Vísir - 15.05.1941, Page 2

Vísir - 15.05.1941, Page 2
I * Ð A G B L A Ð Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni Afgreiðsla: Hverfisgötu 12 (Gengið inn frá Ingólfsstræti) Símar 1 6 60 (5 línur). Verð kr. 3,00 á mánuði. Lausasala 15 og 25 aurar. Félagsprentsmiðjan h.f. Hitaveitan. TJ* kkert framfaramál hefir átt jafn rík ítök í hugum Reykvíkinga og hitaveitumálið. Allir flokkar liafa viljað hafa af því virðinguna, en Sjálfstæðis- flokkurinn einn hafði lengi vel af því allan vandann. Knútur Zimsen borgarstjóri vakti fyrstur máls á nauðsyn hitaveitu og beitti sér fyrir því að hitaveita var lögð frá þvotta- laugunum liingað til bæjarins, og búa nú að henni allmörg hús, og þar á meðal nokkur stórhýsi til almennings þarfa. Leiðsla þessi var lögð í reynsluskyni og óhætt mun að fullyrða að hún hefir ekki hrugðist þeim vonum, sem menn gerðu sér um hana í upphafi, enda varð hún hvatn- ing til stærri átaka, sem beind- ust að því að hita upp bæinn all- an með laugavatni. Er Knútur Zimsen/lét af borgarstjórastarfi tók Jón Þorláksson við af hon- um. Jón var ótrauður framfara og framkvæmdamaður, og sem verkfræðingur skildi hann manna bezt nauðsyn bæjarins á hitaveitu, og þá þjóðhagslegu þýðingu, sem slík framkvæmd hlyti að hafa. I borgarstjóratíð Jóns Þor- lákssonar festi Reylcjavíkurbær kaup á liitasvæðinu að Reykjum í Mosfellssveit, og höfðu þar far- ið fram tilraunaboranir, sem þegar höfðu gefið góðan árangur en voru jió engan veginn full- nægjandi. Hinsvegar stóð það öllum framkvæmdum mjög fyrir þrifum, að hentugur jarð- bor var ekki fyrir hendi, og þurfti því að kaupa hann erlend- is frá. En þar átti Reykjavíkur- bær undir högg að sækja hjá að- ilum sem lítinn skilning sýndu á lausn þessa þjóðþrifamáls, og fékst nýr bor ekki innfluttur fyr en seint og síðar meir, eftir að málið hafði verið stórlega t tafið Er Jón Þorláksson féll frá var þó sýnt að málið myndi ná fram að ganga, og grundvöllur verksins hafði verið Iagður í öllum aðalatriðum. Pétur Halldórsson horgar- stjóri fetaði dyggilega í fótspor fyrirrennara síns. Má með full- um rétti segja að liann legði fram alla krafta sína til þess að hrinda máliiiu í framkvæmd, en þar átti hann við að striða ýmsa óvænta erfiðleika, sem töfðu málið mjög, þótt það væri þann- ig undirbúið af hálfu stjórn- enda Reykjavíkurbæjar, að allir sérfræðingar Iykju á það hinu mesta lofsorði. Að lokum var svo verkið hafið, og menn gerðu sér hinar glæsilegustu vonir um framkvæmd þess, sem og að hér væri um eínskonar gullnámn að ræða, sem nytja mætti um ó- komin ár, til stórfellds sparnað- ar fyrir þjóðarbúið i heild. Hita- veitan myndi einnig auka stór- lega á öryggi Reykvíkinga, ef ó- vænta atburði bæri að hönd- um og siglingar til landsins kynnu að Ieggjast niður að ein- hverju leyti eða öllu. Hér hafa á undanfömum ár- um risið upp heil bæjarhverfi, sem mjög hefir verið vandað til að því, er allar byggingar snert- ir, en hvers virði eru vandaðar byggingar, ef ekki er unnt að \ ISIR liafast við í þeim sökum kulda. Þótt enn hal'i ekld komið að sök, er engin trygging fýrir því, að landið lendi ekki í fullkominni einangrun fyr en varir, og sjá þá allir