Vísir - 21.02.1942, Blaðsíða 3

Vísir - 21.02.1942, Blaðsíða 3
VlSIR Axel Ólafsson stud jur,: Öll íslenzka þjóðin á ein- huga að heimta æðstu menntasetur landsins úr hers höndum. Hásköli Islands er byggður af álmanna fe. Islenzka þjóðin öll hefir réist þessa fögru byggingu. og gefið hana skólaæsku lands- ins til afnota rnn aldur og æfi. Kynslöð okkar héfir hafið sig upp yfir alla meðalmennsku í menntamálum, og sýnt það í verk'inu að hér norður í liöf um býr framsýn og stórliuga menn- ingarþjöð. Þjöð sem verðskuld- ar öskorað athafnafrelsi og sjálfstæði á grundvelli menn- ingaif sinnar. I anddyri Háskól- ans er brjöstlikan af Jóni Sig- urðssyni. Þar skipar óskabarn | þjóðarinnár öndvegi og ininnir æskulýð landsins á að hvika j áldrei i rétfindabaráttu þjóðar- j innar fyrir fullu frelsi og sjálf- stæði. Hann fórnaði öllu lífi sinu í þágu Islands, hann talaði frá hjarta sínu til hjarta þjóðarinn- ar. Þegar hann mótmælti allri erlendri kúgun og áþján þá mót- mælti öll þjóðin. Starf hans var óvenju giftudrjúgt. Honum her að þakka sjálfstæði og fullveldi landsins árið 1918 og loks al- gjört sjálfstæði árið 1940. Hann barðist og mest fyrir stofun Háskóla Islands og þjóðin sjálf liefir með háskólabyggingunni reist frelsishetju sinni óbrot- gjarnan minnisvarða. Háskólinn er þjóðleg bygging og innan veggja hans svífur rammis- lenzkur hugsunarháttur. Við lifum á róstutímum, liringiða örlaganna hefir skolað liér á land herjum tveggja stór- velda, svo nú byggja þrjár þjóðir landið, sem á þessari vig- og vargöld byggir tilveru sína á ævarandi hlutleysi. Aðkomu- menn berjast gegn gjörræðis- fullum andstæðingum og víg- orð þeirra er: Verndun menn- ingar, frelsis og sjálfstæðis smá- þjóðanna. Þetta er bæði fagurt og göfugt markmið og sæmir vel hugprúðum drengjum. Þegar brezki herinn tók menntastofnanir landsins her- námi þá treysti þjóðin því að hér væri aðeins um bráðabirgða- aðgerðir að ræða. En það eru því mikil vonbrigði, þegar Bret- ar þrátt fyrir gefin loforð rýma ekki æðstu menntasetur hennar. Neita meira að segja skýíaust eftir látlaus loforð og ádrátt í nær 2 ár að hverfa úr eina stýd- entaheimili landsins, Garði. Það er frekleg móðgun við sjálfa þjóðina að taka hluta af æðstu menntastofnun landsiris her- námi og hrúga upp ósmekkleg- um braggakumböldum og kömrum á sjálfri liáskólalóð- imii. Okkur finnst hámenning okkar mikill vangi sýndur með aðgjörðum þessum. Eg hygg að Bretum þætti hart að sér gengið, ef þeir væru hernumdir, og er- lent herveldi hefði álíka óliæfu í frammi i hinum víðfrægu há- skólaborgum þeirra, Oxford og Cambridge. Enginn sannur Englendingur myndi þola slíkt með þögn og þolinmæði. Þjóðin öll færi í varnarstöðu og sókn samtimis og mundi ekki linna fjrrr látum en þessum menntastofnunum væri fullur sómi sýndur. Bretar eiga ekki að ganga svo mjög á þennan heilaga rétt hínnar islenzku smáþjóðar. Og þennan átroðning geta þeir að- eins bætt með þvi að afhenda okkur strax menntastofnanir okkar, en ekki með því að neita afdráttarlaust að