Vísir - 09.09.1941, Page 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
Ritstjóri
Blaðamenn Sími:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 línur
Afgreiðsla
31. ár.
Reykjavík, þriðjudaginn 9. september 1941.
205. tbl.
II is r hrekja átta
þýzk herfylki á flotta
---eftir 36 daga ornstnr.
Þjóðverjar segja
Leningrad um-
lukta.
Húsnæðismálin
ir
0
i
1
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Fregn í gær um mikinn sigur Rússa á miðvíg-
stöðvunum vakti engu minni athygli, ef ekki
meiri en fregnir Þjóðverja og Finna, þar sem
því er haldið fram, að Leningrad sé nú umlukt. Sigur-
fregnir beggja styrjaldaraðila frá í gær voru sem hér
segir:
1) Finnar sögðust vera komnir að.ánni Svir milli Ladoga-
vatns og Onegavatns, eða að skipaskurðinum mikla milli Kyrj-
álabotns og Hvítahafs. Eru þeir þarná um 250 kílómetra frá
Leningrad.
2) Þjóðverjar tilkynntu síðdegis í gær, að hersveitir þeirra
væri komnar að ánni Neva og að þær hefði tekið bæinn Schlxiss-
elburg með áhlaupi. Bær þessi er um 40 kílómetra frá Leningrad.
3) Á miðvígstöðvunum hafa Rússar tekið bæinn Elnya um
80 kílómetra suðaustur af Smolensk að afstöðnum 26 daga
hörðum bardögum. Rússar segjast hafa hrakið þarna á flótta
8 þýzk herfylki eða upp undir 160.000 manna her og tekið ó-
bemju herfang.
Ríkisráðsfundur var haldinn
í gærmorgun og voru þar sam-
þykkt bráðabirgðalög um hús-
næðismálin samkvæmt tillögu
félagsmálaráðherra.
Lögin gilda fyrir Reykjavík
og aðra staði á landinu. Aðal-
atriði þeirra er, að leigusala er
óheimilt að segja upp ibúðar-
húsnæði, nema lionum sé þess
brýn þörf til eigin íbúðar að
dómi húsaleigunefndar. Þær
uppsagnir, sem ekki hafa kom-
ið til framkvæmda skulu ó-
gildar, nema húseigandi sanni
fyrir húsaleigunefnd að hann sé
húsnæðislaus.
Þá er húseigendum óheimilt
að leigja öðrum en heimilsföst-
um innanhéraðsmönnum ibúð-
arhúsnaeði.
Flugvélatjónið.
Síðastliðinn laugardag skutu
Rússar niður fyrir Þjóðverjum
eða eyðilögðu á annan hátt 62
flugvélar, en misstu 33 sjálfir.
Flugvélatjón Þjóðverja á Len-
ingrad-vígstöðvunum, og að
baki þeirra, hefir verið rnjög
mikið í seinni tíð.
Loftárásir á Bukarest.
Frá því var sagt i ítölskum
fregnum i gærkveldi eftir fregn-
um frá Bukarest, að Rússar
hefði gert þrjár loftárásir á
borgina í fyrrinótt, og var getið
um tjón i einni.
Vamarveggir úr stáli.
I rússneskum, fregnum segir,
að Rússar hafi varnarvegg úr
stáli kringum Odessa, Kiev og
Leningrad, og um Leningrad
segja þeir, að þessi borg hafi
aldrei fallið, og skuli aldrei
falla.
FRÉTTIR
í STUTTU MÁLI
•
1 útvarpinu í Teheran er því
harðlega neitað, að herinn í ír-
an hafi gert byltingu. ítalir
höfðu birt fregnir í þessa átt.
— Þingið i Iran kemur saman
í dag til þess að taka ákvörðun
um kröfu Breta og Rússa, að
sendisveitarskrifstofum Þjóð-
verja, ítala og fylgismanna
þeirra verði lokað, og allir Þjóð-
verjar og Italir, sem þar eru,
framseldir.
Amerísku skipi hefir verið
sökkt í sprengjuárás á Rauða-
hafi. Manntjón varð ekki.
Brezkur kafbátur hefir sökkt
ítölsku oliuflutningaskipi á
Eyjahafi.
Japanir ætla að senda nýjan
sendiherra til London í stað
Shigemitsu.
Berlin.
Feikna gremja í
þýzkum blöðum.
Ógurleg gremja kemur fram
í þýzkum blöðum yfir loftárás-
inni miklu á Berlín í fyrrinólt,
og er hótað hefndum. Mörg
brezk blöð víkja að því, að nú,
er Þjóðverjar eru farnir að finna
smjörþefinn af því hvernig það
er að verða fyrir því, sem Lund-
únabúar urðu að þola í fyrra-
haust, beri þeir sig illa og tali
um andstyggilegar áriásir,
grinnnd og villimennsku. —
Það er kunnugt, að feikna tjón
varð í árásinni og komu upp
stórkostlegir eldar í miðhluta
borgarinnar.
