Vísir - 14.05.1941, Blaðsíða 5
VÍSIR
Miðvikudaginn 14. mai 1941.
Kirkjuhljómleikar í
Kristskirkju i Landakoti
A sunnudaginn kemur kl.
8V2 (20,30) verður efnt til
kirkjuhljómleika i Kristskirlcju
i Landakoti undir stjórn dr. V.
v. Urbantschitseh. Syngur
blandaður kvennakór með að-
stoð ýmsra viðurkenndra söng-
kraftar bæjarins og slroksveitar
Hljómsveitar Reykjavikúr.
Viðfangsefnin eru eins og við
er að búast kaþólsk kirkju-
söngslög/og eru þau frá tímum
viðreisnarstefnunnar og nokkru
yngri 10. og 17. aldárlög.
Dájkurinn i hljómleiknum
verður hið fræga lag „Stahat
mater“ eftir Jón sldrara Perg-
olse, f. 1710, d. 1736 26 ára.
Sálmurinn, sem er einn al' höf-
uðsálmum ldrkjunnar — í röð
svo nefndra sequentia -— liefir
verið þýddur á íslenzku af ýms.
um, meðal annars Mattliíasi
Jochumssyni og Gísla Brynjólfs-
syni, en liann er eftir smábróð-
urinn Jacobus de Benedictis,
sem kallaður var Jacopone. frá
Todi, en þaðan var liann ættaður
(f. 1230, d. 1306), Þrátt fyrir
skamma ævi var Pergolse frá-
bærlega afkastamikill og samdi
allskonar tónverk, óperur, són-
ötur, heilar messur og allskonar
ldrkjulög, og livað, sem nöfn-
um tjáir að nefna. „Stabat mat-
er“ var síðasta lagið, sem hann
samdi, og var hann þá lcominn á
grafarbakkann, en að launum
hlaut hann upphæð, sem í'étt
tæplega nægði til þess, að hann
gæti keypt sér legstað í dóm-
kirkjunni Pozzuoli, en' þar er
liann grafinn. Um kraft svipar
Pergolese ekki til Haydns og um
tíguleik ekki til Palestrína, en
um elskusemi og þokka svipar
honum einna helzt til Rossini.
Talið er að lagið „Stabat mater“
muni lifa flest verlc hans önnur.
Af öðrum lögum verður far-
ið með „Pueri Haebreorum“,
hynina úr prócessíunni á pálma-
sunnudag eftir Palestrina föður
nútíma kaþólsks kirkjusöngs
(d. 1594), „In nomine Jesu“
eftir jugoslavneska munkinn
Jakob Handl (Gallus, d. 1591),
„O vos omnes" mótettu eftir
Spánverjann Tómas Hlöðver de
Victoria (Vittoria d. 1613), eitt
helzta tónskáld að palestrinsk-
urn hætti, og loks sálmur fyrir
tenór og 5 armfiðlur eftir ítal-
ann Alexander Stradella (myrt-
ur 1681, 36 ára gamall).
Menn eru hér, sem vonlegt er,
mjög ókunnugir liinum fagra
kaþólska nútíma kirlcjusöng,
sem er allfrábrugðinn kirkju-
söng mólmælenda, þegar af
þeirri ástæðu, að ólík er ætlun
livors um sig í kirkjusiðunum.
Hvor kirkjusöngstegundin um
sig hefir ált yfir ýmsum glæsi-
legustu tónskáldum lieimsins að
ráða, og nþ gefst mönnum hér
l'æri á að kynnast hinum ka-
þólsku tónlistarjöfrum í með-
ferð, sem vafalaust verður með
ágætum, því bæði er dr. v.
Urbantschitsch sprenglærður í
þessum efnum, bráðfínn hljóm-
smekkmaður og auk þess ka-
þólskrar trúar, en það er stað-
reynd, að erfitt er að flytja
kirkjutónlist annara trúar-
flokka, en þeirra, sem menn játa
sig undir, svo .náskylt er eðli
hénnar sjálfum trúarhrögðun-
um og hinu innra trúarlífi.
Þelta er merkileg tilraun, eins
og reyndar allar tilraunir dr. v.
Urbantscliitsch, en hann og
ýmsir erlendir menn liafa á sið-
ari árum lagt afardrjúgan skerf
lil tónmenntunar íslendinga.
Nýkomið:
Saumur
Hóffjaðrir
Heyhrífur
Orf
Hrífusköft
JÁRN V ÖRUDEILD
Jes %imi§ieii
Kristján Guðlaugsson
HæstaréttarmálafluthingsmaÖur.
Skrifstofutími 10-12 og 1-6.
Hverfisgata 12. — Sími 3400.
Ný IJóðabók.
Margrét Jónsdóttir: Lauf-
vindar blása. Kvæði. —
Reykjkvík MCMXL.
