Vísir - 16.10.1941, Blaðsíða 3
VISIR
\
Ályktanir almenna
kirkjufundarins.
Almenni kirkjufundurinn
liélt áfram störfum í fyrra-
kvöld, 14. október. Morgnnbæn-
ir annaðist sr. Brynj. Magnús-
son í Grindavík.
KirkjuþingsmáliÖ. Framsögu-
maður nefndarinnar, Júl. Hav-
steen sýslumaður, lagði fram
svofelda tillögu til fundarálykt-
unar, sem »samþ. var i einu
liljóði eftir stuttar umræður:
„Hinn almenni kirkjufundur
skorar á Alþingi að setja lög um
kirkjuþing hinnar islenzku
þjóðkirkju, og aðhyllist frum-
varp það 'um kirkjuþing, er lá
fyrir siðasta Alþingi, með þess-
um bréytingum:
1. Að í stað 15 kjörinna
kirkj uþingsmanna komi 22
kirkjuþingmenn, og séu 3 kosn-
ir i hverju kjördæmi, tveir
prestar og eirin leikmaður, auk
eins er guðfræðideild Háskól-
ans kýs.
2. Að vald það og ákvörð-
arréttur sem kirkjuráð hefir
nú, samkvæmt lögum nr. 21, 6. v
júli 1931, hverfi til kirkjuþings.
Kirkjuþing kjósi 4 menn í
kirkjuráð, 2 presta og 2 leik-
menn, en hiskup sé sjálfkjör-
inn forseti þess. Kirkjuráð skal
vera framkvænidaráð kirkju-
þings, kveðja það saman og und-
irbúa þau mál, er það vill leggja
fyrir þingið“.
Umræður fóru fram mikinn
hluta dags um safnaðarstarf og
kristindómsmál heimilanna. Þá
er allsherjarnefnd fundarins
hafði athugað tillögur þær, sem
fram höfðu komið um þessi
mál, var gengið til atkvæða og
voru eftirgreindar ályktanir
samþykktar í e. hlj.:
I.
Hinn almenni kirkjufundur
leggur áherzlu á, að aukin
verði kristindómsfræðsla barna
á heimilum og í skólum undir
handleiðslu presta. Ennfremur
væntir fundurinn þess, að prest-
ar beiti álirifum sínum meira
en nú er gert á ungmennin eftir
ferminguna.
Fundurinn fer þess á leit við
biskup, að liann riti prestum,
sóknarnefndum og safnaðafull-
trúum um málið og feli þeim
samráð um forgöngu í þessu
efni, i samvinnu við kennara i
kristnum fræðum og áhuga-
menn safnaðanna.
Fundurinn vísar að öðru leyti
bendingum og tillögum um
safnaðarstarf, er fram komu í
erindum og umræðum á fund
inum til álita hiskups og af-
greiðslu, eftir þvi sem hann tel-
ur bezt henta.
II.
Hinn ahnenni kirkjufundur
skorar á hvern mann í landinu,
sem vera vill kristinn, að sýna
nú kirkjunni Iiollustu í verki,
og leggja sinn hlut til safnaðar-
starfsins, m. a. með rækilegri
kirkjusókn og öðru samstarfi
við prest sinn.
ih.
Hinn almenni kirkjufundur
gerir svofellda ályktun:
Síðustu 10 mínútur á undan
þjóðsöngnum í kveldútvarpi á
miðvikudögum og laugardögum
yfir vetrarmissirið séri ætlaðar
bænariðkan, og nefnist: Helgi-
stund heimilanna. Þá sé leiltið
sálmalag fyrir og eftir, en þess
á milli lesnir kaflar úr Nýja
testamentinu, Davíðs sálmum
og ritum spámannanna.
Biskup íslands sjái um valið
á þessum köflum, og er til ætl-
azt, að yfir stundinni sé fagur
helgiblær.
Yfir föstutímann séu Passíu-
sálmar lesnir í stað ritningar-
kaflanna.
IV.
Hinn almenni kirkjufundur
ályktar að beina því til biskups,
forgöngumanna þessara funda,
og annara áhrifamanna i kirkju-
málum, að stuðla að því, að í
öllum húsmæðraskólum lands-
ins verði húsmæðraefnum veitt
fræðsla og menntun með sér-
stakri hliðsjón af kristilegu
barnauppeldi.
V.
Hinn almenni kirkjufundur
leggur áherzlu á, að bindindis-
starf sé og verði veigamikill
þáttur í safnaðarstarfi kristinna
manna, og leggur því eindregið
til, að prestar og aðrir leiðtog'-
ar safnaða beiti sér fyrir slíku
starfi.
Jafnframt lýsir fundurinn
ánægju sinni yfir lokun áfengis-
verzlunarinnar.
VI.
Hinn almenni kirkjufundur
1941 skorar alvarlega á þjóðina
að fylkja sér gegn þeirri miklu
liættu, sem vofir yfir lienni af
léttúðugri kynningu lands-
manna við hið erlenda setulið í
landinu.