um hvílíkt hagsmunamál hér er að ræða, og hvilík nauð- syn er á því, að hitaveitan kom- ist í framkvæmd sem allra fyrst. Samkvæmt skýrslu utanríkis- málaráðuneytisins, sem hérbirt- ist i blaðinu i gær, horfir nú mjög þunglega um aðfluttning efnis til hitaveitunnar, og má í raun réttri segja, að loku sé fyr- ir það skotið, að það efni flytjist til landsins, sem í upphafi var ætlað til verksins. Um kaup á slíku efni í öðrum löndum er allt í óvissu, en vafalaust verður tilraunum haldið áfram enn um skeið til þess að hindra það, að nauðsynjaverk þetta stöðvist. En vonbrigðin eru orðin svo inörg og mikil i sambandi við þetta mál, að engin ástæða er til þess, að gefa fólki of góðar von- ir um lausn þess, sem aldrei hef- ir verið ólíklegri en nú. Það er sjálfsagt að reyna lil þrautar allt sem unnt er og líklegt er til bjargar, en héðan af eru líkurn- ar litlar fyrir'þvi að hitaveitan komist á fyr enn að stríðinu loknu. Það er allt gott, sem betur kann að reynast, en nú horfir, en hvernig sem allt veltist er og verður hilaveitan mesta þjóð- þrifa framkvæmd, sem enn hef- ir komið til greina í þessu þjóð- félagi. fréiiír I.O.O.F. 5 XX. 9.0. 1235158V2 = Bústaðaskipti. Þeir kaupendur Vísis, sem hafa bústaðaskipti, eru beðnir aS tilkynna þaS í síma 1660. Operettan „Nitouche". TónlistarfélagiS og Leikfélag Reykjavíkur sýna óperettuna Ni- touche i 30. sinn annað’ kvöld, og hefst sala aðgöngumiSa kl. 4 í dag. — Vegna mikillar aðsóknar verS- ur ekki svaraS í sírna frá kl. 4—5. Skrifstofur norska sendihcrrans verða lokaðar 17. maí, Þjóðhá- tíðardag Norðmanna, og sendiherra og frú Esmarch taka á móti gest- um á Fjólugötu 15 kl. 3—5 e. h. Dómprófastur síra Fr. Hailgrímson, , er fluttur í Garðastræti 39. Við- talsími hans er kl. 6—7 virka daga. Bæjarstjórnarfundur verður haldinn í Kaupþingssaln- úm kl. 5. Auk venjulegra fundar- gerða nefnda liggja fyrir tillögur um breytingar á lokunartima rak- arastofa. , Vikublaðið Fálkinn kemur út laugardaginn 17. maí, — J'jóShátíðardaý Norðmanna — þar sem blaðið að mestu verður helgað þessum degi. Trúlofun. Nýlega hafa opinberað trúlofun sína Guðrún V. Guðmundsdóttir, Þórsgötu 10, og Jónas Eysteinsson, kennari, frá Stórhól, Vestur-Húna- vatnssýslu. Vegleg gjöf. Kristniboðsfélag kvenna í Reykja vík hefir borist gjöf kr. 1000.00 — eitt þúsund krónur — frá Guðna Einarssyni kaupmanni og konu hans frú Jónu Ásu Eiríksdóttur. Er gjöf þessi til minningar um hjónin Eirik Helga Eiríksson (f 25. ágúst 1906) og Guðrúnu Jónsdóttur í Eiríksbæ (f 30. april 1941). Minnast gef- endurnir foreldra og tengdaforeldra með því að styrkja það félag, sem Guðrún í Eiríksbæ elskaði með lífi og sál og starfaði fyrir til síðustu stundar.— Kristniboðsfélagið þakk- ar innilega hina góðu og kærkomnu gjöf. Stjórn Kristniboðsfél. kvenna. Útvarpið í kvöld. Kl. 15.30—16.00 Miðdegisútvarp. 19.25 Þingfréttir. 19.40 Lesin dag- skrá næstu viku. 20.00 Fréttir. 20.30 Minnisverð tíðindi (Sigurður Ein- arsson). 20.50 Hljómplötur: Orgel- lög. 21.00 íslenzk fræði í Bretlandi (Thurville Peters) (plötur). 2X.2Ó Útvarpshljómsveitin: Laga- syrpa eftir Donizetti. Aðaflfiindur Ferðafciagsins. Ra.