Áður hefir komið út eftir
Margréti Jónsdóttur kennara
kvæðasafnið: „Við fjöll og sæ“
árið 1933. Þetta nýja kvæðasafn
kom út skömmu fyrir síðustu
jól. Það er 16 arkir að stærð og
snolurt að ytra frágangi.
Margrét Jónsdóttir er meðal
þeirra kvenna hér á landi, sem
bezt kunna að koma fyrir sig
orði í Ijóði. Mörgum er bún
orðin að góðu kunn af kveðskap
sínum. Einkum liafa börn og
unglingar notið góðs af ljóða-
gáfu liennar. Er liún mikill vin-
ur barna og unglinga, kann vel
skapi þeirra og yrkir jafnan svo
að lyftandi er og göfgandi fyrir
unga lesendur. Al' þeirri ástæðu
eru ljóðabækur hennar ágætis
gjöf handa börnum og ungling-
um, sem næm eru á fagurt mál
og fagrar hugsanir í ljóðaformi.
Eg liefi lesið þessa bók Mar-
grctar mér til ánægju. Mál og
form er þýtt og Ijóðrænt, lífs-
skoðun og hugsun fögur og lieil-
brigð. Höf. tekur ríkan þátt í
lífi samtíðar sinnar, og finnur
Iivort sem orsökin er eigin brest-
ir, misrétti mannfélagsins eða
ógnarástand vorra tíma. Hún er
ósvikið barn íslenzkrar náttúru
og elskar j)á móður vor allra
fölskvalaust. tífcn leikur sér að
ýmsum bragarháttum, bregður
jiar á meðal f.yrir sig stundum
þulu-laginu, sem alltaf á sína
töfra, þegar vel er með farið.
Reykjavík, vor gamli og góði
Ingólfshær, á falslausan vin þar
sem Márgrét Jónsdótir er, þó að
hún sé sveitabarn, eins og ljóðin
hennar sýna víða. Kvæðið til
Revkjavíkur i þessari Ijóðabók
er fagurt og vel gert.
Eg tel ekki rélt að taka upp í
jiessi fáu orð einstök erindi úr
kvæðum jieim, sem mér þykja
bezt. Þó vil eg að lokum færa
hér til tvö erindi, helguð íslenzka
jjjóðfánanum, úr kvæðinu: „Til
íslands“:
1
„Nú blaktir bér frelsis fáni nýr
svo fagurrauður og mjallarsldr
og blár eins og himins bogi.
Hann sameinar fjallanna ís og
eld
og unnarblámann um sumar-
' lcveld
á Ijómandi logkyrrum vogi.
Ó, fáni míns lands, Jjú fagra
mynd,
sem flekkaðist aldrei af neinni
synd
á ógnþrungnum orustúdegi,
sem aldrei blakti’ yfir blóðugum
val,
en borinn til sigurs vei’ða skal
á friðarins framliðarvegi.“
Á. S.
Smávörup
mikið og gott úrval.
Sigti, margar teg.
Ausur
Spaðar
Eggjaskerar
Rjómaþeytarar
Glerkönnur
með Rjómaþeytara
Kleinujárn
Pottasleikirar
Kökuform
fjölbreytt úrval
Blikkbrúsar
JÁRN V ÖRUDEILD
*Ies Zim§eií
K. P. U. M.
, Fundur annað kvöld kl.
81/2. Ástráður Sigursteindórs.
son talar. — Allir karlmenn
velkomnir.
NOTAÐUR
lefaiiiifii
óskast. — Uppl. i síma 2758.
Fitndur í Varðarhúsinu í kvöld kl. 8%.
Umræðuefni: Kosningafrestunin.
Frummælandi Gísli Sveinsson alþm.
Allir sjálfstæðismenn velkomnir meðan húsrúm
levfir.
STJÓRNIN.
Vegna flutninga
verður skrifstofa vor lokuð í dag og til hádegis á morg-
un. — Verður þá opnuð á Vesturgötu 4.
Fiskimálanefnd
Samkvæmt reglugerð 23. sept. 1936, um námskeið og
próf i siglingafræði utan Reykjavíkur, verða ráðnir 2
siglingalTæðikennarar og 2 eða fleiri kennarar i verk-
legri sjómennsku við námskeiðin, frá 1. október n. k.
til næstu 4 ára.
Annar siglingafræðikennarinn verður ráðinn fyrir
Akureyrar- og Isaf jarðarnámskeið, hinn fyrir Norð-
f jarðar- og Vestmanngeyjanámskeið.
Umsóknir sendist skólastjóra Stýrimannaskólans í
Reyk javík fyrir lok júlimánaðar.
Tilkynnið
íiutninga
á skrifstofu vora Gunnarssundi 8, vegna
mæla álesturs.
