Vísir - 18.08.1941, Qupperneq 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
Ritstjóri
Blaðamenn Sími:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 línur
Afgreiðsla
31. ár.
Reykjavík, mánudaginn 18. ágúst 1941.
187. tbl.
Winstoii Clinrchill á liersýning'ii í Nogamýrinni
Til viðbótar þvi, sem sagt var frá ferðum Winston Churchill’s liér í blaðinu í fyrradag, má geta þess, að að aflokinni hersýningu við Hálogaland, snæddi hann hádegisverð hjá brezka
sendiherranum, Mr. Howard Smith, að Höfða, en hélt síðan áfram heimsóknum til bækistöðva liersins í nágrenni bæjarins. Fyrst heimsótti liann lierbúðir flugmanna, en seinna um daginn
fór hann að Reykjum í Mosfellssveit., Síðast fór hann til aðalstöðva brezka her sins á íslandi, en seinni hluta dagáins fór liann um borð aftur. Á bryggjunni mætti Hermann Jónasson forsætis-
ráðherra, og skiptust þeir á fáeinum orðum að skilnaði. Myndirnar hér að ofan eru teknar af fréttaritara Vísis á hersýningunni inni við Hálogaland. Á myndinni t. v. lieilsar Churchill her
Bandarikjamanna og foringjum þeirra til sjós og lands. Myndin í miðið er tekin af Churchill að hersýningunni lokinni, en til liægri er Churchill með öðru stórmenni, uppi á heiðurspalli,
áður en hersýningin hófst. Mennirnir eru, talið frá vinstri: Sir Godfrey Freeman, varayfirforingi brezka flughersins, Sir Jolin Dill, yfirmaður lierforingjaráðsins brezka, Franklin Delano
Roosevelt (sonur Bandaríkjaforseta), Winston Churchill forsætisráðherra Breta, og Sir Dudley Pound, flotaforingi.,
Fraser verð-
ur áfram í
London.
Það hefir verið tilkynnt, í
London, að Robert Fraser, for-
sætisráðherra Nýja Sjálands,
ætli sér að verða þar nokkura
daga ennþá, lil þess að ráðgast
við stríðsstjórnina.
' Robert Fraser kann vel við
sig í London, því að hann bjó
þar um skeið fyrir mörgum ár-
um.
Hann er fæddur í Skotlandi
og kynntist fyrst stjórnmálum
hjá föður sinuni, en hann var í
frjálslynda flokknum. En þegar
fylgið hrundi utan af þeim
flokki, sá Fraser, að þar mundi
verða iítil framtið fyrir sig og
gekk i óháða verkamannafloldc-
inn.
Árið 1910 fór Fraser — 26 ára
gamall — til Nýja Sjálands og
gekk þar í verkamannaflokldnn,
sem var í slæmu ásigkomulagi.
Komst hann þegar í fremstu röð
baráttumanna hans og árið 1918
var hann kosinn á þing og varð
auk þess bæjarfulltrúi í Welling-
ton.
Árið 1935 náði verkamanna-
flokkurinn meiri hluta í þinginu
í fyrsta skipti og varð þá Micha-
el Joseph Savage forsætisráð-
lierra. Fraser varð ráðherra í
stjórninni og hafði til meðferð-
ar heilbrigðismálin, mennta-
málin og flotann. Árið 1939
hafði liann enn hækkað í tign,
var orðinn varaforsætisráðherra
og þegar Savage lézt 26. marz
1940, var Fraser útnefndur for-
sætisráðherra af landstjóranum,
Galway greifa.
Fraser er alvarlegur í fasi, en
fynidinn svo að orð fer af.
I gær var unnið að framleiðslu
olíu í öllum olíustöðvum Texas-
fylkis í Bandaríkjunum. Er
þetta í fyrsfa skipti, sem unnið
er á sunnudegi við olíufram-
leið^lu þarna og er ætlunin að
gefa Bretum alla þessa fram-
leiðslu.
Rússar játa missi Niko-
lajev og Kriwoi-Rog----
*
a
v^itöðvnnnm er
kyritaða.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Iherstjórnai'tilkynningunni, sem gefin var út í
Moskva i nótt tilkynntu Rússar, að þeir hefðu
yfirgefið hafnarborgina Nikolajev, við
mynni Bug-fljótsins, 120 km. norðaustur af Odessa,
og málmiðnaðarborgina Kriwoj-Rog, sem er 150 km.
suðvestur af Dnjepro-petrovsk.
