Vísir - 10.03.1942, Síða 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
Ritstjóri 1
Blaðamenn Simi:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri S linur
Afgreiðsía
32. ár.
Reykjavík, þriðjudaginn 10. marz 1942.
35. tbl.
PIPE LINI
rncMcnmiejAT
Y3MAMCYACNG
wtmi
SimiCYIN
>IMN
BIVON
i RAriDS
SniAKC -N
BfllttCI
rA-KYOtMINTAl
sáp'iþsX^
(íf WOfitl' l
( Cfit*llsí
niu cnt^tst
AttiA
c»* '
iwrixiiwt'
RANCOO'
fcftlllSin
1hCCFS
Í.Al'lL LINt-TO
Ll/KÁsA HO.AL
MAKTAhANl
)\r (
i;, ncincs ’
noATSiAH.
’fötific //•*/
•I ava að iuesil n á valili
Japana
Vígstöövarnap hjá Rangoon
Hjálpin kom of seint og í of smá-
um stíl, þegar hún loksins kom.
Eiflgrir friðarsamnin^ar vrrða
grerðir við Japani.
Japanar birta sigurfregnir miklar um hertöku
Java. Þeir segja, að her bandamanna hafi gef-
izt upp skilyrðislaust í gær og sé það hið mesta
afrek, sem Japanar hafi unnið, með því að hertaka
Java á 9 dögum. Java sé að vísu ekki mikið eyland um-
máls, en þar búi 47 milljónir manna og landið sé mjög
auðugt að náttúrugæðum, og þar var miðstöð landvarna
llollendinga og bandamanna í Hollenzku Austur-Ind-
ium. Japanar segja að upp undir 100.000 manna lið
hafi gefizt upp á eynni.
Það var játað af hálfu hollenzku rikisstjórnarmnar i London
í gæT, að Bandoeng væri fallin og borgin Sourabaya, en skammt
frá henni er hin fræga flotastöð Hollendinga. Það er tekið fram
í London, að ekkert beint samband sé lengur við Java og því
viti menn Iítið sem ekkert um það, sem þar hefir gerzt. Bent er
á, að Japanar séu í rauninni einir til frásagna, en þegar þeir tali
um skilyrðislausa uppgjöf Hollendinga, liafi það ekki við neitt
að styðjast. Herforingjar bandamanna liafi að vísu fengið fyr-
irskipanir um að framkvæma allt upp á eigin spýtur hér eftir,
hver á sínum stað, eftir því sem hver telur réttast, og verjast í
lengstu lög, en enginn hefir nokkurt umboð eða rétt til þess að
semja um vopnahlé eða frið við Japani, nema hollenzka rikis-
stjórnin í London, og það gerir hún aldrei.
loltsiilto Breía hailn
al (illiiiijraíii.
Stöðugar árásir dag og
nótt.
Drjfi íröflsk herskin
írá Dakar koiii til
Madayascar.
f IÍPHAN I
íRACWARt
CNIV FATMS
THROiiGH
llJNCLt
Bretar yfirgrefa Rangoon. — Barixt
fjrir norðan borgina.
1 gærkveldi barst tilkynning frá brezka landstjóranum í
Burma, Sir Reginald Dorman-Smith, þess efnis, að hersveitir
Breta hefðu yfirgefið Rangoon. Af þessu Ieiðir vitanlega ekki
að mótspyrnunni verði hætt í Burma. — Áframhald er á bar-
dögum og er nú barizt fyrir norðan Rangoon. — Áðnr en brezku
hersveitimar yfirgáfu Rangoon (þ. 7. marz) var allt eyðilagt,
sem óvinunum mátti að gagni koma. Þeir komu að mannlausri
og eyðilagðri borg, segir í fregn frá Mandalay.
Bretar hafa skipt um yfirherstjórn í Burma og heitir sá Alex-
ander, sem við hefir tekið af Hutton jrfirhershöfðingja. — Alex-
ander er 51 árs og talinn einhver snarráðasti og duglegasti
brezkra herforingja. Hann gat sér mikið orð í Flandem og fór
seinastur manna frá Dunkirk.