Rafveita Hafnarfjarðar.
Sími 9094.
Rasiiar Asgjeirsioii:
Garðyrkja heimilanna.
Niðurl.
I
Steinselja — persille — er
smávaxin kryddjurt, sem nær
ágælnni jjroska í görðum bér,
ef snemma er til hennar sáð;
t. d. samtímis gub'ótum og
lienni ætlað sama vaxtarrými.
Hún er af sveipjurtaætt, skyld
gulrótum, hvönn og kúmeni.
Blöðin eru bragðsterk og bæti-
efnarík. Blöð af steinseljú ern
notuð afar mikið i nágranna-
löndum okkar, í flestar máltíð-
ir allan ársins liring, ýinist
ný úr garðinum eða þurrkuð
og i höndum þeirrar húsmóður,
sem kann með liana að fara,
er steinseljan því mikils virði,
j)ó að hvert blað sé ekki stórt.
Eru jiau söxuð smátt og hrærð
í smjör, blandað i sósur, stung-
ið í kjöt, sem á að steikja o. m.
fl. Blöð steinseljunnar verða
hér með bezta móti, svo að eg
bef ekki séð þau betur þroskuð
'í öðrum löndum. Enda er j)að
svo, að ýmsar þær tegundir
matjurtanna, sem á annað borð
þrífast í norðlægum löndum,
verða betri þar en í hinum suð-
lægari og ná oft beti-i jjroska.
Kerfill lieitir önnúr krydd-
jurt, af sömu ætt og steinselja,
sem gott er að bafa á svo sem
einum ferm. Er það allbragð-
sterkt og 110 tað í súpur. Blað-
selja — selleri — er einnig
ræktað og notað í sama skyni,
því með því að nota kryddjurt-
ir, má búa til bragðsterkar súp-
ur úr grænméti og ágætar, án
þess að liafa einn einasta kjöt
bita með. Nokkrar fleiri smá-
jurtir mætti nefna, sem gerlegt
væri að rækta hér, þó eg ekki
telji J)ær upp að sinni. Benda
vil eg J)ó á, að fljótvaxnasta
matjurtin er karsi, og verður
hún fullvaxin á 10—15 dögum.
Hún er notuð þegar plantan er
um 2-3 cm. há og til hennar sáð
svo j)étt að heita má að korn
liggi við korn. Blöðin eru bragð-
sterlc ' og C-bætiefnarik og J)ví
vörn gegn Jjeini kvillum, sem
rekja rót sína til vöntunar á þvi
efni, I. d. skyrbjúg. En skyr-
bjúgseinkenni mun mega finna
víðar á fólkinu en menn al-
mennt grunar. Kemur hér aft-
ur að því, að grænmeti er bin
bezta lieilsuvörn, sé það notað
rétt, Jjví fjölda kvilla og sjúk-
dóma hjá „menningarþjóðum“
má rekja til Jjess, að mataræði
er þar eklci lengur í samræmi
við Jjarfir mannslíkamans.
Rabarbari mun vera ein al-
gengasta og vinsælasta matjurt
liér á landi og lil svo að segja
í hvers manns garði. Þarf J)vi
eigi að mæla með henni hér.
Þá eru káltegundirnar. Af
þeim er lil fjöldi tegunda og
afbrigða og verður bér aðeins
minnst á fæst af þeim. Blómkál
er líklega ein allra vinsælasta
káltegundin, vegna Jjess live
Ijúffeng hún er. Af blómkáli
má setja 8-12 plöntur á 1 ferm.
eftir slærð afbrigðanna. Erfurt-
er-blómkál er gamalt afbrigði,
sem enn er í góðu gildi og er
fljótvaxnast en ekki slórt. Eini
ókostur blómkáls er hve það
geymist illa fullþroskað. En goti
ráð til að skemina sem minnst
af J)ví síðsumars, er að borða
J)að á hverjum degi meðan ])að
er til. Því ráði ættu þeir að
fylgja, sem eru svo vel stæðir,
að eiga nóg af ])ví. — Blóm-
kálið er sú tegundin, sem kál-
fluga spillir belzt, þar sem.bún
er til. Um varnir gegn kvillum
og skaðlegum skorkvikindum,
eiga menn að leita til jurta-
læknis. Bók Ingólfs Davíðsson-
ar ineistara, um jurtasjúkdóma
og varnir' gegn J)eim eiga allir
garðeigendur að eiga, þvi heil-
brigðisástandið verður að vera
gotl í garðinum, ef uppskera á
að verða góð.