rýma þær. I húsnæðismálum stúdenta rikir nú hið mesta öngþveiti. Upplýsingarskrifstofa stúdenta reyndi að útvega þeim herbergi hér í bænum í haust í gegnum öfluga auglýsingarstarfsemi, en árangurinn var sáralítill eða nærri enginn, af um 70—80 lier- hergisumsóknum var aðeins hægt að fullnægja 4—5. Allir liinir höfðu hvergi höfði sínu að að lialla. Eitthvað milli 20—30 stúdentum var svo holað niður í sjálfum háskólakjallaranum, en flestir hinna munu hálf hús- villtir í hænum. Aðbúnaður þessi er vægast sagt slæmur og harður aðgöngu og lestrarskil- yrði margra hverra svo fráleit að nærri gengur frágangssök. I háskólakjallaranum hýrast ýmist 8—10 menn saman i ó- vistlegum herbergjum, eður einn og tveir saman í óvistleg- um herbergiskytrum (lik- og krufningarklefum). Margir þessara manna hafa að meira eða minna leyti ofan af fyrir sér með kennslu á dag- inn, og liafa því lielzt tómstund- ir til lesturs á kvöldum. Getur hver og einn sagt sér sjálfur að harla lítið muni vera næði til lesturs í áðurnefndum herbergj- um. Yærðartími er þarna og af- leitur, þar sem lierbergi þessi liggja hvert inn af öðru og því talsvert mikið um ráp. Stúdentar þeir sem dvelja í hænum eru margir hverjir sizt hetur settir. Einn stúdent þekki eg sem sefur í kaldranalegu bað- herbergi og annan sem hvergi fékk hér inni í haust og varð að leigja sér herbergi í Hafnarfirði og sækir fyrirlestra Háskólans þaðan. Þetta eru táknræn dæmi um öngþveiti ]iað sem ríkir í húsnæðismálunum, og lítill vandi er að telja upp önnur hliðstæð. En þessi raunasaga er ekki nema hálfsögð enn. Iþrótta- skylda er lögleidd í háskólanum, og er liún skilyrði fyrir því að menn fái að þreyta háskóla- próf. Heilbrigð sál í hraustum líkama, er nú að verða einkunn- arorð þj óðanna ogstúdentar vilja ekki síður en aðrir að spakmæli þessi verði raunhæf. Á Garði var leikfimissalur, ætlaður háskóla- stúdentum til iþróttaiðkanna. Nú er hann fyrir kórvillu forlag- anna orðiim að sjúkrastofu. Þeir stúdentar, sem inna af hendi íþróttaskyldu, og sækja auk þess fyrirlestra í háskólanum eru á sífelldum hlaupum allan dag- inn milli íþróttahúss Jóns Þor- steinssonar, Sundliallarinnar og svo háskólans. Þessi sifelldu og seigdrepandi hlaup taka frá mönnum nær allan lestrartíma. Stúdentar þyrftu helzt að trítla á hlaupaskóm á milli, ef þeir ættu að fullnægja þessari þjóð- þrifa kvöð. Á Garði var húsakynnum svo háttað að stúdentar gátu komið saman til mannfagnaðar i eigin húsakynnum. Ætlunin var að þeir yrðu sjálfum sér nógir með skemmtanir, og drægju sig því meir út úr samkvæmislífi bæj- arins. Nú er öldin önnur. Glað- værðin á Garði er horfin. Stúd- entar ganga nú þöglir fram hjá honum á leið til mannfagnaða sinna. Og hvert fara þeir? Jú, það er ekki nema ein leið til, og það er háskólakjallarinn. Þessi húsakynni eru auðvitað alls- kostar óhæf til skemmtana. Þrengslin svo afskapleg að menn sitja þar og troða hver ofan á öðrum og þægindi sára lítil. Það er næsta óhugsanlegt að mæta þarna í samkvæmisbúningi og öllu hagkvæmara