Vísir - 12.03.1942, Page 1
Ritstjóri:
Kristján Guðlaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
Ritstjórl 1
Blaðamenn Síml:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 Ifnur
Afgreiðsla
32. ár.
Reykjavík, fimmtudaginn 12. marz 1942.
37. tbl.
Rtssar brjitast i gegn
á Kaliainvlgstðflvannm.
50,000 Þjóðverjar fallnir í 4 vikna bardögum
EINKASKEYTI frá United Press. London i morgun.
Rússnseska herstjórnin birti aukatilkynningu í gærkveldi þess
efnis, að hersveitir hennar hefðu brotizt í gegnum hin ramgerðu
virki Þjóðverja á Kalininvígstöðvunum. Virki þessi voru talin
svo öflug, að vart mundi auðið að brjótast þar í gegn, en Rússar
fikuðu sig áfram, og færðu fallbyssur sínar nær og nær, og
skutu á virkin úr aðeins 600 metra fjarlægð og eyðilögðu þau
bannig hvert af öðru. — Hitler sjálfur heimsótti þessi virki
fyrir skemmstu og skipaði svo fyrir, að koma yrði í veg fyrir
hvað sém það kostaði, að Rússar brytust þar í gegn.
Á timabilinu frá 5. febr. til 8. marz, meðan aðalbardagarnir
stóðu þarna, féllu um 50.000 Þjóðverjar, en Rússar náðu á sitt
vald aftur 160 byggðarlögum. Þjóðverjar urðu fyrir gríðarlegu
bergagnatjóni, misstu t. d. um 200 flugvélar og 80 skriðdreka
og margt annað.
FRAKKAR SENDA HERLIÐ
TIL MADAGASCAR.
Fregnir hafa borizt um, að
Vichy-stjórnin sé að senda
herlið til Madagascar.
Er þetta talið benda til, að
Frakkar ætli að spyrna gegn
öllum áformum Japana um
að ná fótfestu á Madagascar,
eri ýmsar fregnir hafa borizt
um það að undanförnu, að
Japanar hefðu slík áform í
huga.
KOSNINGAPISTLAR
m
r.
I rússneskum fregnum er
bent á það, að frá því í desem-
ber hafi Rússar náð svo miklu
af hergögnum frá Þjóðverjum,
að nægi til að búa heilan her að
vopnilm,. Rússar segjast t. d.
bafa í notkun um 50.000 her-
flutningabíla, sem allir voru
teknir frá Þjóðverjum. Rússar
segjast nú fá hergagnabirgðir í
stórum stíl, i fyrsta lagi úr her-
gagnaverksmiðjum Rússlands
og Siberiu, í öðru lagi frá
Bandaríkjunum, i þriðja lagi frá
Bretlandi — og í fjórða lagi frá
Þýzkalandi, og muni það eins
dæmi, að styrjaldar-andstæðing-
ar hafi lagt til hergögn og bíla
Iianda þjóðinni, sem barizt er
við.
1 fregnum frá Rússlandi er nú
talið, að Þjóðverjar kunni að
freista að hefja sókn til Lenin-
grad að norðanverðu frá, en
Finnar eru sagðir tregir eða
jafnvel hafa neitað að taka þátt
í slíkri sókn. Á Finnlandsvig-
stöðvunum bafa ekki orðið
miklar breytingar. Finnar liafa
ekki unnið á i seinni tíð, en þeir
liafa að minnsta kosti víðast
baldið þeim stöðvum, sem þeir
böfðu tekið. Fiskimannaskagi
er stöðugt á valdi Rússa. Þjóð-
verjum. hefir ekkert orðið á-
gengt í loftárásum á Murmansk.
Loftvarnir borgarinnar virðast
mjög sterkar.
| Þá var sagt frá því í fregnum
frá Rússlandi í morgun, að
Rússar hefðu brotizt í gegnum
j virki Þjóðverja norðan Vyazma
j -Smolenskvegarins fræga.
í Rússar þjarma stöðugt meir
að 16. þýzka hernum. Er hann
farinn að skorta vistir. Þjóð-
verjar segja, ajð veðurs vegna
bafi þeir elcki getað komið
birgðum loftleiðis, en geta ekki
um að Rússar hafi skotið niður
fjölda margar herflutningaflug-
vélar fyrir þeim.
Bylting' yHrvoftmdi í
Brazilin.
Forsetinn fœr vald til að lýsa yfir
styrjaldarástaudi.
Japanski sendiherrann raunverulega í haldi.