Filipseyjar
Homma framdi
§jálf§morð.
McArthur hefir skýrt frá því,
að Homma, hershöfðingi Japana
á Luzoney, liafi framið sjálfs-
morð (með kviðristu), vegna
þess að honum tókst ekki að
inna af höndum það hlutverk,
sem honum hafði verið falið, þ.
e. að uppræta her McArthurs.
Sjálfsmorðið framdi hann 26.
febrúar. Þessu liafa Japanar
neitað opinberlega, en McArthur
hefir svarað með því, að Yama-
sliita hershöfðingi, sem stjórn-
aði sókninni á Malakkaskaga,
liafi nú tekið að sér það Mut-
verk, sem Homma misheppn-
aðist.
Amerfskir kafbátar
athafnasamir.
Fregn frá Washington herm-
ir, að amerískir kafbátar hafi
verið allathafnasamir að undan-
förnu. I vikunni sem leið
sökktu þeir japönskum tundur-
spilli og japönsku olíuflutninga-
skipi, og einnig hafa þær hæft
tundurskeytum flugvélastöðvar-
skip og 3 beitiskip, og eru þessi
4 herskip að minnsta kosti ó-
nothæf sem stendur.
Ktng lotaforingl U.S.A.
fær meira vald en nokk-
nr amerisknr flotafor-
ingi til þessa.
Bandaríkjastjórn hefir til-
kynnt hinar mikilvægustu
breytingar ó flotastjórninni, i
því augnamiði, að sem minnstar
tafir séu á framkvæmdum flota-
foringjanna.
King flotaforingi hefir nú
fengið nærri ótakmarkað vald
til framkvæmda á Kyrrahafi og
liefir hann meira vald en nokk-
ur amerískur flotaforingi hefir
haft til þessa, en Stark Hotafor-
ingi ielcur sér bækistöð í Lon-
don, og fær einnig aukið vald til
framkVæmda. Ilann hefir svip-
aða aðstöðu og Sims flotafor-
ir.gi hafði í heimsstyrjöldinni.
Loftsókn sú, sem Sinclair
flugmálaráðhen-a, boðaði fyrir
nokkuru, er nú liáð af fullum
krafti dag og nótt. Forleikur að
þessari sókn var árásin á Ren-
ault-verksmiðjurnar. 1 fyrradag
var gerð mikil árás á flutninga-
bílaverksmiðjur norðvestur af
París og varð þar mikið tjón,
en manntjón ekki, segir í Vichy-
fregnum, þótt Þjóðverjar telji
manntjón mikið. Ái-ásir voru
einnig gerðar á orkuver og járn-
brautarstöðvar við Lille og Ah-
beville, en í fyrrinótt var gerð
feikna hörð loftárás á Essen í
Þýzkalandi og fleiri borgir i
Ruhr, ennfremur á Ostend og
Le Havre og margar flugstöðv-
ar Þjóðverja í Frakklandi og
hernumdu löndunum. 1 Essen
taldi einn flugmaður mikla elda
á yfir 20 stöðum. Árásin var
engu minni en sú á Renault-
verksmiðjurnar. I gær voru
gerðar árásir nálægt Bethune i
Frakklandi og skyndiárásir víða
í Norður-Frakklandi, en i nótt
voru brezkar flugvélar í árásar-
leiðangri yfir meginlandinu. 1
fyrrinótt misstu Bretar 8
spengjuflugvélar, en einnig
misstu þeir 4 orustuflugvélar i
leiðangrinum til Frakklands og
skutu niður álíica margar
Messerschmittflugvélar.
Bretar hafa notað svonefndar
Douglas-Boston sprengjuflug-
vélar í árásum sínum til Frakk-
lands seinustu dægur, en þær
eru af amerískri gerð og flytja
meira sprengjumagn en Blen-
heimsprengjuflugvélarnar, sem
þeir hafa notað í Frakklands-
ferðum að undanförnu.
Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt.
Munið fundinn í Kaupþingssaln-
um í kvöld kl. 8)4. Allar sjálfstæðis-
konur velkomnar.