Sérstaklega vill fundurinn
brýna fyrir foreldrum og öðr-
um, sem hafa á hendi uppeldi
barna og unglinga, að hafa
sterkar gætur á, að óholl kynn-
ing æskunnar i landinu við
setuliðið sé útilokuð, svo sem
frekast er auðið.
Síðan flutti Sigurgeir biskup
áhrifamikið ávarp til fundar-
manna. Sungu menn á eftir er-
indinu sálminn: „Gegn um
liættur, gegn um neyð.“
Þá fóru fram stuttar umræð-
ur um bænina og altarissakra-
mentið, og ynnislega trúar-
reynzlu manna í því sambandi.
Umræðurnar hóf sr. Guðmund-
ur Einarsson. — Síðan tók Frið-
rik Hallgrímsson dómprófastur
þá fundarmenn til altaris i
Dómkirkjunní, sem þess ósk-
uðu.
Kl. 8% hófst kaffisamsæti í
hiniim störa og vistlega sal Iv.
F. U. M., þar sem fundirnir
höfðu verið haldnir. Rikti þar
góð gleði og samhugur, og voru
margar snjallar ræður fluttar.
Undir borðum var samþykkt
einróma svofelld ályktun, sem
forseti (G. Sv.) bar fram:
„Fundurinn telur verndun
þjóðernis og tungu eitt af vel-
ferðarmálum íslenzku þjóðar-
innar, sem bæði leikum og
lærðurn í söfnuðum landsins sé
skylt að styðja með ráðum og
dáð.“
Undirbúningsnefnd kirkju-
funda var þá endurkosin til
starfa áfram.
Fundinn sátu um 120 skráðir
fulltrúar, auk margra gesta.
Honum stýrði alla dagana Gísli
Sveinsson af röggsemi og mestu
prýði. Fundinn einkenndi sigur-
trú og bjartsýni, og má vænta
þess, að hann verði kristnu
fólki til uppörvunar, og leiði
einnig fleira gott af sér.
Sónötukvöld
Rögnv. Sigurjónssonar.
Þessi ungi píanóleikari á að
fagna vaxandi aðsókn með ári
liverju að hljómleikum sínum.
Að visu hefir sitt hvað verið
fundið að píanóleik hans, en
kostirnir hafa yfirgnæft gall-
ana. Hann hefir spilað þannig,
að fólki hefir þótt gaman að
hlýða á hann.
Að þessu sinni spilaði hann
þrjár sónötur, eftir Mozart,
Beethoven og Chopin. Hann
spilaði fyrst Mozartsónötuna.
List Mozarts er svo tindrandi
björt, að þeir listamenn einir,
sem neistann eiga, geta látið
hana ljóma. Rögnvaldurbrenndi
sig þó ekki á sónötunni. Hann
spilaði hana skilmerkilega og er
um greinilegar framfarir að
ræða hjá honum að því er snert-
Ráðskonu
vantar nú þegar á fámennt og rólegt myndarheimili hér í bæ.
Upplýsingar um heimilið verða veittar í Ingólfsstræti 8, niðri.
ir stil og skilning. Tæknin er nú
tekin meira í þjónustu músík-
innar en áður, enda var sónatan
glaðlega og fallega spiluð. Sama
verður sagt uin meðferð hans á
Beethovenssónötunni í es-dúr,
op. 31 nr. 3. Á köflum náði hann
góðum tilþrifum, ekki sízt í
scherzónu, og er eins og Rögn-
valdur njóti sín bezt, þegar hann
má „hleypa klárnum“. Það er
næsta eðlilegt, að ungir lista-
menn, sem leg'gja hart að sér til
að læra svartagaldur listarinnar,
einblíni fyrst i stað á tæknina
eins og tilgang í sjálfu sér. Það
eru þvi gleðilegar framfarir hjá
Rögnvaldi, að list hans er farin
að vaxa að dýpt og skilningi á
sjálfum tónskáldskapnum, og
er ekki ástæða til að halda annað
en svo verði áfrarn með aldrin-
um. Chopinsónatan i h-moll var
siðast leikin. Chopin stendur
hug hans næst af þessum þrem
tónskáldum. Elvkert tónskáld
liefir kunnað betur að nota sér
eiginleika slaghörpunnar. Hin
glæsilega h-moll sónata er ekk-
ert álilaupaverk og við hana
duga engin vettlingatök. Jafn-
vel bótt vér höfum kennt sterk-
ari ilm af þessu verki áður, þá
er það virðirigarvert af jafnung-
um manni að geta valdið henni
eins vel.
Húsfýllir var á þessum hljóm-
leikum í Gamla Bíó á sunnu-
daginn er var, og voru undir-
tektir áheyrenda mjög góðar.
Listamaðurinn varð að lokum
að leika tvö aukalög. B. A.
óskast.
Húsgagnaverzlun
Kristjáns Siggeirssonar
Gúmmískógezð in
Laugavegi 68. Sími 5113.
Eitt kápuefni, svart, loðið.