Fregnir frá Brazilíu herma, að horfurnar þar séu hin-
ar ískyggilegustu. Óttast stjórnin, að undirróðursmenn
og erindrekar inöndulveldanna muni grípa til ofbeldis-
ráðstafana og hefir stjórnin varað alla útlendinga við
afleiðingum þess, að vinna gegn stjórn landsins. For-
setinn hefir fengið vald til þess að lýsa yfir styrjaldar-
ástandi og beita hernum til þess að bæla niður uppreist-
artilraunir og mótþróa. — Húsrannsókn hefir verið
gerð í skrifstofum japanska sendihen'ans og er hann
raunverulega í haldi. — Er hér um gagnráðstafanir að
ræða, vegna framkomu Japana gegn sendiherra Brazi-
líu í Tokio.
Mikil ólga er um gervalla
Braziliu og er þjóðin sárgröm
yfir kafbátaárásunum á brazil-
isk skip að undanförnu. Eins og
getið var í fregnum í gær, hefir
5000 smálesta brazilisku skipi
verið sökkt og nú berast fregn-
ir um, að ekkert hafi spurzt til
3600 smálésta brazilisks skips,
sem var á leið lieim til Brazilíu
frá Bandaríkjunum.
Seinustu fregnir berma, að
53 skipverja og 4 farþega sé enn
saknað af skipinu Cebu, sem
sökkt var fyrirvaralaust undan
Brazilíuströndum. Um 30
manns björguðust. —- Fregnir
frá Chile herma, að’strangl eft-
irlit sé nú með öllum Japönum
þar í landi, jafnvel japönskum
bændum.
Allar upplýsingar
varðandi bæjárstjórnarkosning-
arnar á sunnudaginn kemur, geta
menn fengið með því að snúa sér
til kosningaskrifstofunnar í Varðar-
húsinu, símar 2339 og 1133.
Nýjar, brezkar tundur-
skeytaflugvélar gera ,
árás á orustuskipið
Tirpitz.
!
Það var frá því sagt í frétt- * 1
um i morgun, að það hefðu ver-
ið tundurskeytaflugvélar af nýj-
ustu gerð, sem gerðu árásina á
Tirpitz, nýjasta orustuskip
Þjóðverja (systurskip Bis-
marcks, er sökkt var), en frá
þessari árás var fyrst sagt í gær-
kveldi. Tirpitz er talinn vera
35.000 smál., en eins og menn
muna var það álit brezkra sjó- j
liðsforingja, sem tóku þátt i or-
ustunni við Bismarck, að hann
væri stærri en tilkynnt hafði
verið.
Alexander flotamálaráðherra
skýrði eirimitt frá því í gær í
fyrsta sinn, að flotinn hefði tek-
ið í notkun nýja og fullkomn-
ari gerð tundurskeytaflugvéla,
sem stgnda í öllu langt framar
Sverðfiskunum, sem kunnastar
hafa verið af tundurskeytaflug-
vélum flotans. Munu það hafa
verið hinar nýju tundurskeyta-
flugvélar, sem gerðu árásina á
Tirpitz.
Það varð kunnugt fyrir nokk-
uru, að Tirpitz var kominn til
Þrándheims. Fyrir skemstu lét
hann úr höfn norður á bóginn,
vafalaust til árása á skipalestir
á leið til Rússlands, en brezkar
flugvélar á sveimi yfir Noregs-
ströndum urðu lians varar á
mánudag síðastliðinn, og gerðu
árás á hann, og sást það seinast
til Tirpitz, að hann hélt undan
til Noregsstranda hulinn mikl-
um reykjarmekki. Bretar misstu
tvær flugvélar i árásinni, en
skilyrði voru ekki fyrir hendi
til þess að segja með neinni
vissu um skemmdir á herskip-
inu.
Hrun yfirvofandi í bæjum og’
byggðum, ef dýrtíðinni verður
ekki haldið í skef jum.
Roosevelt sagði í ræðu í fyrra-
dag: Bandaríkjamenn búa sig
undir það af eins miklum hraða
og auðið er, að taka þátt í hern-
aðaraðgerðum á hinum ýmsu
vígstöðvum, og Bandaríkjalið er
komið til sumrsv þeirra. Verka-
menn í verksmiðjum og námum
vinna dag og nótt að kalla, til
þess að framleiða vopn og ann-
að, sem til hernaðar þarf. — í
ræðu þessari varaði Roosévelt
við hættu þeirri, sem stafar af
verðbólgu. Ef verðlag heldur á-
fram að hækka verða afleiðing-
arnar hinar hættulegustu fyrir
þjóðina. Stríðskostnaðurinn
eykst og ríkisskuldirnar, tálm-
anir verða lagðar á braut vora
á leið að sigurmarkinu, og fyrir-
sjáanlegt hrun síðar jafnt fyrir
verkamenn og aðra, sem í borg-
um starfa, sem og bændur
landsins.
