Vísir - 10.03.1942, Qupperneq 2
V 1 S I H
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIIt H.F.
Ritstjóri: Kristján Guðlaugsson
Skrifst.: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12
(Gengið inn frá Ingólfsstræti)
Símar 1 660 (5 línur).
Verð kr. 3,00 á mánuði.
Lausasala 15 og 25 aurar.
Félagsprentsraiðjan h.f.
Gamla sagan
AÐ hefir svo sern koraið fyr-
ir áður, að heilsufari „í-
haldsins" hafi yerið dapurlega
lýst. Tíminn hefir oft sagt, að
nú væri flokkurinn alveg að
gefa upp öndina og Alþýðublað-
ið hefir glatt lesejidur sina með
samskonar fræðsla. Nú i morg-
un kemur konmt'únistairlaðið og
þykist hafa þreifað á slagæð „í-
haidsins“. Og það er ekki um
lað villast: „Ihafdíð er að veslast
npp.“
Líklega er þá rélí að óska
þessum þrem ftokkum ínnilega
til hamingju: Alþýðuflokknum,
Framsóknarfloldcnum og sósíal-
isíaflokknum (sameiningar-
íflokki alþýðu), fyrst með dauða
„ihaldsins“ og svo hverjum með
annan. En fyrir því eru þessar
hamingjuóskir bomar fram nú
í dag, að ekki er alveg vist, að
ástæða verði tit þess eftir næstu
helgi. Enginn amast við því, að
þessir þremenningar dansi í
kringum „lík“ fallins andstæð-
íngs fram til sunnudags. En
raunar er það ekkí fyrr en þá,
sem ur því verður skorið, hver
3,síðast hlær“.
*
Sjálfstæðisflokkurinn hefir
aldrei horizt míkíð á. En ef yf-
irlætið væri styrkleikamerki og
látleysið veikleíkamerki, er hætt
við að oft væri farið mannavilt.
Það hefir reynzt: svo í sögu okk-
ar, bæði að fornu og nýju, að
(Oft hefir lítið or'ðið úr spjátr-
ungunum, þegar á hólminn hef-
3r komið. I allri baráttu er auð-
vitað nauðsynlegt að hafa trú
á sjálfum sér. Eh það er ekki
síður nauðsynlegt að kunna að
meta styrk andstæðingsips rétt.
Við þessar ko/jii.ingar er sjálf-
stæðismönnum )>að full-ljóst,
að andstæðingarnir muni leggja
sig meira fram au nokkru sinni
fyrr til þess að vinna höfuðvígi
sjálfstæðisstefmmnar. Það hefir
:aldrei verið tíl jafn rnikils að
’vinna og nú. Dndanfarín miss-
»eri hefir veri'ð óvenjulegt góð-
æri í efnalegu íilíítí. Borgarár
hæjarins liafa „gengið svo vel
undan“ að reífið hefir aldrei
verið girnilegra i augum rún-
ingsmanna. Hagur einstaklinga
<og bæjarfélag.'i stendur með
imiklum blóma.
Á slikum tímum er margföld
•ástæða til þesíi að neyta allra
bragða til að leggja Sjálfstæðis-
flokkinn að vetti. Áhrifamesti
kennifaðir þeirra flokka þriggja
sem að honum sækja hefír sagt,
að sjálfstæðismetm mættu vel
fara með völd, þegar illa áraði.
En það var nauösynlegt að aðr-
ir kæmu til skjalanna, þegar
hatnaði í ári. Engum blöðum er
um það að fletta, að samkvæmt
fþessari kenningu eru skilyrðin
itil myndunar „góðærisstjórnar“
fyrir hendi. ög það er einmitt
þetta, sem fyrir andstæðingun-
um -vakir: „Góðærisstjórn“ í
bæjarmálefnum Reykjavikur,
•skipuð kommúmstum, Alþýðu-
flokksmönnum og Tímamönn-
aim.
*
Ef menn leggja eyrun við því,
sem frá þessum flokkum heyr-
ist um þessar mundir, dylst eng-
um, að þeir syngja allir sama
lagið: Sjálfstæðisflokkurinn er
kyrrstæður, liugsjónasnauðurog
illviljaður öllum nema fáeinum
auðmönnum! Allt er betra en
íhaldið! Lifi samfylkingin!