2.80 mtr., til sölu strax.
með meira prófi, reglusaman
og dugleg'an, vantar nú þeg-
ar. Sími: 5390 og 3240.
Laxfos§
fer til Borgarness á morgun
kl. 9.39 árd., en EKKI kl. 11
eins og áætlunin greinir. —
Leiðrétting.
Ut af grein hr. Jakobs J.
Smára, „Amlóði enn“, í Vísi 26.
f. m„ um skýringu mína á þessu
orði, krefst eg þess af yður,
herra ritstjóri Vísis, að þér birt-
ið eftirfarandi svar mitt til hr.
J. J. Sm.
Það er ósatt, sem hr. J. J.
*
Sm. lætur í grein sína, að oi*ð-
skýringin fjalli um indgerm-
anska orðmyndan og hljóð-
skiptí. Orðskýringin ræðir ein-
vörðungu um nokkur sammcrk
islenzk orð og íslenzka orð-
myndan. Hún fer hvergi út fyr-
ir íslenzlca tungu, eins og hver
maður getur séð, sem 'skýring-
una les. Það, sem hr. J. J. Sm.
rausar um indgermönsku, snert-
ir ekki orðskýring mína, hagg-
ar lienni ekki grand. Að öðru
leyti þykir mér ekki nema vænt
um, að orðskýringin hefir gefið
hr. J. J. Sm. tilefni til að sýna
mikinn lærdóm, „að mínu viti“
mun hann sanna, að orðskýring
mín, eða raunar heldur Guð-
brandar Vigfússonar, sé óyggj-
andi, þegar hann er orðinn
handgenginn indgermönsku til
fullnaðar.
Skólastræti 1, 13. okt. ’41.
Páll Bjarnarson.
Vanur
bifreiðarstjóri
óskar eftir að keyra vörubíl.
Tilboð sendist afgr. Vísis,
merlct.: „M. M.“
Stúlknr.
Nokkurar starfsstúlkur
vantar okkur i viðbót Gott
kaup. Frítt fæði og liúsnæði.
Vaktaskipti.
HÓTEL HEKLA.
Verkamenn
og
SteinhleSslumenn
vantar mig nú þegar.
Jón Ganti
Smáragötu 14.
Simi: 1792.
Verzlnnarfyrirtæki
sem hefir innflutnings- og gjaldeyrisleyfi, óskar eftir sambandi
sem vildi innleysa fyrir það aðkeyptar vöíitf gegn liæfilegri
þóknun.' Vörurnar liefir viðkomandi i sinni vörzlu sem trygg-
ingu. Tilboð, merkt: „Tryggur ágóði“, sendisl Vísi.
Eðpubúðin Laugaveg 35
Nýkomin VETRARKÁPUEFNI.
Einnig NÝ KJÓLAEFNI (Taft og tyll).
Get tekið kápur í saum fyrir jól (aðeins úr eigin efnum).
Kápur koma fram daglega.
SIGURÐUR GUÐMUNDSSON. — Sími: 4878.
Daniikóli
Rigfmor Hansson
Æfingar hefjast i næstu viku sem hér segir:
Fyrir börn þriðjud. 21. okt. kl. 5 í Í.R.-Iiúsinn.
Fyrir fullorðna fimmtud. 23. okt. kl. 9 á AiiitHjánnsstíg 4.
Stepp-flokkar á sama stað.
Einkatímar i samkvæmisdansi eftir samkoinplagi.
Allar upplýsingar í síma 3159.
l'illi viiiiing.
Fx*á 1. okt. s. 1. liefir skrifstofa vor hætt dnnheimtu á lif-
tryggingariðgjöldum. - Iðgjöldum verður þvi framvegis einung-
is veitt móttaka á ski*ifstofunni i Lækjargötii '2, frá kl. 9—12
og 1—6 daglega.
Vátryggingarskrifstofa Sigfúsar Sighvatssonar
Sonur minn,
Guðmundur Ólsen Bjapnason,
andaðist í Brejninge i Danmöi’ku 9. þ, m.
Hanna Þoirsteinsson.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við iráfall inanns-
ins míns og föður,
Einaps Kpistjánssonar
skipstópa á e.s. „Heklu“.
Guðrún Einarsdótti: og dóttir.
Hjartanlega jxökkum við öllum fýrir aúðsýúda samúð við
fráfall
Bjapna Þopvapðapsonap
er fórst með e.s. Heklu 29. júní.
Hulda Guðmundsdóttir og dóttii.
Þorvarður Björnsson. Jónína B;jaimadóttir.
Hérmeð tilkynnist vinum og vandamönnum að jarðarför
Fpú Guðrúnap Sigurðardóttup
fer fram föstudaginn 17. þ. m. kl. 1 % e. h. og hefst með bæn
á heimili hennar, Hallveigarstíg 6 A.
Marta og Guðjóm Gnðjónsson.
þeippa
vegna
Bezíu þakkip til allra
er sýnt hafa samúö
fráfalls skipverja
e.s, Heklu.
Kveldúlfur.
I