Vísir - 18.02.1942, Side 1
4
. • t
é
■n
íf-ff
Ritst jóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. haeð).
1
Ritstjóri 1
Blaðamenn Sími:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri S Ifnur
Afgreiðsla
32. ár.
Reykjavík, miðvikudaginn 18. febrúar 1942.
18. tbl.
INDVERSKT-KÍNVERSKT BANDA-
LAG A UPPSIGLINGU
Ráðast Indvepjar og Kínvepjap inn í Tliai-
land og Franska Indókína til þess að taka
allap bækistöðvar Japana þar, og þar með
bindpa einhver mikilvægustu áfopm þeipra.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
United Press hefir fregnað frá ábyrgum mönnum,
sem ekki eru brezkir, að miklar líkur séu til, að Chiang
Kai-shek marskálkur og Nehru, leiðtogi indverskra
þjóðernissinna nái samkomulagi um bandalag milli Ind-
verja og Kínverja, og er þá gert ráð fyrir hernaðar-
bandalagi milli Kínverja og Indverja, undir forystu
Congress-flokksins.
Chiang Kai-shek er nú kominn til Kalkutta, en*
Nehru er á leiðinni þangað. Þeir hafa þegar ræðst við
nokkrum sinnum. Mahatma Gandhi og Jinnah, leið-
togi Múhameðstrúarmanna, munu einnig taka þátt
í umræðunum. Munu þær fjalla um hið nýja samstarf
Indverja og Kínverja.
ir
Árás á birgðaskip
þjóðverja
Þessi niynd var tekin ur
brezkri flugvél, sem var að
gera árás á þýzkt birgða-
skip á leið norður með Nor-
egsströndum til Rússlands.
Ein sprengjan, sem varpað
var, hefir hæft björgunar^
bátinn, sem er nær á mynd-
innij, Qg slitið hann úr ann-
arri uglunni, sem hann hékk
i. Örin hendir á mann, sem
stendur á stjörnpalli.
Indverskir stjórnmálamenn í London búast við, að Japan
ráðist. á Indland. En yfir Japönum vofir nú ný hætta. Svo get-
ur farið, að horfurnar breytist skyndilega þeim mjög í. óhag,
svo að öll þeirra mestu áform hrynji til grunna. Sá möguleiki
er nú fyrir dyrum, að sameinaður indversk-kínverskur her
sæki nú inn í Thailand frá Burma og áfram inn í Franska
Indókína, til þess að hertaka allar bækistöðvar Japana og brjóta
mótspyrnu þeirra á bak aftur.
Japanar gera sér ljóst, hver hætta er á ferðum og senda
þeir nú aukið lið til vígstöðvanna í Burma.
Churchill um Ermarsundsorustuna
Aðstaða Breta hefir batnað vegna
þess, að þýzk herskip nota ekki
Brest lengur sem bækistöð.
Afleiðingin sennilega, að
Brazilia fer í styrjöldina
Farþegaskipi frá Brazilíu
liefir verið sölckt við strendur
Norður-Ameríku. Árásin var
fyrirvaralaus og flestir farþeg-
anna sváfu, er skipið varð fyr-
ií ttmdurskeyti. Margt manna
forst. Óttast er, að árásir verði
g&rðar á þýzka og ítalska menn
í Brazilíu, er fregnin berst
þangað, en stjórnin hefir hald-
ið henni leyndri enn sem kom-
ið er.
Miklar líkur eru tíl, að þessi
viðburður flýti fyrír því, að
Brazilía fari í striðíð.
Brazilíu-stjórn sleít fyrif
nokkru stjórnmálasambatldí
við þýzku stjórnina og hina
ítölsku.
Rommel að
byrja sókn-
ina?
f STUTTU MÁLI.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Churchill flutti ræðu í neðri málstofunni í gær og fjall-
aði ræða hans um Ermarsundsorustuna aðallega, en einnig
drap hann á Singapore. Hann réð eindregið frá því, að um-
ræður um styrjaldarviðburði og horfur færi fram, eins og
sakir stæðu. Hann tilkynnti, að leynileg rannsókn hefði verið
fyrirskipuð, til þess að komast að raun um, hvers vegna ekki
varð vart við, herskipin fyrr en daginn eftir að þau lögðu af
stað frá Brest og hvort samvinna hafi verið eins fullkomin og
nauðsynlegt er, milli strandvarna-flugliðs, flughers og flota.
— Churchill svaraði með neitun fyrirspurn um, hvort hann
hefði í hyggju að stofna sérstakt landvarnaráðherraembætti.
Churchill ræddí allítarlega
hinar miklu loftárásir á Brest,
sem hefði að kalla stöðugt verið
gerðar um tiu mánaða skeið.