ðg’erð iiy§rg*iiig* 2|a nyrra §ælnhn§a Félagafalan komin á 4. þúsund. Aðaifundur Ferðaíelags Isiands var haldinn í Odd- fellowhúsinu í fyrrakveld við sæmilega fundarsókn. Stýrði Guðin. Einarsson frá Miðdal fundinum, en l'or- seti féiagsins, Geir G. Zoéga vegamálastjóri, gaf skýrslu um starfið á árinu. Fer hér á eftir útdráttur úr henni: Útsýnisborð. Útsýnisborð hafa verið reist á Vífilfelli s.l. sumar, en áður var annað borð komið upp á'Val- húsahæð. í sumar verður þriðja borð- inu lcomið fyrir á Þingvöllum, þar sem farið er niður i Al- mannagjá. Fjallasýn er þar ó- venju fögur. Skýrsla forsefa. Ferðir. Farnar voru 20 skemmtiferð ir, langar og stuttar, á árinu. Þátttakendur voru 620, sem er heldur lægri tala en undanfarin ár, en það gerði fyrst og fremst óhagstæð veðrátta. Kostnaður við ferðalögin var samtals kr. 16.441.55. í sumar verður ferðum liag- að svipað og áður. Verður sam- in ferðaáætlun og send innan skamms til félagsmanna. v Skemmtifundir. Vetrarstarfsemi Ferðafélags- ins hefir venjulega verið fólgin í skemmtifundunum, en í vetur hafa þeir verið færri og fámenn- ari en áður, sem stafar einvörð- ungu vegna húsnæðisskorts. Áð- ur fékk Ferðafélagið „Borgina“ eftir þörfum til afnota. í vetur hefir hún alls ekki fengizt og verið hörgull á öðru liúsnæði — Alls voru haldnir 6 skemmti- fundir á starfsárinu. Skrifstofa, Ferðafélagið liefir haldið op- inni upplýsingaskrifstofu, sem menn geta snúið sér til við- víkjandi upplýsingum um ferðalög. Þar er tekið á móti fé- lagsgjöldum, árbókin afgreidd og send, ferðalög undirbúin o. s. frv. Hefir Kristján Ó. Skag- fjörð annast skrifstofuhaldið af mikilli prýði. Þakkaði fundar- heimur honum sérstaklega hið ágæta starf með lófaklappi. Árbókin. Siðasta árbók kom seinna út en venjulega. Var hún lítil og ekki eins vönduð að frágangi sem fyrri árbækur. Stafaði þetta meðfram vegna þess, hve ár- bókin 1939 var dýr. Næsta árbók fjallar um Kelduhverfi, og er hún þegar komin í prentun. Árni Óla blaðamaður ritar hana og verð- ur hún prýdd mörgum mynd- um, þ. á m. myndum af mál- verkum eftir Svein Þórarinsson listmálara. í þessari bók verður einnig lýsing á Tjörnesi, sem Jóhannes Áskellsson jarðfræð- ingur skrifar. Frágangur bók- arinnar verður vandaðri en sið- os t. Sæluhúsin. Ferðafélagið á nú þegar fjög- ur sæluhús, öll vönduð. Var á- kveðið að reisa fimmta sælu- húsið s.l. sumar, er standa átti við Hagavatn. Var vegur ruddur þangað og byggingin að öllu leyti undirbúin, en það var orð- ið of áliðið, svo ákveðið var að bíða til vors. Verður það byggt i vor, sennilega vestan Farsins hjá Leynifossi, og jafnframt byggð ein eða tvær göngubrýr yfir Farið, því það er illfært gangandi mönnum. Ætlað er að hafa rúmstæði fyrir 8 menn í skálanum, en alls á hann að geta rúmað um 20 manns. Þaðan er hægt að iðka skiðaferðir á Langjökli allan ársins hring, þvi það er stutt á jökulinn. Ef til vill verður annar skáli reistur á einhverri hentugri gönguleið. Yrði það minna hús, er rúmaði helmingi færri menn. Félagar. Félagar eru samtals orðnir 3008 á öllu landinu, þar af 10 kjörfélagar, 28 ævifélagar, 8 fjölskyldumeðlimir og 1 heið- ursfélagi. Ifefir félögunum l'jölgað um 206 á árinu. Innan