að setja held- i ur á sig legghlífar og púða til þess að draga úr látlausum á- rekstrum. Eina leiðin sem brezkir um- boðsmenn evgðu út úr ógöng- unum í haust, var sú, að hyggja bragga vfir stúdenta. Tilboð þeirra var að vettugi haft, enda var það mjög óaðgengilegt. Og óhætt mun mér að fullyrða að enginn íslenzkur háskólastúd- ent hefir skriðið inn i bragga til þess að hafa þak yfir höfði sér eftir 2ja ára húsnæðishrak. Það hefir um stundarsakir verið hægt að svipta islenzku þjóðina æðstu menntasetrum hennar, en ekkert vaJd megnar að breyta hinni stórhrotnu skapgerð henn- ar né metnaði. . Bretar koma aldrei á heil- steyptu menningarsambandi milli sín og íslendinga á meðan þeir útliýsa íslenzkum menntamönnum úr lieimkynn- um þeirra. Það verður aldrei gert með orðum einum. Traust menningarsamband milli þjóð- anna á að grundvallast á gagn- kvæmu trausti hæði í orði og á borði. Nú mótmælir þjóðin öll fram- komu hrezkra umboðsmanna í máli þessu. Stúdentar hennar eru í fylkingarbrjósti, eftir ár- angurslaust samningsþóf í nær 2 ór. Hér er um nieriningar- og réttindabaráttu að ræða, og við rnunurn aldrei hvika frá mark- miði okkar sem byggt er á þeirri sjálfsögðu rétlindakröfu, að brezka herstjórnin rými nú þegar Garð og aðrar mennta- stofnanir landsins. Stúdentar látið ekki af forustunni fyrr en íslenzki fáninn blaktir við hún á Garði! Axel Ólafsson. Þorraþræll er í dag, laugardaginn 21. febr. H áskólafyrirlestrar. Annar fyrirlestur dr. Einars Ól. Sveinssonar um Njálssögu fer fram sunnudaginn 22. þ. m. kl. 5.15 í 1. kennslustofu Háskólans. Efni: List sögunnar. Öllum heimill aö- gangur. Prófessor dr. phil. Alexander Jóhannesson flytur fyrirlestur meS skuggamyndum sunnudaginn 22. þ. m. kl. 2 e. h. í hátíSarsal Háskól- ans. Efni: Hvernig læröi frum- maSurinn aS tala? Ollum heimill aögangfur. Silfurbrúðkaup eiga á þriöjudaginn, 24. þ. m., frú Þórveig Árnadóttir og Jó- hannes Jónsson, trésmiSur, Hring- braut 194. Dagsbrúnannenn. Stjórn Dagsbrúnar hefir ákveö- iÖ þá nýbreytni í fundarstarfsemi íélagsins, aö fá framvegis vel þekkta menn til þess aö flytja er- indi á fundum um fræöileg efni. Á framhaldsaöalfundi sínuin á morgun flytur Axel Thorsteinson rithöfundur erindi um þátt Japana i baráttu einræöisþjóöanna. Verka- menn ættu aö styöja þessa ný- breytni i félagsstarfsemi með því að mæta vel á þessum fundi. Auk þess veröa nokkur merk félagsmál tekin til umræöu og afgreiðslu á fundinum. Útvarpið á morgun. 10.00 Morguntónleikar (plötur) : a) Fiölukonsert í d-moll eftir Wi- eniawsky. b) Píanókonsert nr. 2, í f-rnoll eftir Chopin. 14.00 Messa úr Hallgrímssókn (séra Jakob Jónsson). 12.15—tJ-00 Hádegís- útvarp. 15.30—16.30 Miðdegistón- leikar (plötur): Karneval-tónleik- ar. 18.30 Barnatími (Ragnar Jó- hannesson mag.) 19.25 Hljómplöt- ur: Lagaflokkur eftir Dohnanyi. 20.00 Fréttir. 20.20 Erindi: Þjóð- leg verðmæti (Vilhj. Þ. Gíslason). 20.45 Einleikur á fiðlu (Þorvaldur Steingrímsson): a) E. Bams: „Hindoo Lament“, b) Fr. Kreisler:. Libesfreude, c) d’Ambrosio: Can- zonetta, d) Fr. Kreisler: Poupée valsante. 