Þetta er söngurinn. Það er al-
veg sama livort það eru hinir
„borgaralegu“ Tímamenn, hinir
rótlæku Alþýðuflokksmenn, eða
hinir byltingasinnuðu kommún-
istar. Þeir syngja allir einum
rómi.
En þeir lifa lengst, sem, með
orðum eru vegnir, segir gamalt
mál. Þeim er guðvelkomið þess-
um mönnum, að telja sér trú
um, að Sjálfstæðisflokkurinn sé
að „veslast upp“, sé í andarslitr-
unum, eða alveg dauður.
Á sunnudaginn kemur verð-
ur úr öllu þessu skorið. Þá sýn-
ir það sig livort Sjálfstæðis-
flokkurmn er eins illa á vegi
staddur og andstæðingarnir
vilja vera láta. Það er ekkert
nýtt, að þeir liafi spáð flokkn-
um dauða og tortímingu. Sú
saga hefir endurtekið sig um
hverjar kosningar hér í bænum.
En alltaf liefir Sjálfstæðisflokk-
urinn sigrað. Þess vegna er lík-
lega réttara að bíða með „dán-
arvottorðið“ fram yfir næstu
helgi.
a
liiiflutiiiiiuríni 0,2 iii.
kr. meiri en ðlini-
Uji.
Innstæður ©riendis
nema rúmum 156
miilj. kr.
£ mánuðinum, sem Ieið, nam
innflutningur erlendra afurða
15.0 milijónum króna, en út-
flutningurinn nam á sama tíma
14.8 milljónum króna.
í febrúar í fyrra nam inn-
flutningurinn 8.3 milljónum, en
útflutningurinn nam i þeim
mánuði 18.5 milljóniím kr.
Inneignir í erlendum bönkum
náiriu 156.6 millj. Hafa þær þá
ininnkað um 8.6 milljónir frá
í lok desember.
Seðlaveltan nam 49.9 millj.
kr. í janúar, en það er 1.1 millj.
minna en í desember. Þá hafði
hún aukizt uin 5.2 millj. frá nóv-
émber.
Innlög námu 224.3 milljónum
kr. í janúariok og höfðu aukizt
um 2.7 millj. frá áramótum.
VERZLUNIN >41:
Eldsneyti og ljósmeti
stærsti vöruflokkurinn
í nýútkomnum Hagtíðindum
er innflutt vara á síðasta ári
flokkuð niður. Eru flokkarnir
48 og „ósundurliðað“ (þótt ekk-
ert hafi verið flutt inn af 3
þeirra) og nema 31 þeirra meiru
en einni milljón króna.
Haesti flokkurinn að krónu-
tali er eldsneytis- og ljósmetis-
flokkurinn (kol og olíur), en
innflutningur þéirra vara nam
16 inilljónum króna og tveim
þúsundum betur. Imiflutningur-
inu í þessum flokki nam 175
þús. kr. minna en á árinu þar á
undan. Hefir innflutningurinn
minnkað í tveim flokkum öðr-
um frá árinu 1940, en aukizt í
öllum öðrum flokkum.
Næsthæstur varð álnavöru-
flokkurinn og nam innflutning-
ur í honum samtals 15.308 þús.
kr. Hefh* hann aukizt um næst-
um 9 milljónir króna, úr 6.4
milljónum.
Fatnaður úr vefnaði (hattar)
o. þ. 1.) er í þriðja flokki, þar
sem innflutningur nam 7564
þús. kr. Innflutningur í þessum
flokki hefir nærri sexfaldazt (úr
1290 þús.) og hefir í engum.
HITAVEITM:
Vatni hleypt í bæjarkerfið
áður en kuldar byrja næsta
haust----ef óviðráðanleg
atvik tefja ekki.
Frá vestnrför erindreka Eæjariiii.
eir Tómas Jónsson, borgan'itari, og Valgeir Björas-
* son, bæjarverkfræðingur, komu heim í lok síð-
ustu viku eftir nokkura dvöl vestan hafs. Fóru þeir
sem kunnugt er vestur til þess að semja um og festa
kaup á efni til Hitaveitunnar. Með þeim fór Kai Lang-
vad, verkfræðingur hjá Höjgaard & Sehultz, en hann
kom heim nokkuð á undan þeim.
Vísir hafði tal af þeim Tóm-
asi og Valgeiri í gær og spurði
þá um för þeirra og árangur
hennar.