Af toppkáli og blöðrukáli (sa-
vöjkáli) má setja 8—12 plönt-
ur á 1 fermetra. Eru þessar
káltegundir snemmvaxnastar af
þeim, sem vefja blöðunum sam-
an í „höfuð“. Snemmvaxnar
káltegundir geymast sízt, og
Jiegar kálliöfuð fara að rifna,
J)á mega aðeins líða fáir dagar
Jiar til þau eru notuð.
Hvílkál er stórvaxnast allra
höfuðkáltegunda og matarmest.
Erlendis er talið að mest matar-
magn verði framleitt á hverjum
ferm. lands með því að fram-
leiða hvitkál. Ekki má setja
fleiri hvítkálsplöntur en 4—6 á
hvern ferm. Dittmarsker hvít-
kál ér g'olt snemmvaxið áf-
brigði, sem reynist hér ágæt-
lega. Iaatun heitir únnað gott
afbrigði, séinvaxnara, en geym-
isl mun lengur. Hvílkálsböfuð
geta orðið mjög þung, ef rétt er
að farið og vel borið á. Hafa
skulu þeir það í huga, sem setja
niður þær káltegundir, sem bér
liafa yerið nefndar, í vor, að
káltegundir gera miklar kröfur
til áburðar og að mikill bús-
dýraáburður hentar þeim bezt.
En þær borga vel áburðinn, ef
rétt er að farið. Kálplöntur má
nú fá keyptar bjá gárðyrkj u-
mönnum á réttum gróðursetn-
ingartíma, venjulega síðari
hluta maímánaðar.
Rauðkál og rósakál eru þær
káltegundir, sem erfiðast er við
að fást hér og þelcki eg ekki
afbrigði af þeim, sem hægt er
að lelja viss hér á landi. Eg hef
reynt hér snemmvaxin rauð-
kálsafbrigði, sem J)roskasl á
jafn stutlum tima og blómkál
erlendis, en hér héfir mér reynst
það nijög á annan veg.
Þá er ótalin sú káltegundin,
sem eg' liefði að réttu lagi átt
að nefna fyrst hér, en ])að er
grænkálið. Margra liluta vegna
ættum við að bugsa meira um
það en gerl er hér á landi.’ Séu
káltegundir rannsakaðar með
tilliti til næringarefna, þá eru
í blómkáli og hvítkáli 10% af
þeim, en í grænkáli 20%. Það er
því næringarauðugasta matjurt-
in, sem bér verður ræktuð.
Með tilliti til bætiefna, J)á vérð-
ur útkoman hin sama. í blóm-
kálshöfði eru engin bætiefni, og
i hvítkálshöfði eru þau aðeius í
yztu blöðunum, sem verða fyrir
áhrifum sólarljóssins. En græn-
kál myridar ekki höfuð, svo birt-
an nær til hvers einasta blaðs,
en í blöðum jurtanna myndast
bætiefnin fyrir áhrif geislanna.
Grænkálið er bætiefnarikasta
matjurtin okkar og því að ýmsu
leyli sú eftirtektarverðasta.
Nokkuð hefir verið rætt um
það, að réttmætt væri að rækta
skarfakál vegna C-bætiefnainni-
lialds þess, en vafalaust er
miklu réttara að snúa sér að
ræktun grænkálsins í.því skyni.
En þeir, sem eiga kost á skarfa-
káíi, Jiar sem Jiað vex vel, eink-
um í evjum við sjóinn, ættu að
sjálfsögðu að nota sér það. En
grænkál gefur margfalda upp-
skeru á móts við skarfakál.
Fræ af grænkáli er ódýrasta
kálfræið, og grænlcálið er
liarðgerðast allra káltegunda,
og þykir jafnvel hezt, eftir
að J)að hefir fengið frost.
Það má því liafa nýtt til
neyzlu allay veturinn, ef liægt
er að vernda ])að fyrir næðing-
um og snjóþyngslum. Ennfrem-
ur má bæði þurrka J)að og salta
eins og aðrar tegundir káls. 6
—-8 grænkálsplöntur má hafa á
1 ferm. lands. Með því vaxtar-
rými og nægum áburði getur
hver planta orðið stór og þung,
matarmikil. Milcils virði væri
það liverju héímili, að eiga 50
—100 slíkar plöntur undir vet-
urinn.
Þá lief eg talið bér einar 15
—16 tegundir matjurta, sem eg
tel að ættu að vera í livers
manns garði, ef vel ætti að vera.
í liöndum nýtinnar búsmóður
gæti það orðið stórkostlega
mikils virði. Matjurtagarðui’inn
ú alltaf að vera sem næst íbúð-
ar húsinu, svo að húsfreyja eigi
aðeins fáein spor út Jiangað að
sækja sér verðmæt og heilnæm
efni, svo að segja í hverja mál-
tíð dagsins.
Þá er garðyrkja heimilisins
líka í því horfi, sem á að vera.
1. maí 1941.
Ragnar Ásgeirsson.