V •
Samkvæmt seinustu fregnum
hafa bandamenn lokið öllum
undirbúiiingi til að spyma gegri
áformum Japana að ná fótfestu
í Ástralíu og ennfremur gegn
væntanlegum tilraunum þeirra
til þess að treysta aðstöðu sína
við Indlandshaf. — Japanar
nálgast riú Port Moresby á Nýju
Guineu. Sókn þeirra í Nýju
Guineu er talin forleikur að inn-
rás í Ástralíu.
Brezkir hermálasérfræðingar
láta í Ijós þá skoðun, þótt nauð-
synlegt sé að vera vel á verði,
að Japanar geti vart hafið sókn á
Indlaridshafi, fyrr en þeir hafa
gert flotastöðin í Singpore not-
hæfa, og flutt þrigað flota or-
ustuskipa.
FRETTIR
í STUTTU MÁLI.
Churchill tilkynnti í neðri
málstofunni í gær, að Sir Staff-
ord Cripps færi til Indlands til
þess að ræða fyrir hönd brezku
stjórnarinnar hinar nýju tillög-
ur bennar í Indlandsmálum. —
Sir Stafford bauðst til þess að
fara til Indlands. — Indverskir
leiðtogar fagna yfir því, að Sir
Stafford var falið þetta blut-
verk. — í fjarveru bans verður
Eden formælandi rikisstjórnar-
innar i neðri málstofunni.
Ástralskar og ameriskar flug-
vélar halda uppi árásum á her-
flutningaskip Japana við Nýju
Guineu. í seinustu árásum var
tveimur skipum sökkt, eldur
kviknaði i fjórum og einu var
rent á land, en tvö urðu auk
fyrrtaldra fyrir sprengjum.
í Burma búast brezkar her-
sveitir til varnar við Prome-veg-
inn.
Ástralska stjórnin hefir fyrir-
skipað, að slátra skuh öllurn,
stórgripum, í héruðum, sem
kurina að verða fyrir innrás.
Mikill fjöldi Hollendinga er
kominn til Ástralíu frá Java til
þess að halda áfram styrjöldinni
gegn Japönum. Winant hefir
sagt Roosevelt, að Churchill sé
fastari í sessi en nokkuru sinni.
I Bandarikjunum er verið að
koma upp 8 miklum hergagna-
verksmiðjum. Áætlaður kostn-
aður 65 millj. dollara.
Bandarikin hafa tekið til
sinna nota ítalska skipið Conte
Grande, 23.681 smál., og þýzkt
skip, 16.662 smál. (Windue).
Joseph W. Stilhvel herforingi,
U. S. Á., hefir verið skipaður
berráðsforseti i Kína, undir yf-
irstjórn Chiangs Kai-sheks. —
Ilann var yfirmaður þriðja
ameríska hersins í Kaliforniu.
Alþýðuflokkurinn hefir tek-
ið sér tvennt fyrir hendur
í þessari kosningabarátlu. Ann-
að er það að gera Stefán Jóhann
að mikilmenni. Hitt að gera
hann að píslarvotti. Ilvort-
tveggja vonlaust verk.
Stefán Jóhann á að vera mik-
ilmenni fyrir það, að hann
mundi allt í einu eftir launa-
stéttunum um áramótin, í ná-
lega þrjú ár hafði hann gleymt
þessum óskabörnum sínum og
yfirlýstu skjólstæðingum. Stef-
án „mikilmenni“ mundi eftir
launastéttunum um áramótin,
af því að hann þurfti á fylgi
þeirra að hulda við bæjarstjórn-
arkosningarnar. Það var allt og
og sumt. Alþýðuflokkuriun hef-
ir fyr reynt að duhba upp á
ýmsa brodda sina með allskon-
ar kúnstum og nafngiftum.
Einn var útnefndur „heiðurs-
. slúdent“. Annar ólærður var
i
, gerður að prófessor, og er síð-
an kallaður „gerfi-])rófessor“.
Það er vel til að útnefning Stef-
áns Jólianns til mikilmennis
j endi með því að bann verði kall-
, aður „gerfi-mikilmenni“.
i
i
Og svo var ])að píslarvættið.
Það er fólgið í því, að önn-
i ur blöð skyldu fá að leggja orð ]
I í belg, áður en kjósendur felldu |
dóm sinn. Það er kannske vert
að minnast þess, að þegar fyrsta '
„AIþýðublaðið“ kom út eftir
áramótin, var lálið svo heita, t
að blaðið ætti bara að flytja
lesendum sínum fréttir. Það
átti ekki að vei’a pólitiskt.
Hvernig stóð á þessu?
Svarið getur ekki verið annað
en það, að aðstandendum blaðs-
ins var ljóst, að það væri brot
á „réttum Ieikreglum“ að blaðið
færi með pólitískan áróður,
þegar engir voru til andsvara.
En brátt forhertust þessir
menn og heimtuðu „í nafni lýð-
ræðisins“(!!) að fá að tala ein-
ir. Þegar þeir komust ekki upp
með það tóku þeir að væla og
veina yfir því livað væri níðst
á þeim. Stefán píslarvottur er
þekktur úr kirkjusögunni.