„Byrjað var að afhenda efni,
sem við höfðum fest kaup á, áð-
ur en við fórum frá New York,
þ. 19. fyrra mánaðar,“ sögðu
þeir, „en ætlunin er að 2800—
3000 smálestir verði tilbúnar
til affermingar upp pr 15. þessa
mánaðar, en allt efnið, sem
keypt var nemur 4500 smálest-
um. Megnið af þeim 1500—
1700 smál., sem ekki verða til-
búnar í marz, eiga að vera til
um miðbik aprílmánaðar, en
því, sem þá verður eftir, verður
dreift á ýms skip, þ. e. ekki
fengin sérstök skip með það,
eins og hitt.
í því fyrsta, sem tilhúið verð-
ur, eiga að vera 1100 smálestir
af pípum, 1000 smálestir af
sementi og ýmislegt fleira, þar
á meðal þenslustykki, ventlár,
smááhöld og þessháttar.
Verður vinna hafin bæði við
aðalleiðsluna frá Reykjum til
Öskjuhliðar og við kerfið inn-
anbæjar ef hægt verður. Er svo
lil ætlazt, að í fyrsta skipsfarm-
inum, verði allar pipurnar, sem
þarf í aðra aðalleiðsluna frá
Reykjum. Voru komnir nokkur
hundruð metrar af þessari
leiðslu, þegar flutningar teppt-
ust frá Danmörku.
Ef nægilegur fjöldi manna
fæst í þessa vinnu og engar taf-
ir verða af völdum flutninga-
teppu o. s. frv. eru mjög góðar
vonir um að hægt verði að
hleypa heita vatninu í bæjar-
kerfið næsta haust áður en
vetrarkuldar byrja.“
Þá voru og fest kaup á nýj-
um sorpflutningabílum fyrir
hæinn. Voru keyptir kassar á
fjóra bíla, en bílarnir sjálfir
verða keyptir með milligöngu
Bifreiðaeinkasölunnar, og er
forstjóri hennar, Sveinn Ingv-
arsson, nú vestan hafs.
Útbúnaður hinna nýju sorp-
flutningahíla er þannig, að ekki
þarf að klifra upp á þá, heldur
er sorpinu helt aftan í þá, en
þeir moka því sjálfir upp. Ekki
flokki orðið jafnmikii aukning
tiltölulega.
Fjórði er trjávöruflokkurinn.
Þar nam innflutningurinn 7435
þús. kr., móts við 3197 þús. kr.
árið 1940.
Munir úr ódýrum málmum,
og ýmislegt annað er í fimmta
flokknum. Innflutningur á
þeim nam 6.322 þús. kr., jókst
um 3737 þús. kr. frá 1940.
I sjötta hæsta flokkinum og
þeim síðasta, sem er yfir fimm
milljónum, eru óunnin og lítt
unnin jarðefni, svo sem salt, se-
ment o. s. frv. í þessum, flokki
nam innflutningurinn 5236 þús.
kr., 1766 þús. kr. meira en árið
1940.
tókst að fá alveg sömu stærð og
bæjarverkfræðingur hafði
helzt augastað á, heldur nokkru
minni og var hún kevpt, þvi að
langur tími hefði liðið þangað
til hin stærðin hefði orðið til, ef
liún hefði þá verið fáanleg yfir-
leitt.
Þá festi bæjarverkfræðingur
og kaup á nýjum grjótmuln-
ingsvélum og sandtökuvél, eins
og áður hefir verið skýrt frá hér
í blaðinu. Eru þær mikil fram-
för frá þeim vélum, sem nú eru
hér í notkun.
X
Steingrímur Jónsson, raf-
magnsstjóri, fór «innig vestur
um liaf um sama leyti og þeir
borgarritari og bæjarverkfræð-
ingur, en hann er enn ókominn
heim. Varð hann að leggjast í
sjúkrahús í Chicago og var þar
gerður skurður í hálsinn á lion-
um, en hann losnaði úr
sjúkrahúsinu nokkuru eftir
miðjan síðasta mánuð.
Steingrímur fór í erindum
Rafmagnsveitu Reykjavikur
vegna fyrirhugaðra kaupa á
túrbínu og öðru tilheyrandi til
aukningar Sogsvirkjunarinnar.
Fékk Steingrímur lilboð, sem
hann mun liafa samþykkt eftir
að hann kom úr sjúkrahúsinu.