21.05 Takið undir! (Þjóð- kórinn — Páll Isólfsson stjómar). 21,50 Fréttir. Nýkomnar vörur: NÝTT KERAMIK í miklu úrvali. BURSTASETT* mjög smekk- leg. HÁRBURSTAR, margar gerðir. TESETT til ferðalaga, 3 stærðir. Margs konar skrautvarning- ur, svo sem: hringar, næl- ur, manchettuhnappar, púðurdósir o. fl. — Ennfremur höfum við feng- ið aftur • mikið úrval af alls konar LEIKFÖNGUM. Komið — skoðið og kaupið. UliÉor Maoasin Laugavegi 8. 1 fln. .i.i 1 1 1 1 ■■■-■ Húsnæði Mig vantar 2—3 herbergja ihúð 14. maí næstkomandi. Ásgeir Ásgeirsson Sólvallagötu 32 A. K. F. U. M. Á morgun: Kl. 10 f. h. Sunnudagaskólinn — 1% e. h. drengir (úrslit í febrúarkeppninni). — — 5 e. h. Unglingadeildin. — 8V2 e. h. Samkoma. — Pastor Krux og Ingebrigtsen aðstoðarmaður lians tala. — Allir velkomnir. Lausar íbúðir Vil selja nokkur hús með lai^sum íbúðum ef samið er strax. Hagkvæmir greiðslu- skilmálar. Uppl. gefur undir- ritaðúr, kl. 8—10 e. h. Kristján Gíslason Karlagötu 6. Nýtt iðnfyrirtæki óskar eftir 2—3 herbergjum og helst eldhúsí fyrir þrifa- legan iðnað í vor. Há leiga í boði. — Tilhoð sendist Vísi, merkt: „123“. $umar- búitaðnr milli Hafnarfjarðar og Reykjavikur, með eða án húsgagna óskast til leigu til 14. mai eða lengur. Tilboð, merkt: „Ás“ sendist afgr. blaðsins fyrir mánudag. — EGGERT CLAESSEN EINAR ÁSMUNDSSON hæstaréttarmálaflutningsmenn. Skrifstofa í Oddfellowhúsinu (Inngangur um austurdyr). Sími 1171. 1 Iðnfyrirtæki óskar eftir 8'—10 þús. króna rekstursfé. Trygging í vélum fyrir láni. Þagmælska um tilboð. — Tilboð, merkt: „Veð“, sendist Visi fyrir 25. þ. m. Ntorhýii i vesturbæ er til sölu strax. Húsið er vönduð nýbygging. Laus íbúð fylgir. Hagkvæmir greiðsluskilmálar. Uppl. gefur HEILDVERZLUN Guðm. H. Þórðarsonar Sími: 5815. FiaÉÉialliilur Verkamannafélagið „Dagsbrún“ lieldur frarnhaklsaðalfund n. k. sunnudag 22. þ. m. kl. 2 e. h. i Iðnó. FUNDAREFNI: 1. Axel Tliorsteinsson: Þáttur Japana í baráttu ein- ræðisþjóðanna. 2. Ólokin aðalfundarstörf. 3. Félagsmál. Félagar, mætið vel og réttstundis og hafið skírteini með. STJÓRNIN. 10. Nemendamót Verzlunarskóla Islands verður haldið í Iðnó mánudaginn 23. febr. 1942 og hefst kl. 8.30 eftir bádegi. v Aðgöngumiðar seldir í Iðnó frá kl. 1—3 og eftir klukkan 6 á mánudag. Húsið opnað kl. 8 'og lokað kl. 9. Fjölbreytt skemmtiskrá. NEMEND AM ÓI'SNEFN DIN. Sundhöll Reykjavíkur verður lokuð dagafna 23.—28. þ. m. vegna hreingemingar. — Ath. Þeir, sem eiga mánaðarkort eða eru á sundnámskeið- um, fá það bætt, sem fellur úr. SIGLINOAR V milli Bretlands og Islands halda áfram, eins ofí að undanfömu. Höfum 3—á skip í förum. Tilkynningar um vöru- sendingar sendist Cnlliford Clark lm. BRADLEYS CHAMBERS, LONDON STREET, FLEETWOOD. S. T. A. R. | Dansleikur í Iðnó í kvöld. — Hefst kl. 10. Hljómsveit hússins leikur. Aðgöngumiðar í Iðnó með lægra verðinu frá kl. 6. Sími 3191. Ölvuðum mönnum hannaður aðgangur. Aðeins fyrir tslendinga. í ! I 1

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.