félagsins starfa tvær aukadeildir norðanlands, önnur Jieirra er á Akureyri með 320 félögum, hin á Húsavik, með 46 félögum. Starf þeirra er gott, einkum Akureyrardeildar. Hef- ir hún beitt sér fyrir vegagerð úr Eyjafirði upp á Vatnalijalla, og safnað til þess sjálfboðalið- um,. Þá eru Fjallamenn sérstök deild innan Ferðafélagsins. Las Guðm. Einarsson frá Miðdal lög (Jppboð Opinbert uppboð verður haldið við skrifstofu saka- dómara á Fríkirkjuvegi 11 á morgun kl. 2 e. h. »g verða þar seldir ýmsir óskilamunir í vörzlum rannsóknarlögregl- unnar, meðal annars reiðhjól. Greiðsla fari fram við ham- arshögg. LÖGMAÐURINN 1 REYKJAVÍK. Bílskúr óskast 3—4 mánuði. Uppl. í shna: 1515. Velkomin r r 1 Hvað vantar í búríð. Bara hringja svo kemur það tiUÍRl/aldi Húsnæði. 2—3 herbergi og eldhús ósk- ast frá 1. júní. Uppl. í síma 2595 og 2126. _ og reglur Fjallamanna. Verður bætt við 14—16 nýjum félögum í ár, og geta ungir menn og konur sótt um upptöku í það. Fjallamenn hafa komið upp skála á Fimmvörðuhálsi og munu reisa annan við Tinda- fjallajökul á næstunni. Fjárhagur. Tekjur Ferðafélagsins í ár urðu kr. 19.748.74, þar af námu árgjöld félagsmanna tæpum 14 þús. kr. Gjöldin námu liinsveg- ar kr. 16.520.41 og var árbókin stærsti gjaldaliðurinn, eða sam- tals 5580.00 lcr. Félagið á nú í sjóði rúmlega 3 þús. kr. • Stjórnarkosning. Sjö menn gengu úr stjórn og var hún öll endurkosin í einu hljóði. Geir G. Zoéga forseti, Steinþór Sigurðsson varafor- seti en meðstjórnendur: Jón Ey- þórsson, Gísli Gestsson, Pálmi Hannesson, Guðm. Einarsson og Lárus Ottesen. Þá voru end- urskoðendur einnig endurkosn- ir, þeir Bjarni Jónsson og Ól- afur Gíslason. Að loknum fundarstöx-fum skemmtu þeir Alfreð Andrésson og Valur Gíslason með upplestri tveggja stuttra leikþátta, og loks stiginn clans til kl. 1. VÍSIS KAFFIÐ , gerir alla glaða. Stúlka óskast strax. — Uppl. VEITINGASTOFUNNI Vestnrgötu 45. 2 stúlknr óskast í eldhús. Ivaup 150 kr. og. fæði. Tilboð, merkt: „Stúlkur“, sendist afgr. Visis Vörubíll 2ja tonna, í góðu standi, til sölu. Til sýnis á Freyjugötu 11 ld. 6—9. (Ekki svarað í sirna). Wýkomið: Silfurplett-borðbúnaður Matskeiðar......4.15 Gafflar ....... 4.15 Desertskeiðar .... 3.40 Desertgafflar... 3.40 Teskeiðar ..... 1.85 VERZL. GOÐAFOSS Laugavegi 5. Sími: 3436. Vörnbill i góðu standi, 2—2% tons til sölu. Uppl. Laugavegi 81. — Veggfóður STRIGI MASKÍNUPAPPÍR. Verzl. Katla SANDWICH SPREAD HEMZ súpur í dósum. OXO teriingar. Ví5in Laugavegi 1. Útbú, Fjölnisvegi 2. Gúmmískógerðin Laugavegi 68. — sími: 5113. Nýir nágrannar velkomnir. Gerið svo vel að athuga hvað fæst hjá okkur og prófa við- gerðirnar á gúmmískófata- aði yðar. Reykt Kindabjúgu. Ostar. Smjör. Eg-g, lægsta verð. KVovzlumti Jfcilli Kventöskur odtso*t allra nýjasta gerð og ný- tízku -litir, komnar. SEÐLAVESKI. SKJALATÖSKUR. SEÐLABUDDUR með rennilás MYNDAVESKI, fleiri stærðir. BUDDUR í f jölbreyttu úrvali og fleira, og fleira. Hjón, sem bæði vinna úti, óska eftir 1-2 lierM og eldhúsi strax. — Tilboð, merkt: „1—2“, leggist inn á afgr. þessa blaðs. Skrifstofa mín er flntt 1 Aðalitræti O llagjuiis llioiiítríiii. i

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.