En túrbínan getur ekki verið til-
búin frá liendi verksmiðjunnar
fyrr en á næsta ári — í marz-
Hitaveitnrannidknir
Aknreyrarbæjar.
Borun hjá Laugalandi í Hörgárdal.
Reykvíkingar fylgjast af skiljanlegum áhuga með öllu, sem
gerist í hitaveitumálum bæjarins, en þeir munu ekki allir
vita, að nú fara fram á Akureyri samskonar rannsóknir á mögu-
leikum til að hita þann bæ og hér hafa farið fram. — Blaðið
„íslendingur“ á Akureyri hefir skýrt allítarlega frá þessu og
er hér á eftir stuðst við frásögn þess blaðs.
Sumarið 1940 var byrjað að
bora fyrir heitu vatni í Glerár-
gili. Hafði dr. Trausti Einarsson
athugað líklegustu staðina í ná-
grenni bæjarins skömmu áður,
og taldi hann 3 staði koma til
greina, sem liklegir mættu telj-
ast í því skyni. Það voru Gler-
árgil, Laugaland á Þelamörk og
Reykhús í Eyjafirði, og mælti
hann einkum með tveim síðar-
nefndu stöðunum.
Sumarið 1940 var borun hafin
í Glerárgili, enda var hitaveita
þaðan skemmst og ódýrust, ef
nægilegt magn fengizt þar af
hæfilega heitu vatni. Þær athug-
anir gáfust ekki vel, svo að í jan.
1941 hafði ekki fengizt nema
30° hiti. Varð þá nokkurt lilé
á rannsóknum. En með vorinu
rannsakaði dr. Trausti jarðhita-
svæðið á Laugalandi í Hörgár-
dal nánar og taldi lílkur til, að
þar mundi mega fá heitast vatn,
ef borað væri eftir þvi. Dró hann
ályktun þá meðal annars af því,
að á Laugalandi finnst allmikið
hverahrúður, sem ekki er telj-
andi í Reykhúsum.
Á fundi hitaveitunefndar 22.
ág. s.l. lagði nefndin til, að bæj-
arstjórn heimili henni að hefja
borun ef tir heitu vatni að Lauga-
landi í Hörgárdal. Var það sam-
þykkt af bæjarstjórn og síðan
fenginn að láni hjá ríkinu stærri
jarðbor en notaður hafði verið
áður. Getur hann borað 500—
600 m. djúpar holur. Siðan var
Gustav Jónasson vélavörður
fenginn til að stjórna verkinu,
en hann hafði nokkra æfingu í
því áður. Var verkið síðan haf-
ið snemma í vetur. Þegar þetta
er ritað er borhola sú, sem byrj-
að er á, aðeins orðin 25,5 metra
djúp, en hitinn 65,5°. Vatns-
magn um 2 lítrar á sekúndu. Til
samanburðar má geta þess, að
úr 66 metra djúpri holu i Gler-
árgili fékkst aðeins 30° þeitt
vatn. Verður að telja árangur
þann góðan, sem þegar er feng-
inn á Laugalandi, þar sem jarð-
borun er svo stutt á veg komin.
En þó er engan veginn fyrir séð,
hvort þar verður fáanlegt nógu
mikið magn af nógu lieitu vatni,
til þes að komið verði upp full-
kominni hitaveitu fyrir Akur-
eyri.-
Kvcnfélag: Hall-
gfrímsióknar.
sunnudaginn var stofnað
Kvenfélag Hallgrímssóknar með
á 3. hundrað stofnfélögum.
Þessar konur voru kosnar í
stjórn félagsins:
Frú Guðrún Jóhannsdóttir frá
Brautarholti formaður, og með-
stjórnendur: Emilía Sighvats-
dóttir, Jónína Guðmundsdóttir,
Lára Pálmadótir, Anna Ágústs-
dóttir og prestkonurnar Magnea
Þorkelsdóttir og Þóra Einars-
dóttir.
Endurskoðendur Guðrún Ry-
den og Aðalheiður Þorkelsdóttir.
Nefnd sjö kvenna sér um við-
skipti félagsins við blöð og út-
varp. Þessar konur eru i þeirri
nefnd: Guðrún Guðlaugsdóttir,
Elinborg Lárusdóttir, Soffía
Ingvarsdótir, Aðalbjörg Sigurð-
ardóttir, Margrét Jónsdóttir,
Guðrún Stefánsdóttir frá Fagra-
skógi og Filippía Kristjánsdótt-
ir.