Þjóðverjar vilja ekki að
Japanar fái fótfestu þar.
í fregn, sem birt var í Banda-
ríkjunum í gær, var frá því
sagt, að þrjú frönsk herskip
hefðu lagt af stað frá Dakar í
Vestur-Afríku fyrir nokkuru til
Madagascar. Að undanförnu
hafa verið á kreiki ýmsar fregn-
ir um það, að Vichystjórnin ætl-
aði að veita Japönum sömu fríð-
indi á Madagascar og í Franska
Indokína, en eftir Ameríku-
fregnunum að dæma, hefir þetta
ekki við rök að styðjast, þar sem
talið er, að Hitler hafi beitt sér
gegn þessu, þar sem hann telji
Madagascar utan við áhrifsvæði
Japana.
........ i \ .... ■ " 11 ..
ítalir i augum
Þjóðverja.
í þýzku hernaðartímariti,
sem fannst á hermanni í Li-
byu, var eftirfarandi klausa:
ítölsk hernaðartilkynning:
Á vígstöðvunum í Norður-
Afríku réðist ítalskur her-
mannaflokkur á einn fjand-
mannahermann á reiðhjóli og
neyddi hann til að fara af
baki.
Eftir langan og harðan bar-
dlaga tókst þeim að hleypa
vindinum úr hjólunuum.
Framhjólið var eyðilagt og
gera má ráð fyrir, að aftur-
hjólið hafi hlotið sömu örlög.
Stýrið er í vorum höndum,
en barizt er ennþá heiftarlega
um grindina.
Bágstadda ekkjan.
Kr. ío,oo frá N. M., kr. io,oo
frá I. Z.
KOSNINGAPISTLAR
að er dæmalaust vesældar-
legt, Jregar Tímamenn eru
að fjargviðrast yfir þvi að nafn
Jónasar Jónssonar hefir verið
dregið inn í útvarpsumræðurn-
ar af því hann hefði verið fjar-
verandi.
Jónas Jónsson er fuUtrúi
Framsóknar í bæjarstjórn fram
að kosningum. Hann er for-
maður i næststærsta stjórn-
málaflokki landsins. Hann fcefir
haft sig meira frammi á opin-
berum vettvangi en nokkur
annar núlifandi maður hér á
landi. Þegar svo slendur á er
erfitt að halda þvi fram, að
fjarvera frá ræðusal skapi slik-
um manni friðhelgi um nafn
sitt.
Y firleitt má segja að ekkerl
eigi síður við um Jonas
Jónsson en að Iiann sé „fjarver-
andi“. Þvi liann hefir verið með
nefið niðri í öllu, stóru og smáu,
seinasta aldarfjórðunginn og
vel það. En hvaða tillit hefii’
Jónas tekið til fjarveru manna,
og það ekki bara slundarfjar-
veru frá ræðusal? Hann hefir
t. d. látið sig h'afa það, að fara
miður vingjarnlegum orðum
Um ýmsa látna förystumenn
Sjálfstæðisflokksins, svo sem
Jón heitin Magnússon og Jón
heitinn Þorláksson.
Slikur maður ætti að hafa vit
á því, að vera ekki að bera upp
kveinstafi, þótt minnzt sé á hann
„fjarverandi“, úr þvi að hann
getur aldrei stillt sig um og sletta
sér fram i hvað eina sem fyrir
ber í þjóðlífinu, hvort sem hon-
um kemur það nokkurn skap-
aðan lilut við eða ekki.
JJkkert mál er andstöðuflokk-
um sjálfstæðismanna eins
erfitt og hitaveitan. Og af því að
samvizkan er jafn kámug og
raun er á, reyna þeir að snúa.
athyglinni frá sér, með því að
gera hróp að sjálfstæðismönn-
um fyrir svik og undandrátt i
málinu.
