Vísir - 22.11.1941, Qupperneq 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
Ritstjóri 1
Blaðamenn Sfmi:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 línur
Afgreiðsla
31. ár.
Reykjavík, laugardaginn 22. nóvember 1941.
267. tbl.
TOBRUK LEYST UR UMSÁT M OG ÞEGAR
Stórorustan byrjaði á fimmtudag og
gengur Bretum mjög í vil.
Skriðdrekatjónið 3:1 Bretum í vil, Innikró-
aðar þýzkar hersveitir reyna að rjúfa
hringinn.
EINKASKEYTI frá United Press. New York' í morgun.
Það varð kunnugt síðdegis í gær, að hin miklu
átök, sem Churchill boðaði í ræðu sinni, væru
byrjuð, og að bardagarnir gengi Bretum í vil.
Sir Dudley Pound, yfirflotaforinginn brezki, sagði í
ræðu 1 gær, að búast mætti við, að setuliði bandamanna
í Tobruk bærist hjálp þá og þegar, og var það skilið
svo, að umsátursher Þjóðverja og ftala yrði hrakinn
á brott, og Tobruk leyst úr umsát. Áður var kunnugt,
að barizt var í nánd við yzta virkjahringinn. í gær-
kveldi staðfesti fulltrúi brezku herstjórnarinnar í
Kairo, að sóknin gengi ágætlega. Skriðdrekatjónið var
talið 3:1 Bretum í vij og í sumum bardögum 6:1. Sum-
ar brezku hersveitanna hafa ameríska skriðdreka og
reynast þeir vel.
Það var líka farið að koma
arinað hljóð í strokkinn í gær,
— í tilk. ítala og Þjóðverja, —
og kom greinilega fram, að
Þjóðverjar sáu hve þýðingar-
mikil átök hér er um að ræða,
og var beinlínis játað, að að-
staða Rommels hershöfðingja
væri nú verri en áður. í brezk-
um fregnum segir, að hersveitir
hans, sem innikróaðar eru milli
Tobruk og Sollum, í strandhér-
uðunum, reyni að rjúfa hririg-
inn, en aukið lið hefir verið sent
til þess að koma í veg fyrir það.
Auk þess sem miklar skrið-
drekaorustur hafa verið háðar,
hefir verið sótt fram á ýmsum
stöðum, og flutningaleiðir óvin-
anna eru í vfirvofandi hættu,
og sumar þegar verið rofnar.
Það er þegar kunriugt, að
þýzkir og ítalskir skriðdrekar
hafaverið eyðilagðir í hundraða-
tali. Það hefir komið í Ijós, að
stálþynnurnar í þýzku skrið-
drekunum standast kúlnahríð
mun verr (vegna efnissparnað-
ar?) en í brezku og amerísku
skriðdrekunum.
I orusturini, sem fyrst var háð,
við .Rezegh, voru eyðilagðir 70
skriðdrekar fyrir Þjóðverjum og
33 brynvarðar bifreiðir og hörf-
uðu Þjóðverjar þá austur á bóg-
inn.
Milli Sidi Rezegh og Sidi Om-
ar kom til átaka á miðvikudag
og voru 26 þýzkir skriðdrekar
eyðilagðir og 20 brezkir og í
fyrradag var orustunni þar hald-
ið áfram og eyðilögðu Bretar þá
34 skriðdreka í viðbót fyrir
Þjóðverjum. Barist er víðsvegar
á svæðinu' milli Sidi Rezegh og
Sidi Omar. Hersveitir Breta
sóttu fram norðvestur af Sidi
Omar. Jafnframt er þjarmað að
Þjóðverjum og ítölum milli
SoIIum og Sidi Omar.
Var barist í gær á gríðarmiklu
flæmi og flugvélar bandamanna
voru stöðugt á sveimi. — Skýrsl-
ur eru ekki enn fyrir hendi um
loftbardagaria í gær, en í fyrra-
dag voru skotnar niður að
minnsta kosti 24 þýzkar flug-
vélar og fjölda margar eyði-
lagðar. 1E1 Adem, nokkurra km.
frá Sidi Rezegh, voru 50 flug-
menn handteknir. Vegna úr-
komunnar eru margar flugvélar
Þjóðverja og ítala fastar í leir-
bleytum á flugvöllunum.
Loftárásir voru gerðar í fyrra-
dag á Bardia, Derná, Berighazi
og Tripoli og f jölda marga staði
aðra í Libyu. Einnig voru gerð-
ar nýjar árásir á Napoli og Brin-
disi og Messina á Sikiley.
Fréttaritari brezka útvarpsins
segir, að sóknin hafi komið
Þjóðverjum og ítölum óvörum.