Siglingum Breta var mikil
hætta búin vegna þess, að Þjóð-
vei-jar notuðu Brest sem bæki-
stöð fyrir Soharnhorst og
Gneisenau og Prinz Eugen, sem
einnig leitaði þangað, í fyrra-
vor, eftir orustuna, er Bismarck
var sökkt. Flotamálaráðuneyt-
ið hafði áhyggjur af þessu og
fór fram, á, að tíðar loftárásir/
væri gerðar, til þess að valda
skemmdum á skipunum og
hindra, ef unnt væri, að liægt
væri að gera við þau. Jafnframt
varð að liafa herskip á verði,
vegna þeirrar liættu, sem yfir
vofði, ef hejrskipin kæmust út
lil árásarferða um Atlantshaf
cða Miðjarðarhaf.
Þjóðverjar komust loks að
þeirri niðurstöðu, að hyggilegast
væri að flytja herskipin heini.
Menn hefði spurt hvers vegna
stór herskip liefði eklci verið
senid til árása á herskipin, en
ef það hefði verið gert, hefði þau
verið í svipaðri hættu vegna loft-
árása og þýzku herskipin voru í
Brest. Hin stóru lierskip Breta
hefðu og öðrum mikilvæguni
hlutverkum að sinna, gæzlu sigl-
ingaleiðanna um Atlantsliaf, og
þeirra biði það hlutverk, að fást
við lierskip Þjóðverja, ef þau
koma út á Atlantshaf til árása,
svo sem herskipin Tirpitz,
Lutzow og Adniiral Scheer. —
Þjóðverjar völdu Ermarsunds-
leiðina fyrir skip sín, þar sem
þau gátu notið flugvélaverndar
alla leiðina, flugvéla, sem hafa
bækistöðvar á landi. Herskip
Þjóðverja voru öll hæfð tundur-
skeytum og sprengjum á heim-
leið, og þegar búið er að gera
við þau, en það tekur nokkurn
tíma, verða komin til sögunnar
ný og vönduð brezk herskip og
ný og vönduð amerísk herskip.
—- Flotamálaráðuneytið er
þeirrár skoðunar, og eg sömu-
leiðis, sagði Churchill, að mik-
illi hættu hafi verið hægt frá
siglingum Breta, vegna þess, að
herskipin eru farin frá Brest, og
flugvélar þær, sem nota varð
til hinna stöðugu árása á Brest,
geta nú farið í leiðangra til
Þýzkalands.
Churchill kvaðst ekki geta
fallizt á, að umræður færu fram
á þessu stigi málsins. Hann
minntist á Singapore og kvaðst
ekki geta gefið frekari upplýs-
ingar að svo stöddu, en þegar
hann flutti ræðu sína á dögun-
um og sagði, að búast mætti við
r.ýjum, miklum áföllum, hefði
li'ann haft Singapore í liuga. -—
Málstaðarins vegna og banda-
manna Breta og álits manna í
öðrum löndum, hæri ekki að
stofna til umræðna um þessi
mál, meðan enn er hiti í mönn-
um og gremja rikjandi, en þing-
ið hefði fullan rétt til gagnrýni,
og þingmenn myndi fá tækifæri
til þess að ræða vandamálin af
fullri einurð og hreinskilni, og
gaf Churchill í skyn, að það gæti
orðið, er þingið kæmi saman
næst. Méðan hinar miklu hætt-
ur vofa yfir bæri þinginu að
halda vel á virðingu sinni sem
ávallt og sýna óbifandi einurð
og festu á stund hættunnar.
Þrátt fyrir það, að Churchill
svaraði neitándi fyrirspurn um
það, hvort hann vildi fallast á,
að skipaður yrði landvarnarráð-
herra, er talið að breytingar á
stjórninni standi fyrir dyrum.
Rommel hafði ekki byrjað
sókn sína, er seinast fréttist í j
gærkveldi. Framvarðasveitir
hans, sem hafzt hafa við á svæð-
inu fyrir suðvestan Ghazala og
til Mekile, hörfuðu vestur á bóg-
inn aftur. Eru bandamenn enn
1 vafa um, hvað Rommel ætlar
sér fyrir.
Flugvélar bandamanna hafa
verið á sveimi yfir öllu bardaga-
s^æðinu. Fjórar komu ekki
aftur.
Verðmæti þess, sem Hollend-
ingar eyðilögðu við Palertibang,
til þess að Japanir hefði ekki
not af því, er áætlað 50 milljónir
sterlingspunda, en alls í styrj-
öldinni nemur verðmæti þess,
sem eyðilagt var, 125 millj. stpd.
Árás á italska
flotadeild.