Alls misstu Bretar tuttugu
sprengjuflugvélar í fyrrinótt,
meðal annars tvö fljúgandi
virki, en það er tekið fram í
London, að með tilliti til þess,
að hundruð flugvéla tóku þátt í
árásinni og miðað við árangur,
sé ekki um ýkja mikið tjón að
ræða. Þýzkar flugvélar skutu
niður 4 næturflugvélar.
Árás á Vestur-Þýzkaland í nótt.
I morgun var tilkynnt, að
brezkar sprengjuflugvélar hefði
gert árás á Vestur-Þýzkaland í
nótt sem leið.
Heimdallur,
félag ungra sjálfstæðismanna,
hélt fyrstu kvöldskemmtun sína í
Oddfellowhúsinu á laugardag s.l.
Fundinn setti Lúðvík H'jálmtýssou
með stuttu ávarpi. Síðan töluðu
þeir Jóhann Hafstein, form. Heim-
dallar og Ragnar Jónsson frá Hellu.
Lárus Pálsson leikari las upp úr
kvæðum Tóntasar Guðmundssonar
og æfintýrum H. C. Andersens. Var
honum tekið mætavel. Að lokum var
stiginn dans fram eftir nóttu.
Síðasta sumarleyfisíör
F erðaf élagsins.
Ferðafélag íslands efndi laug-
ardaginn 30. ágúst til 5—6 daga
ferðar austur á Fjallabaksveg
hinn s.vðri, þaðan um Emstrur
og Þórsmörk til byggða.
Vísir liafði tal af íararstjóran-
um, Kristjáni Ó. Skagfjörð, og
sagði hann að ferðin hefði í alla
staði gengið að óskum, veður
var prýðilegt og náttúrufegurðin
framúrskarandi.
Þátttakendur voru 6. Farið
var í bifreið að Stórólfshvoli, en
þaðan á hestum upp Hvolhrepp
og tjaldað í svokölluðum
Lambadal, skammt fyrir ofan
efstu byggð. Næsta dag var
haldið inn i Hvanngil á Fjalla-
baksvegi. Þriðja daginn var far-
ið suður Emstrur og varð að
fara með hestana á jökli fyrir
ofan upptök Syðri Emstraár
vegna vatnavaxta. Var hálf stirt
að komast á og af jöklinum, en
gekk þó slysalaust.
Þar sem Emstraáin syðri og
Markarfljót falla saman mynd-
ast óhemju hrikaleg og djúp
gljúfur, sem ferðalangai-nir
skoðuðu. Þessa nótt var gist
skammt fyrir neðan Emstraána
í efstu grösum.
Daginn eftir var lialdið á
Þórsmörk og gist þar. Af Þórs-
mörk héldu fjórir ferðalang-
anna upp Heljarkamb á Goða-
landi, upp á Fimmvörðuháls og
l)aðan niður að Skógum undir
EyjafjöIIum. Tveir ferðamenn-
irnir fóru auk fylgdarmannsins
niður yfir Markarfljóts og Þver-
áraura niður í Fljótshlíð.
Er þetta í fyrsta skipti sem
Ferðafélag Islands efnir til far-
ar um Emstrur, og þó það sé e.
t. v. nokkuð amsturssamt að
komast þessa leið, borgar hún
sig samt, því náttúrufegurþin er
fögur og voldug, og er vonandi
að Ferðafélagið haldi þeim ferð-
um áfram í framtiðinni.
Þetta var síðasta sumarleyf-
isferð Ferðafélagsins á þessu
Kanadiskt og norskt her-
lið sett i landá Svaibarða
Norskar íjölskyldur fluttar á brott.
Það var tilkynnt í London á miðnætti síðastliðnu, að
bandamenn hefði sett herlið á land á Spitzbergen. I liði
þessu voru Norðmenn, Kanadamenn og Bretar. Norsk-
ar f jölskyldur voru fluttar á brott.
TILKYNNING.
Frá skrifstofu yfirforingja
Bandaríkjahersins á íslandi.
8. sept. 1941.
Yfirforingi Bandaríkjahersins
á íslandi gefur til kynna, að
hinir fjórir Bandaríkjahermenn
sem ákærðir eru um nauðgun
íslenzkrar konu, voru leiddir
fvrir herrétt kl. 9 f. h. í dag, 8.
september 1941, — Mál Private
R. N. Ross verður fyrst tekið
fyrir.
Umræðurnar um brezka
Kl. 2 í gær hófst fundur smáútvegsmanna og sjómanna í
Kaupþingssalnum. Til fundarins hafði boðað nefnd sú,
sem kosin hafði verið á fyrra fundi, sem haldinn var um miðj-
an ágústmánuð.
Á fundinum var mikill fjöldi sjómanna og útvegsmanna héð-
an úr Reykjavík, Akranesi, verstöðvum á Suðurnesjum og
fulltrúar frá Vestmannaeyjum. Auk þess var atvinnumálaráð-
herra og formaður Viðskiptanefndar og tveir meðlimir liennar
Markmiðið með að setja lið á
land er að koma í veg fyrir, að
Þjóðverjar geti hagnýtt sér
kolanámurnar þarna. Meðal
Norðmanna á Spitzbergen voru
margir, sem vildu komast í her
frjálsra Norðiiianna í Bretlandi
eða á kaupskipaflota Norð-
manna. Fjölskyldur þessara
manna voru fluttar með til
Bretlands, til þess að hindra, að
Þjóðverjai; hefni sin á þeiin.