Hann kveðst aldrei hafa séð ann-
an eiris grúa hergagna og þegar
sóknin hófst. Skriðdrekar,
margskonar bílar og ótal her-
gögn „á hjólum“ streymdu Vest-
ur sandauðnirnar. Fyrsta dag-
inn sást aldrei til óvinaflugvél-
ar. Og engin mótspyrna var veitt
fyrsta dagirin. En annan daginn
kom þegar til átaka.
Getgátur hafa komið fram
um, að Þjóðverjar og ítalir hafi
upp undir 40.000 manna lið á
hinu innikróaða svæði.
í orustu suður af Tobruk
lögðu Þjóðverjar á flótta, eftir
að þeir höfðu misst 45 skrið-
dreka og fréttaritari Associated
Press segir, að eftir að ÞjóðVerj-
ar hafi verið búnir að missa 60
skriðdreka hjá Fort Maddalena,
hafi þeir lagt á flótta.
1 fregn frá Kairo segir, að
vélahersveitir Þjóðverja liafi
gert þrjár tilraunir til þess að
rjúfa hringinn, og í öll skiptin
urðu þær að láta undan síga.
Talsmaður herstjórnarinnar
sagði, að orusturnar hefðu náð
hámarki í fyrradag og Bretar
hefðu hvarvetna verið í sókn.
Talsmaðurinn sagði, að ef
Bretar ynni fullnaðarsigur í
þessum orustum myndi setulið-
ið í Tobruk verða leyst úr um-
sátinni, og grípa fegins hendi
tækifærið til jæss að láta til sín
taka enn frekara.
Talsmaðurinn sagði, að ekki
skipti miklu um skriðdreka-
sveitir ílala á Bir-el-Gobi svæð-
inu, og var helzt á honum að
heyra, að ítalir myndu ekki
standa sig betur en fyrir einu
ári er Wavell lék j>á harðast.
I fregnum frá Kairo í morg-
un er talið víst, að Þjóðverjar
hafi misst helming skriðdreka
þeirra, sem þeir höfðu í Libyu.
Það er talið, að Þjóðverjar
hafi haft tvö skriðdrekaherfylki
í Libyu — þ. e. um 400 skrið-
dreka, ef miðað er við venju-
legan styrkleik skriðdrekaher-
fylkis, en mjög vafasamt er tal-
ið, að Þjóðverjar hafi haft svo
marga? skriðdreka í Libyu.
Þjóðverjar urðu fyrir mestu
skriðdrekatjóni í nánd við
Capuzzo. 1 þeim þremur til-
raurium til þess að rjúfa hring-
inn, sem fyrr var getið, biðu þeir
hið mesta tjón.
Bretar, sem fram sækja, hafa
ekki enn sameinazt setuliðinu í
Tobruk, og þótt það geti orðið
þá og þegar, er tekið fram, að
Cunningham kunni að klekkja
betur á hersveitum Þjóðverja
fyrir austan Tobruk, áður en
harin helSur lengra vestur á bóg-
inn meðfram ströndinni.
Flugher bandamanna hefir al-
ger yfirráð í lofti.
Fregn frá Berlín árdegis
í dag hermir, að Þjóðverjar
hafi tekið Rostow. Skrið-
drekahersveitir og hersveit-
ir, sem fluttar voru til víg-
stöðvanna í bifreiðum,
hertóku borgina eftir harða
bardaga.
Rostow er verzlunar- og
iðnaðarborg og er Rússum
hinn mesti hnekkir að því,
að hún er fallin. Aðstaða
Þjóðverja til þess að sækja
fram til Kaukasiu batnar
nú stórum.
í hinni þýzku fregn er
tekið fram, að þýzki flug-
herinn hafi veitt ómetan-
lega aðstoð við töku borg-
arinnar, og unnið þar mik-
ið afrek.
í tilefrii af því, að styrjöldin
við Rússa hefir staðið í 5 mán-
uði, hefir þýzka stjórnin birt til-
kynningu mikla, þar sem gerð er
grein fyrir manntjóni Rússa og
hergagnatjóni í styrjöldinni.
Þessa fimm máriuði segja
Þjóðverjar, hafa 8 milljónir
rússneskra hermanna fallið eða
særst. Mestöll hergögn Rússa
hafa verið hertekin eða eyðilögð,
eða
22.000 skriðdrekar
22.877 flugvélar
og 23.600 fallbyssur.
Þýzki flotinn og flugflotinn
hafa sökkt 119 flutningaskipum,
samtals 385.650 smál. og valdið
miklum skemmdum á 122.