Þjóðverjar segjast reka flóttann af kappi fyrir austan Bug-
fljót, og segja lier Budjennys alveg í upplausn, en Rússar eru
þar á gagnstæðri skoðun. Seg'ja þeir, að þeim hafi gefizt tími
til að eyðileggja öll liafnarmannvirki i Nikolajev, áður en
þeir fóru þaðan og borgin hafi verið varin svo vel, að Þjóðverj-
ar hafi misst þar 20.000 mannna.
Þá segja Rússar að hersveitir Timoshenko, marskálks, á Mið-
vígstöðvunum hafi gert gagnáhlaup á stöðvar Þjóðverja, tekizt
þar að umkringja stóra sveit þýzkra liermanna og gereytt henni.
Annars segir i herstjórnartil-
kynningu Rússa, að grimmilega
sé barizt á allri víglinunni, frá
Ilvítahafi til Svartahafs, en
hvergi sé neinn kraflur í sókn
Þjóðverja, nema syðst í Ukra-
inu.
Þjóðverjar tilkynna líka bar-
daga á allri línunni, en segja að
þeir sæki allsstaðar fram. Þeir
nefna þó ekki nöfn nema við-
víkjandi Ukrainu og segja hlut-
laus blöð, að það sanni bezt, að
engar stórvægilegar breytingar
sé á víglínunni — annarsstaðar
en í Ukrainu —- að hvorugur
aðili nefni mikið af borga- og
héraðanöfnum.
Þjóðverjar segjast hafa tek-
ið 7000 fanga, 38 fallbyssur og
mikið af bílum og brynreiðum
í Ukrainu, en herfangið verði æ
meira.
Verður Dnieper
næsta varnarlínan?
Hermálasérfræðingar i Lon-
don eru að bollaleggja um það,
hvort Budjenny muni reyna að
verjast eitthvað fyrir vestan
Dnieper-fljót. eða fara strax
austur yfir fljótið, en það er víð-
ast um 1500 metrar ó breidd og
því afargott tíl varnar við það.
Don-iðnaðarhéraðið er ckki í
neinni liættu ennþá, en nú er
því hættara við loftárásum en
áður.
Þjóðverjar kaupa
skíði í Svíþjóð.
Þess sjást nú æ fleiri sannan-
ir, að Þjóðverjar búast ekki við
þvi að þeir Ijúki Rússlandsstyrj-
öldinni áður en veturinn skell-
ur ó.
Hafa verið gerðar ráðstafanir
til þess að búa til fimm millj-
ónir vetrarfraklca úr skinni og
auk þess berast þær fregnir frá
Svíþjóð, að þar hafi verið pönt-
uð 400.000 sldði handa þýzka
liernum.
Frá Los Angeles er farið tank-
skip, sem er með fyrsta farminn
af amerísku flugvélabenzíni til
Vladivostok. Er skipið með um
10 milljónir lítra, en það nægir
handa 6000 sprengjuflugvélum
til þess að fljúga frá Moskva til
Berlínar og lieim aftur.
Churchill heim-
sótti ísland á
heimleiðinni,
segir London.
jþað hefir nú verið tilkynnt
í London, að Churchill
hafi komið við á Islandi á
leiðinni heim frá Atlantshafs-
ráðstefnunni og hafi hann
annað amerískt og brezkt
íið hér.
Fréttamyndir, sem teknar
voru af fundinum verða
sýndar um allt Bretland í
fyrsta skipti á morgun.
Sést Roosevelt m. a. bjóða
Churchill velkominn um
borð í beitiskipið Augusta —
þar sem viðræðurnar fóru
fram — þá sjást þeir við
guðsþjónustu um borð í
Prince of Wales og auk þess
sést fjöldi skipa af öllum
stærðum umhverfis, en land-
ið sést ógreinilega í fjarska.
Diii'Iaii í París.
Darlan aðmíráll kom til Par-
ísar í morgun og mun hann
ræða þar við de Brinon og
helztu menn Þjóðverja.