Hollendingar skutu niður 2
japanskar orustuflugvélar við
Palembang í gær og hæfðu her-
flutningaskip með sprengjum.
Kairofregnir í morgun herma,
að menn búist við, að Rommel
muni liefja sókn J>á og þegar.
Fregnir bárust að vísu síðdeg-
is í gær um, að hann hefði hörf-
að vestur á bóginn með her-
sveitir þær, sem hann hafði á
svæðinu milli E1 Ghazala og
Mekile, en þar sem aðeins var
um framsveitir að ræða, er lik-
legast, að aðeins hafi verið um
tilfærslu lierliðs á vígstöðvun-
lim sjálfum að ræða, en ekki
undanhald til varnarstöðva
vestar.
í KairofregnOm í mörgun
segir, að nú telji menn víst, að
Rommel muni leitast við að ná
Tobruk á sitl vald, þar sem
reyndin hafi orðið sú í fyrra,
að aldrei varð af innrásinni í
Egiptaland, vegna þess að To-
brulc var á valdi Breta, og her
þeirra þar hefði getað gert út-
l ix ■
I rás, er vérst gegndi fvr.T hrr
Rommels.
Bre^Aingar á
brczkn stjorai-
iiiiii fýrir (l^ruin
Stjórnmálafregnritari Dailjr
Mail, skýrir frá því, að breytinga
megi vænta á stjórninni mjög
bráðlega, að því er þeir ætla, sem
nánust kynni hafa af öl!u .,ba3:
við tjöldin“.
Ekki er kunnugt um, hversu
víðtækar brevíingamar eru.
Roosevelt forseti staðfesti á
fundi með blaðamönnum í gær,
að áformað væri að veita Rúss-
um nýja láns- og leigulagaað-
stoð. Heyrzt hefir að Rússar eigi
að fá hergögn fyrir 1000 millj.
dollara með láns-'og leigulaga-
kjörum.
Norskar flugvélar hæfðu tvö
þýzlc skip með sprengjum und-
an Noregsströndum í gær.
Bretar tilkynna, að 31. janúar
hafi verið sökkt þýzka skipinu
Speerwald, norður af Azoreyj-
um, en skip þetta var í Japan
i ágúst 1939, eða skömmu áður
en ófriðurinn byrjaði. Speer-
wald var 5000 smálesta skip. —
Þýzkur — eða ítalskur — kaf-
bátur sökkti skipinu í misgrip-
um,. Hugðu kafhátsmenn, að
hér væri um brezkt skip að
ræða.
Ghiang Ivai-sbek ræddi við
Gandhi í morgun.
Brezkar tundurskeytaflugvél-
ar gerðu árás á allstóra ítalska
flotadeild í Joniska hafinu að-
1 faranótt mánudags. í flotadeild
1 þessari voru 3 beitiskip og 9
!■ tundurspillar. Flugvélarnar
flugu lágt yfir herskipin, þrátt
|1 fyrir skothrið úr loftvamabyss-
i um, og hæfðu tvö beitiskip og
j tundurspilli, ef til vill annan
tundurspilli til. — Annað beiti-
skipið logaði allt að framan-
verðu, er flugvélarnar flugu á
brott.
Innflutningiirinn
meiri en útflutn-
ingurinn í janúar
TVÖ NÝ BREZK ORUSTU-
SKIP AÐ VERÐA TILBÚIN.
Samkvæmt upplýsingum,
sem United Press fékk í Lond-
on í gær, eru seinustu tvö 35
púsund smálesta orustuskip-
in, sem Bretar eiga í smíðum,
að verða fullbúin, þ. e. her-
skipin Jellicoe og Beatty. —
Hin eru King George V,
i'rince of Wales (sem sökkt
var við Malakkaskaga) og
Duke of York.
Munnurinn 2,4milj.
Innflutningurinn til Iands-
ins í janúar var tæplega ein-
um fimmta hluta meiri en
útflutningur íslenzkra afurða
á sama tíma. Innflutningur-
inn nam urn 15.4 milljónum
króna, en útflutningurinn
nam á sama tíma um 13
milljónum króna.
Þetta er allmikil breyting
frá því í fyrra, en þá var út-
flutningurinn í janúar þre-
faldur að verðmæti móts við
innflutninginn í sama mán-
uði. Þá nam útflutningurinn
18.5 milljónum króna, en
innflutningurinn 6 milljón-
um króna.
Þessi breyting stafar einna
mest af þvi, að ísfisksút-
flutningurinn var mjög mik-
ill í janúar á síðasta ári, en
miklu minni á þessu ári.
Auk þess kemur hér til
greina verðhækkun á allri er-
Iendri vöru, sem inn er flutt,
en hún var ekki orðin eins
mikil í ársbyrjun 1941.
J
Á