Frú Guðrún Ryden gaf félag-
inu þúsund króna minningar-
gjöf um foreldra sína og tvær
konur greiddu hundrað krónur
hvor í inntökugjald.
Nýtt kvennablað,
5.—6. tbl. 2. árg. er nýkomið út.
Flytur það fjölda ritgerða um ýms
mál, er konur varða, kvæði og sög-
ur eftir konur og ýmislegan fróð-
leik. Það er mjög vandað til blaðsins
að vanda, prýtt myndum og prentað
á góðan pappír.
Kristján Eggertsson.
frá Dalsmynni sjötugur.
Kristján er fæddur í Skógum
1 Kolbeinsstaðahreppi 10. rnarz
1872 og fluttist þaðan með for-
eldrum sínum, Eggerti Eggerts-
syni og Þorbjörgu Kjartansdótt-
ur, að Mið-Görðum í sama
hreppi 1875.
í æsku starfaði liann sleitu-
laust að búskapnum með föður
sinum, hinum dugmikla fram-
faramanni, sem var um margt
! á undan sinni samtíð. Starfs-
gleði, reglusemi og hjálpfýsi
voru einkenni þessa heimilis og
hefir Kristján alla þessa kosti í
ríkum mæli.
Kristján kvæntist ágætri
konu, Guðnýu Guðnadóttur, 15.
sept. 1896, en þá um vorið höfðu
þau reist bú i Mýrdal i Kolbeins-
staðahreppi og hjuggu þar í þrjú
ár, en fluttust vorið 1899 að
Dalsmynni í Eyjahreppi og
bjuggu þar ágætu búi til 1923
er þau fluttu liingað til Reykja-
víkur.
Jafnframt þv| sem Kristján
stundaði búskapinn með forsjá
og kappi, varð liann að gegna
öllum þeini trúnaðarstörfum,
sem sveitarfélag kýs menn til.
í sóknarnefnd var liann öll ár-
in, sem hann bjó i Dalsmynni,
hreppsnefndaroddviti frá 1905
-—1923 o. m. fl. Kristján stund-
aði öll störf með alúð og dugn-
aði. Sýndi það sig, að sveitung-
ar hans höfðu valið rétta mann-
inn í fyrstu og var aldrei álitið,
að hægt væri að skipta um til
hins betra. 1 liöndum hans var
öllum störfum vel borgið.
Síðan Ki-istján fluttist til
Reykjavíkur, hefir hann starfað
sem aðalafgreiðslumaður við
hina umfangsniiklu heildverzl-
un sonar síns, Eggerts stór-
kaupmanns, og starfar þar enn
sem ungur væri.
En svo gott sem það er að
kynnast Kristjáni i störfum,
hans út á við, er þó bezt að koma
heim til þeirra hjóna. Það er
ekki aðeins, að þau hafi reist
skála um þjóðbraut þvera, hvar
sem þau hafa búið, þar sem öll-
um er heimill matur, eins og
sagt er um eina fornkonu, held-
ur gera þau hina glöðu glaðari
og leysa vanda sérhvers, er til
þeirra leitar. Þa'ðan fer liver og
einn betri en hann kom.
Kristján hefir kynnzt þvi i
starfi sínu sem verzlunarmað-
ur, að ekki er leyfður innflutn-
ingur á eplum. En þegar maður
sér þau hjónin, þá verður manni
að hugsa, að gyðjan forna, Ið-
unn, hafi þrátt fyrir öll inn-
flutningshöft gætt þeim á ódá-
inseplunum, er hún varðveitir
og miðlar ástvinum sinum af.
I dag mun verða gestkvæmt
hjá Kristjáni og Guðnýu á heim-
ili þeirra Grettisgötu 56 A. Er
margt, sem þarf að þakka þeim
hjónum, og er það mjög rómað
méðal gamalla sveitunga, hvað
Kristján hefir verið óþreytandi
að greiða fram úr ýmsum mál-
um þeirra eftir að hann flutti
úr héraðinu. Kemur í öllu fram
tryggð hans við átthagana og
þá, sem þar búa. Vonum við,
vinir hans, að njóta sem lengst
samvista við þau hjón.
B. K.