Þá er því haldið fram, að
Rússar hafi beðið óbætanlegan
hriekki vegna þess, að 17.000
herflutningabílar séu þeim glat-
aðir. Enginn her, segir í tilkynn-
ingunni, getur haldið áfram að
berjast, eftir að hafa orðið fyrir
slíku tjóni, þar sem og helztu
iðnaðarhéruðin eru á valdi
Þjóðverja.
Einriig var rætt um flugVéla-
i*i §amvinna
Þjóðverja Viclij-
stjórnarinnar.
Fara þeip Petain og Darlan á fund
Hitlers í næstu vik:u? — Kröfur Þjóð-
vepja um fpanska flotann aftur á
dagskrá.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Amerískir fréttaritarar skýra frá því, að Darlan og Göring
muni hittast einhversstaðar í hinum hernumda hluta Frakk-
lands í næstu viku. Búist er við, að Petain fari með Darlan, og
að loknum viðræðufundi þeirra Görings og Darlan ræði Dar-
lan og Petain við Hitler. Líklegt er talið, að fregnir þessar hafi
við rök að styðjast.
Það hefir komið allgreinilega
fram tvö seinustu dægur í Par-
ísarútvarpi Þjóðverja og fregn-
um Berlínarfréttaritara sænskra
blaða, að Þjóðverjar eru ánægð-
ir yfir því, að Weygand var vik-
ið frá. Telja þeir hrautina greið-
ari til nánari samvinnu við
Vicliystjórnina.
Er nú aftur mikið rætl um
það, með tilliti til þess, að Dar-
lan fær nú tögl og hagldir í
Norður-Afriku og sóknar Breta
í Libyu, að Þjóðverjar kunni að
endurnýja kröfur sínar um
franska flotann og ef til vill fara
þeir fram á frekari aðstoð.
í einni fregn, sem birt var í
gær, var svo að orði komist, að
franskir embættismenn
streymdi til Algier, til þess að
taka í sínar hendur stjórn þeirra
mála, sem Weygand annaðist.
Samkvæmt fregn frá Was-
hington liefir Bandaríkjastjórn
tekið til ihugunar á ný afstöðu
sína til nýlendna Frakka i
Vesturálfu, vegna fráfarar
Weygands-. — Nýlendur þær,
sem hér er um að ræða, eru
Martinique og Guadaloupe
Sama gildir um Frönsku Guiana
Lítur Bandaríkjastjórn svo á.
að ef til algerrar samvinnu komi
milli Þjóðverja og Vichystjórn-
arinnar, muní Þjóðverjar beíta
áhrifum sínum ekld að eins í
Norður-Afriku og Frönsku Vest-
ur-Afríku, heldur og i fyrr-.
nefndum nýlendum.
Bergerel flugmálaráðherra
Vichystjórnarinnar er komínn
tíl Algíer í eftirlítsferð til flug-
stöðva landsíns.
Talið er, að Hitler kunni að
krefjast ]>ess af Petain, að hann
fallíst á, að Þjóðverjar sendi
herlið til Marokko og Algier
Straok ór fangabnðum -
BeiS bana i Ioftornstn.
Þýzka útvarpið skýrir frá þvi,
að Fonberra flugkapteinn hafi
beðið bana í loftbardaga yfir
Þýzkalandi.
Fontberra var tekinn til fanga
í fyrra og fluttur til Canada. —
Hann gerði tvær tilraunir til
þess að flýja og lieppnaðist hin
síðari. Hann komst heim yfir
Rússland.
tjón Breta. Bretar hafa misst, að
sögn Þjóðverja, 1792 flugvélar
yfir Ermarsundi og Vestur-
Þýzkalandi og Norður-Afríku.
Roosevelt fær svar verka-
manna i kolanámunum í
dag. Bíður átekta þar til
svarið er komið.
Roosevelt gaf blaðamönnum i
skvn í dag, að Bandaríkjastjórn
mundi ekki grípa inn í koladeil-
unað fyrr en svar verkamanna
væri komið. Eins og áður befir
verið getið sendi Roosevelt at-
vinnurekendum og verkamönn-
um samhljóða bréf, og sagði,
að ekki væri nema um tvær
leiðir að velja, leggja deilumálin
ti 1 hliðar, meðan þjóðarhags-
munir Bandarikjanna krefðist
þess, að framleiðslan stöðvaðist
ekki, eða deilan yrði lögð undir
úrskurð gerðardóms. Fulltrúar
stálfélaganna svöruðu um hæl,
að þeir skyldi taka hvorn kost-
inn, sem væri, en helztu full-
trúar verkamánna koma saman
í Wasliington í dag og taka á-
kvörðun um svar sitt.