Nafna hans Jóhann langaði í
sömu nafnbótina. En þetta á
ekki af lionum að ganga. Hann
varð bara „gerfi-píslarvottur".
Hann liefir aldrei verið annað
en „gerfi-vinur“ launastéttanna.
Já, það er sitt livað „gerfi“ og
atgerfi.
Merkilegt má það heita, að
Alþýðublaðið skuli ekki
hafa tekið undir við Harald
Guðmundsson um kauphækk-
unarvísdóminn, sem hann flutti
í útvarpið um daginn. Það er
eitthvað svo huggunarríkt fyrir
launastéttirnar að fá að vita, að
22% krónulækkun, sem bann-
að er að bæta meira en að %
sé „lögboðin kauphækkun“. Al-
þýðuflokkurinn á meira en fyr-
ir þvi, að launastéttirnar þakki
honum fyrir gengislækkunina.
Þær hafa víst gleymt því fram
að þessu.
En það skyldi þó aldrei vera,
að einliver sé farinn að klóra sér
í höfðinu yfir þvi, að liafa Ijóst-
að upp þessum mikla liagfræði-
lega leyndardómi. Kannske Har-
aldur geti sagt eins og barna-
fræðarinn við strákinn, sem rak
liann á stampinn: „Öllum kenn-
urum getur nú oiðið á.“
Timinn lætur sig hafa það, að
gefa i sk>m að Pétur heitinn
Halldórsson hafi farið með
„prettvísi“, þegar hann til-
kynnti blaðamönnum fyrir síð-
ustu bæjarstjórnarkosningai’,
áð lán til hitaveitunnar væri
fengið i Englandi. Þótt ekki væri
búið að skýra gang þessa máls
eins rækilega og gert hofir ver-
ið mun engumykunnugum til
hugar koma að Pétur Halldórs-
son hafi farið með prettyisi í
því, né nokkuru öðru ináli.
Fáeinum dögum áður en þess-
ar dylgjur eru bornar fram, er
forsætisráðherra að fjargviðr-
ast yfir þvi, að nokkuð hafiverið
óvingjarnlega vikið að bæjar-
fulltrúa Framsóknar Jónasi
Jónssyni, að honum fjárvcrandi.
Er ekki þetta tímamennskan í
sinni réttu mynd? Saknæmt að
taka ofan í við Jónas, af þvi að
hann er ekki viðstaddur til taf-
arlausra andsvara. En ósak-
næmt að dylgja um „prettvísi“
Péturs Halldórssonai’, sem horf-
inri er sjónum okkar fyrir
nokkurum mísseruin. Það kem-
ur sér vel að Tímamenn hafa
alltaf, þegar böndin berast að
þeim, á takteinum sama klass-
iska svarið: „Það er alls ekki
sambærilegt“.
r
T morgun mælti eg kunningja
mínum á götu. Hann sagði:’
„Hvernig stendur á, að Tíma-
menn eru ekki ennþá komnir
fram með stórlygina sína“? Eg
hváði. „Jú, þessa venjulegu
Stórlygi, sem þeir finria upp um
allar kosningar.“ Þá áttaði eg
mig.
Þegar Jón Þorláksson hafði
rétt við fjárliag rikisins, lækkað
skuldirnar, aukið eignirnar,
skorið niður kostnaðinn og
minnkað álögurnar, sögðu
Tímamenn, að Jón hefði steypt
fjárhagnum i voða. Þetta var
fyrir þingkosningarnar 1927.
Þá varð til orðtakið: „með lyg-
um skal land vinna.“
Fyrir bæjarstjórnarkosning-
arnar 1930 var Knut Zimsen
borið á brýn að liafa stohð
milljón úr bæjarsjóði — einni
milljón króna. Við bæjarstjórn-
arkosningar nokkurum árum
siðar átti Jón Þorláksson að
bafa eiti’að drykkjarvatn bæjar-
búa. Svona laug Framsókn fag-
lega, meðan hún hafði hárið.
Nú heyrist ekkert nema smá-
skreytni. Og mönnum erívarla
farið að standa á sama um
heilsufar maddömunnar. „Hann
er dauður, ef hann missir hóst-
ann,“ sagði maður, sem var að
hjúkra sjúklingi. Hvernig færi
fyrir Framsókn, ef liún „missti
lygina?“ Þetta er farið að verða
mönnum áhyggjuefni.
Kjósandi.
Sjálfstæðismenn,
sem verða fjarverandi á kjördag,
eru áminntir um að kjósa hjá lög-
manni í Arnarhváli áður en þeir
fara úr bænum.
D-l/ISTIMM er liisti N|áif§tæði§flokkiim§