örfá atriði nægja til þess að
sýna hvernig flokkarnir hafa
staðið að málinu. Sumarið 1933
ber þáverandi borgarstjóri, Jón
heitinn Þorláksson fram tilíögu
i bæjarstjórn um kaup á hita-
svæðinu á Reykjum. Allir and-
stæðingar sjálfstæðismanna
greiddu atkvæði gegn málinu
með nafnakalli. Þessi atkvæða-
greiðsla er staðfest með eigin-
handar undirskrift allra bæjar-
fulltrúanna.
N æst má nefna það, að til
þess að\ drepa hitaveitu-
málinu á dreif, var verið með
allskonar bollaleggingar um
rannsókn á hverum og hita-
svæðum upp um öll fjöll og
firnindi.
Þá er þess að geta, að innT
flutningnr var tafinn á nauð-
synlegum jarðbor til hitaveit-
unnar.
Loks verður því ekki gleymt,
hvernig þvi vat tekið, er loks
ræltisl fram m iHálinu, eftir að
sjálfslæðismenn komu í ríkis-
stjórnina vorið 1939. 1 því sam-
bandi nægir áð m'inna á það, að
Jónas Jónsson léí svo um mælt,
að hitaveitusamningurinn væri
„versta plággið*", sem til ís-
lands hefði koíhið.
er haldið fram, að hita-
veitnnni I«efíi verið borgið,
ef Pétur helfttjo Halldórsson
liefði beðið Hemann Jónasson
og samherja Jhans ásjár. Það
yæri. gott. að lá nákvæmlega
skýrí, hvað við er átt með þess-
ari kenningn. Þyi annars gæti
mönnum vel kovnið til hugar,
að ekki hefði verið allt með
felldu um aðstpðu fyrrverandi
stjórnarflokka íii málsins.
Pétur Halldórsson hafði fasí
loforð um láu fii hitaveitunnar.
Það strandaði á því að Eng-
landsbanki skarvit i leikinn og
kom í veg.fyriir* að fé yrði lán-
að nr landi. Hverju hefði
Reykjavik vetið bættari, þótt
fyrrverandi stjórnarflokkar
hefði verið beðnir ásjár?
gkömmu eflir að hitaveitu-
lánið vár sfoðvað, reyndi þá-
verandi ríkisstjóm fyrir sér í
nokkurum löndum um lán til
sinna þarfa, eu hafði ekkert
upp úr krafstrinum. Var líklegra
að þáverandi lildsstjórn hefði
frekar bjargað Reykjavikurbæ
en sjálfri sér?
Sannleikurjrm er sá, að fjár-
liagur ríkisins var um þessar
mundir, eftir áratugs nálega
óslitið stjój narsamstarf Alþýðu-
flokksins og Framsóknar
kominn i slíkt öngþveiti, að það
virðist hafa verið laukrétt hjá
Jónasi Jónssyni, að ekki væri
von, að nokkur i'jármálamaður
vildi hætta hingað lánsfé „að
óbreyttum" krhigunistæðum“.
Svoná' er sagá hitaveitunnar
í mjög stórunj dráttum. Ætli
það sé ekki meh i „dirfska“ hjá
einhverjum öðrum en Sjálf-
stæðisflokknum að halda uppi
umræðum Um þetta mál.
TT vei’jiig skyldi standa á þvi, að
enginn hinna þríggja flokka
sem keppa við.sjálfstæðismenn
um völdin i hænum, liefir verka-
marjn neinsstaðar nálægt ör-
uggu sajti á lísta sínum. Þeir
eiga allir samuierkt um það, að
vilja útiloka. . verkamenn frá
beinuxn, áhrifnip, á gang bæjar-
málanna.
Sjálfstæðisflokliurinn, sem
andstæðingaripi’ segja, að ekki
sé annað en flokkur „hinna
ríku“, „atvin,nui’,ekendaklika“ o.
s. frv.,, hefir verkamann i ör-
uggu sæti. Hinir flokkarnir vilja
vera forsjá verkmanna, án þess
að kveðja. þá sjálfa til ráða.
Sjálfstæðisflokkurinn hefir sýnt
hug sinn i þessum efnum með
þyi að tryggja ,verkamanni ör-
uggt sæti.
Kjósandi.
D-LISTIWH er listi