Frumvarp var lagt fyrir sen-
atið í gær og fjallar það um
heimild til Bandaríkjastjórnar
að taká námurnar og starf-
rækja þær unz allar aðsteðjandi
hættur eru úr sögunni.
Á fundi C. L O. í Detroit i gær
var samþykkt ályktun, þar sem
vítt var, að Bandarikjalierinn
væri æfður i að brjóta á bak aft-
ur samtök verkfallsmanna. Var
þess krafist, að Roosevelt for-
seti bannaði, að slíkar æfingar
færi fram í hernum.
Phil. Murray var endurkosinn
forseti Congress of Industrial
Organisation.
Murray er af skoskum ættum.
Ellefu ára vann hann í kola-
námu í Skotlandi.
í gærkveldi var talið, að um
200.000 verkamenn í kolanám-
um Bandarík-janna, tæki þátt i
verkföllum og samúðarverk-
föllum. — Til óeirða hefir kom-
ið á nokkurum stöðum. I gær
skiptust á skotum verkamenn,
sem vildu vinna, og verkfalls-
verðir, og særðust 10 verkfalls-
verðir.
Bretar berjast með
Serbum í Jugoslaviu.
í fregn frá Budapest segir,
að blaðið Obnova í Belgrad
hafi skýrt frá þvi, að flokkar
serbneskra ættjarðarvina
• noti hvert tækifæri sem gefst,
til þess að berjast við „naz-
ista og quislinga“.
Chetnikar, serbneskir ætt-
jarðarvinir, áttu nýlega í or-
ustu hjá Jagodina, segir blað-
ið, við lögreglulið, og féllu
margir menn af beggja liði.
Meðal ]>eirra sem féllu voru
tveir brezkir yfirforingjar.
Talið er, að níu Bretar hafi
verið í flokki Chetnikanna.
NÝJU AMERlSKU ORUSTU-
SKIPI HLEYPT AF STOKK-
UNUM MISSERI Á UNDAN
ÁÆTLUN.
Nýju anierisku orustuskipi —
Indiana — var hleypt af s tokk-
unum í Newjxn t News, Virgina
í gær, að viðstöddum Frank
Knox flotamálaráðherra og
miklu fjölmenni.
Flutti Knox ræðu og sagði,
að orustuskipinu hefði verið
hleypt af stokkunum mjsseri á
undan áætlun, og sýndi það,
að Bandaríkjaþjóðin hefði vilja
á, að treysta aðstöðu sína sér til
verndar og 'lýðræðisþjóðunum
til aðstoðar.
Indiana er fimmta orustuskip-
ið af ]>essari stærð, sem hleypt
er af stokkunum á tiltölulega
skömmum tíma, en hinu sjötta,
Alahama, verðúr hleypt af
stokkunum í febrúarmánuði
næstkomandi.
Ernst Udet, flughetjan þýzka,
var jarðaður i Berlín í gær, að
viðstöddu miklu fjölmenni, þ. á
m. ýmsu stórmenni Þýzkalands.
EDEN OG MAISKY
FRUTTU RÆDUR í GÆR.
Eden og Maisky fluttu ræður
í gær á fundi brezk-rússnesku
nefndariiunar. Báðir lögðu á-
herzlu á brezk-rússneska sam-
vinnu eftir styrjöldina. — Eden
sagði, að skipin, sem fluttu lier-
gögn til Rússlands, liefði kom-
ið aftur með hráefni, sem mikils
væri um vert fyrir Breta að fá.
Maisky lagði á lierzlu á, að
Þjóðverjar yrði aldrei gersigr-
aðir nema herveldi þeirra á meg-
inlandinu yrði hrotið á bak aft-
ur, og yrði bandamenn að standa
sameinaðir í haráttunni, sam-
eina krafta sína og orkulindir,
og beita sér af alefnli í hvert sinn
þar sem þörfin er mest. Allir
verða að beita kröftum sínum
af alefli til þess að sigur vinnist.
í fregnum frá Rússlandi i
gærkveldi segir, að Þjóðverjar
hafi reynt að herða sókn sína á
núðvígstöðvunum í Rússlandi,
vegna þess að brugðið liefir til
frosta, og umferð á vegum hefir
batnað. En þeim liefir ekki orð-
ið verulega ágengt. Sókn þeirra
á vígstöðvunum næst Moska,
sem byrjaði á þriðjudagskvöld,
befir verið stöðvuð, að minnsta
kosti í bili.
Þjóðverjum hefir mistekizt
að taka borgina Tula og í gær
reyndu þeir að aðskilja rúss-
neskt lið á þeim slóðum og
sendu fram 50 skriðdreka í þvi
skyni, en tilraunin misheppnað-
ist. —