Engir Quislingar voru á
Spitzbergen. Fólkið lét heldur
vel yfir sér. Þjóðverjar hafa
látið sig það og liag þess litlu
skipta. Það hafði ekki liðið
neinn skort, en hafði orðið að
nota mikið dósamat í seinni tíð.
í fregnum frá London í
morgun segir, að það hafi verið
Kanadamenn, sem haft hafi
stjórn á hendi í leiðangrinum.
Ey mikið um þetta rætt í brezk-
um og kanadiskum blöðum.
Putthvað af fólki mun vera
eftir á Svalbai’ða, að minnsta
kosti er ekki getið um, að rúss-
neskir námumenn, sem þarna
eru, hafi verið fluttir á brott.
Rússar og Norðmenn á Sval-
barða tóku hersveitum banda-
manna mjög vel.
Kafbátur gefst upp
fyrir landflugvél.
I gær var skýrt frá því í Lon-
don, að Hudson flugvél liefði
gert árás á þýzkan kafbát með
þeim árangri, að kafbáturimt
varð að gefast upp. Hudsonflug-
vélin varpaði sprengjum á kaf-
bátinn, sem laskaðist og kom
upp á yfirborðið. Sjór var mik-
ill. Hudsonflugvélin var að
verki í 4 klst. en þar næst Cata-
liaflughátur í 10 klst., en þá
komu herskip til skjalanna, og
er veður lægði drógu þau kaf-
bátinn til hafnar. — Þetta er
í fyrsta skipti sem kafbátur
gefst upp fyrir landflugvél.
aðrir.
*
Eins og lesendum Vísis mun
kunnugt, var boðað til þessa
fundar til þess að fá ýmsar skýr-
ingar á fisksölusamningnum.
Hófst fundurinn á því, að
Arnór Guðmundsson skrifstofu-
stjóri, skýrði frá störfum nefnd-
ar þeirrar, sem kosin Iiafði verið
á fundi þeim, er ofar getur, en
hann var einn meðlima hennar.
Siðan las liann texta samnings-
ins við Breta, en að því búnu
tók Ólafur Thors, atvinnumála-
ráðherra til rnáls.
Hann las fyrst upp spurning-
ar, sem nefndin hafði lagt fyrir
viðskiptanefndina, varðandi
s^amninginn, og svör við þeim,
en siðan skýrði liann frá að-
draganda samningsins og samn-
ingaumleitunum.
Urðu síðan allsnarpar um-
ræður um samninginn, kosti
lians og galla. Kom yfirleitt
fram allmikil óánægja með
samninginn í ræðum útvegs-
manna, og þá sérstaklega fram-
kvæmd lians til þessa.
Tóku margir til máls. Af
liálfu viðskiptanefndarinnar töl-
uðu formaður nefndarinnar,
Magnús Sigurðsson, banka-
stjóri, Jón Árnason, fram-
kvæmdarstjóri og Haraldur
Guðmundsson framkvæmdar-
stjóri, en af liálfu útvegsmanna
og sjómanna Finnbogi Guð-
mundsson, Keflavík, Pétur
Eggerz Stefánsson, Vestmanna-
eyjum, GuðlaugurBrynjólfsson,
Vestmannaeyjum, Jóliann Þ.
Jósefsson, alþingismaður og fl.
Fundarstjóri var Ólafur B.
Björnsson, Akranesi.
Waltci'ikepiHiin.
Úrslitin i 2. flokki.
Fyrsti leikur Walterskeppm
innar fór fram á sunnu-
dag, milli Fram og K. R. Lauk
þeim leik með sigri K. R. —
2:1 — og er Fram þar með úr
keppninni.
Fram lék undan vindi fyrra
hálfleik og liéldu Framarar uppi
sókn allan þann' hálfleik. Siðari
hálfleikurinn ar mjög jafn og
tókst Fram að skora í þeim
hálfleik, en Ií. R.-ingar jöfnuðu
það fljótlega og ráku svo
smiðshöggið á.
Leikurinn var mjög skemmti-
legur. Næsti leikur fer fram á
sunnudag.
•
Urslitaleikurinn í 2. flokki fer
fram í kveld milli K. R. og Vals
og hefst kl. 7 stundvíslega. Á
fimmtudag keppa þessi félög,
en vegna þess að leiknum lauk
með jafntefli — 3:3 — verða
þau að keppa aftur.
Rússar sprengja hverja hrú í loft upp, er þeir þurfa að lialda undan, til þess að tefja fram-
sókn Þjóðverja. En sé fljótin ekki þvi breiðari tekst Þjóðverjum jafnan að komast fljótlega
yfir, enda eru flestir sammála um, að verkfræðingadeildir liafi afargóðum tækjum yfir að ráða.
— Hér sést verkfræðingadeildin ferja bil yfir fljót, sem Rússar hafa eyðilagt brýrnar á. —
sumri.