. .Lögregla Vichy-stjórnarinnar
hefir nú hert á öllu eftírliti með
þeim, sem andvígir eru allri
samvinnu við Þjóðverja. Eru
þar með farnar að koma í ljós
afleiðingar af ræðu Pétains, er
liann sagði, að nú yrði Frakkar
að vinna með Þjóðverjum og
þjóðin að endurfæðast.
Gallup-stofnunin hefir látið
fram fara atkvæðagreiðslu um
það, livort menn telji Vichy-
stjórnina styðja Þjóðverja eða
Breta. 58% töldu hana styðja
Þjóðverja en 4% Breta.
Bretar lána Rússum a.m.k.
10 milljónir sterlingspunda
Þelr (ilkyiina að þeir hafi gert með
scr lerxlnnarsáttiiiála.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Ðússar og Bretar hafa gert með sér viðskiptasátt-
mála. Var það tilkynnt samtímis í London og
Moskva í gær, að þá um daginn hef ði verið undirritað-
ur samningur um viðskiptamál í Moskva. Voru það þeir
Sir Stafford Cripps og Mikojan verzlunarráðherra
Sovét-ríkjanna, sem undirrituðu fyrir hvorn aðila. —
Samningur þessi er um vöru-
skipti, en vegna þess, að talið er
að Rússar muni fá miklu meira
af vörum frá Bretum, en þeir
fá af Rússum, lána Bretar þeim
10 milljónir sterlingspunda til
að greiða mismuninn. Lán þetta
verður til fimm ára og greiða
Rússar 3% vexti árlega.
Þetta.lán er þó aðeins byrjun-
in. Því að ef Rússar þurfa meira,
er svo um samið, að þeir geti
fengið það án þess að sérstak-
lega verði um það samið pg
verður það lán með sömu kjör-
um og hið fyrra.
Það, sem Rússar eiga aðallega
að fó samkvæmt þessum samn-
ingi er: Gúmmí, tin, ull, liúðir,
jute, iðnaðarvörur o. s. frv.
Bretar vilja hinsvegar fá plat-
ínu, hamp, timbur, mangan og
fleiri afurðir, sem Rússar hafa
miklar birgðir af.
Blöð í Bandaríkjunum segja,
að þessi samningur sýni ljóslega,
að Bretar treysti því, að Rússar
mftni ekki láta bugast og því sé
ætlunin með þessu, að gera
þeim hægara um vik við að
safna birgðum fyrir vorsóknina
á næsta ári.
Rooseveh ræðir
við IInll og: þing'-
leiðíogana.
Roosevelt, forseti, kom til
Washington í gærmorgun frá
j Portland í Maine, þar sem hann
I sté á land. Hafði hann strax
ráðstefnu með Cordell Hull, ut-
anríkisráðherra, og ræddust
þeir við í 2 >/2 klukkustund.
iHull sagði blaðamönnum, á
eftir, að þeir liefði sagt hvor
öðrum öll nýjustu tíðindi í
heimsmálum. Það er álit
manna, að þeir hafi einna helzt
lalað um Austur-Asíu-mólin og
afstöðu Frakka til Þjóðverja.
I dag mun Roosevelt ræða við
forvígismenn úr hópi þing-
manna.
Þá liafa þeir Beaverbrook og
Ilary Hopkins fæðst við — að
öllum líkinldum um flutning á
hernaðarnauðsynjum, frá
Bandar ík j unum.
Ríkisstjórinn í
heimsókn
á Akureyri.
Ríksstjórinn kom kl. 6 síð-
degis til Akureyrar. ók hann
beina leið upp til Menntaskól-
ans, en þar hefir hann aðsetur
meðan hann dvelur á Akureyr/.
Fánar voru dregnir við hún
víðsvegar í bænum og með-
fram götum, sem ríkisstjórinn
ák um. Hafði fólk safnazt sam-
an á Ráðhústorginu og beið þar
komu ríkisstjórans. í idag mun
rikisstjórinn hafa boð hjá sér,
en að öðru leyti er ekki vitað
um fyrirætlanir hans.
Móttökunefndina á Akureyri
skipa þeir Steinn Steinsen bæj-
arstjóri, Árni Jóhannsson for-
setí bæjarstjórnar og Indriði
Helgason bæjarfulltrúi.
Á Akureyri er þessa dagana
hvassviðri og kuldar, og hafa ó-
þurkar verið þar nyrðra að und-
anförnu.