitir milli, Grunnafjarðar
og Hvalfjarðar, eru nú 3 sveita-
félög, byggð umhverfis Akra-
fjall, sem tekur yfir mikið af
nesinu. Suðaustan, austan og
norðan fjallsins er Skilmanna-
hreppur, sunnan og vestan þess
Innri-Akranesshreppur, og Ytri-
’ Akranesshreppur á skaga þeim,
er myndar yztu tá nessins, og
heitir Skipaskagi. Ytri-Ala'a-
nesshreppur á Skipaskaga er nú
orðinn fjölbyggt kauptún, sem
í ráði mun vera að fái kaupstað-
arréttindi, með nafninu Akra-
nes!
Upphaf þeirrar nafnabrengl-
unar er frá því um 1870, er fyrst
kom föst verzlun á Skipaskaga.
Maður sá, er þar byggði þáverzl-
unarhús, til að setjast að í sem
kaupmaður,* var ekki óþjóðlegri
en almennt gerðist um verzlun-
armenn á þeim tima, en var,
eins og þeir flestir, algert dansk-
menntaður sem verzlunarmað-
ur. Verzlunarsambönd hans ut-
anlands voru og við Danmörku.
Hann staðsetti bréf sín og reikn-
inga: „Akranesi“ (á, dönsku:
Akranæs), og undirritaði nafn
sitt á dönsku (Tli. Gudmund-
sen). Er sami nauturinn að
þessu nafnbrengli, eins og er
Skutulsfjarðareyri var nefnd
Isefjord, og síðan ísafjörður,
Nes í Norðfirði nefnt Nordf jord,
verzlunarstaðurinn við Höfða á
Brezka samn-
inganefndán
* farin heim.
Brezka samninganefndin,
sem hér hefir dvalið að und-
anförnu, er nú farin héðan,
en ekki er Vísi kunnugt um
árangur þann, semorðiðhefir
af för hennar. Þó má telja
sennilegt, að ekki hafi verið
endanlega frá samningum
gengið. Hinsvegar hafa við-
ræður farið fram milli nefnd-
arinnar og ríkisstjórnarinn-
ar undanfama viku, en engin
tilkynning hefir verið gefin
út til þessa varðandi þær um-
ræður eða árangur þeirra.
Skagaströud nefndur Skage-
strand, o. s. frv., á tíma einokun-
arverzlunar Dana hér á landi.
Það er svo sem ekki leiðu að
líkjast!
Mikið liefir nú um sinn verið
rælt og ritað um, að vanda mál-
ið, íslenzkuna; en á sama tíma
er, bæði af stjórnarvöldum
landsins og Alþingi, verið að af-
baka (á danskan liátt) staða-.
nöfn á landinu. Til munu vera
lög um liafnargerð á Akranesi
(= Skipaskaga). — Vegamála-
stjórnin gengur vel framí nafna-
brengli. Bannaði í fyrradag bíla-
ferð um Dragháls, en átti við
veginn um Geldingadraga. Ár
eru kendar við bæi, sem fengið
liafa nöfn af ánum! T. d. Ár-
túns á (= Blikdalsá), Gljúfur-
lioltsá. (af Gljúfurárholti), en
áin heitir Gljúfurá. Bakkar-
holtsá (af Bakkárholti), =
Bakkaá, Korpúlsstaðaá,' =
Úlfarsá, o. m. fl.----
En út yfir „allan þjófabálk“
tekur, ef nú á að gera kauptún-
ið á Skipaskaga að kaupstaðn-
um Akranesi!
Grh., 20. ápr. 1941.
Bjöm Bjamarson.
UMRÆÐURNAR
I BREZKA ÞINGINU.
Frh. af 1. síðu.
öllum árásum. — I lok ræðunn-
ar sagði Eden: Vér þurf um skip
og hergögn og aftur skip og
hergögn.
Þingmenn hylltu Eden í lok
ræðu hans.
Moyne lávarður skýrði frá því
í ræðu sinni, að manntjón Breta
og Ástralíumanna í Grikklandi
hefði verið 11.500, að meðtöldu
því liði, sem króað var inni á
ströndinni. Tölur Hitlers um
manntjón Breta eru fjarstæða,
sagði hann.
Þegar er búið að flytja til
Rauðahafshafna meira af
þungahergöngum, en , Bretar
misstu í Grikldandi.
Mojme lagði áherzlu á mikil-
vægi þess, að liergögn væri nú
flutt frá Bandaríkjunum til
Rauðahafshafna.
Hörð gagnrýni.
Churchill lofaður.
Margir þingmenn báru mikið
lof á Churchill. Einn íhalds-
þingmannanna sagði, að hann
bæri höfuð og lierðar yfir alla
slj ói'n málaleið toga Bretlands
frá því Pitt hinn yngri var uppi.
En andstæðingarnir voru og ó-
sparir á lofið.
En stjórnin var gangrýnd
einarðlega. Lee Smith talaði um
vettlingatök stjórnarinnar.
Nefndi liann sem dæmi, að at-
burðirnir í Iralc hefði komið
stjórninni á óvart. — Lee Smith
sagði, að hægt væri að gerbreyta
horfunum á einni nóttu í At-
lantshafsstyrjöldinni, ef Bretar
hefði liafnir Suður-írlands. —
Lagði hann til að að leitað yrði
aðstoðar Bandaríkjanna til þess
að fá afnot hafnanna.
Hore-Belisha gagnrýndi
stjórnina einnig.
Nitouche.
26. sýning á óperettunni er í
kvöld. — Myndin er af Brynjólfi
Jóhannessyni og Lárusi Pálssyni.
Ilráíjara
ISlakkferiiis
I»aklakk
CarkoliueKiin
fltátaverk
Verzlun
0. [Ilisen i.í.
Sálarrannsóknarfélag ís-
lands lieldur síðasla fund
vetrarins í Háskólanum ann-
að kvöld, fimmtudag, kl.
8%. —- Forseti: Miðill segir
frá. — Síra Kr. Daníelsson:
Annarsheims efni, erindi. —
Skirteini við inngangnn. —
STJÓRNIN.
Sameiginlegur fundur fyr-
ir alla Skógarmenn i kvöld
kl. 8%. —
Gestir heimsækja, ltaffi,
einleikur á cornet o. fl. —
Skógarmenn, eldri sem
yngri, fjölmennið.
Markið nálgast!
STJÓRNIN.
Ford 31
VÖRUBÍLL til sölu, Lauga-
veg 147 A, uppi, kl. 6y2—9 í
kvöld. —
Lærlingur
ÓSKAST.
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
Tjarnargötu 11.
Uppl. í síma 4151.
2 stúlkur
vantar nú þegar á Elli- og
hjúkrunarheimilið Grund.
Uppl. í dag lijá yfirhjúkrun-
arltonunni. Uppl. ekki gefnar
í síma. —